Luab skrifaði:
Strikker disse i str 38/40, og har derfor 52 masker etter at det er felt første omg av A3. Dette vil si 13m per pinne. Men A3 stemmer ikke overens med antall masker i diagrammet. Prøv å del 52 på 12 (som diagrammet viser), det går ikke opp. Er det meningen at det egentlig skal være 13 masker i diagrammet, da 13 *4 = 52? Og hva skal i såfall være i den siste maska? På forhånd takk for svar!
20.10.2014 - 19:16DROPS Design svaraði:
Hej Luab, Jo men A.3 viser 4 m (ikke 12m) i diagrammet og 52/4 = 13 gange ifølge diagrammet. God fornøjelse!
23.10.2014 - 11:32
Marias skrifaði:
Mi sa che c'è un errore in questa frase sulle diminuzioni per il tallone 1° f (= diritto del lavoro): lavorare fino a quando rimangono 7-7-8-8 m, passare la m successiva a dir, 1 MAGLIA DIRITTA SENZA LAVORARLA, accavallare la m passata sopra quella appena lavorata, girare il lavoro Ho scritto in maiuscolo per far vedere dov'è l'eventuale errore.Saluti.
22.07.2014 - 23:29DROPS Design svaraði:
Buonasera Marias. La ringraziamo per la segnalazione. Abbiamo corretto il testo. Buon lavoro!
22.07.2014 - 23:45
Marias skrifaði:
Scusate,quando c'è da lavorare A3 e dice di distribuire le m in modo uniforme,vuol dire diminuzioni vero? Perchè dice di distribuire le maglie in modo uniforme.
20.07.2014 - 09:57DROPS Design svaraði:
Buongiorno Marias, grazie per la segnalazione, abbiamo corretto, sono diminuzioni! Buon lavoro!!
20.07.2014 - 12:46
Mette Gøransson skrifaði:
Fine, de ønsker jeg meg!
18.06.2014 - 09:06
Berit Vivenius skrifaði:
Bra mönster
06.06.2014 - 20:47
Frisoline skrifaði:
Toutes douces et bien chaudes pour se mettre sur le canapé et lire un bon bouquin
06.06.2014 - 13:30
Véronique skrifaði:
Intemporel . Merci de nous transmettre ce savoir-faire .
05.06.2014 - 21:53
Jose Janssen skrifaði:
Zeer mooi
02.06.2014 - 19:36
Silver Dream Socks#silverdreamsocks |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónaðir sokkar með norrænu mynstri úr DROPS Karisma. Stærð 35-46.
DROPS 157-10 |
|||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynstur er prjónað í sléttprjóni. HÆLÚRTAKA: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 7-7-8-8 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 7-7-8-8 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 6-6-7-7 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 6-6-7-7 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. Haldið áfram með úrtöku á sama hátt með því að prjóna þar til eftir er 1 lykkja færri áður en 1 lykkju er lyft af prjóni, þar til 12-14-14-14 lykkjur eru eftir á prjóni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1: Prjónið síðustu 2 lykkjur á undan fyrra merki ofan á fæti snúnar slétt saman (prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan) og prjónið fyrstu 2 lykkjur á eftir seinna merki ofan á fæti slétt saman. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2 : Á undan merki: Prjónið 2 l slétt saman. Á eftir merki: Prjónið 2 lykkjur snúnar slétt saman (prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður að tá. SOKKUR: Fitjið upp 64-64-68-68 l á sokkaprjóna nr 2,5 með litnum ljós perlugrár DROPS Karisma. Prjónið stroff = 2 l sl, 2 l br í 4 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 3,5. Prjónið 1 umf sléttprjón JAFNFRAMT er fækkað um 4-4-8-8 l jafnt yfir = 60 l. Prjónið A.1. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið síðan A.2 – JAFNFRAMT í fyrstu umf á A.2 er fækkað um 4 l jafnt yfir = 56 l á prjóni. Á eftir A.2 er prjónað A.3 – JAFNFRAMT í fyrstu umf er fækkað um 8-4-0-0 l jafnt yfir = 48-52-56-56 l. Þegar A.3 hefur verið prjónað, mælist stykkið ca 20 cm. Sokkurinn er prjónaður í sléttprjóni með litnum ljós perlugrár til loka. Þegar stykkið mælist 23-24-25-26 cm er haldið eftir fyrstu 12-13-14-14 l á prjóni fyrir hæl, setjið eftirfarandi 24-26-28-28 l á þráð (= miðja ofan á fæti) og haldið eftir síðustu 12-13-14-14 l á prjóni fyrir hæl. Haldið áfram í sléttprjóni fram og til baka yfir 24-26-28-28 hællykkjur í 5-5½-6-6½ cm. Setjið 1 merki á hæl. Prjónið síðan HÆLÚRTAKA – lesið útskýringu að ofan. Þegar hælúrtöku er lokið eru prjónaðar upp 11-12-13-14 l hvoru megin við hæl og 24-26-28-28 l af þræði eru settar aftur til baka á prjóninn = 58-64-68-70 l. Setjið 1 merki hvoru megin við 24-26-28-28 l ofan á fæti. Prjónið nú sléttprjón hringinn JAFNFRAMT er lykkjum fækkað í hvorri hlið lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1! Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf alls 7-8-8-7 sinnum = 44-48-52-56 l. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 18-20-22-25 cm frá merki á hæl (= ca 4-4-5-5 cm að loka máli). Setjið 1 merki í hvora hlið þannig að það verða 22-24-26-28 l bæði ofan á fæti og undir fæti. Haldið áfram í sléttprjóni JAFNFRAMT er lykkjum fækkað fyrir tá hvoru megin við bæði merkin lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf alls 4-4-5-5 sinnum og síðan í hverri umf 5-6-6-7 sinnum = 8 l eftir á prjóni. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru. Herðið að og festið vel. Prjónið annan sokk á sama hátt. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #silverdreamsocks eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 18 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 157-10
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.