DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
DROPS SS24
DROPS 155-9
DROPS Design: Mynstur nr de-112
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Mál:
Breidd efst: ca 188 cm
Lengd við miðju að aftan: ca 51 cm

Efni:
DROPS DELIGHT frá Garnstudio
200 gr nr 11, fjólublár/grænn
Og einnig:
DROPS FABEL frá Garnstudio
150 gr litur nr 800, natur/beige

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l og 27 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING:
Aukið er út um 1 l frá réttu með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. ATH. Uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn í næstu umf, það eiga að myndast göt.

GATAMYNSTUR:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sl.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið br.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 l fleiri), * 2 l slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* þar til það eru 2 l eftir á undan 1. prjónamerki, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 l fleiri), 1 l sl, prjónið síðan * 2 l slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* þar til 1 l er eftir á undan 2. prjónamerki, 2 l sl (prjónamerki er á milli þessa l), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 l fleiri), * 2 l slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* þar til 3 l eru eftir, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 l fleiri), endið á 2 kantlykkjum í garðaprjóni.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið br.

MYNSTUR-1:
* 2 umf garðaprjón, GATAMYNSTUR (= 4 umf) – sjá útskýringu að ofan *, endurtakið frá *-*.

RENDUR:
2 umf garðaprjón með Delight
GATAMYNSTUR – sjá útskýringu að ofan – með Fabel (= 4 umf)
2 umf í garðaprjóni með Deligth
2 umf slétt með Fabel
2 umf slétt með Delight
2 umf slétt með Fabel
2 umf slétt með Delight
2 umf slétt með Fabel
2 umf slétt með Delight
2 umf slétt með Fabel

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka með RENDUR – sjá útskýringu að ofan – á hringprjóna til þess að fá pláss fyrir allar lykkjur.

SJAL:
Fitjið upp 113 l á hringprjóna nr 4 með Delight. Setjið 1 prjónamerki eftir 4 l í hvorri hlið á sjalinu (= 105 l á milli prjónamerkja) og látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Prjónið frá réttu þannig: Prjónið 2 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, þessi l er prjónuð í sléttprjóni til loka, (1. prjónamerki), sl yfir næstu 105 l, (2. prjónamerki), 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, endið á 2 kantlykkjum í garðaprjóni. Prjónið rendur í sléttprjóni með 2 kantlykkjum í garðaprjóni, í hvorri hlið sem JAFNFRAMT er aukið út – sjá ÚTAUKNING að ofan, 1 l innan við 2 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið á stykkið og aukið er út um 1 l á undan 1. prjónamerki og 1 l á eftir 2. prjónamerki í hverri umf frá réttu (= 4 l fleiri í hverri umf frá réttu). ATH: Útauknar lykkjur eru útskýrðar í 3. umf í gatamynstri. Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur. Haldið áfram að prjóna og auka svona út þar til prjónaðar hafa verið alls 6 mynstureiningar með röndum = 136 l á undan 1. prjónamerki, 105 l í miðju og 136 l á eftir 2. prjónamerki = 337 l á prjóni (nú hefur verið aukið út alls 66 sinnum). Stykkið mælist ca 36 cm í prjónstefnu meðfram öðru prjónamerkinu. Prjónið nú stykkið áfram með Fabel og MYNSTUR-1 – sjá útskýringu að ofan, með 2 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið JAFNFRAMT er haldið áfram að auka út eins og áður í hverri umf frá réttu. Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur. Haldið áfram að prjóna og auka út svona þar til prjónaðar hafa verið alls 4 mynstureiningar af MYNSTRI-1 = 160 l á undan 1. prjónamerki, 105 l í miðju og 160 l eftir 2. prjónamerki (nú hefur verið aukið út alls 78 sinnum) = 425 l á prjóni.

