DROPS Super Sale - 30% AFSLÁTTUR á 6 garntegundum í allan júní!
Product image DROPS Fabel yarn
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 682.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 682.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale
DROPS 158-46

#sweetinstripessocks

DROPS Design: Mynstur nr fa-281
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Stærð:
15/17 - 18/19 - 20/21 - 22/23 - (24/25 - 26/28 - 29/31 - 32/34) - 35/37 - 38/40 - 41/43 - 44/46
Hæð á sokk:
6-7-8-9 (10-11-12-13) 14-15-16-17 cm.
Lengd fótar:
10-11-12-13 (15-17-18-20) 22-24-27-30 cm.

GARN:
DROPS FABEL frá Garnstudio
50-50-50-50-(50-50-100-100)-100-100-100-100 gr litur nr 677, grænn/turkos

DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5 – eða þá stærð sem þarf til að 26 l og 34 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 682.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 682.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HÆLÚRTAKA (prjónuð í sléttprjóni):
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið þar til 6-7-7-7 (7-7-8-8) 7-7-8-10 lykkjur eru eftir, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir, snúið við.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið þar til 6-7-7-7 (7-7-8-8) 7-7-8-10 lykkjur eru eftir, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, 1 lykkja brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir, snúið við.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið þar til 5-6-6-6 (6-6-7-7) 6-6-7-9 lykkjur eru eftir, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir, snúið við.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið þar til 5-6-6-6 (6-6-7-7) 6-6-7-9 lykkjur eru eftir, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, 1 lykkja brugðið, steypið lyftu lykkjunni, snúið við.
Haldið áfram á sama hátt með því það fækki um 1 lykkju áður en 1 lykkju er steypt yfir þar til 8-10-10-10 (10-10-12-12) 14-14-16-16 lykkjur eru eftir á prjóni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður að tá.

SOKKUR:
Fitjið upp 44-48-52-52 (56-56-64-64) 64-68-72-76 lykkjur jafnt yfir á sokkaprjóna nr 2,5 með Fabel.
Prjónið stroffprjón með 2 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Haldið áfram í stroffprjóni þar til stykkið mælist 6-7-8-9 (10-11-12-13) 14-15-16-17 cm. Setjið fyrstu 22-22-26-26 (30-30-30-30) 30-34-34-34 lykkjur á þráð (= mitt ofan á fæti) og haldið eftir síðustu 22-26-26-26 (26-26-34-34) 34-34-38-42 lykkjum á prjóni (= hællykkjur). Prjónið sléttprjón fram og til baka yfir hællykkjur JAFNFRAMT sem í 1. umferð er fækkað um 4-4-4-4 (4-4-8-8) 8-8-8-8 m lykkjur jafnt yfir = 18-22-22-22 (22-22-26-26) 26-26-30-34 lykkjur. Prjónið fram og til baka í 3-3½-4-4 (4½-4½-5-5) 5-5½-6-6 cm. Setjið einn merkiþráð í stykkið.
Fækkið síðan lykkjum fyrir hæl – sjá HÆLÚRTAKA! Eftir hælúrtöku eru prjónaðar upp 8-9-10-10 (11-12-12-13) 13-14-16-16 lykkjur hvoru megin við hæl og 22-22-26-26 (30-30-30-30) 30-34-34-34 lykkjur af þræði eru settar til baka á prjóninn = 46-50-56-56 (62-64-66-68) 70-76-82-82 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð hvoru megin við 22-22-26-26 (30-30-30-30) 30-34-34-34 lykkjur ofan á fæti.
Prjónið síðan stroffprjón ofan á fæti og slétt undir fæti, JAFNFRAMT er lykkjum fækkað í hvorri hlið þannig: Prjónið 2 síðustu lykkjur á undan 22-22-26-26 (30-30-30-30) 30-34-34-34 lykkjur ofan á fæti snúnar slétt saman (þ.e.a.s. prjónað er í aftari lykkjubogann á lykkju í stað fremri), þær 2 fyrstu lykkjur á eftir 22-22-26-26 (30-30-30-30) 30-34-34-34 lykkjum eru prjónaðar slétt saman. Fækkið lykkjum svona af í 2. hverri umferð alls 3-4-6-6 (7-8-8-9) 9-9-11-10 sinnum = 40-42-44-44 (48-48-50-50) 52-58-60-62 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 7-8-9-9 (11-13-14-16) 18-19-22-24 cm frá merkiþræði á hæl – nú eru eftir 3-3-3-4 (4-4-4-4) 4-5-5-6 cm að loka máli. Setjið nú 1 merkiþráð í hvora hlið, þannig að það verða 20-21-22-22 (24-24-25-25) 26-29-30-31 lykkjur á milli merkiþráða. Prjónið síðan sléttprjón yfir allar lykkjur, JAFNFRAMT er lykkjum fækkað fyrir tá hvoru megin við báða merkiþræðina.
Fækkið lykkjum á undan merkiþræði: 2 lykkjur slétt saman.
Fækkið lykkjum á eftir merkiþræði: 2 lykkjur snúnar slétt saman.
Fækkið lykkjum í hvorri hlið í annarri hverri umferð alls 3-3-3-3 (4-4-4-5) 4-5-5-5 sinnum og síðan í hverri umferð 4-5-5-5 (4-4-5-4) 5-5-6-7 sinnum = 12-10-12-12 (16-16-14-14) 16-18-16-14 lykkjum eftir á prjóni. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar saman 2 og 2. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru.

