Andrea skrifaði:
Très beau jeu de lignes graphiques mais peut être compliqué à tricoter
01.01.2014 - 19:46
Petra Zühlke skrifaði:
Interessante Strickweise.
01.01.2014 - 16:51
Pia Hansen skrifaði:
Fantastisk flot
29.12.2013 - 15:12Karen skrifaði:
Love the shawl
26.12.2013 - 19:36
Olga Kotalová skrifaði:
Miluji šátky a tento rozhodně musím mít.
25.12.2013 - 14:57
Lynne Govers skrifaði:
Me three (third vote for best pattern in the whole collection)
20.12.2013 - 23:00
Debby skrifaði:
I simply must have this pattern! So unique and updated! I love it and agree with the comment that it is the best piece in the whole collection!
20.12.2013 - 15:35
Gesine skrifaði:
Sehr schickes Modell.
17.12.2013 - 17:43
Jacqueline skrifaði:
Eens helemaal iets anders,bijzonder mooi.
15.12.2013 - 22:21
Jette skrifaði:
Unik
14.12.2013 - 23:27
Dancing Wind#dancingwindshawl |
|
|
|
Prjónað sjal með dominoferningum og stuttum umferðum úr DROPS Delight og DROPS BabyAlpaca Silk .
DROPS 155-5 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. DOMINOFERNINGUR: Setjið 1 prjónamerki í miðjulykkju. UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sl þar til 1 l er eftir á undan l með prjónamerki, takið 1 l óprjónaða, 2 l slétt saman, steypið síðan óprjónuðu l yfir, prjónið sl út umf. Endurtakið umf 1 og 2, þ.e.a.s. að fækkað er um 2 l við miðju á ferningi í annarri hverri umf þar til 1 l er eftir á prjóni, klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum lykkjuna. STUTTAR UMFERÐIR: Yfir síðustu 84-108 l (séð frá röngu) á að prjóna stuttar umferðir þannig: UMFERÐ 1 = frá röngu: Prjónið 6-4 l sl, snúið við. UMFERÐ 2 = frá réttu: Prjónið sl til baka. UMFERÐ 3 = frá röngu: Prjónið 12 l sl, snúið við. UMFERÐ 4 = frá réttu: Prjónið sl til baka. Haldið áfram alveg eins með því að auka stuttar umf með 6-8 l fyrir hvert skipti sem prjónað er frá röngu. Í 27. umf er prjónað yfir allar l á prjóni og síðan er fækkað um 6-8 l í hvert skipti sem prjónað er þannig: UMFERÐ 27 = frá röngu: Prjónið sl yfir allar þær 84-108 l, snúið við. UMFERÐ 28 = frá réttu: Prjónið sl til baka. UMFERÐ 29 = frá röngu: Prjónið sl þar til 6-8 l eru eftir, snúið við. UMFERÐ 30 = frá réttu: Prjónið sl til baka. UMFERÐ 31 = frá röngu: Prjónið sl þar til 12-16 l eru eftir, snúið við. UMFERÐ 32 = frá réttu: Prjónið sl til baka. Haldið áfram alveg eins með því að fækka í stuttum umf með 6-8 l í hvert skipti sem prjónað er frá röngu. Þar til 4 l eru eftir og dominoferningurinn hefur verið prjónaður. LEIÐBEININGAR: Í hverjum dominoferningi er fyrsta og síðasta umf prjónuð í garðaprjóni (þ.e.a.s. í þeirri umferð sem prjónaðar eru upp 55 l og fitjaðar eru upp 54 nýjar lykkjur) með BabyAlpaca Silk, þannig að það verður mynstur í stuttu umferðunum í BabyAlpaca Silk. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna til að fá pláss fyrir allar lykkjur. Prjónið 2 umf garðaprjón með Delight og 2 umf garðaprjón með BabyAlpaca Silk – LESIÐ LEIÐBEININGAR! SJAL: Fitjið LAUST UPP 193-217 l á hringprjóna nr 4 með BabyAlpaca Silk. Allar l eru prjónaðar með GARÐAPRJÓN – sjá skýringu að ofan. Prjónið 1 umf sl frá réttu yfir allar l. * Síðan er prjónað með Delight þannig (1. umf = ranga): Prjónið DOMINOFERNINGUR – lesið útskýringu að ofan – yfir fyrstu 109-109 l, JAFNFRAMT eru prjónaðar STUTTAR UMFERÐIR – lesið útskýringu að ofan – yfir næstu 84-108 l. Haldið svona áfram með 2 umf garðaprjón úr Delight og 2 umf garðaprjón úr BabyAlpaca Silk þar til dominoferningurinn hefur verið prjónaður. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar dominoferningurinn hefur verið prjónaður er prjónuð 1 umf slétt með BabyAlpaca Silk frá röngu yfir allar l. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig (ATH! Munið eftir LEIÐBEININGAR): Prjónið sl yfir fyrstu 84-108 l, prjónið upp 55 l meðfram hlið á dominoferningi. Þegar síðasti dominoferningurinn hefur verið prjónaður, prjónið upp ca 280-330 l (meðtaldar l á prjóni) með Delight yfir kant efst á sjali (þ.e.a.s. meðfram hlið á síðasta dominoferningi sem prjónaður og upp yfir uppfitjunarkantinn á fyrsta dominoferningnum). Prjónið garðaprjón með 2 umf garðaprjón úr Delight og 2 umf garðaprjón úr BabyAlpaca Silk fram og til baka þar til kanturinn mælist ca 2 cm. Felli laust af. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #dancingwindshawl eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 14 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 155-5
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.