Prjónið nú 1 umf sl frá réttu með Delight þannig: Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni, * sláið 1 sinni uppá prjóninn*, endurtakið frá *-* 4 sinnum til viðbótar (= 5 l fleiri), prjónið þar til 5 l eru eftir á undan 1. prjónamerki, prjónið nú þannig * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl *, endurtakið frá *-* 9 sinnum til viðbótar (= 10 l fleiri), prjónið 52 l sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 l fleiri), prjónið sléttprjón þar til 5 l eru eftir á undan 2. prjónamerki, prjónið nú * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl *, endurtakið frá *-* 9 sinnum til viðbótar (= 10 l fleiri), prjónið sléttprjón þar til 7 l eru eftir á prjóni, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl *, endurtakið frá *-* 4 sinnum til viðbótar (= 5 l fleiri), endið á 2 kantlykkjum í garðaprjóni. Prjónið 1 umf slétt frá röngu, uppslátturinn frá fyrri umf er prjónaður snúinn slétt þannig að ekki myndist gat = 456 l á prjóni. Stykkið mælist nú ca 42 cm í prjónstefnu meðfram einu prjónamerki. Prjónið nú kant á sjalið.

KANTUR:
Ekki snúa stykkinu, fitjið heldur upp 14 nýjar l með Delight fyrir kant á sjali frá röngu. Snúið við, prjónið 1 umf slétt yfir 14 nýjar lykkjur, snúið við. Prjónið nú eftir mynstri A.1 yfir þessar l frá röngu (1.umf í mynstri = ranga). ATH! Í hverri umf frá réttu er síðasta l prjónuð saman með næstu lausu l af sjali – með þessu verður kanturinn stífari á sjalinu. Í næstu umf er 1. l tekin óprjónuð eins og prjóna eigi hana br. Haldið áfram að prjóna A.1 meðfram öllum kantinum á sjalinu = 57 oddar/horn meðfram kanti. Fellið laust af.

STREKKING:
Leggið stykkið í volgt vatn þar til það er gegnblautt. Pressið varlega vatnið úr – ekki vinda.
Rúllið síðan stykkinu inn í handklæði og pressið til þess að ná meira vatni úr – stykkið á nú að vera aðeins rakt. Leggið stykkið á mottu eða á dýnu. Látið það þorna.
Endurtakið þetta í hvert skipti sem sjalið er þvegið.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 24.04.2014
Nýtt efnismagn: DROPS DELIGHT frá Garnstudio 200 gr litur nr 11, grænn

Mynstur

symbols = sl frá röngu
symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = l sem eru felldar af frá réttu
symbols = 2 l slétt saman
symbols = sláið 2 uppá prjóninn, í næstu umf er annar uppslátturinn prjónaður, hinn er látinn falla niður
symbols = sláið uppá prjóninn
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 155-9

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (28)

country flag Karen wrote:

This is a beautiful shawl and I have now reached the edging part. Looking at diagram A1, I am a bit confused. Is the whole edging part done in garter stitch or stocking stitch? The squares with the lines through say K from WS, then the blank squares say K from RS, P from WS, but on that row you are always on the RS, so how can you purl? Any advice gratefully received.

03.03.2022 - 00:17

DROPS Design answered:

Dear Karen, A.1 is worked in garter stitch; first row in A.1 is worked from WS = K from WS and on the RS row you will K from RS. Happy knitting!

03.03.2022 - 10:30

country flag Anne Bernard wrote:

Bonjour Je suis arrivée à la bordure mais je ne comprends pas que la 1ère maille est à l'endroit sur le l'envers si je dois glisser la 1ère m à l'envers. Merci

22.03.2020 - 14:44

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Bernard, pour attacher la bordure au châle, vous tricotez la dernière maille de la bordure et la maille en attente du châle ensemble à l'endroit, tournez et glissez la 1ère maille de la bordure comme pour la tricoter à l'envers (et continuez ensuite le diagramme). Bon tricot!

23.03.2020 - 10:43

country flag Emma wrote:

Das Tuch ist fertig.Sieht toll .Mit Armstulpen ist es perfekt.

26.03.2018 - 12:25

country flag Emma Model wrote:

Ich bin von Tuch begeistert.Gestern abend habe ich angefangen. Ich habe die Farbe uni Weiß und Grün gewählt. Sieht toll aus. Die Anleitung nach 2maligen lesen hat geklappt. An alle Strickbegeisterte grüße Emma

15.03.2018 - 16:53

country flag Elisabeth Dürrbeck wrote:

Ich möchte das o.g. Modell Stricken. Aber eine andere Farbe verwenden, und zwar Drops Delight 12, Regenbogen . Kann ich das zusammen mit der Farbe Fabel 800, Natur-beige stricken oder sieht eine andere Farbe dazu besser aus?