Prjónið annan sokk á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 25.11.2015
Allt mynstrið hefur verið endurskrifað
Yfirfarið á vefsvæði: 28.05.2024
Uppskriftin hefur verið yfirfarin og uppfærð í öllum stærðum.
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!
Ertu búin að klára þetta mynstur?
Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sweetinstripessocks eða sendu þær inn í #dropsfan gallery.

Skrifaðu athugasemd um DROPS 158-46

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (49)

country flag Danielle skrifaði:

Bonjour, je tricotte la taille 44/46. Après les 6 cm sur les 38 mailles du talon, j'ai fait les diminutions comme indiqué et je me retouve avec 20 mailles restantes au lieu de 16. Si je relève 16 mailles de chaque côté + les 34 mailles du dessus, je me retrouve avec 86 mailles et non 82. Pouvez vous me dire si il y a une erreur quelque part. D'avance je vous remercie.

03.04.2015 - 09:37

DROPS Design svaraði:

Bonjour Danielle, la question a été transmise à nos stylistes. Merci d'avance pour votre patience.

03.04.2015 - 17:41

country flag Christina skrifaði:

Hallo, ich stricke das Modell gerade in Größe 38/40 nach. Bei der Fersenabnahme habe ich vor Beginn der Abnahmen 36 Maschen für die Ferse. Wenn ich die Abnahmen durchführe, wie in der Anleitung beschrieben, komme ich dann auf 24 Maschen. In der Anleitung sehe ich aber, dass 14 Maschen übrig sein sollten. Können Sie mir einen Tipp geben, wo der Fehler liegt? Vielen Dank für Ihre Hilfe!

19.03.2015 - 07:08

DROPS Design svaraði:

Die M-Zahl wird aktuell noch einmal überprüft, bitte haben Sie noch etwas Geduld.

11.04.2015 - 08:55

country flag Bente Flinker skrifaði:

Hej! Jeg læser mig frem til, at der burde være lavet rettelser i februar 2015, men her i marts 2015 er der stadigvæk maskeantal der ikke passer efter hælindtagning. Det vil være rigtig dejligt, hvis I vil rette. Venlig hilsen Bente

17.03.2015 - 21:36

DROPS Design svaraði:

Hej Bente. Det ville vaere dejligt hvis du kan angive hvor du mener der er fejl, saa kan vi tjekke igen. Tak :-)

19.03.2015 - 13:47

country flag Agnieszka skrifaði:

Hallo, ich stricke in 41/43 und komme ebenfalls mit den Maschdnangaben bei der Ferse nicht hin. Nachdem ich nun wieder frustriert die Fersenabnahmen aufgeribbelt habe, weiß ich nicht weiter. Weiß man den endlich, was richtig ist? Mir kam die Ferse auch so unnatürlich breit vor. Vielen Dank

08.03.2015 - 00:00

DROPS Design svaraði:

Die Anleitung wurde am 13.02. korrigiert. Die M-Zahlen sollten nun stimmen.

