DROPS Bomull-Lin
DROPS Bomull-Lin
53% Bómull, 47% Hör
frá 726.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5082.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Amanda Cardigan

Prjónuð peysa úr DROPS Bomull-Lin eða DROPS Paris með gatamynstri og laskalínu. Stærð S - XXXL.

DROPS 153-35
DROPS Design: Mynstur nr l-127
Garnflokkur C
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS BOMULL-LIN frá Garnstudio
350-400-450-500-550-600 gr litur nr 03, ljós beige
eða notið:
DROPS PARIS frá Garnstudio
350-400-450-500-550-600 gr litur nr 26, dökk beige

DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 6 – eða þá stærð sem þarf til að 16 l og 20 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (60 cm) NR 4,5 – fyrir kant með garðaprjóni.
DROPS KÓKOSTÖLUR NR 516: 5-5-6-6-6-6 stk.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Bomull-Lin
DROPS Bomull-Lin
53% Bómull, 47% Hör
frá 726.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5082.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTURÁFERÐ:
* 1 l sl, 1 l br *, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á hringprjóna):
*1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-*.

ÚRTAKA-1:
Fækkið um 1 l á fram/bakstykki og 1 l í hvorri hlið á ermi þannig:
Byrjið 5 l á undan 1.-3.-5. og 7. prjónamerki: Prjónið 3 l slétt saman, sláið 2 uppá prjóninn, 2 l snúnar saman (1.-3.-5. og 7. prjónamerki), 1 l sl, (2.-4.-6. og 8. prjónamerki), 2 l slétt saman, sláið 2 sinnum uppá prjóninn, 3 l slétt saman. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður þannig: 1. uppslátturinn er prjónaður slétt og 2. uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt.

Fækkið um 1 l á fram/bakstykki og 2 l í hvorri hlið á ermi þannig:
Byrjið 5 l á undan 1. og 5. prjónamerki: Prjónið 3 l slétt saman, sláið 2 sinnum uppá prjóninn, 2 l snúnar saman, (1. og 5. prjónamerki), 1 l sl (2. og 6. prjónamerki), 2 l slétt saman, sláið 2 sinnum uppá prjóninn, 4 l slétt saman, prjónið síðan eins og áður þar til 6 l eru eftir á undan 3. og 7. prjónamerki: Prjónið 4 l slétt saman, sláið 2 sinnum uppá prjóninn, 2 l snúnar saman (3. og 7. prjónamerki), 1 l sl, (4. og 8. prjónamerki), 2 l slétt saman, sláið 2 sinnum uppá prjóninn, 3 l slétt saman. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður þannig: 1. uppslátturinn er prjónaður slétt og 2. uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt.

ÚRTAKA-2:
Fækkið l innan við 5 kantlykkju að framan í hvorri hlið. Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið lykkjum á eftir 5 kantlykkjum að framan þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.
Fellið af á undan 5 kantlykkjum að framan þannig: Prjónið 2 l slétt saman.

