DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4928.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Sunny Stride

Prjónuð peysa úr DROPS Paris með röndum og tölum á baki, hægt að snúa við og hneppa að framan. Stærð S- XXXL

DROPS 159-3
DROPS Design: Mynstur nr w-549
Garnflokkur C eða A + A
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS PARIS frá Garnstudio
700-750-850-950-1000-1100 gr litur nr 14, skærgulur

DROPS HRINGPRJÓNN (60 cm) NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 l og 22 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS PERLUTALA: Bogalaga (hvít), NR 522: 6 stk í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4928.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA:
Fækkið lykkjum innan við 4 l garðaprjón við hálsmál. Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið lykkjum á undan 4 l garðaprjón og 2 l þannig: 2 l slétt saman.
Fækkið lykkjum á eftir 4 l garðaprjón: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 l í hvorri hlið með því að prjóna 2 l í eina l innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.

HNAPPAGAT:
Fellt er af fyrir hnappagötum í vinstra bakstykki frá réttu. 1 hnappagat = prjónið þriðju og fjórðu l frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
STÆRÐ S: 13, 22, 28, 35, 44 og 50 cm.
STÆRÐ M: 13, 22, 28, 35, 44 og 52 cm.
STÆRÐ L: 13, 22, 28, 35, 44 og 53 cm.
STÆRÐ XL: 14, 21, 23, 38, 48 og 55 cm
STÆRÐ XXL: 14, 21, 23, 38, 48 og 56 cm
STÆRÐ XXXL: 14, 21, 23, 38, 48 og 58 cm

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PESYA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna í hlutum og saumað saman í lokin. Hægt er að snúa peysunni við og hneppa henni að framan.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 86-92-98-108-118-128 l á hringprjóna nr 5 með Paris. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN fram og til baka – sjá útskýringu að ofan. Haldið áfram í sléttprjóni innan við 3 l garðaprjón í hvorri hlið þar til stykkið mælist 12-12-12-13-13-13 cm. Í næstu 2 umf er fitjuð upp 1 ný l í lok umf (klauf endar hér), JAFNFRAMT er fækkað um 16-16-16-18-22-22 l jafnt yfir í 1. umf frá réttu = 72-78-84-92-98-108 l. Prjónið A.1 með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið (kantlykkja í hvorri hlið heldur áfram til loka). Þegar stykkið mælist alls 23-23-23-25-25-25 cm prjónið nú 2 umf sléttprjón, JAFNFRAMT er aukið út um 16-16-16-18-22-22 l jafnt yfir = 88-94-100-110-120-130 l. Haldið áfram í garðaprjón yfir allar l þar til stykkið mælist 34-34-34-37-37-37 cm. Prjónið nú sléttprjón. Þegar stykkið mælist 41-42-43-44-45-46 cm fellið af 2-3-3-5-5-5 l í byrjun á 2 næstu umf fyrir handveg = 84-88-94-100-110-120 l. Haldið áfram í sléttprjóni innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 45-45-45-49-49-49 cm haldið áfram með A.1. Þegar stykkið mælist 50-52-53-55-56-58 cm prjónið garðaprjón yfir miðju 26-26-28-28-30-30 l. Þegar prjónaðar hafa verið 4 umf garðaprjón yfir þessar l eru felldar af miðju 18-18-20-20-22-22 l laust af frá réttu. Nú eru 4 l fyrir hálsmáli í hvorri hlið. Prjónið nú hvora öxl til loka fyrir sig. Í næstu umf frá réttu er felld af 1 l innan við 4 l garðaprjón við hálsmál – LESIÐ ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku í hverri umf frá réttu 5 sinnum til viðbótar = 27-29-31-34-38-43 l fyrir öxl. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 55-55-55-61-61-61 cm prjónið 2 umf sléttprjón yfir mynstur A.1. Prjónið síðan garðaprjón til loka. Fellið laust af þegar stykkið mælist alls 61-63-65-67-69-71 cm.

