Anita skrifaði:
Jättefina! Ser så varma och sköna ut men samtidigt nätta - dessa ska jag sticka :-)
11.02.2015 - 13:55
Anita skrifaði:
Ska man sticka de förkortade varven på rätsidan? Mvh, Anita
11.02.2015 - 13:30DROPS Design svaraði:
Hej Anita, Här ser du:
DROPS Knitting Tutorial: How to work the felted slipper in DROPS 161-37 from Garnstudio Drops design on Vimeo.
18.02.2015 - 14:10
Inger Anne skrifaði:
Hvor skal man legge inn merketråden det er snakk om i denne oppskriften ? Det står bare at du skal måle fra merketråden, ikke hvor merketråden skal være.
07.02.2015 - 17:52DROPS Design svaraði:
Hej Inger, sådan her står det: SAMTIDIG når arb måler 18-20-20-22 cm settes en merketråd = midt under foten. God fornøjelse!
09.02.2015 - 10:15
Hilde skrifaði:
Superlekre! Gleder meg til å lage slike. Håper det ikke blir lenge til oppskriften blir tilgjengelig.
03.01.2015 - 20:30
Gunn Jorunn Antonsen skrifaði:
Enkel, men nett og pen tøffel. Båndet over med knapp gjør den pyntelig og spesiell. Slike vil jeg lage til meg selv!
01.01.2015 - 20:31
Randi skrifaði:
Disse vil jeg lage! :-)
29.12.2014 - 16:58
Francine Ponchant skrifaði:
Super j'adore les faire
27.12.2014 - 12:43
Jelena Langvatn skrifaði:
Varme gode tøfler ;)
15.12.2014 - 19:50
José Serné skrifaði:
Warm, comfortabel, vrouwelijk. Die zou ik graag maken.
14.12.2014 - 21:18
Elena Antonia Bordignon skrifaði:
Spiritose!
12.12.2014 - 15:35
Dolphin Toes#dolphintoesslippers |
|
![]() |
![]() |
Prjónaðar og þæfðar tátiljur úr DROPS Snow. Stærð 35-44.
DROPS 161-37 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka) Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TÁTILJUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í einu lagi með saum við miðju að framan og við miðju að aftan, byrjað er efst, beint ofan á rist – SJÁ TEIKNINGU! Fyrst er prjónaður spæll, hann er prjónaður saman við tátiljuna jafnóðum. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN TÁTILJAN ER PRJÓNUÐ! SPÆLL: Fitjið upp 10 l á prjóna nr 8 með litnum pastelblár í GARÐAPRJÓN - sjá útskýringu að ofan. Prjónið garðaprjón þar til stykkið mælist 17-17-18-18 cm. Setjið l á auka prjón eða þráð. Fitjið upp 3-3-5-5 l á prjóna nr 8 með litnum pastelblár. Prjónið sléttprjón, JAFNFRAMT eru fitjaðar upp lykkjur í lok hverrar umf frá réttu þannig: 3 l 2 sinnum og 1 l 3 sinnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 3 cm eru fitjaðar upp 21-25-25-29 l í lok umf frá röngu. Eftir alla útaukningu eru 33-37-39-43 l á prjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 6 cm eru prjónaðar stuttar umferðir þannig: Prjónið sl yfir fyrstu 21-25-25-29 l, snúið við og prjónið til baka. Þegar stykkið mælist 10-11-11-11 ½ cm prjónið næstu umf þannig: Prjónið 18-22-22-26 l, leggið stykkið með l frá spæl framan við stykkið og prjónið saman spælinn með 10 næstu l (1 l frá spæl er prjónuð slétt lykkja saman við 1 lykkju frá tátilju), prjónið síðustu 5-5-7-7 l frá tátilju. Prjónið nú yfir allar l eins og áður. Þegar stykkið mælist 10½-11½-11½-12 ½ cm skiptið yfir í litninn ljós beige. Prjónið stuttar umf alveg eins þegar tátiljan mælist 14-15-15-17, 22-23-23-27- og 30-32-32-38 cm. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 18-20-20-22 cm er sett eitt prjónamerki = miðja undir fæti. Þegar prjónað hefur verið jafn langt á eftir prjónamerki eins og á undan prjónamerki með litnum ljós beige er skipt yfir í litinn pastelblár. Prjónið nú í hinni hliðinni á tátiljunni með úrtöku í stað útaukningu. Byrjið að fækka lykkjum þegar það eru jafn margir cm frá prjónamerki og er frá síðustu útaukningu og fram að prjónamerki. Fækkið lykkjum í byrjun á hverri umf frá röngu þannig: 1 l 3 sinnum, 3 l 2 sinnum. Fækkið lykkjum í byrjun á umf frá réttu þannig (eftir að lykkjum hefur verið fækkað 3 sinnum frá röngu): 21-25-25-29 l 1 sinni = 3-3-5-5 l eftir. Fellið af. FRÁGANGUR: Brjótið tátiljuna saman við miðju undir fæti og saumið saman mitt framan á tá og yfir neðstu 12-12-14-14 l sem fitjaðar voru upp. Í kringum opið efst eru teknar upp ca 60 l með litnum pastelblár (það er mikilvægt að taka upp nægilega margar l svo að stykkið dragist ekki saman). Prjónið 2 umf slétt fram og til baka. Fellið af. Saumið sauminn að aftan (A+B) yst í lykkjubogann. Prjónið aðra tátilju á sama hátt, nema festið spælinn þegar það eru 10-11-11-11½ cm eftir á tátilju, þ.e.a.s. á eftir prjónamerki og strax eftir að skipt er yfir í litinn pastelblár (miðið við fyrri tátilju). ÞÆFING: Setjið stykkið í þvottavél með þvottaefni án enzyma og bleikiefna saman með litlu frotte handklæði ca 50 x 70 cm. Þvoið við 40 gráður með venjulegri vindingu án forþvottar ATH: Ekki nota stutt þvottakerfi. Eftir þvott er stykkið formað til á meðan það er enn vott. EFTIR ÞÆFINGU: Ef stykkið hefur þæfst of lítið og er of stórt: Þvoðu stykkið einu sinni enn í þvottavél á meðan það er enn vott. Ef stykkið hefur þæfst of mikið og er of lítið: Togið stykkið út í rétta stærð á meðan það er enn vott, ef stykkið er of þurrt, bleytið það fyrst. Munið: Síðar er stykkið þvegið eins og venjuleg ullarflík. Saumið tölu í gegnum spælinn og tátiljuna – sjá mynd. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #dolphintoesslippers eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 20 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 161-37
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.