HNAPPAGAT:
Fellt er af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið aðra og þriðju l frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
STÆRÐ S: 3, 12, 21, 30 og 39 cm.
STÆRÐ M: 5, 14, 23, 32 og 41 cm.
STÆRÐ L: 7, 14, 21, 28, 35 og 42 cm.
STÆRÐ XL: 9, 16, 23, 30, 37 og 44 cm.
STÆRÐ XXL: 5, 13, 21, 29, 37 og 45 cm.
STÆRÐ XXXL: 7, 15, 23, 31, 39 og 47 cm.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 138-150-162-175-194-214 l (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið) á hringprjóna nr 4,5 með Bomull-Lin. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – í 3 cm. Skiptið yfir á hringprjóna nr 5,5. Prjónið síðan sléttprjón með 5 l garðaprjón (= kantur að framan) hvoru megin á stykki. MUNIÐ EFTIR HNAPPAGAT! Þegar stykkið mælist 38-37-37-38-39-40 cm er fellt af fyrir handveg frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 28-31-34-37-41-46 l sléttprjón, fellið af næstu 8-8-8-10-10-10 l, sléttprjón yfir næstu 56-62-68-74-82-92 l, fellið af næstu 8-8-8-10-10-10, sléttprjón yfir næstu 28-31-34-37-41-46 l, endið á 5 l garðaprjón (= kantur að framan) = 122-134-146-158-174-194 l eftir á prjóni. Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna. Fitjið upp 85-87-91-93-97-101 l á hringprjóna nr 4,5 með Bomull-Lin. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 5,5. Prjónið síðan áfram til loka þannig: Prjónið 1 umf sléttprjón, 1 umf MYNSTUR MEÐ ÁFERÐ – sjá útskýringu að ofan, endurtakið þessar 2 umf til loka. Þegar stykkið mælist 4 cm er sett 1 prjónamerki í byrjun umf (= miðja undir ermi). Í næstu umf eru felldar af 8-8-8-10-10-10 l mitt undir ermi (þ.e.a.s. 4-4-4-5-5-5 l hvoru megin við prjónamerki) = 77-79-83-83-87-91 l. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 276-292-312-324-348-376 l. Setjið nú 8 prjónamerki í stykkið frá réttu þannig: Prjónið 5 l garðaprjón (= kantur að framan), 27-30-33-36-40-45 l sl, setjið 1. prjónamerki, 1 l sl, setjið 2. prjónamerki, 77-79-83-83-87-91 l áferð eins og áður (= ermi), setjið 3. prjónamerki, 1 l sl, setjið 4. prjónamerki, 54-60-66-72-80-90 l sl, setjið 5. prjónamerki, 1 l sl, setjið 6. prjónamerki, 77-79-83-83-87-91 l áferð eins og áður (= ermi), setjið 7. prjónamerki, 1 l sl, setjið 8. prjónamerki, 27-30-33-36-40-45 l sl og endið á 5 l garðaprjón (= kantur að framan).
Haldið nú áfram eins og áður í garðaprjóni, sléttprjóni og mynstri með áferð JAFNFRAMT byrjar úrtaka fyrir LASKALÍNA – lesið ÚRTAKA -1. Lykkjum er fækkað mismunandi á ermum og framstykki/bakstykki.
Á ERMI: Fækkið lykkjum hvoru megin á ermi í hverri umf frá réttu 1 l 7-12-13-15-16-16 sinnum, síðan 2 l 11-9-9-8-8-9 sinnum.
Á FRAMSTYKKI/BAKSTYKKI: Fækkið lykkjum í hverri umf frá réttu 1 l 18-21-22-23-24-25 sinnum. MUNIÐ EFTIR HNAPPAGAT!
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 40-42-43-45-46-48 cm (passið uppá að prjónaðar hafa verið ca 2 umf eftir síðasta hnappagati í hægri kanti að framan), prjónið nú stuttar umferðir yfiri kant að framan þannig (byrjið frá réttu): Prjónið 5 kantlykkjur að framan, snúið við, herðið á þræði og prjónið sl til baka, snúið við og prjónið eins og áður yfir allar l, snúið við, prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, snúið við og prjónið til baka, snúið við. Prjónið nú fram og til baka yfir allar l eins og áður, JAFNFRAMT í 1. umf frá réttu er nú fækkað um 1 l í hvorri hlið við miðju að framan V-hálsmál – LESIÐ ÚRTAKA-2. Endurtakið úrtöku í hverri umf frá réttu 12-12-14-14-15-15 sinnum (það er í lagi ef úrtaka við hálsmál kemur yfir úrtöku fyrir laskalínu á framstykki). Eftir úrtöku eru ca 64-64-72-80-94-110 l á prjóni. JAFNFRAMT eftir síðustu umf með úrtöku fyrir laskalínu eru næstu 2 umf prjónaðar þannig (með byrjun frá röngu): Prjónið 5 kantlykkjur að framan eins og áður, setjið þær á þráð og prjónið út umf, snúið við, prjónið 5 kantlykkjur eins og áður, setjið þær á þráð og prjónið út umf = ca 54-54-62-70-84-100 l á prjóni. Prjónið 1 umf br frá röngu JAFNFRAMT er fækkað um 6-6-10-18-30-46 l jafnt yfir = ca 48-48-52-52-54-54 l eftir á prjóni. Fellið af.

