Petra skrifaði:
Was versteht man bei dieser Anleitung unter rechtsmaschengruppe? Ich verstehe die Abnahmeanleitung Bei diesem Spiralmuster nicht. Wenn sie mir da bitte weiterhelfen würden. Herzlichen Dank Mfg
21.09.2022 - 21:17DROPS Design svaraði:
Liebe Petra, das Spiralmuster wird einfach mit *3 M re, 2 M li* gestrickt, so verschiebt sich das Muster automatisch um 1 M nach links in jeder Rund. Wenn die Arbeit 18-22 cm misst sollen Sie in die rechten abnehmen, so stricken Sie *3 M re, 2 M li, 1 M re, 2 M re zs, 2 M li*, dann bei der nächsten Runde *1 M re, 2 M re zs, 2 M li, 2 M re, 2 M li*. Viel Spaß beim stricken!
22.09.2022 - 09:48
Sheebah skrifaði:
I am surprised to see how many patterns you have l am a new knitter every time I want to make some thing from your patterns I stuck can you please make a short video many new knitter will be grateful.red heart yarn makes short videos on YouTube. If all not make your popular ones thank you so much
04.02.2020 - 19:34
Giada skrifaði:
Buonasera, vorrei sapere se le "ultime due maglie del ferro" da lasciare in sospeso sul fermamaglie per lo svaldacollo, vanno lavorate o no. Se no, non si viene a creare un effetto un gradino?
14.12.2016 - 19:10DROPS Design svaraði:
Buonasera Giada. Le 2 m vanno trasferite sul fermamaglie senza lavorarle prima. Una volta riprese le m sui ferri e lavorati i ferri a legaccio non si noteranno scalini. Buon lavoro!
14.12.2016 - 22:04
Giada skrifaði:
Buongirno, non ho capito come leggere il diagramma una volta arrivati alla fine della quinta riga.... la sesta riga (che sarebbe poi la prima del diagramma ripetendolo) come va letta? me la ritrovo al rovescio del lavoro e non so se devo proseguire da destra verso sinistra o viceversa
13.12.2016 - 10:08DROPS Design svaraði:
Buongiorno Giada. Deve proseguire a lavorare in modo che il motivo continui in diagonale correttamente, come molto probabilmente ha già fatto con le righe già lavorate sul rovescio. La riga, quando sul rovescio del lavoro, va letta da sinistra verso destra. Buon lavoro!
13.12.2016 - 10:19
Juliane skrifaði:
Reichen 50g für den Kragen?
01.11.2015 - 20:54DROPS Design svaraði:
Die Anfange an die Designerinnen läuft.
19.11.2015 - 09:56
Juliane skrifaði:
Reichen 50g für den Kragen?
18.10.2015 - 12:35
Smara skrifaði:
Reichen für den Kragenschal tatsächlich nur 50 gr ? Ich würde gerne die Wolle für dieses Set bestellen. Möchte nicht zu wenig bestellen. Danke :-)
05.10.2015 - 13:19
Brigitte skrifaði:
Sieh schlicht aus, hat aber Pfiff. Daran würde ich mich gerne versuchen!
26.06.2014 - 15:30
Lavender Frost#lavenderfrostset |
|||||||
|
|||||||
Prjónuð húfa og hálsskjól með spíralmynstri úr DROPS Cotton Merino.
DROPS 156-21 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umf séð frá réttu. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á hringprjóna): *1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. SPÍRALMYNSTUR: Prjónið * 3 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* umf hringinn. Mynstrið nær yfir 5 l og lykkjufjöldinn í stykkinu er deilanlegur með 5 mínus 1. Þegar prjónað er í hring kemur mynstrið til með að færast sjálfkrafa um 1 l til vinstri í hverri umf og myndar þar af leiðandi spíralmynstur. MÆLING: Það er mikilvægt að strekkja ekki á stykkinu þegar mál er tekið. ÚRTAKA: Fækkið um 1 l á undan hverju prjónamerki. Prjónið 2 l á undan prjónamerki, takið næstu l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt (þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann í stað fyrir framan) til að koma í veg fyrir göt. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón, skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf. HÚFA: Fitjið upp 115-125 l á hringprjón nr 3,5 með Cotton Merino. Prjónið 1 umf slétt. Prjónið síðan stroff (= 3 l sl, 2 l br) í 3 cm. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4 og prjónið 1 umf slétt JAFNFRAMT er fækkað um 11 l jafnt yfir = 104-114 l. Prjónið síðan SPÍRALMYNSTUR – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist ca 18-22 cm – LESIÐ MÆLING, fækkið nú um 1 l í annarri hverri mynstureiningu með sl með því að prjóna 2 l slétt saman (prjónið 2 fyrstu l slétt saman) = 93-102 l. Haldið áfram með 1 umf spíralmynstur með til skiptis 2 og 3 l sl á milli hverra br mynstureininga. Í næstu umf er úrtakan endurtekin í þeim mynstureiningum með 3 l sl = 83-91 l. Prjónið 1 umf spíralmynstur (= 2 l sl, 2 l br). Prjónið 2 umf GAÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan og setjið 9 prjónamerki í 2. umf þannig: STÆRÐ S/M: Prjónið 10 l, setjið 1 prjónamerki, * prjónið 9 l, setjið 1 prjónamerki *, endurtakið frá *-* alls 7 sinnum, prjónið 10 l, setjið 1 prjónamerki. L/XL: Prjónið 11 l, setjið 1 prjónamerki, * prjónið 10 l, setjið 1 prjónamerki *, endurtakið frá *-* alls 8 sinnum. Prjónið nú garðaprjón – JAFNFRAMT er lykkjum fækkað – LESIÐ ÚRTAKA við hvert prjónamerki í hverri umf sem prjónuð er slétt alls 8-9 sinnum = 11-10 l. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel. Húfan mælist ca 24-28 cm. ------------------------------------------------------- HÁLSSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka í tveimur stykkjum á hringprjón ofan frá og niður. STYKKI 1: Fitjið upp 82 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna nr 4 með Cotton Merino. Prjónið mynstur eftir mynsturteikningu A.1 yfir allar l með 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í hvorri hlið á stykki. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 10½ cm – LESIÐ MÆLING og stillið af að næsta umf sem prjónuð er sé umf 4 í mynstri – fellið af þannig: Fellið af fyrstu l í næstu 2 umf = 80 l. Haldið áfram með mynstur eins og áður JAFNFRAMT þegar 2 l eru eftir í lok hverrar umf eru þessar 2 l settar á þráð, haldið svona áfram þar til allar l eru á þræði = 40 l á þræði í hvorri hlið, klippið frá. Setjið til baka allar l á hringprjóna = 80 l á prjóni. Prjónið 1 umf slétt JAFNFRAMT er aukið út um 16 l jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING = 96 l. Prjónið 1 umf slétt, fellið af með sl. Stykkið mælist ca 22 cm við miðju að framan. STYKKI 2: Fitjið upp 45 l (meðtalin 1 kantlykkja í garðaprjóni í hvorri hlið) á hringprjóna nr 4 með Cotton Merino. Prjónið stroff (= 1 l sl, 1 l br), endurtakið með 1 l sl, með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki. Prjónið þar til stykkið mælist 11 cm, fellið af allar l með sl yfir sl og br yfir br. FRÁGANGUR: Saumið stykkið með stroffi við aðra skammhliðina af STYKKI 1 innan við 1 kantlykkju í garðaprjón og endurtakið í hinni hliðinni. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #lavenderfrostset eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 20 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 156-21
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.