Hanna skrifaði:
Tässä ohjeessa on kaksi virhettä vasemman käsineen kohdalla. Yksi 2o yhteen kavennus liikaa ja reikäkerros puuttuu kokonaan.
23.12.2013 - 10:03
Pia skrifaði:
Der må være en fejl i teksten på venstre vante. Hvis den skal strikkes spejlvendt af højre så skal man ikke strikke 2ret sammen mellem *2ret sammen, 2ret*, gentag fra *-*, 2 gange til og 2 vrang. Der slås kun 40 m op og tæller man i teksten til ve. vante tælles der 42 m.
22.12.2013 - 16:47
Katrin skrifaði:
Einfach und schön! Nebenbei kann ich auch noch Reste von "Nepal" aufbrauchen. Vielen Dank für die Anleitung :)
21.12.2013 - 11:14
Frau Normal skrifaði:
In der Sockenanleitung vom 7.12. mit dem gleichen Muster stimmt die Legende :-)
12.12.2013 - 12:04
Frau Normal skrifaði:
Im Diagramm ist der Zopf mit einer Breite von 4 Maschen angegeben was auch mit der Maschenzahl der Anleitung aufgeht. In der Legende steht aber für den Zopf 3 re, 3 re von der Hilfsnadel was 6 Maschen entsprechen würde.
12.12.2013 - 11:54DROPS Design svaraði:
Vielen Dank für den Hinweis, wir haben das Diagramm gleich korrigiert.
13.12.2013 - 09:56
Annette skrifaði:
Solche Fäustlinge hatte ich mir vor Jahren gestrickt und suche schon lange nahc einer neuen Anleitung. Gut dass das Wochenende naht! Danke drops!!
12.12.2013 - 08:31
Dea skrifaði:
Belli!
12.12.2013 - 08:12
Fireside Snuggle Mittens#firesidesnugglemittens |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
Prjónaðir vettlingar úr DROPS Nepal með köðlum. Þema: Jól.
DROPS Extra 0-997 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. ÚTAUKNING: Aukið er út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt þannig ekki myndist gat. ÚRTAKA: Fækkið lykkjum þannig (byrjið 3 l á undan prjónamerki): Prjónið 2 l slétt saman, 2 l (prjónamerki er staðsett á milli þessa 2 l), takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VETTLINGAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, frá úlnlið að fingurtoppi. HÆGRI VETTLINGUR: Fitjið upp 40-40 l á sokkaprjóna nr 3 með litnum ljós grár DROPS Nepal. Prjónið 1 umf slétt. Prjóni nú stroff (= 2 l sl, 2 l br). Þegar stroffið mælist 6-7 cm prjónið næstu umf þannig: * Prjónið 5 l sl, prjónið 2 næstu l slétt saman *, endurtakið frá *-*, 2 sinnum til viðbótar, 2 l br, * 2 l slétt saman, 2 l sl *, endurtakið frá *-* 2 sinnum til viðbótar, 2 l br og endið á 3 l sl = 34-34 l. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 4 og prjónið næstu umf þannig: * Prjónið 2 l slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* út umf. Næsta umf er prjónuð þannig (uppslátturinn er prjónaður slétt): Prjónið 18 l sléttprjón (= í lófa), A.1 (= 13 l) og 3 l sléttprjón. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 13-14 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við fyrstu l í umf fyrir þumal – LESIÐ ÚTAUKNING! Endurtakið útaukningu hvoru megin við útauknar lykkjur í annarri hverri umf, 4-5 sinnum til viðbótar = 44-46 l. Setjið nú 11-13 þumallykkjur á þráð. Haldið áfram hringinn eins og áður JAFNFRAMT er fitjuð upp 1 ný l fyrir aftan þumal í næstu umf = 34-34 l. Þegar vettlingurinn mælist ca 26-28 cm (mátið vettlinginn, það eru ca 4 cm að loka máli), setjið 1 prjónamerki eftir fyrstu 16 l í umf og 1 prjónamerki á eftir næstu 17 l (það eru 1 l í umf á eftir seinna prjónamerki). Fækkið nú um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf, 2 sinnum til viðbótar og síðan í hverri umf alls 3 sinnum = 10 l eftir á prjóni. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel. ÞUMALL: Setjið til baka 11-13 þumallykkjur af þræði á sokkaprjóna nr 4. Prjónið að auki upp 4-3 l aftan við þumal = 15-16 l. Prjónið sléttprjón hringinn þar til þumallinn mælist ca 4½-5 cm (mátið vettlinginn, nú er ca ½ cm að loka máli). Prjónið 2 umf slétt JAFNFRAMT eru allar l prjónaðar saman 2 og 2 í báðum umf = 4-4 l eftir á prjóni. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel. VINSTRI VETTLINGUR: Fitjið upp og prjónið á sama hátt og hægri vettlingur, nema spegilmynd – þ.e.a.s. byrjið stroffið á 2 l br (í stað 2 l sl). Prjónið 1. umf á eftir stroffi þannig: Prjónið 3 l sl, 2 l br, * 2 l sl, 2 l slétt saman *, endurtakið frá *-*, 2 sinnum til viðbótar, 2 l br, * 2 l slétt saman, 5 l sl *, endurtakið frá *-* 2 sinnum til viðbótar. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 4 og prjónið næstu umf þannig: Prjónið 2 l slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* umf hringinn. Næsta umf er prjónuð þannig (uppslátturinn er prjónaður slétt): 3 l sléttprjón, A.1 (= 13 l) og 18 l sléttprjón. Aukið út fyrir þumal hvoru megin við síðustu l í umf. Á undan úrtöku efst á vettlingi er sett 1. prjónamerki á eftir 1. l í umf og 2. prjónamerki á eftir næstu 17 l (= 16 l eftir í umf á eftir seinna prjónamerki). SNÚRA: Klippið 2 þræði ca 2,5 m með litnum natur. Tvinnið þræðina saman þar til þeir taka í, leggið þræðina saman tvöfalda þá koma þeir til með að tvinnast aftur saman. Hnýtið hnút á hvorn enda. Þræðið snúruna upp og niður í gataumferðina á vettlingnum. Gerið 2 dúska ca 2 cm að þvermáli með litnum natur. Festið dúskana á hvorn endann á snúrunni. Endurtakið á sama hátt á hinum vettlingnum. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #firesidesnugglemittens eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 20 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-997
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.