Gil Danielle skrifaði:
Dans l'explication du point fantaisie du modèle 157-13 j'aimerai avoir confirmation du 3 rang :tricoter 3 m point mousse,jersey sur les 25 m suivantes (après les 55 m du premier rang,les 79 m du second ,on revient à 25 m sur le troisième ? °) je vous remercie .
13.02.2015 - 16:55DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Gil, on tricote 2 rangs sur 3 m point mousse + 55 m jersey, puis 2 rangs sur 3 m point mousse + 79 m jersey, puis 2 rangs sur 3 m point mousse + 25 m jersey, puis on change de couleur et on tricote 4 côtes mousse sur toutes les mailles (= 8 rangs) = 1 série des rangs raccourcis, soit 14 rangs en bas du gilet (à droite, vu sur l'endroit), et 8 rangs en haut (à gauche, vu sur l'endroit). Bon tricot!
13.02.2015 - 18:18
Andrea skrifaði:
Liebes DROPS-Team. Ich bin mit der Anleitung vom rechten Vorderteil nicht zurechtgekommen. Ich habe erst das linke gestrickt und dann das rechte spiegelverkehrt. Wenn ich den Schalkragen an der rückwärtigen Mitte zusammennähe und an den Halsausschnitt nähe, läuft der Schalkragen spitz nach unten zu. Es sieht hinten aus wie ein Dreieck. Ist das so richtig?
03.02.2015 - 16:04DROPS Design svaraði:
Sie können in der Maßskizze sehen, wie die eine Seite des Kragens geschnitten ist, er hat tatsächlich eine Art Dreiecksform. Wenn die Spitze bei Ihnen genauso aussieht wie in der Skizze, haben Sie alles richtig gemacht.
04.02.2015 - 18:01
Miekelien skrifaði:
Juiste maat
05.01.2015 - 00:44Miekelien skrifaði:
Hoe kan ik 'opmerkingen' openen die gemaakt zijn naar aanleiding van een breipatroon? Dank u.
03.01.2015 - 00:14DROPS Design svaraði:
Hoi Mikkelien. Je drukt op "Opmerkingen" zoals je hebt gedaan om deze vraag te stellen. Scroll een beetje naar beneden om reeds gemaakte opmerkingen te zien.
06.01.2015 - 16:59
Riet Neuenschwander skrifaði:
Ik ben met het achterpand bezig en heb het garen en naald bij jullie besteld. Precies het patroon gevolgd 158 steken opzetten maar nu ik een eind op weg ben zie ik dat ik geen 66cm maar 55 cm lengte heb. Is er een fout in het patroon? Moet ik overnieuw beginnen en dan met meer steken maar dan klopt het patroon natuurlijk niet meer Kunt u mij helpen?
13.12.2014 - 11:34DROPS Design svaraði:
Hoi Riet. Kijk of je stekenverhouding klopt. Ik denk dat je te strak breit. Voor dit patroon moet je 24 st hebben per 10 cm. Met 158 st zou dat met de juiste stekenverhouding ongeveer 66 cm zijn.
15.12.2014 - 15:23
Kerry Hullett skrifaði:
The second yarn color is incorrect. Only 100 gr are required
29.11.2014 - 13:20
Lis Fredborg skrifaði:
Jeg har opdaget at det opgivne mængde garn i opskriften er alt for meget. Den sorte har jeg købt 200g, som opgivet, men der går max 1oog. der er irriterende, da jeg har købt garnet online, og kan ikke retunere det.
27.11.2014 - 14:36
Mw. Janssen skrifaði:
Geweldig patroon! Ik ben nu bezig met het rechter voorpand. De plaatsing van de hoogte van deknoopsgaten is mij niet helemaal duidelijk. Kunt u dit aangeven?
20.11.2014 - 23:56DROPS Design svaraði:
Hoi Mw Janssen. Je hebt 2 knoopsgaten in dit vest. En omdat het overdwars wordt gebreid, wordt de hoogte niet vermeld, maar het aantal steken voordat de knoopsgaten worden gemaakt: "Begin aan de goede kant en brei als volgt: 86-86-88-88-90-90 r, 1 omsl, 2 r samen, 12 r, 1 omsl, 2 r samen, en brei de rest van de nld r. Brei in de volgende nld de omsl r." Maar met de juiste stekenverhouding en 86 st (24 st per 10 cm) komt u uit op 35-36 cm voor het eerste knoopsgat en ongeveer 5 cm (12 st) tussen knoopsgat 1 en 2.
