DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8316.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 149-12
DROPS Design: Mynstur nr me-062
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio
450-500-550-600-650-750 gr litur nr 28, norðursjór

DROPS HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 4,5 – eða þá stærð sem þarf til að 20 l og 26 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 4 – fyrir stroff.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8316.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A, B, C, D, E og F. Mynsturteikningin sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING 1:
Aukið út í síðustu umf (= ranga) í hverri mynstureiningu (A.2) og aukið út í hverri stroffeiningu (frá röngu): * Prjónið 2 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l br, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sl *. Í næstu umf (þ.e.a.s. 1. umf = rétta í F.1) prjónið uppsláttinn snúinn slétt til þess að koma í veg fyrir göt.

ÚTAUKNING 2:
Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á undan fyrstu l br í hverri einingu með br í stroffi. Uppslátturinn er prjónaður snúinn br í næstu umf.

ÚTAUKNING 3:
Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á undan fyrstu l sl í hverri einingu með sl í stroffi. Uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umf.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

BOLERO - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í 2 hlutum frá ermi og yfir axlir og er saumað saman við miðju að aftan.
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna.

BOLERO:
Fitjið upp 55-55-55-55-70-70 l meðtalin 1 kantlykkja í garðaprjóni í hvorri hlið á hringprjóna nr 4,5 með Merino Extra Fine. Prjónið STROFF frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, *3 l br, 2 l sl *, endurtakið frá *-* yfir næstu 50-50-50-50-65-65 l, 3 l br, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Prjónið stroff til baka alveg eins (= ranga).
Í næstu umf frá réttu er prjónað þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * 2 l br saman, 1 l br, 2 l sl *, endurtakið frá *-* þar til 4 l eru eftir og endið á 2 l br saman, 1 l br, 1 kantlykkja í garðaprjóni = 44-44-44-44-56-56 l á prjóni.
Prjónið 1 umf stroff til baka alveg eins. Prjónið nú frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * 2 l br, 2 l sl, 2 l br, MYNSTUR eftir mynsturteikningu A.1 (= 6 l) *, endurtakið frá *-* 2-2-2-2-3-3 sinnum til viðbótar (= alls 3-3-3-3-4-4 sinnum), 2 l br, 2 l sl, 2 l br, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið áfram fram og til baka alveg eins með 1 kantlykkju í garðaprjóni, stroff og A.1 þar til A.1 hefur verið prjónað 3-3-2-2-2-2 sinnum á hæðina.
Prjónið nú frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * 2 l br, 2 l sl, 2 l br, MYNSTUR eftir mynsturteikningu A.2 (= 6 l) *, endurtakið frá *-* 2-2-2-2-3-3 sinnum til viðbótar (= alls 3-3-3-3-4-4 sinnum), 2 l br, 2 l sl, 2 l br, 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Haldið áfram fram og til baka alveg eins með 1 kantlykkju í garðaprjóni, stroff og A.2 þar til A.2 hefur verið prjónað 1-1-1-1-1-1 sinni á hæðina, JAFNFRAMT í síðustu umf er aukið út um 2 l í hverri stroffeiningu – sjá ÚTAUKNING 1! Nú eru 58-58-58-58-74-74 l á prjóni og stykkið mælist ca 7-7-6-6-6-6 cm.
Prjónið nú þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * F.1 (= 8 l), B.1 (= 8 l) *, endurtakið frá *-* 2-2-2-2-3-3 sinnum til viðbótar (= alls 3-3-3-3-4-4 sinnum), F.1, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið áfram alveg eins þar til B.1 hefur verið prjónað 8-8-9-8-8-8 sinnum á hæðina. Prjónið nú alveg eins nema B.2 í stað fyrir B.1.
Prjónið B.2 1-1-1-1-1-1 sinni á hæðina. Stykkið mælist nú 30-30-31-29-29-29 cm og það eru 64-64-64-64-82-82 l á prjóni.
Prjónið nú þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * F.1 (= 8 l), C.1 (= 10 l) *, endurtakið frá *-* 2-2-2-2-3-3 sinnum til viðbótar (= alls 3-3-3-3-4-4 sinnum), F.1, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið áfram alveg eins þar til C.1 hefur verið prjónað 2-2-2-2-1-1 sinnum á hæðina. Prjónið nú alveg eins, nema C.2 í stað C.1 í stað fyrir C.1. Prjónið C. 2 1-1-1-1-1-1 sinnum á hæðina, JAFNFRAMT í síðustu umf er aukið út um 0-0-1-1-0-0 l br í hvorri hlið í hverri einingu af F.1 með því að taka upp eina l frá umf að neðan = 70-70-78-78-90-90 l á prjóni. ATH! Þessi nýja l í hvorri hlið í hverri einingu af F.1 er prjónuð br alla leið þar til fellt er af. Stykkið mælist nú 42-42-43-41-38-38 cm.
Prjónið nú þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * 0-0-1-1-0-0 l br, F.1 (= 8 l), 0-0-1-1-0-0 l br D.1 (= 12 l)*, endurtakið frá *-* 2-2-2-2-3-3 til viðbótar (= alls 3-3-3-3-4-4 sinnum), 0-0-1-1-0-0 l br, F.1, 0-0-1-1-0-0 l br, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið áfram alveg eins þar til D.1 hefur verið prjónað 3-3-3-3-4-4 sinnum á hæðina. Prjónið alveg eins, nema með D.2 í stað D.1. Prjónið D.2 1-1-1-1-1-1 sinni á hæðina = 76-76-84-84-98-98 l á prjóni. Stykkið mælist nú 57-57-58-56-57-57 cm.
Prjónið nú þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, *0-0-1-1-0-0 l br F.1 (= 8 l), 0-0-1-1-0-0 l br, E.1 (= 14 l)*, endurtakið frá *-* 2-2-2-2-3-3 sinnum til viðbótar (= alls 3-3-3-3-4-4 sinnum), 0-0-1-1-0-0 l br, F.1, 0-0-1-1-0-0- l br, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið áfram alveg eins þar til E.1 hefur verið prjónað 3-3-3-4-4-4 sinnum á hæðina. Prjónið 4-8-8-4-4-8 umf garðaprjón. Fellið laust af. Stykkið mælist nú 72-73-74-75-76-77 cm.
Prjónið annað stykki á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið saman bæði stykkin fyrir miðju að aftan. Saumið ermasauma yst í kantlykkjuna þannig: Saumið kant X og X saman, saumið kant Y og Y saman – sjá mynsturteikningu.

