Tania skrifaði:
Mooi aansluitend model
05.06.2013 - 18:08
Kirsten Nielsen skrifaði:
En trøje jeg godt kunne finde på at strikke
05.06.2013 - 15:03
Lydia skrifaði:
Diese Strickjacke sieht toll aus: zart, feminin und in genau dieser Farbe möchte ich sie stricken.
05.06.2013 - 09:27
Kasia skrifaði:
Kolor pasuje do modelu projektu, jest bardzo elegancki.
04.06.2013 - 21:54
Iréne skrifaði:
Superfin modell!Fina detaljer!
04.06.2013 - 20:41
Ruth skrifaði:
Elegant .. tailliert .. Rundhals .. das würde ich gerne nacharbeiten
04.06.2013 - 18:57
Birgitta skrifaði:
Riktigt vacker jacka med fina proportioner. Min favorit.
04.06.2013 - 17:50
Solis skrifaði:
Stilig, klassisk modell. Snyggt med knappslån på ärmen.
04.06.2013 - 17:23
Mette skrifaði:
Lækkert med en smal model.
04.06.2013 - 12:58
Stassain skrifaði:
Très chic, je me réjouis de pouvoir le réaliser
03.06.2013 - 14:19
Lady of the Forest#ladyoftheforestcardigan |
|
|
|
Prjónuð peysa úr DROPS BabyAlpaca Silk með röndum, sléttprjóni og tvöföldu perluprjóni. Stærð S - XXXL
DROPS 149-14 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka á hringprjóna): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. TVÖFALT PERLUPRJÓN: UMFERÐ 1: * Prjónið 1 l sl, 1 l br *, endurtakið frá *-*. UMFERÐ 2: Prjónið sl yfir sl og br yfir br. UMFERÐ 3: Prjónið br yfir sl og sl yfir br. UMFERÐ 4: Eins og umf 2. Endurtakið umf 1 til 4. LEIÐBEININGAR: Prjónið 1 umf á hægra framstykki áður en útaukning við miðju að framan byrjar. Prjónið 2 umf á vinstra framstykki áður en útaukning við miðju að framan byrjar (þ.e.a.s. að vinstra framstykki verður 1 umf lengra en hægra framstykki. Þannig er hægt að sleppa við að klippa af bandið í hvert skipti sem fitjaðar eru upp nýjar l í boga að framan). HNAPPAGAT Á FRAMSTYKKI: Fellt er af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = fellið af fjórðu og fimmtu l frá miðju að framan og fitjið upp 2 nýjar l yfir þær l sem felldar voru af í næstu umf. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: STÆRÐ S: 7, 15, 22, 30, 37 og 46 cm STÆRÐ M: 8, 16, 24, 32, 40 og 49 cm. STÆRÐ L: 8, 17, 25, 33, 41 og 51 cm STÆRÐ XL: 8, 17, 25, 33, 41 og 51 cm STÆRÐ XXL: 9, 18, 26, 35, 43 og 53 cm STÆRÐ XXXL: 9, 18, 26, 35, 43 og 56 cm ATH: Síðasta hnappagatið er fellt af í 2 umf frá hálsmáli. RENDUR Á FRAM- OG BAKSTYKKI: * Prjónið 8½-9-9½-9½-10-10½ cm sléttprjón, 8½-9-9½-9½-10-10½ cm tvöfalt perluprjón *, endurtakið frá *-*, 2 sinnum til viðbótar = alls 3 rendur með tvöföldu perluprjóni. HNAPPAGAT Á ERMI: Fellt er af fyrir hnappagötum á stykki 1 á ermi. 1 hnappagat = fellið af fjórðu og fimmtu l frá miðju að framan og fitjið upp 2 nýjar l yfir þær l sem felldar voru af í næstu umf. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: 2, 5, 8 og 11 cm í öllum stærðum. RENDUR Á ERMI: Prjónið 7½-7-6-5½-2-1 cm sléttprjón, 8½-9-9½-9½-10-10 cm tvöfalt perluprjón, 8½-9-9½-9½-10-10 cm sléttprjón, 16½-16-15-14½-15-14 cm tvöfalt perluprjón = alls 2 rendur með tvöföldu perluprjóni. ÚTAUKNING: Í byrjun á umf: Aukið út um 1 l á eftir 1 kantlykkju með því að taka upp þráðinn á milli 2 l frá fyrri umf – prjónið þessa l snúna, þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan til þess að koma í veg fyrir göt. Þessi nýja l er prjónuð snúin slétt ef næsta l er br og snúin br ef næsta l er sl. Haldið áfram með mynstur eins og áður. Í lok umf: Aukið út um 1 l á undan 1 kantlykkju með því að taka upp þráðinn á milli 2 l frá fyrri umf – prjónið þessa l snúna, þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan til þess að koma í veg fyrir göt. Þessi nýja l er prjónuð snúin sl ef fyrri l er br og snúin br ef fyrri l er sl. ÚRTAKA: Í byrjun umf: Fækkað er um 1 l með því að prjóna 2 l saman á eftir 1 kantlykkju, prjónið l slétt saman ef næsta l er br, prjónið l br saman ef næsta l er sl. Haldið áfram með mynstur eins og áður. Í lok umf: Fækkað er um 1 l með því að prjóna 2 l saman á undan 1 kantlykkju, prjónið l slétt saman ef fyrri l er br, prjónið l br saman ef fyrri l er sl. Haldið áfram með mynstur eins og áður. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. BAKSTYKKI: Fitjið upp 99-107-117-129-143-159 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna nr 2,5 með Baby Alpaca Silk. Prjónið TVÖFALT PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, með 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN í hvorri hlið – sjá útskýringu að ofan. Nú hafa verið prjónaðar 10 umf, skiptið yfir á hringprjóna nr 3. Prjónið nú RENDUR Á FRAM- OG BAKSTYKKI – sjá útskýringu að ofan, með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 8 cm er aukið út um 1 l í hvorri hlið – LESIÐ ÚTAUKNING! Endurtakið útaukningu í hvorri hlið með 8-6½-7-6½-7½-10 cm millibili, 3-4-4-4-4-3 sinnum til viðbótar (= alls 4-5-5-5-5-4 l fleiri í hvorri hlið) = 107-117-127-139-153-167 l. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 36-38-40-39-41-43 cm fellið af 2-5-5-6-6-6 l í byrjun á 2 næstu umf fyrir handveg = 103-107-117-127-141-155 l. Haldið áfram með rendur þar til stykkið mælist 52-55-58-58-61-64 cm. Fellið nú af miðju 37-37-39-39-41-41 l fyrir hálsmáli og hvor öxl er nú prjónuð til loka fyrir sig. Fellið nú af 1 l í næstu umf frá hálsi = 32-34-38-43-49-56 l eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist ca 54-57-60-60-63-66 cm. Prjónið hina öxlina á sama hátt. HÆGRA FRAMSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Fitjið upp 39-43-47-53-61-69 l (meðtalin 1 kantlykkja í hlið) á hringprjóna nr 2,5 með Baby Alpaca Silk. Prjónið TVÖFALT PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hlið (1. umf = rétta). ATH: Byrjið tvöfalda perluprjónið á sl við miðju að framan í 1. umf! JAFNFRAMT eru fitjaðar upp nýjar l í lok hverrar umf við miðju að framan fyrir bogalaga kant þannig: Fitjið pp 2 l alls 5 sinnum = 49-53-57-63-71-79 l. Nú hafa verið prjónaðar 10 umf, skiptið yfir á hringprjóna nr 3. Haldið áfram með RENDUR Á FRAM- OG BAKSTYKKI, JAFNFRAMT er prjónað tvöfalt perluprjón fyrir miðju að framan þannig: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið 11 l tvöfalt perluprjón, sléttprjón þar til 1 l er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni. UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni þar til 11 l eru eftir, þær 11 l sem eru eftir eru prjónaðar með tvöföldu perluprjóni JAFNFRAMT eru fitjaðar upp 2 nýjar l við miðju að framan. Endurtakið umf 1 og 2 3 sinnum til viðbótar (= alls 4 sinnum) = 8 fleiri l. Prjónið nú þannig: UMFERÐ 1: Prjónið 11 l tvöfalt perluprjón, sléttprjón þar til 1 l er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni. UMFERÐ 2: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, sléttprjón þar til 11 l eru eftir, þær 11 l sem eru eftir eru prjónaðar með tvöföldu perluprjóni. UMFERÐ 3: Prjónið 9 l tvöfalt perluprjón, sléttprjón þar til 1 l er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni UMFERÐ 4: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, sléttprjón þar til 9 l eru eftir, þær 9 l sem eru eftir eru prjónaðar með tvöföldu perluprjóni. UMFERÐ 5: Prjónið 7 l tvöfalt perluprjón, sléttprjón þar til 1 l er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni. UMFERÐ 6: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, sléttprjón þar til 7 l eru eftir, þær 7 l sem eru eftir eru prjónaðar með tvöföldu perluprjóni. Útaukning við miðju að framan er nú lokið og það eru 57-61-65-71-79-87 l á prjóni. Prjónið nú sléttprjón með 7 l með tvöföldu perluprjóni við miðju að framan og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hlið – MUNIÐ EFTIR HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 8 cm er aukið út í hlið eins og á bakstykki = 61-66-70-76-84-91 l á prjóni. Þegar stykkið mælist 36-38-40-39-41-43 cm (mælt á hlið þar sem er lengst) fellið af 2-5-5-6-6-6 l í byrjun umf frá hlið fyrir handveg = 59-61-65-70-78-85 