21.11.2014 - 13:37
Anna Söderval skrifaði:
Undrar om man kunde beställa hem era mönster färdigt stickat. Har ni möjlighet på det? Mvh, Anna
07.11.2014 - 20:55
åse Petersen skrifaði:
Hej jeg har lige strikket denne trøje men der er fejl i opskriftens venstre forstykke og antal af garn man skal bruge passer heller ikke og den har en forkert pasform jeg kan godt forstå man ikke har vist ryggen øv øv , split arbejde og penge Venlig hilsen Åse Petersen
07.11.2014 - 18:56DROPS Design svaraði:
Hej Åse, Det var kedeligt at høre, hvis du skriver helt konkret hvor du ikke får det til at stemme, så kan vi se på det. Har du bedt en af vore DROPS forhandlere at se på det? Venlige hilsner DROPS Design
17.11.2014 - 15:30
Dragonfly#dragonflycardigan |
||||
|
||||
Prjónuð peysa úr DROPS Fabel með stuttum umferðum og sjalkraga. Stærð S - XXXL.
DROPS 157-13 |
||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á hringprjóna): *1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: * Skiptið yfir í litinn svartur. Prjónið síðan stuttar umferðir með byrjun frá réttu þannig (fyrstu 3 l eru alltaf prjónaðar í garðaprjóni): Prjónið 3 l garðaprjón, sléttprjón yfir næstu 55 l, snúið við og prjónið umf til baka. Prjónið 3 l garðaprjón, sléttprjón yfir næstu 79 l, snúið við og prjónið umf til baka. Prjónið 3 l garðaprjón, sléttprjón yfir næstu 25 l, snúið við og prjónið umf til baka. Skiptið um lit yfir í chiaroscuro. Prjónið 8 umf garðaprjón fram og til baka yfir allar l *, endurtakið frá *-* 1 mynstureiningu = 8 umf efst, 14 umf neðst. ATH: Þær 8 umf í garðaprjóni eru prjónaðar með vetur og stuttar umferðir eru prjónaðar með litnum svartur til loka. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. Byrjið frá réttu og prjónið þannig: 86-86-88-88-90-90 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l slétt saman, 12 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l l slétt saman og prjónið sl út umf. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður slétt. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka frá hlið að hlið á hringprjóna til þess að fá pláss fyrir allar lykkjur. BAKSTYKKI: Fitjið upp 144-148-154-158-164-168 l á hringprjóna nr 3 með 2 þráðum í litnum vetur. Stykkið er síðan prjónað með 1 þræði í litnum vetur. Prjónið 12 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, JAFNFRAMT í 1. umf frá réttu er sett 1 prjónamerki í stykkið þegar 46-48-50-52-54-56 l eru eftir á prjóni. Þetta prjónamerki merkir hvar ermi er saumuð við stykkið. Prjónið MYNSTUR – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram með mynstur þar til stykkið mælist 15-17-18-21-22-26 cm mælt þar sem stykkið er minnst, stillið af að endað sé nákvæmlega á undan 8 umf garðaprjón. Í næstu umf frá röngu eru felldar af 5 fyrstu l fyrir hálsmál, prjónið út umf = 139-143-149-153-159-163 l. Prjónið síðan mynstur þar til stykkið mælist 25-27-30-33-36-40 cm (10-10-12-12-14-14 cm frá þeim stað sem fellt var af fyrir hálsmáli), stillið af að endað sé nákvæmlega á undan 8 umf í garðaprjóni. Fitjið upp 5 nýjar l í lok næstu umf frá réttu = 144-148-154-158-164-168 l. Haldið áfram eins og áður. Þegar stykkið mælist 40-44-48-54-58-66 cm – stillið af að endað sé á heilli mynstureiningu á mynstri, prjónið 4 umf garðaprjón yfir allar l með litnum vetur JAFNFRAMT er sett eitt prjónamerki í síðustu umf frá réttu þegar 46-48-50-52-54-56 l eru eftir á prjóni. Þetta prjónamerki merkir hvar ermin er saumuð við stykkið. Fellið af með 2 þráðum í litnum vetur. HÆGRA FRAMSTYKKI: Stykkið er prjónað frá hlið og að miðju að framan. Fitjið upp 144-148-154-158-164-168 á hringprjóna nr 3 með 2 þráðum í litnum vetur. Stykkið er síðan prjónað með 1 þræði í litnum vetur. Prjónið 12 umf garðaprjón – JAFNFRAMT Í 1. umf frá réttu er sett 1 prjónamerki í stykkið þegar 46-48-50-52-54-56 l eru eftir á prjóni. Þetta prjónamerki merkir hvar ermin er saumjuð í stykkið. Prjónið mynstur þar til stykkið mælist 15-17-18-21-22-26 cm mælt þar sem stykkið er minnst, stillið af að endað sé nákvæmlega á undan 8 umf í garðaprjóni. Í lok næstu umf frá réttu eru fitjaðar upp 20-20-22-22-24-24 nýjar l fyrir kraga = 164-168-176-180-188-192 l. Setjið 1 prjónamerki í stykkið, HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Stykkið er prjónað áfram í litnum vetur. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Prjónið nú stuttar umferðir með byrjun frá röngu þannig: Prjónið yfir fyrstu 68-68-90-90-108-108 l, setjið 1 prjónamerki, snúið við og prjónið til baka. Prjónið þar til 4 l eru eftir á undan prjónamerki, snúið við og prjónið til baka. Haldið áfram, prjónið nú yfir 4 l færri í hvert skipti sem snúið er við, þar til prjónaðar hafa verið alls 26-26-36-36-44-44 umf með garðaprjóni. Þegar stuttar umferðir hafa verið prjónaðar til loka er prjónað garðaprjón yfir allar l þar til stykkið mælist 10-10-12-12-14-14 cm. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 4 cm þar sem það er breiðast, aukið út um 1 l í lok næstu umf frá réttu, endurtakið útaukningu í 4. hverri umf 3-3-3-3-6-6 sinnum til viðbótar, síðan í hverri umf frá réttu 14-14-18-18-17-17 sinnum = 182-186-198-202-212-216 l. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 9-9-11-11-13-13 cm fellið af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan, í næstu umf frá réttu. Prjónið 2 umf garðaprjón með svartur. Fellið af með 2 þráðum í litnum svartur. VINSTRA FRAMSTYKKI: Stykkið er prjónað frá miðju að framan að hlið. Fitjið upp 182-186-198-202-212-216 l á hringprjóna nr 3 með 2 þráðum í litnum svartur. Stykkið er síðan prjónað með 1 þræði í litnum svartur. Prjónið 2 umf JAFNFRAMT í umf frá röngu er sett 1 prjónamerki eftir 38-38-44-44-48-48 l. Skiptið yfir í litinn vetur. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐURN EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Prjónið garðaprjón yfir allar l JAFNFRAMT í 1. umf frá réttu er fækkað um 1 l í lok umf með því að prjóna 2 síðustu l slétt saman, endurtakið úrtöku í hverri umf frá réttu 13-13-17-17-16-16 sinnum til viðbótar, síðan í 4. hverri umf 4-4-4-4-7-7 sinnum = 164-168-176-180-188-192 l. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 4 cm prjónið þá stuttar umferðir með byrjun frá röngu þannig: Prjónið að prjónamerki, snúið við og prjónið til baka. Prjónið 4 l á eftir prjónamerki, snúið við og prjónið til baka. Haldið svona áfram, prjónið yfir 4 l fleiri í hvert skipti sem snúið er við, þar til prjónað hefur verið yfir alls 13-13-18-18-22-22 um með garðaprjóni. Þegar stuttar umferðir hafa verið prjónaðar til loka mælist stykkið ca 10-10-12-12-14-14 cm. Setjið 1 prjónamerki í stykkið, héðan er nú stykkið mælt. Í næstu umf frá röngu eru felldar af fyrstu 20-20-22-22-24-24 l = 144-148-154-158-164-168 l á prjóni. Prjónið nú mynstur þar til stykkið mælist 15-17-18-21-22-26 cm mælt þar sem það er minnst, stillið af að endað sé nákvæmlega á undan 8 umf garðaprjón. Prjónið 12 umf garðaprjón yfir allar l í litnum vetur JAFNFRAMT í síðustu umf frá réttu er sett 1 prjónamerki í stykkið þegar 46-48-50-52-54-56 l eru eftir í umf (séð frá réttu). Þetta prjónamerki merkir hvar ermin er saumuð í stykkið. Fellið af með 2 þráðum í litnum vetur. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 56-58-60-62-64-66 l á sokkaprjóna nr 3 með 2 þráðum í litnum svartur. Stykkið er síðan prjónað með 1 þræði í litnum svartur. Prjónið 2 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið um lit yfir í litinn vetur og prjónið garðaprjón þar til stykkið mælist 4 cm. Prjónið síðan sléttprjón. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf. Þegar stykkið mælist 8 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki, endurtakið útaukningu með 2½-2-2-2-1½-1½ cm millibili 17-18-19-20-21-22 sinnum til viðbótar = 92-96-100-104-108-112 l. Þegar stykkið mælist 54-53-52-50-49-46 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla) fellið af. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið hliðarsauma frá prjónamerki og niður. Saumið ermar í með rönguna út. Saumið saman sjalkraga við miðju að aftan og saumið við hálsmál. Saumið tölur í vinstri kant að framan. HEKLAÐUR KANTUR: Heklið kant í kringum peysuna að neðan, byrjið neðst niðri á vinstra framstykki. Heklið með litnum svartur með heklunál nr 3 þannig: 1 fl, * 3 ll, 1 st í 1. ll, hoppið fram ca 1 cm, 1 fl *, endurtakið frá *-* í kringum alla peysuna. Klippið frá og festið enda. |
||||
Skýringar á teikningu |
||||
|
||||
![]() |
||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #dragonflycardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 157-13
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.