KANTUR:
Prjónið upp 280-288-312-336-360-368 l jafnt yfir frá réttu meðfram opinu á stykkinu – þ.e.a.s. upp meðfram hægra framstykki, aftur fyrir hnakka, niður meðfram vinstra framstykki og síðan meðfram bakstykki á hringprjóna nr 4 með Merino Extra Fine. Prjónið stroff hringinn á hringprjóna þannig: Prjónið 2 l sl, 2 l br. Þegar kanturinn mælist 5-5-5-5-5-5 cm er aukið út um 1 l í hverri br einingu = 2 l sl, 3 l br, LESIÐ ÚTAUKNING 2. Þegar kanturinn mælist 10-10-11-11-12-12 cm er aukið út um 1 l í hverri sl einingu = 3 l sl, 3 l br, LESIÐ ÚTAUKNING 3. Haldið síðan áfram með 3 l sl, 3 l br þar til kanturinn mælist 15-15-16-16-17-17 cm. Fellið laust af með sl yfir sl og br yfir br. ATH: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði ekki of stífur er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á undan hverri brugðinni einingu. Uppslátturinn er felldur af eins og ein lykkja.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 03.11.2016
BOLERO:..Í næstu umf frá réttu er prjónað þannig: Prjónið 1 kantlykkju með garðaprjóni, * 2 l br saman, 1 l br, 2 l sl *, endurtakið frá *-* þar til 4 l eru eftir og endið á 2 l br saman, 1 l br, 1 kantlykkja með garðaprjóni = 44-44-44-44-56-56 l á prjóni.