22.10.2015 - 10:04

DROPS Design answered:

Das ist letztendlich immer Geschmackssache. Natur/beige ist ja sehr neutral und passt daher auch zu regenbogen, allerdings wird diese Farbe aus dem Programm genommen. Alternativ bietet sich natur oder einer der Grautöne an, je nachdem, wie hell die hellen Bereiche werden sollen. Ich würde zu regenbogen einen hellen Ton wählen, damit sich die Farben gut davon absetzen und somit noch mehr zum Leuchten kommen.

30.10.2015 - 12:29

country flag Regina Hausdorf wrote:

Was bedeutet Drops Rundnadel 4? Wenn am Knäuel selbst 2,5mm Nadelstärke steht. Mit welcher Stärke stricht Ihr jetzt dieses Tuch? Ich habe die Wolle bereits vor mir liegen. Danke für Eure Antwort

15.01.2015 - 23:55

DROPS Design answered:

Sie halten sich immer an die in der Anleitung angegebene Nadelstärke, also 4 mm. Die Angabe auf der Banderole ist nur ein Richtwert. Für Tücher wird gerne eine etwas dickere Nadel genommen, damit sie lockerer fallen. Sie müssen aber auch die Maschenprobe einhalten und die Nadelstärke verwenden, die Sie zum Erreichen der Maschenprobe benötigen, das kann dann ggf. von der 4er-Nadel abweichen. Gutes Gelingen!

17.01.2015 - 19:05

country flag Marlou wrote:

Prachtige sjaal waarbij ik al moeite heb met het begin! Vraag 1 Brei ik iedere nld aan de goede kant 1 omslag 1 r, 1 omslag 1 r en meerder ik dan ook nog 2 x2 steken. Vraag 2 ik begin met delight begin ik dan met de eerste naald van de strepen - in ribbel dus?

14.01.2015 - 20:20

DROPS Design answered:

Hoi Marlou. Je meerdert zoals beschreven in elke nld op de goede kant (Zie TIP VOOR HET MEERDEREN). 1 omslag aan beide kanten van de markeerder = 4 omslagen per keer = 4 st. Vraag 2: Ja! :-)

15.01.2015 - 16:56

country flag Jutta wrote:

Hallo, ich habe das Tuch schon zwei mal gestrickt und bei beiden Tücher brauchte ich je 50 g Delight mehr. Da ich immer 50 g mehr kaufe als angebegen war es bei mir nicht so schlimm. Aber Ihr sollte die menge von Delight anpassen. LG Jutta

25.06.2014 - 22:32

country flag Marijke wrote:

Ik had het alleen over de punten, de rand van de sjaal dus. Als je het patroon volgt (schema A1) dan krijg je een ribbel, maar dat is niet mooi. Ik heb het patroon nu zelf aangepast naar tricotsteken, alleen de buitenste 2 steken als ribbel. Volgens mij moeten de streepjes tussen de omslagen op de tekening weg. Ik vind het in elk geval een verbetering. Overigens vraag ik me ook af of ik wel genoeg wol heb. Die rand kost enorm veel wol. Dus dat zou ik zeker aanpassen!

24.04.2014 - 22:52

DROPS Design answered:

Hoi Marijke. De rand is correct, maar je mag natuurlijk altijd eigen aanpassingen maken. Er was helaas wel een fout in de hoeveelheid garen Delight. Dit is op 24/4 aangepast (Kijk onder correcties). Voor hoe de rand gebreid moet worden, dan kan je hier ook kijken:

25.04.2014 - 12:32

country flag Anna wrote:

Hallo, ich hab ein ähnliches Problem wie Barbara; mein drittes Knäuel Delight ist ca 60 Reihen vor Schluss der Bordüre zu Ende gegangen. Trotzdem: Ein wunderschöner Schal. Ich habe noch Wolle für ein zweites Exemplar in einer anderen Farbe, werde dann die zwei fehlenden Knäuel nachbestellen und bis dahin ist mein erstes (ja noch nicht vollendetes) Tuch zumindest davor sicher, dass meine Schwester es mir mopst. :)

23.04.2014 - 23:15