VINSTRA BAKSTYKKI:
Fitjið upp 48-51-54-58-64-69 l á hringprjóna nr 5 með Paris. Prjónið 4 umf garðaprjón. Prjónið nú þannig: 5 kantlykkjur í garðaprjóni, sléttprjón þar til 3 l eru eftir, 3 l garðaprjón. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 12-12-12-13-13-13 cm. Prjónið 2 umf sléttprjón, JAFNFRAMT í umf frá réttu er fækkað um 7-8-7-9-11-12 l jafnt yfir og fitjuð er upp 1 ný l í lok umf = 42-44-48-50-54-58 l. Munið eftir HNAPPAGAT! Haldið áfram með A.1 innan við 5 kantlykkjur í garðaprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hlið (kantlykkja heldur áfram til loka). Þegar stykkið mælist 23-23-23-25-25-25 cm prjónið 2 umf sléttprjón, JAFNFRAMT í 1. umf frá réttu eru auknar út 7-8-7-9-11-12 l jafnt yfir = 49-52-55-59-65-70 l. Haldið síðan áfram með rendur eins og á framstykki. JAFNFRAMT fellt af fyrir handveg og hálsmáli þannig: Þegar stykkið mælist 41-42-43-44-45-46 cm fellið af 2-3-3-5-5-5 l í byrjun á næstu umf frá röngu fyrir handveg = 47-49-52-54-60-65 l. Þegar stykkið mælist 50-52-53-55-56-58 cm prjónið nú garðaprjón yfir fyrstu 18-18-19-19-20-20 l. Þegar prjónaðar hafa verið 4 umf garðaprjón yfir þessar l eru felldar af fyrstu 14-14-15-15-16-16 l laust af frá réttu. Nú eru 4 l fyrir kant á hálsi. Í næstu umf frá réttu er felld af 1 l innan við 4 l í garðaprjóni við hálsmál – LESIÐ ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku í hverri umf frá réttu 5 sinnum til viðbótar = 27-29-31-33-38-43 l fyrir öxl. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 55-55-55-61-61-61 cm prjónið 2 umf sléttprjón yfir mynstur A.1. Prjónið nú garðaprjón til loka. Fellið laust af þegar stykkið mælist alls 61-63-65-67-69-71 cm.

HÆGRA BAKSTYKKI:
Prjónið á sama hátt og vinstra bakstykki nema spegilmynd. Þ.e.a.s. prjónið nú eftir 4 umf garðaprjón í byrjun á stykki þannig: 3 l garðaprjón, sléttprjón þar til 5 l eru eftir, 5 kantlykkjur í garðaprjóni. Fellið ekki af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. Þegar l eru felldar af fyrir handveg, fellið af l í byrjun umf frá réttu. Þegar fellt er af fyrir hálsmáli eru felldar af fyrstu 14-14-15-15-16-16 l frá röngu.

ERMI:
Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjóna.
Fitjið upp 34-36-38-40-42-42 l (meðtalin 1 kantlykkja í garðaprjóni í hvorri hlið) á hringprjóna nr 5 með Paris. Prjónið garðaprjón fram og til baka. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 11-11-11-12-10-8 cm, prjónið nú mynstur og aukið JAFNFRAMT út þannig:
MYNSTUR:
Haldið síðan áfram í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 22-22-22-24-22-20 cm prjónið A.1 innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið, JAFNFRAMT í fyrstu umf eru felldar af 2-4-4-4-4-6 l jafnt yfir. Þegar A.1 hefur verið prjónað í 11-11-11-12-12-12 cm prjónið 2 umf sléttprjón, JAFNFRAMT í 1. umf frá réttu eru auknar út 2-4-4-4-4-6 l jafnt yfir. Haldið nú áfram í garðaprjón til loka.
ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 l innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið – LESIÐ ÚTAUKNING!
Endurtakið útaukningu í hvorri hlið með 1½-1-1-1-1-1 cm millibili alls
18-19-19-20-21-23 sinnum = 70-74-76-80-84-88 l. Þegar stykkið mælist 42-42-41-41-39-37 cm fellið laust af. Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma með lykkjuspori. Saumið ermar í við fram- og bakstykki. Saumið sauma undir ermum og hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni niður að klauf (= þar sem 1 l var fitjuð upp, 12-12-12-13-13-13 cm frá uppfitjunarkanti). Saumið tölur í hægri kant.

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = 2 l slétt saman, sláið uppá prjóninn
symbols = sláið uppá prjóninn, takið 1 l óprónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 159-3

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (38)

country flag Lucia wrote:

Buongiorno, nel davanti, "a 45 cm. proseguire seguendo il diagramma A1" non occorre diminuire alcune maglie come fatto in precedenza quando si passa al punto traforato? Grazie!

02.06.2021 - 16:14

DROPS Design answered:

Buonasera Lucia, a 45 cm deve proseguire lavorando A.1 come indicato. Buon lavoro!

02.06.2021 - 20:47

country flag Michelle Foster wrote:

I completed this beautiful jumper. However, the shoulders do not stay on the shoulder. They drop right off the arms which is very disappointing. The arms are very baggy which i was able to adjust. The buttons down the back are uneven. I realise it is keeping with the pattern but it looks a little odd.

15.12.2020 - 04:42

country flag Jane Edmonds wrote:

All your patterns seem to be knitted on circular needles. Is it possible to have some patterns for a pair of single ended needles?

23.08.2020 - 23:47

DROPS Design answered:

Dear Mrs Edmonds, we are using here circular needles to have enough room for all stitches - you can then use straight needles instead, just make sure to keep the tension - Read more about adapting into straight needles here. Happy knitting!