08.03.2015 - 09:46

country flag Alice skrifaði:

Wenn man schon am 16.12.2014 an dem Käppchen strickt, müsste man doch jetzt fertig sein, oder...? Strickt man wirklich?

07.03.2015 - 17:47

country flag Melli skrifaði:

Hallo, vielen Dank für die Antworten, kann man sonst die Maschen auch fester stricken ? Und wenn die rechten oder die linken ? Oder eine Größere Nadelstärke ? Über eine Antwort wäre ich dankbar, damit ich weiterarbeiten kann. Liebe Grüße Melli

07.03.2015 - 13:03

DROPS Design svaraði:

Liebe Melli, probieren Sie einfach selbst aus, was bei Ihnen am besten funktioniert. Die M fester stricken geht auch (ich würde probieren, die letzte linke und die erste rechte fester zu stricken), probieren Sie aus, was zum gewünschten Ergebnis führt, es gibt kein Patentrezept.

08.03.2015 - 09:42

country flag Melli skrifaði:

Erstmal vielen Dank für die schnelle Antwort. Dazu noch eines : Wenn ich zum Aufschlingen Eine halbe bis eine Nadelstärke dicker verwende, dann wird es auch nicht zu locker ? Ich wollte nur das man gut mit dem Fuß in den Socken kommt. Über eine Antwort bin ich sehr dankbar . Liebe Grüße Melli

04.03.2015 - 17:04

DROPS Design svaraði:

Es hängt ein bisschen vom individuellen Stricken ab. Wenn Ihre Anschläge besonders fest werden, sollten Sie eine etwas dickere Nadel verwenden, wenn Sie normal anschlagen, reicht das aus. Stricken Sie doch einfach mal die ersten Runden zur Probe, dann sehen Sie, wie stramm der Anschlagrand wird. Das Rippenmuster sollte sich auch am Anschlag gut dehnen lassen, ohne dass der Anschlag aber im ungedehnten Zustand "Wellen" wirft. Es ist zudem auch ein bisschen davon abhängig, wie dünn oder dick Ihre Waden sind.

06.03.2015 - 14:45

country flag Melli skrifaði:

Hallo habe noch eine Frage : Ich schlage die Maschen normal mit dem Kreuzanschlag an. Damit der anschlag elastisch ist, verwende ich dafür eine etwas dickere Nadel oder soll ich lieber sehr locker anschlagen ? Über eine Antwort wäre ich sehr dankbar. Liebe Grüße Melli

04.03.2015 - 12:13

DROPS Design svaraði:

Wenn Sie eine dickere Nadel für den Anschlag verwenden, wird der Anschlag gleichmäßiger locker als wenn Sie versuchen, möglichst locker anzuschlagen. Es ist daher empfehlenswert, für einen lockeren Anschlag eine dickere Nadel zu nehmen. Wenn der Anschlag besonders locker werden soll, kann man die Nadel für den Anschlag auch doppelt nehmen, aber das dürfte hier nicht nötig sein.

04.03.2015 - 14:55

country flag Melli skrifaði:

Hallo, habe eine Frage : Wenn ich das Bündchen stricke sieht die erste rechte Masche nach den links gestrickten immer so ungleichmässig aus, d. h. sie ist irgendwie gößer bzw. breiter. Ich stricke eigentlich sehr gleichmässig. Ist auch nicht bei jeder Wolle so. Gibt es einen Tipp ? Liebe Grüße Melli

02.03.2015 - 14:26

DROPS Design svaraði:

Sie können versuchen, bei der letzten Links-M den Faden nicht wie üblich von hinten nach vorne um die Nadel zu wickeln (der Faden liegt dabei ja über der Schlinge auf der Nadel), bevor Sie den Faden durchziehen, sondern den Faden durch die M holen, indem Sie ihn unter die M auf der Nadel legen und die Nadel dann von oben drauflegen und den Faden durch die M führen, dadurch wird der Faden etwas kürzer gehalten, was sich auch auf die folgende Rechts-M auswirkt. Die M-Glieder liegen dann umgekehrt auf der Nadel, Sie müssen in der nächsten Rd die M entsprechend einmal richtig herum auf die Nadel legen. Am besten an einem Probestück testen.

06.03.2015 - 15:19

country flag DROPS Design skrifaði:

Kaere alle. Mönstret er nu rettet og opdateret. God fornöjelse med det.

17.02.2015 - 10:55