DROPS Super Sale - 30% AFSLÁTTUR á 6 garntegundum í allan júní!
Product image DROPS Bomull-Lin yarn
DROPS Bomull-Lin
53% Bómull, 47% Hör
frá 792.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10296.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS AW2425
Velja stærð:
DROPS 159-2

#laceaffairjacket

DROPS Design: Mynstur nr l-131
Garnflokkur C eða A + A
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS BOMULL-LIN frá Garnstudio
650-700-750-850-950-1000 gr litur nr 03, ljós beige
Eða notið:
DROPS PARIS frá Garnstudio
700-800-850-950-1050-1150 gr litur nr 26, dökk beige

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 5,5 – eða þá stærð sem þarf til að 16 l og 20 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 4,5 – fyrir garðaprjón.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Bomull-Lin
DROPS Bomull-Lin
53% Bómull, 47% Hör
frá 792.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10296.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

LEIÐBEININGAR:
Kantlykkjur að framan koma til með að rúllast inn á við þegar þær eru prjónaðar, en þær rétta úr sér og liggja flatar eftir frágang.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn (þ.e.a.s. prjónað er aftan í lykkjubogann í stað framan) til að koma í veg fyrir göt.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið laust upp 185-201-211-235-251-265 l á hringprjóna nr 4,5 með Bomull-Lin eða Paris. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan.
Skiptið yfir á hringprjóna nr 5,5 og prjónið næstu umf (= rétta) þannig: 2 l l sléttprjón, 1 l br og sléttprjón yfir næstu 26-28-27-27-26-24 l (= kantur að framan), prjónið A.1A (= 4 l), A.1B (= 6 l) alls 20-22-24-28-31-34 sinnum, A.1C (= 3 l), prjónið sléttprjón yfir næstu 26-28-27-27-26-24 l, 1 l br og 2 l sléttprjón (= kantur að framan). Haldið svona áfram – LESIÐ LEIÐBEININGAR og ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist ca 46-47-48-49-50-51 cm setjið 2 prjónamerki 54-58-60-67-71-75 l inn frá hvorri hlið (= 77-85-91-101-109-115 l á milli prjónamerkja á bakstykki). Í næstu umf eru felldar af 3-4-5-6-7-8 fyrir handveg hvoru megin við hvort prjónamerki (= 6-8-10-12-14-16 l felldar af á hvorri hlið). Nú er stykkinu skipt og hvor hluti er nú prjónaður til loka fyrir sig.

BAKSTYKKI:
= 71-77-81-89-95-99 l. Haldið áfram með mynstur eins og áður með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm. Fellið nú af miðju 21-23-23-25-25-27 l fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið nú af 1 l í næstu umf frá hálsmáli = 24-26-28-31-34-35 l eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 62-64-66-68-70-72 cm.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
= 51-54-55-61-64-67 l. Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni við handveg og haldið áfram með mynstur eins og áður, endið svo með 26-27-27-27-27-24 l sléttprjón, 1 l br og 2 l sléttprjón (= kantlykkjur að framan) við miðju að framan þar til stykkið mælist 62-64-66-68-70-72 cm. Í byrjun á næstu umf frá réttu eru felldar af fyrstu 24-26-28-31-34-36 l fyrir öxl = 27-28-27-30-30-31 l eftir fyrir kraga. Prjónið garðaprjón yfir þessar l – JAFNFRAMT eru prjónaðar stuttar umf með byrjun frá röngu þannig: * Prjónið 2 umf garðaprjón yfir allar l. Í næstu umf frá röngu eru prjónaðar 21-22-21-24-24-25 l sl, snúið við og prjónið sl til baka *, endurtakið frá *-* þar til stykkið mælist ca 9-10-10-10½-10½-11 cm frá þeim stað sem fellt var af fyrir öxl (skammhlið). Fellið laust af allar lykkjur.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Prjónið á sama hátt og vinstra framstykki, nema gagnstætt. Stuttu umferðir á kraga byrja frá réttu.

