Jeanette Eskildsen skrifaði:
Den er så utrolig flot, jeg er allerede gået i gang - Det bliver helt sikkert en af mine ynglings trøjer :o)
15.09.2014 - 19:33
Oph_E_Lie skrifaði:
Il donne envie de se lover dedans lors des froides journées d'hiver
29.06.2014 - 14:23
Christina Inhammar skrifaði:
En skön och mysig tröja med luva som man bara vill krypa in i och gosa sig
20.06.2014 - 15:00Melanie skrifaði:
Superbe, j'ai vraiment hâte de pouvoir le réaliser!
20.06.2014 - 10:45
Malin skrifaði:
Myskofta, när man vill återfå värmen! Vill göra den!
17.06.2014 - 21:47
Dorota skrifaði:
JEDYNY W SWOIM RODZAJU
08.06.2014 - 23:34
Silje skrifaði:
Den vil jeg lage nå!!
06.06.2014 - 13:36
Frisoline skrifaði:
Le vent peut souffler, le froid peut mordre, vous êtes protégé avec cette veste enveloppante.
06.06.2014 - 13:11
Gera Van Riet skrifaði:
Elegant, female,
04.06.2014 - 21:22
Marie-christine D skrifaði:
Veste complète, mieux qu'un gilet, la capuche rajoute à l'élégance, Merci. Le plus dur est de ne pouvoir choisir que 10 modèles alors que tous vos modèles sont magnifiques !!
04.06.2014 - 07:49
Autumn Getaway#autumngetawayjacket |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk með laskalínu, hettu og áferðamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 157-3 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á sokkaprjóna): *1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-*. MYNSTUR-1: Sjá mynsturteikningu A.1-A.4. Mynsturteikningin sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. MYNSTUR-2: UMFERÐ 1: sl frá réttu. UMFERÐ 2: br frá röngu. UMFERÐ 3: sl frá réttu. UMFERÐ 4: sl frá röngu. UMFERÐ 5: sl frá réttu. UMFERÐ 6: br frá röngu. Endurtakið umf 1-6. MÆLING: Öll mæling er gert þegar stykkinu er haldið uppi. ÚRTAKA: Öll úrtaka er gerð frá réttu. Fækkið um 1 l á undan merkiþræði þannig: Prjónið þar til 2 l eru eftir á undan merkiþræði, lyftið 1 lykkju af prjóni, 1 lykkja slétt / brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir. Fækkið um 1 l á eftir merkiþræði þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt / brugðið saman. ATH: Úrtaknu lykkjum er stillt af eftir mynstri-2 miðað við ef prjónað er sl eða br. LASKALÍNA: Aukið út um 1 l á undan 1.-3.-5.-7. merki og 1 l á eftir 2.-4.-6.-8. merki. Aukið út frá RÉTTU þannig: Prjónið að merki, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Uppslátturinn er síðan prjónaður snúinn brugðið í næstu umf. Aukið út frá RÖNGU þannig: Prjónið að merki, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umf. ATH: Uppslátturinn á ermi er stilltur af eftir mynstri-2 miðað við ef prjónað er snúið sl eða snúið br. HNAPPAGAT: Fellt er af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjóni þriðju og fjórðu l frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: STÆRÐ S: 4, 14, 24, 34 og 42 cm. STÆRÐ M: 2, 10, 19, 28, 37 og 46 cm. STÆRÐ L: 2, 11, 20, 30, 40 og 50 cm. STÆRÐ XL: 2, 10, 18, 26, 34, 42 og 50 cm. STÆRÐ XXL: 2, 10, 19, 28, 37, 46 og 55 cm. STÆRÐ XXXL: 2, 11, 20, 29, 39, 49 og 59 cm. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað ofan frá og niður, fram og til baka á hringprjóna. HETTA: Fitjið upp 98-98-106-106-114-114 l á hringprjóna nr 5 með 1 þræði af Kid-Silk og 1 þræði Alpaca (= 2 þræðir). Prjónið 2 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Næsta umf er prjónuð þannig: Prjónið 6 l garðaprjón, MYNSTUR-2 – sjá útskýringu að ofan, þar til 6 l eru eftir, JAFNFRAMT er setttur 1 merkiþráður eftir 49-49-53-53-57-57 l, endið á 6 l garðaprjón. Þegar stykkið mælist 26-26-27-27-28-28 cm fækkið um 1 l hvoru megin við merkiþráðinn – LESIÐ ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku í 8. hverri umf 3 sinnum til viðbótar = 90-90-98-98-106-106 l. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið þar til stykkið mælist 38-38-39-39-40-40 cm – LESIÐ MÆLING, passið að síðasta umf er frá röngu. Setjið 1 merki í stykkið. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! BERUSTYKKI: Prjónið 2 umf garðaprjón JAFNFRAMT í 1. umf er fækkað um 6-6-10-6-10-10 l jafnt yfir = 84-84-88-92-96-96 l. Prjónið 2 umf garðaprjón JAFNFRAMT í síðustu umf er aukið út um 8-16-20-36-44-56 l jafnt yfir = 92-100-108-128-140-152 l. MUNIÐ EFTIR HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Í næstu umf frá réttu eru sett 8 merki í stykkið þannig: Prjónið 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 10-12-14-18-21-24 l sléttprjón (= vinstra framstykki), setjið 1. merki, prjónið 4 l sléttprjón, setjið 2. merki, 12-12-12-14-14-14 l mynstur-2 (= vinstri ermi), setjið 3. merki, prjónið 4 l sléttprjón, setjið 4. merki, 20-24-28-36-42-48 l sléttprjón (= bakstykki), setjið 5. merki, 4 l sléttprjón, setjið 6. merki, 12-12-12-14-14-14 l mynstur-2 (= hægri ermi), setjið 7. merki, 4 l sléttprjón, setjið 8. merki, 10-12-14-18-21-24 l sléttprjón og endið á 6 l kantlykkjur að framan í garðaprjóni (= hægra framstykki). Kantlykkjur að framan eru prjónaðar í garðaprjóni til loka. Ermarnar eru prjónaðar með mynstri-2 til loka. Aukið síðan út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, þannig: Aukið út í hverri umf 2-4-6-4-6-8 sinnum, aukið síðan út í hverri umf frá réttu 18-18-18-20-20-20 sinnum = 252-276-300-320-348-376 l. Stykkið mælist nú ca 17-18-19-20-21-22 cm. Nú er næsta umf prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 40-44-48-52-57-62 l, setjið næstu 52-56-60-62-66-70 l á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6 nýjar l undir ermi, prjónið næstu 68-76-84-92-102-112 l, setjið næstu 52-56-60-62-66-70 l á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6 nýjar l undir ermi, prjónið næstu 40-44-48-52-57-62 l. Nú eru 160-176-192-208-228-248 l á fram- og bakstykki. Setjið 1 merki í stykkið. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: Prjónið nú þannig: 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 31-35-39-43-48-53 l sléttprjón, A.1 (= 6 l), A.2, 62-70-78-86-96-106 l sléttprjón, A.1, A.2, 31-35-39-43-48-53 l sléttprjón, endið á 6 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Br l A.1/A.2 færist til um 1 l við miðju að framan/aftan í hverri umf. Þegar 10 l sléttprjón eru á milli br l í hvorri hlið á stykki byrjar 1 ný mynstureining af A.1/A.2 á hæðina. Þegar A.1/A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, heldur áfram færast til br l í hverri umf þar til 1. l br mætist kanti að framan í hvorri hlið á stykki. Prjónið síðan A.3 yfir A.1 og A.4 yfir A.2, þ.e.a.s. br l færist nú að hlið. Br l færist til um 1 l í hverri umf. Þegar A.3/A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, heldur br l áfram að færast til í hverri umf þar til hún mætist í hlið. JAFNFRAMT er byrjið ný mynstureining á A.3/A.4 í 8. hverri umf við miðju að framan og miðju að aftan alls 3 sinnum. Þegar stykkið mælist 28-30-32-34-36-38 cm er aukið út frá réttu þannig: Prjónið garðaprjón og sléttprjón eins og áður að fyrstu l br, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið mynstur A.3/A.4 eins og áður til og með síðustu l br, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttprjón yfir bakstykki að fyrstu l br, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið mynstur A.3/A.4 eins og áður til og með síðustu l br, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttprjón og endið á 6 l garðaprjón (= 4 l fleiri). Uppslátturinn er prjónaður snúinn br. Endurtakið útaukningu með 5 cm millibili 2 sinnum til viðbótar = 172-188-204-220-240-260 l. Þegar síðasta l br mætist á hlið er stykkið prjónað áfram í sléttprjóni með 6 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-59 cm, skiptið yfir á hringprjóna nr 4,5 og prjónið 12 umf. Fellið af. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Setjið til baka l af þræði á sokkaprjóna nr 5. Haldið áfram með mynstur-2 JAFNFRAMT í 1. umf eru fitjaðar upp 6 nýjar l undir ermi (setjið merki mitt á milli nýrra lykkja) = 58-62-66-68-72-76 l. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við merki. Endurtakið úrtöku með 3-3- 2½-2½-2½-2½-2 cm millibili 10-11-12-12-13-15 sinnum til viðbótar = 36-38-40-42-44-44 l. Þegar stykkið mælist 38-39-40-41-42-43 cm, skiptið yfir á sokkaprjóna nr 4,5 og prjónið 12 umf GARÐAPRJÓN – sjá utskýringu að ofan. Fellið af. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. Leggið hettuna tvöfalda saman og saumið saman efst. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #autumngetawayjacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 24 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 157-3
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.