Markéta Ivachová skrifaði:
So wonderfull... :)i love it!
30.12.2013 - 15:23
Manuela skrifaði:
Mein neuer Beutel
26.12.2013 - 15:06
Ruth Ilves skrifaði:
Tore!
26.12.2013 - 11:13Tatiana skrifaði:
I like a such little bag. I would like to make it for the summer time
23.12.2013 - 17:50
Michaela skrifaði:
A very nice pattern without holes (i don`t like holes in bags):-)
17.12.2013 - 20:07Anna Beatriz Chladek Vieira skrifaði:
AS MOCHILAS ESTÃO SEMPRE NA ORDEM DO DIA
17.12.2013 - 13:05
Sylvia skrifaði:
J'aime beaucoup le point employé et la couleur
13.12.2013 - 22:30
Trollguld skrifaði:
Den här kommer att finnas på min krok i hallen!!!
11.12.2013 - 11:11Judith skrifaði:
Lovely and functional :-)
11.12.2013 - 08:26
Kalahari#kalaharibag |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
Hekluð taska / net með sólfjaðramynstri úr DROPS Bomull Lin eða DROPS Paris
DROPS 153-39 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Allar umf með st byrja á 3 ll (ekki talin með sem 1. st), endið á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1, A.2 og A.3. KRABBAHEKL: Heklið eins og fl, nema aftur á bak. Þ.e.a.s. heklað er frá vinstri til hægri. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TASKA / NET - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring frá botni og upp. TASKA / NET: Heklið 4 ll með heklunál nr 4,5 með litnum ljós beige Bomull Lin eða litnum dökk beige Paris og tengið í hring með 1 kl í 1. ll. UMFERÐ 1: LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið 11 st um hringinn. UMFERÐ 2: Heklið 2 st í hvern st = 22 st. UMFERÐ 3: * Heklið 1 st í næsta st, heklið 2 st í næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 33 st. UMFERÐ 4: * Heklið 1 st í hvorn af næstu 2 st, heklið 2 st í næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 44 st. UMFERÐ 5: * Heklið 1 st í hvern af næstu 3 st, heklið 2 st í næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 55 st. UMFERÐ 6: * Heklið 1 st í hvern af næstu 4 st, heklið 2 st í næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 66 st. UMFERÐ 7: Heklið 2 st í fyrsta st, 1 st í hvern af næstu 4 st, 2 st í næsta st, * 1 st í hvern af næstu 5 st, heklið 2 st í næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 78 st. Setjið prjónamerki á eftir umf. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!¨ Heklið nú eftir A.1 – A.3, þ.e.a.s. heklað er þannig: UMFERÐ1: Heklið 4 ll (koma í stað 1 tbst), 3 tbst í fyrsta st, hoppið yfir 2 st, * 1 fl í næsta st, hoppið yfir 2 st, 7 tbst í næsta st, hoppið yfir 2 st *, endurtakið frá *-* 11 sinnum til viðbótar, 1 fl í næsta st, hoppið yfir 2 st, 3 tbst í 3. ll frá byrjun á umf á undan, endið á 1 kl í 4. ll frá byrjun umf = 13 sólfjaðrir.ll UMFERÐ 2: Heklið 1 ll, 1 fl í fyrstu ll, * 7 tbst í næstu fl, hoppið yfir 3 tbst, 1 fl í næsta tbst *, endurtakið frá *-* 11 sinnum til viðbótar, 7 tbst í næstu fl, endið á 1 kl í fyrstu fl frá byrjun umf = 13 sólfjaðrir. UMFERÐ 3: Heklið 4 ll, 3 tbst í fyrstu fl, hoppið yfir 3 tbst, * 1 fl í næsta tbst, 7 tbst í næstu fl, hoppið yfir 3 tbst *, endurtakið frá *-* 11 sinnum til viðbótar, 1 fl í næsta tbst, 3 tbst í 1. fl frá byrjun á umf á undan, endið á 1 kl í 4. ll frá byrjun umf = 13 sólfjaðrir. Endurtakið umf 2 og 3 þar til stykkið mælist ca 25 cm frá prjónamerki. Heklið nú þannig: UMFERÐ 1: LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið 1 st í hvorn af næstu 2 tbst, hoppið yfir 1 tbst, * 1 st í næstu fl, hoppið yfir 1 tbst, 1 st í hvern af næstu 5 tbst, hoppið yfir 1 tbst *, endurtakið frá *-* 11 sinnum til viðbótar, 1 st í næstu fl, hoppið yfir 1 tbst, 1 st í hvern af næstu 3 tbst = 78 st. UMFERÐ 2: * Heklið 1 st, 1 ll, hoppið yfir 1 st *, endurtakið frá *-* út umf = 39 göt. UMFERÐ 3: * Heklið 1 st í st, 1 st í ll *, endurtakið frá *-* út umf = 78 st. UMFERÐ 4: Heklið 1 st í hvern st = 78 st. UMFERÐ 5: Heklið 1 ll, heklið KRABBAHEKL – sjá útskýringu að ofan, í hvern st. Endið á 1 kl í fyrstu ll frá byrjun umf. Klippið frá og festið enda. AXLARÓL: Heklið 6 ll með heklunál nr 4,5 með litnum brúnn Bomull Lin eða litnum brúnn Paris og tengið í hring með 1 kl í 1. ll. Heklið 1 fl í hverja ll = 6 fl. Heklið nú í hring með 1 fl í hverja fl þar til axlarólin mælist ca 100 cm, klippið frá og festið enda. Dragið endann á axlarólinni í gegnum gat efst á töskunni frá röngu, gerið hnút frá réttu. Endurtakið eins hinum megin á töskunni. SNÚRA: Klippið 10 þræði í litnum brúnn Bomull Lin eða í litnum brúnn Paris ca 4,5 metra. Tvinnið þá saman þar til þeir taka í, leggið snúruna saman tvöfalda og látið hana tvinna sig aftur saman. Hnýtið hnút á hvorn enda – látið þræðina lafa nokkra cm utan við hnútinn. Þræðið snúruna í gegnum gataumferðina, hnýtið tvöfaldan hnút yfir fyrsta hnútinn á hvorum enda og búið til smá kögur úr endanum lengst út. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #kalaharibag eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 11 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 153-39
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.