ERMI:
Stykkið er prjónað fram og til baka.
Fitjið laust upp 35-37-39-39-41-43 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna nr 4,5 með Bomull-Lin eða Paris. Prjónið 4 umf garðaprjón. Skiptið yfir á hringprjóna nr 5,5 og prjónið næstu umf (= rétta) þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 1-2-0-0-1-2 l sléttprjón, prjónið A.1A (= 4 l), A.1B yfir næstu 24-24-30-30-30-30 l (= 4-4-5-5-5-5 sinnum), A.1C (= 3 l), 1-2-0-0-1-2 l sléttprjón, endið á 1 kantlykkju í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 8 cm er aukið út um 1 l innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið – LESIÐ ÚTAUKNING að ofan, útauknu l eru prjónaðar inn í mynstur jafnóðum. Endurtakið útaukningu með 4½-4-3½-3-2½-2½ cm millibili 8-9-10-11-12-13 sinnum til viðbótar = 53-57-61-63-67-71 l. Þegar stykkið mælist 45-44-43-40-39-37 cm setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á ermi (fyrir frágang). Fellið laust af allar l þegar stykkið mælist 47-46-46-44-43-42 cm (styttri mál í stærri stærðum vegna breiðari axla).

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma og saumið ermar í yst í lykkjubogann. Saumið ermasauma í eitt innan við 1 kantlykkju – ATH: Sú eining sem prjónuð var eftir prjónamerki efst á ermi á að passa inn í úrtöku fyrir handveg. Saumið saman kant að framan við miðju að aftan og saumið niður kant að framan við hálsmál – ATH: Saumurinn á að vera á bakhlið svo að hann sjáist ekki þegar kraginn er brotinn niður. Strauið létt yfir kant að framan, þá leggst saumurinn niður og verður flatur.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 12.09.2016
ERMI:... Endurtakið útaukningu með 4½-4-3½-3-2½-2½ cm millibili 8-9-10-11-12-13 sinnum til viðbótar = 53-57-61-63-67-71 l.

Mynstur

sl frá réttu, br frá röngu = sl frá réttu, br frá röngu
2 l slétt saman = 2 l slétt saman
takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir = takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir = takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir
sláið uppá prjóninn á milli 2 l = sláið uppá prjóninn á milli 2 l
Diagram for DROPS 159-2
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 159-2

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (106)

country flag Josée skrifaði:

Est-ce que vous pouvez m'expliquer comment faire les rangs raccourcis. Merci

02.06.2025 - 11:46

DROPS Design svaraði:

Bonjour Josée, volontiers, pour tricoter les rangs raccourcis du devant gauche (1er devant indiqué), vous allez tricoter ainsi, en commençant sur l'envers: *tricotez 21 à 25 mailles (cf taille) - laissez les autres mailles non tricotées sur l'aiguille gauche, tournez et tricotez ces mailles sur l'endroit, tournez, tricotez toutes les mailles sur l'envers, tournez et tricotez toutes les mailles sur l'endroit*, répétez ces 4 rangs jusqu'à ce que le col mesure 9 à 11 cm côté le plus court. Retrouvez ici en vidéo un exemple de rangs raccourcis au point mousse. Bon tricot!

02.06.2025 - 13:13

country flag Sommer Claudia skrifaði:

Nun habe ich es verstanden

01.06.2025 - 18:01

country flag Sommer Claudia skrifaði:

Li. u. re. Vorderteil 27 M für den Kragen.\r\nBei dem Diagramm sieht es aus als müsste man die ersten R gerade hoch str. Und dann erst mit den verkürzten R anfangen.....Übersehe ich etwas......Bitte um Hilfe

01.06.2025 - 15:28

DROPS Design svaraði:

Liebe Frau Sommer, wenn die Maschen für die Schulter abgekettet sind, dann strickt man nur noch die Maschen für den Kragen, und zwar mit verkürzten Reihen, damit die Äusserste Seite länger als die innere Seite (die am Halsausschnitt hinten genäht wird) ist. Viel Spaß beim Stricken!