KANTUR AÐ FRAMAN/HÁLSMÁL:
Setjið til baka 5 kantlykkjur að framan af þræði frá hægri kanti að framan á prjóna nr 5,5. Haldið áfram í garðaprjóni fram og til baka eins og áður yfir þessar 5 l. Prjónið þar til kanturinn í hálsmáli mælist ca 9-11 cm frá þeim stað þar sem l voru settar aftur á prjóninn (leggið kantinn í hálsmáli innan við hálsmál á stykkinu við miðju að aftan, strekkið aðeins á til þess að hann passi í gatið), fellið síðan af. Endurtakið þetta meðfram vinstri kant að framan. Saumið sauminn við miðju að aftan innan við affellingarkantinn (saumurinn á að snúa inn að röngu á stykki).
Saumið kant á hálsmáli við hálsmálið innan við 1 kantlykkju á bakstykki þannig að kanturinn á hálsmáli liggur fallega við opið við hálsmál. Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 03.02.2014
ÚRTAKA-1 (bætt hefur verið við texta í neðstu línu í báðum dálkum): Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður þannig: 1. uppslátturinn er prjónaður slétt og 2. uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 153-35

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (41)

country flag Ewa Johansson wrote:

Förstår inte Minskningstips 1. Det finns ju två varianter. Hur ska man använda de? Kommer inte vidare.

14.04.2024 - 09:26

DROPS Design answered:

Hei Ewa. Det er forklart i oppskriften når og hvor Minskningstips skal brukes. Det andre under Minskningstips-1 finner du midt i avsnittet under OK (PÅ ÄRMEN: Minska i varje sida av ärmen på varje v från rätsidan 1 m 7-12-13-15-16-16 ggr, sedan 2 m 11-9-9-8-8-9 ggr.). mvh DROPS Design

15.04.2024 - 13:55

country flag Lieve Verbeeck wrote:

Kan ik de mouwen apart breien? en ze niet samen op de rondbreinaald zetten van het lijf? Dat lijkt me makkelijker?

11.04.2024 - 14:31

DROPS Design answered:

Dag Lieve,

Dan zou je de mouwen en de panden bij de raglanlijn aan elkaar moeten zetten en achteraf de biezen eraan moeten breien. Het is denk ik makkelijker om ze in een keer te breien, dan heb je ook geen naden bij de raglanlijnen.

11.04.2024 - 20:24

country flag Inés Arenas wrote:

Me estoy encontrando con problemas para saber como debo hacer el canes y el menguado. No entiendo la explicación, creo que no está bien explicado y además como no hay foto de la espalda no se si también tengo que menguar. Sería muy aclaratorio tener la foto de la espalda y especificar más el inicio de los menguado. Me resulta bast1nte incomprensible. Me pueden ayudar en todo esto?. Muchas gracias por su atención. Soy una asidua de su web que me encanta.

01.06.2023 - 12:27

DROPS Design answered:

Hola Inés, no tenemos más fotos que las que están online. Para las disminuciones del canesú, ten en cuenta el TIP-1 PARA LAS DISMINUCIONES. Las disminuciones se trabajan tanto en la espalda como en el delantero a no ser que se indique que sólo se trabaja en el centro del delantero. El TIP-1 te indica dónde se sitúan las disminuciones, tanto cuando disminuyes 1 pt en cada pieza como cuando disminuyes 1 pt en la espalda y el delantero y 2 pts en las mangas. Posteriormente usarás el TIP-2 PARA LAS DISMINUCIONES para disminuir en el escote del delantero.

04.06.2023 - 19:35

country flag Marguerite wrote:

After the last buttonhole plus two rows, the pattern calls for knitting short rows. Instructions for the next two rows: first row (RS) work short row and then work to end of piece then turn piece and on this row (WS) work second short row then work to end of row. Is this a correct interpretation of how to work the short rows and is this the end of doing short rows? Thank you.