l. Þegar stykkið mælist 45-48-50-50-52-55 cm setjið 17-17-17-17-19-19 l við miðju að framan á þráð fyrir hálsmáli (l eru prjónaðar áður en þær eru settar á þráðinn svo að ekki þurfi að klippa frá). Fellið nú af í byrjun á hverri umf við háls: 2 l alls 4 sinnum og síðan 1 l 2 sinnum = 32-34-38-43-49-56 l eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 54-57-60-60-63-66 cm. VINSTRA FRAMSTYKKI: Prjónið á sama hátt og hægra framstykki nema spegilmynd. LEIÐ LEIÐBEININGAR! HÆGRI ERMI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Neðra stykkið á ermi er prjónað í 2 hlutum áður en það er sett saman. STYKKI 1: Fitjið upp 26-27-28-28-28-29 l (meðtalin 1 kantlykkja og 7 l fyrir hnappagat) á hringprjóna nr 2,5 með Baby Alpaca Silk. Prjónið TVÖFALT PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, með 1 kantlykkju í garðaprjóni (1. umf = rétta). MUNIÐ EFTIR HNAPPAGATI þegar ermin mælist 2, 5, 8 og 11 cm. Þegar prjónaðar hafa verið 10 umf, skiptið yfir á hringprjóna nr 3. Prjónið nú þannig: UMFERÐ 11 (rétta): Prjónið 7 l tvöfalt perluprjón, sléttprjón þar til 1 l er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni. UMFERÐ 12: (ranga): Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, sléttprjón þar til 7 l eru eftir, þær 7 l sem eru eftir eru prjónaðar með tvöföldu perluprjóni. Haldið áfram að prjóna svona, ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 12 cm er fellt af 7 l með tvöföldu perluprjóni= 19-20-21-21-21-22 l á prjóni. Geymið stykkið. STYKKI 2: Fitjið upp 38-40-41-43-43-45 l (meðtalin 1 kantlykkja og 7 l fyrir hnappagati) á hringprjóna nr 2,5 með Baby Alpaca Silk. Prjónið TVÖFALT PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, með kantlykkju í garðaprjóni í hlið (= 1. umf = rétta). Þegar prjónaðar hafa verið 10 umf, skiptið yfir á hringprjóna nr 3 og prjónið áfram þannig: UMFERÐ 11 (rétta): Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, sléttprjón þar til 7 l eru eftir, þær 7 l sem eru eftir eru prjónaðar með tvöföldu perluprjóni. UMFERÐ 12 (ranga): Prjónið 7 l með tvöföldu perluprjóni, sléttprjón þar til 1 l er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið áfram að prjóna svona, ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 12 cm er stykkin tvö sett saman á prjóninn, þannig að kantar í perluprjóni skarast og opið á kanti snýr fram (STYKKI 2 liggur undir STYKKI 1). Nú eru 57-60-62-64-64-67 l á prjóni (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið). Síðan eru prjónaðar RENDUR Á ERMI – sjá útskýringu að ofan, með 1 kantlykkju í hvorri hlið, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 12 cm er aukið út um 1 l innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið – LESIÐ ÚTAUKNING! Endurtakið útaukningu á hvorri hlið í 8.-7.-7.-6.-5.-4. Hverri umf, 15-16-17-18-21-22 sinnum til viðbótar (= alls 16-17-18-19-22-23 l fleiri í hvorri hlið) = 89-94-98-102-108-113 l. Þegar stykkið mælist 52-51-50-48-46-44 cm er sett 1 prjónamerki í hvora hlið. Prjónið nú áfram þar til stykkið mælist 53-53-52-51-49-47 cm og fellið af. VINSTRI ERMI: Prjónið á sama hátt og hægri ermi nema spegilmynd. Munið eftir HNAPPAGAT á STYKKI 1! FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið niður kant á ermi með hnappagötum. Saumið ermar í. Saumið hliðarsaum og ermasauma í eitt innan við 1 kantlykkju. (Prjónamerki á ermi á að passa við hlið á fram- og bakstykki). HÁLSMÁL: Prjónið upp ca 120 til 140 l í kringum hálsmál (meðtaldar l af þræði að framan) á hringprjóna nr 2,5 með Baby Alpaca Silk. Prjónið 9 umf tvöfalt perluprjón fram og til baka, JAFNFRAMT í 2. umf er fellt af fyrir 1 hnappagati í hægri kanti að framan! Fellið af. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #ladyoftheforestcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 20 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 149-14
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.