02.06.2025 - 08:22

country flag Josée skrifaði:

Bonjour je suis rendue à faire les rangs raccourcis malheureusement je ne comprends pas comment les faire. Pouvez-vous m’expliquer comment procéder pour la grandeur (xxl) Merci

31.05.2025 - 23:34

DROPS Design svaraði:

Bonjour Josée, les rangs raccourcis sont tricotés pour le col pour que la partie extérieure du col soit plus large que le côté intérieur (qui sera ensuite cousu le long de l'encolure), autrement dit, pour le devant droit, commencez les rangs raccourcis sur l'endroit et pour le devant gauche. Bon tricot!

02.06.2025 - 08:11

country flag Jannette Selig skrifaði:

Ich habe meinen Fehler gefunden. Ich wollte A1A auch immer wieder stricken. Es wird ja nur A1B immer wiederholt.

06.05.2025 - 05:58

country flag Jannette Selig skrifaði:

Ich stricke in Größe M und soll 201 Maschen aufnehmen. Zu Anfang dann 28 M glatt rechts + 2 M rechts + 1 M links = 31 Maschen.Am Ende nochmals das gleiche.Ich soll aber auch 22 mal das Diagram A1A und A1B stricken.Das wären ja nochmals 220 Maschen.Am Ende kommt A1C nur einmal?Dann bleiben davor 6 Maschen übrig.Was mache ich falsch?Also 31 Maschen zu beginn,dann 22 mal die Diagramme A1A und A1B und am Ende 34 Maschen = 3 Maschen A1C und dann die 28 glatt rechts plus 1 Masche links, 2 rechts.

05.05.2025 - 19:59

DROPS Design svaraði:

Liebe Frau Selig, so sollen Sie stricken: 2 M glattrechts, 1 M glattlinks, 28 M Glattrechts, dann stricken Sie die 4 Maschen A.1A, dann wiederholen Sie 22 Mal die 6 Maschen A.1B, dann stricken Sie die 3 Maschen A.1C und endlich 28 M glattrechts, 1 M glattlinks, 2 M Glattrechts = 2+1+28+4+(22x6)+3+28+1+2=201 M. Viel Spaß beim Stricken!

06.05.2025 - 09:32

country flag Gristel skrifaði:

Tere, kas oleks võimalik veidike rohkem lahti seletada juhendit? Sooviks teha kehaosa, kuid ei saa aru kas algus on alt või kaela osa juurest? Lugupidamisega

19.07.2024 - 18:25

DROPS Design svaraði:

Tere Gristel! Jakk kootakse alt üles. Lisasin selgituse juhendi algusesse. Head kudumist!

08.08.2024 - 19:02

country flag Angela skrifaði:

Según el patrón de la Manga, hay que repetir los aum cada 4½-4-3½-3-2½-2½ cm 8-9-10-11-12-13-13 vcs más = 53-56-59-63-67-69 pts No coinciden los puntos resultantes tras los aumentos y debe haber un número repetido en lo referente al número de veces que hay que hacer los aumentos. Hay alguna corrección del patrón?

25.06.2024 - 21:44

country flag Loronda skrifaði:

Where is the link to the video that shows how to work row 7?

25.06.2024 - 02:20

DROPS Design svaraði:

Dear Loronda, see video below - on 7th round, the last 2 sts in A is worked with the first stitch B, the yarn over is then the new first stitch of B; work be until 2 sts remain, make the yarn over, and work these 2 sts together with the first stitch next B / C, the yarn over is now the first stitch in next repeat B / in C. Happy knitting!

25.06.2024 - 09:09

country flag Loronda skrifaði:

I am trying to follow the chart but it results in decreases in the total stitches. It is also confusing. Do the YO go in A,B, or C when they are on the line. Also, as noted there does not seem to be enough YO stitches to compensate for the K2tog etc. Do you have this chart written out? That would be helpful.

24.06.2024 - 21:59

DROPS Design svaraði:

Dear Loronda, in this video we show how to work such a lace pattern (symbols are a bit different but pattern is the same). It should help you reading diagrams and yarn overs (you will just have to repeat the B part of diagrams). Do not hesitate to add markers between each repeat in width so that you can always check your number of stitches. Happy knitting!

25.06.2024 - 08:53