Colleen McMillan skrifaði:
Thank you for your reply but I still cannot see in my head where the snout is to be added to the hat, I find it confusing where it says once I have the 41 stitches on, at the end of the row from RS, cast on 5 sts mid front, work snout on to same needle, cast on 5 sts. How can it be the end of the row but also mid front ? can you do a video tutorial showing this step ?
28.02.2023 - 17:41DROPS Design svaraði:
Dear Mrs McMillan, you get it right, that's exactly how to do, after you have cast on the 5 sts, worked the snout and cast on the 5 sts join in the round and continue working in stocking stitch - the beg of round will be there but since you are working in the round (like as on a spiral), it won't be visible, and at the very end, you will crochet an edge around the whole bottom of hat, that will then hide the "join". Happy knitting!
28.02.2023 - 18:01
Colleen McMillan skrifaði:
I am knitting the Fawn hat by Drops Design and am having trouble with understanding when and where to work the snout onto the pattern ? Is there a tutorial video for this pattern?
27.02.2023 - 19:21DROPS Design svaraði:
Dear Mrs McMillan, you first work the both ear flaps and the snout separately laying pieces aside, then work the HAT putting both earf flaps together with new stitches for back on hat; increasing new stitches on each side (for front piece) inserting snout at the same time, then join in the round and work all stitches in the round. Happy knitting!
28.02.2023 - 10:41
Karin skrifaði:
Får man virka dessa o sälja?
13.01.2014 - 15:00
Chris Nys skrifaði:
Ik druk dit patroon af en dat is meteen 4 bladzijden terwijl dit ook op 2 pagina's zou kunnen! Dit vind ik heel spijtig vanwege de inkt en papierverspilling! Er is dan ook nog een blad bij met een grote gekleurde foto van de opruiming, waar ik helemaal niets kan mee doen!Kan het niet zo dat als je kiest om af te drukken dat dit automatisch zo zuinig mogelijk gebeurt?
24.11.2013 - 10:50DROPS Design svaraði:
Hoi Chris. Om de patronen gratis aan te bieden zijn we afhankelijk van de verkoop van de garens - daarom zijn advertenties een vaste en zeer belangrijke onderdeel van onze website. Maar je kan natuurlijk altijd kiezen in de print instellingen welke en hoeveel pagina's je wilt printen.
25.11.2013 - 10:07
Arja skrifaði:
Oikein ihastuttava ja veikeä malli. Lapset tykkää!
04.11.2013 - 09:15
Fawn |
|
|
|
Prjónuð refa húfa fyrir börn úr DROPS Andes. Stærð 3 - 12 ára.
DROPS Extra 0-981 |
|
------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fyrst eru eyrnalepparnir og nefið prjónað fram og til baka á sokkaprjóna. Stykkið er síðan sett saman og húfan prjónuð í hring á hringprjóna. EYRNALEPPUR: Fitjið upp 4-4-5 l á sokkaprjóna nr 8 með litnum appelsínugulur DROPS Andes. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið (1. umf = ranga). Í næstu umf frá réttu er aukið út um 1 l í hvorri hlið með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á undan 1 kantlykkju, í umf til baka er uppslátturinn prjónaður snúinn br þannig ekki myndist gat. Aukið út í hverri umf frá réttu 3 sinnum til viðbótar = alls 12-12-13 l í umf. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram í sléttprjón þar til eyrnaleppurinn mælist 6-7-8 cm, endið á einni umf frá röngu. Geymið stykkið og prjónið annan eyrnalepp á sama hátt. NEF: Fitjið upp 3 l á sokkaprjóna nr 8 með litnum appelsínugulur DROPS Andes. Prjónið sléttprjón fram og til baka. Í fyrstu umf (= rétta) aukið út um 2 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn innan við 1 l í hvorri hlið = 5 l í umf. Uppslátturinn er prjónaður snúinn br þannig ekki myndist gat. Aukið út 1 sinni til viðbótar á sama hátt = alls 7 l í umf, endið á einni umf frá röngu. Geymið stykkið. HÚFA: Prjónið inn annan eyrnaleppinn á hringprjóna nr 8 með litnum appelsínugulur, fitjið upp 8-10-11 nýjar l (= að aftan) og prjónið inn hinn eyrnaleppinn í sömu umf = 32-34-37 l og snúið við. Prjónið næstu umf br frá röngu, snúið við. Haldið áfram í sléttprjóni fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni – JAFNFRAMT í næstu umf frá réttu er aukið út um 1 l í hvorri hlið á undan kantlykkju. Endurtakið útaukningu 1 sinni til viðbótar = 36-38-41 l, í lok umf frá réttu eru fitjaðar upp 3-4-5 l við miðju að framan, prjónið inn nefið (= 7 l) á sama prjón, fitjið upp 3-4-5 l = 49-53-58. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Húfan er nú prjónuð í hring í sléttprjóni þar til stykkið mælist 10-12-13 cm. Setjið nú 6 prjónamerki í stykkið þannig: STÆRÐ 3/5 ára: 8-8-8-8-8-9 l á milli merkja. STÆRÐ 6/9 ára: 8-9-9-9-9-9 l á milli merkja. STÆRÐ 10/12år: 10-9-10-10-9-10 l á milli merkja. Fækkið nú um 1 l með því að prjóna 2 l slétt saman á eftir hvert prjónamerki í annarri hverri umf alls 4-4-5 sinnum og síðan í hverri umf 3 sinnum til viðbótar = 7-11-10 l eftir á prjóni. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru og festið vel. Húfan mælist ca 17-19-22 cm frá miðju að framan og upp að toppi. HEKLAÐUR KANTUR: Heklið með litnum natur með heklunál nr 7. Byrjið þar sem nefið var prjónað uppá prjóninn og heklið síðan hér niður yfir vinstri hlið: Heklið 1 fl, * 2 ll, hoppið yfir ca 1 cm, 1 fl *, endurtakið frá *-* í kringum annan eyrnaleppinn, meðfram kanti að aftan við hnakka, í kringum seinni eyrnaleppinn og fram að nefi. Skiptið yfir í litinn svartur og heklið 1 ll, * 1 fl, hoppið yfir ca 1 cm, 1 ll *, endurtakið frá *-* fram að byrjun umf. Endið á 1 fl og 1 kl í fyrstu fl. Klippið frá og festið enda. EYRA: Stykkið er heklað fram og til baka neðan frá og upp. UMFERÐ 1: Heklið 11 ll með heklunál nr 7 með litnum natur. UMFERÐ 2: Byrjið í 2. ll frá heklunálinni og heklið 1 fl í hverja og eina af 10 næstu ll. Snúið við. UMFERÐ 3: Hoppið yfir fyrstu fl og heklið 9 fl, snúið við. UMFERÐ 4: Hoppið yfir fyrstu fl og heklið 8 fl, snúið við. UMFERÐ 5: Hoppið yfir fyrstu fl og heklið 7 fl, snúið við. UMFERÐ 6: Hoppið yfir fyrstu fl og heklið 6 fl, snúið við. UMFERÐ 7: Hoppið yfir fyrstu fl og heklið 5 fl, snúið við. UMFERÐ 8: Hoppið yfir fyrstu fl og heklið 4 fl, snúið við. UMFERÐ 9: Hoppið yfir fyrstu fl og heklið 3 fl, snúið við. UMFERÐ 10: Hoppið yfir fyrstu fl og heklið 2 fl. Klippið frá og festið enda. Heklið annað eyra til viðbótar á sama hátt. Heklið 2 eyru með litnum appelsínugulur. AUGA 1: Stykkið er heklað í hring. Heklið 4 ll með heklunál nr 7 með litnum natur, tengið saman í hring með 1 kl í fyrstu ll. UMFERÐ 1: Heklið 6 fl í hringinn. UMFERÐ 2: Heklið 2 fl í hverja fl umf hringinn = 12 fl. Klippið frá og festið enda. Heklið annað auga á sama hátt. AUGA 2: Stykkið er heklað í hring. Heklið 3 ll með heklunál nr 7 með litnum svartur, tengið saman í hring með 1 kl í fyrstu ll. UMFERÐ 1: Heklið 4 fl í hringinn. Klippið frá og festið enda. Heklið annað auga á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið niður AUGA 2 á AUGA 1, saumið augun niður framan á húfuna. Leggið saman eitt eyra með litnum natur og eitt eyra með litnum appelsínugulur og heklið þau saman með litnum appelsínugulur þannig. Haltu á eyranu með litnum natur að þér og byrjaðu neðst niðri á eyranu. Heklið fl í gegnum bæði stykkin upp að toppi og niður í hina hliðina (ca 16 fl). Látið botninn vera opinn og staðsetjið eyrun með litnum natur fram ca 2 cm ofan frá í hvorri hlið á húfunni. Saumið þau niður þannig að 2 hliðar á eyranu standa ca 1 cm frá hvor annarri (þannig að þau verða fylltari). Endurtakið á sama hátt á hinu eyranu. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 16 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-981
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.