Eva Maria Külling skrifaði:
Supermodell - freue mich schon aufs Stricken!
12.01.2014 - 11:13Connie Burton skrifaði:
When or where can we get the pattern for this and other garments?
11.01.2014 - 18:09
Katrin skrifaði:
Bitte schnell die Anleitung ins Netz stellen :)
10.01.2014 - 11:33
Lena Svensson skrifaði:
Underbar modell, ser så sval och skön ut till sommaren i detta fantastiska garn. Kommer absolut att sticka den
03.01.2014 - 19:10
Andrea skrifaði:
Bien avec la veste pour avoir un twin set
01.01.2014 - 19:54
Alina skrifaði:
Bitte bitte in das neue Programm nehmen!!!
29.12.2013 - 16:28
Clara skrifaði:
Ho già utilizzato il motivo ad onde per una cappa invernale e ho apprezzato l'effetto
29.12.2013 - 12:36
Joindi skrifaði:
Muito interessante!!!
26.12.2013 - 20:28
Lynne Govers skrifaði:
Now there's a sweater I can wear!
20.12.2013 - 22:50
Irene Nederpel skrifaði:
Leuk om the maken
19.12.2013 - 09:22
Amanda#amandatop |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Prjónaður toppur úr DROPS Bomull-Lin eða DROPS Paris með öldumynstri og garðaprjóni. Stærð XS - XXXL.
DROPS 153-34 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR: Til þess að mynstrið gangi jafnt upp er prjónuð 1 kantlykkja fleiri í hægri hlið á stykki séð frá réttu. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 l með því að taka þráðinn upp á milli 2 l frá fyrri umf – prjónið þessa l snúna slétt, þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan til þess að koma í veg fyrir göt. ÚRTAKA: Fækkið lykkjum innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. Öll úrtaka er gerð frá röngu! Fækkið lykkjum á undan 1 kantlykkju þannig: Prjónið 2 l slétt saman. Fækkið lykkjum á eftir 1 kantlykkju þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. LEIÐBEININGAR UM FRÁGANG: Bomull-Lin verður jafnara og fallegra eftir þvott. Þegar stykkið hefur verið prjónað er það þvegið, strekkt út í rétta stærð – sjá mynsturteikningu og látið þorna flatt. Stykkið kemur til með að teygjast ca 5 cm á lengdina eftir þvott. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hægri hlið séð frá réttu – LESIÐ LEIÐBEININGAR! BAKSTYKKI: Fitjið upp 57-71-85-99 l á hringprjóna nr 6 með Bomull-Lin. Prjónið 2 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan MYNSTUR frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, A.1 (= 14 l) alls 4-5-6-7 sinnum. Haldið síðan áfram fram og til baka með mynstur og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hægir hlið á stykki. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 31-34-37-40 cm er sett eitt prjónamerki í hvora hlið til að merkja handveg. Þegar stykkið mælist 39-42-46-49 cm er haldið áfram í garðaprjóni, JAFNFRAMT í fyrstu umf er aukið út um 3-4-5-6 l jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING (= 60-75-90-105 l á prjóni). Þegar stykkið mælist 47-51-55-59 cm fellið af miðju 28-29-32-33 l í næstu umf frá röngu og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Í næstu umf frá röngu er fækkað um 1 l fyrir hálsmál – LESIÐ ÚRTAKA = 15-22-28-35 l eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 50-54-58-62 cm. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: Fitjið upp og prjónið á sama hátt og bakstykki. Þegar stykkið mælist 42-45-49-52 cm fellið af miðju 20-21-22-23 l í næstu umf frá röngu og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Prjónið nú garðaprjón og fækkið um 1 l fyri hálsmál í næstu umf frá röngu – LESIÐ ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku í hverri umf frá röngu 4-4-5-5 sinnum til viðbótar (þ.e.a.s. alls 5-5-6-6 úrtökur) = 15-22-28-35 l eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 50-54-58-62 cm. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma og hliðarsauma saman yst í lykkjubogann. Hliðarsaumurinn á að byrja 31-34-37-40 cm frá uppfitjunarkanti. Þegar stykkið er tilbúið, er það skolað, strekkt út í rétta stærð – sjá mynsturteikningu og látið þorna flatt. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #amandatop eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 16 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 153-34
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.