24.08.2020 - 09:15

country flag Kate wrote:

Hello there, In the materials needed, it is stated C or A+A. However, nowhere in the instructions is there mention to use 2 strands of PARIS. Should I do so?

23.08.2020 - 22:41

DROPS Design answered:

Dear Kate, DROPS Paris belong to yarn group C, this means you either work with 1 strand of Paris or use rather 2 strands any yarn group C instead. Happy knitting!

24.08.2020 - 09:14

country flag Lysvert wrote:

Bonjour, je souhaite remplacer le Coton Paris par deux fils de catégorie A, je n'ai jamais fait cela, faut-il tricoter plus serré les deux fils ensemble ? Ou garder la tension habituelle ? Un fil alpaga sera-t-il adapté ? Merci !

29.03.2020 - 11:21

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Lysvert, vous utiliserez 2 fils du groupe A et devriez obtenir la même tension (pensez à faire votre échantillon pour ajuster la taille des aiguilles). Vous trouverez ici plus d'infos sur les alternatives ici, tout comme comment calculer la quantité nécessaire. Rappelez-vous que votre magasin DROPS saura également vous conseiller, même par mail ou téléphone. Bon tricot!

30.03.2020 - 10:25

country flag Fran7 wrote:

Bonjour à vous. J'ai tricoté une manche en suivant vos explications mais jme tromper : Les augmentations côtés commencent-elles vraiment après le motif A1 ? La manche est étroite jusqu'à A1 et trop longue après les 19 fois 2 augmentations. Pouvez-vous m'aider ? Merci, cordialement

27.09.2018 - 15:57

DROPS Design answered:

Bonjour Fran7, effectivement, on tricote A.1 et on augmente en même temps, en taille M, on tricote en jersey avec 1 m lis au point mousse en augmentant 1 m de chaque côté tous les 1 cm et en même temps, à 22 cm, on tricote A.1 (en diminuant 4 m au 1er rang) pendant 11 cm, etc. On va donc augmenter en même temps que l'on tricote A.1. Bon tricot!

28.09.2018 - 07:55

country flag Gabriela wrote:

Hola quisiera recibir mayores explicaciones para la realizacion de la manga, ya que no entiendo muy bien como esta explicado. muchas gracias

14.09.2017 - 23:28

DROPS Design answered:

Hola Gabriela. Cuando trabajamos la manga tenemos que tener en cuenta dos cosas: por un lado los aumentos dentro del patrón y por otro lado los aumentos para la forma de la manga. Ambas se trabajan al mismo tiempo. Puedes acercarte a la tienda de Drops más cercana para recibir más ayuda.

17.09.2017 - 17:12

country flag Valentina Tarantino wrote:

Buonasera, sto lavorando la manica e nn capisco un passaggio che riguarda gli aumenti: dopo aver lavorato 11 cm a legaccio devo iniziare gli aumenti ogni 1 cm x 19 volte(quindi x 19 cm) ma dopo 11cm (quindi a 22cm complessivi) devo iniziare cn il motivo A1 e allo stesso tempo diminuire 4m. Quindi come proseguo con gli aumenti sul motivo A1? Grazie in anticipo

12.03.2016 - 01:28

DROPS Design answered:

Buongiorno Valentina Gli aumenti da ripetere ogni 1 cm per 19 volte, vengono fatti ai lati. Per le 4 m che deve diminuire quando inizia il diagramma A1, potrebbe risultarle più semplice diminuirle a intervalli regolari nel corso dell'ultimo ferro lavorato a maglia rasata prima di iniziare il diagramma, oppure lavora per 4 volte 3 m insieme a dir al posto di 2. Gli aumenti ai lati proseguono come già impostati. Buon lavoro!

12.03.2016 - 08:19

country flag Antonella wrote:

Buon giorno vorrei sapere se sul modello 159_3 sia possibile utilizzare dei ferri normali invece che circolari? Grazie

24.01.2016 - 15:06

DROPS Design answered:

Buonasera Antonella. Il capo viene lavorato avanti e indietro sui ferri e in parti separate. Può usare i ferri dritti e seguire le spiegazioni così come riportate, senza apportare alcuna modifica. Buon lavoro!

24.01.2016 - 19:36

country flag Irene Hansen wrote:

Højre og venstre forstykke, står der ikke nævnt hvornår jeg skal strikke A 1 øverst oppe??

09.12.2015 - 17:44

DROPS Design answered:

Hej Irene, Jo du strikker nøjagtig de samme striber (incl A.1) som på forstykket! Vi har talt med Garneriet i dag, så hun ved hvordan du gør. God fornøjelse!

10.12.2015 - 15:28