13.06.2022 - 05:14

DROPS Design answered:

Dear Marguerite, correct, the short rows will be worked that way on both sides of the jacket, and this will be worked only one time, ie don't repeat these short rows. Happy knitting!

13.06.2022 - 11:33

country flag Paola wrote:

Non riesco a capire le spiegazioni riguardanti il SUGGERIMENTO PER LE DIMINUZIONI 1: quando devo seguire le indicazioni: “Diminuire 1 m sul davanti/dietro e 1 m a ogni lato della manica come segue: Iniziare 5 m prima del 1°, 3°, 5° e 7° segnapunti: ..... e quando devo seguire le indicazioni: “Diminuire 1 m sul davanti/dietro e 2 m a ogni lato della manica come segue: Iniziare 5 m prima del 1° e 5° segnapunti: …. Non riesco a capire questa differenza

07.09.2021 - 15:59

DROPS Design answered:

Buonasera Paola, nel testo è indicato quando diminuire 1 maglia a ogni lato della manica e quando diminuire 2 maglie. Buon lavoro!

11.09.2021 - 00:30

country flag Suzy wrote:

Bonjour et merci pour ce modèle sympathique pour l'été. Par contre je ne comprends pas l'explication du point structuré, 1m endroit 1m envers ça donne des côtes et ce n'est pas ce que montre le modèle. J'ai oublié une boutonnière, l'avant dernière, avez-vous une astuce pour ne pas défaire plusieurs rangs ?

08.07.2021 - 10:07

DROPS Design answered:

Bonjour Suzy, vous pouvez essayer de défaire juste ces quelques mailles sur le nombre de rangs concernés et ne retricoter ainsi que les mailles de la bordure devant. Le point texturé consiste en des côtes 1 maille jersey, 1 maille point mousse (tricoté en rond, au début des manches, vous allez tricoter: 1 tour endroit (= jersey), 1 tour en alternant 1 m end/1 m env.). Bon tricot!

08.07.2021 - 13:33

country flag Lena wrote:

Jag har börjat på oket och läser att jag följa Minskningstips 1. Där är det två stycken med två olika minskninstips. Hur gör jag här? Följer jag det första stycket och sen det andra...och sen? Eller hur gör jag? Sen funderar jag på varvet efter minskningen. Jag gör miskningar på rätsidan och sen stickas omslagen i rätstickning på avigsidan. Har jag förstått det rätt.

18.02.2021 - 18:18

country flag Gail Gomez wrote:

I'm getting ready to knit the Yoke. The body finished on the RS. Should I just P to bound off region and slip the sleeve on that area? Then?? Do I K(in pattern) around the sleeve at this time and then on the next row across insert the markers? I've already taken this apart once. Thanks in advance.

21.01.2021 - 23:10

DROPS Design answered:

Hi Gail, You place the sleeves on the same needle as the body, without working the stitches - where you cast off stitches for the armholes. Then you begin the first row from the right side and insert the markers, in the transitions between the sleeves and the body as you go. You are working both stocking stitch and textured pattern as before on this row. Hope this helps and happy knitting!

22.01.2021 - 07:58

country flag Bibiana Benvenuto wrote:

I would like to knit this pattern, instead of short sleeve I like to finish it with long sleeves . Could you help me? I’m using Bomuli yarn. Thank you.

20.01.2021 - 23:48

DROPS Design answered:

Dear Mrs Benvenuto, you can take inspiration from our pattern for raglan and long sleeves with the same tension. Happy knitting!

21.01.2021 - 08:07

country flag Christine wrote:

Hej! Jag kan inte lista ut hur jag ska sätta markeringarna på oket:\r\nSticka 5rm och sedan 27m markera och sticka 1r\r\nVilken ska markeras och vilken ska stickas rät varvet ut?

16.08.2018 - 15:44

DROPS Design answered:

Hej, du ska sticka så här: 5 maskor rätstickning, 27 maskor slätstickning, sedan sätter du märket mellan 2 maskor, stickar 1 rät maska och sätter följande märke mellan 2 maskor, osv.

20.08.2018 - 17:53