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = br frá réttu, sl frá röngu
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l
symbols = takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = 2 l slétt saman
symbols = setjið 3 l á hjálparprjón fyrir aftan stykkið, 1 l sl, prjónið 3 l sl af hjálparprjóni
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l. Uppslátturinn er gerður frá röngu og er prjónaður snúinn sl í næstu umf til þess að koma í veg fyrir göt
symbols = prjónastefna
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 149-12

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (65)

country flag JESSICA J MONTGOMERY wrote:

What exactly does it mean: Work rib back the same way"? To purl the knit stitches, knit the purl?

03.12.2021 - 07:44

DROPS Design answered:

Hi Jessica, Yes, to continue the rib when working back and forth you purl the knitted stitches and knit the purled stitches, although from the wrong side it looks like you are purling purled stitches and knitting knitted stitches. Happy crafting!

03.12.2021 - 08:04

country flag Cheryl Clark wrote:

I am a bit confused. The pattern is knit sleeve to sleeve and yet diagram shoepws top to bottom. And no section f. So am I knitting then abcedef? Also would you be able to start the sleeves in the round then knit flat for back? I bought the yarn from you, and it is still sitting because the pattern doesn’t make sense and I have been knitting for close to 20 years.

15.11.2021 - 10:13

DROPS Design answered:

Dear Mrs Clark, pattern is worked in 2 pieces from sleeve edge towards mid back with a seam on mid back. Work the different sections as explained, all diagrams (including F.1) is mentionned in the written pattern. You have to read the written pattern and work the diagrams when explained. (F.1 will be worked after piece measures 7or 6 cm depending on the size). Maybe tell your size if you need more help or simply contact your DROPS store, it might be easier for them to assist you, even per mail or telephone. Happy knitting!

15.11.2021 - 12:56

country flag Nathalie Acquenin wrote:

Bonjour j aimerais avoir de l aide car je voudrais faire ce modèle qui me plaît beaucoup mais je ne comprends pas les explications c est la première fois que je réalise un modèle de drops merci

01.02.2021 - 11:45

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Acquenin, vous pouvez volontiers poser votre question dans cette rubrique, en expliquant bien ce que vous ne comprenez pas. Juste après les explications, vous pourrez trouver une liste de ressources qui pourront vous être utiles: vidéos, leçons sur les techniques utilisées. Et bien sûr, cette rubrique pour toute question et votre magasin DROPS pour toute assistance personnalisée. Bon tricot!

01.02.2021 - 14:50

country flag Nicole wrote:

Mit welcher Technik würdet ihr empfehlen die Rückennaht zu schließen? Gibt es dazu ein Video? Ich habe kein entsprechendes gefunden.

05.01.2021 - 20:33

DROPS Design answered:

Liebe Nicole, dieses Video zeigt, wie man die abgekettenen Maschen von beiden Teilen zusammennäht. Viel Spaß beim stricken!

06.01.2021 - 07:26

country flag Terhi wrote:

Olen tehnyt a ja b osan, miksi työni on vain 18 cm, vaikka pitäisi olla 29 cm?!? Kuvioita on oikea määrä.

08.10.2020 - 10:26

DROPS Design answered:

Oletko tarkistanut, että neuletiheytesi täsmää? Sen tulee olla 20 s x 26 krs sileää neuletta per 10 x 10 cm.

19.11.2020 - 17:19

country flag Milhem Lola wrote:

Bonjour, j'en suis à l'assemblage et jusque là tout va bien. Les côtés X et Y font-ils toute la longueur du biais des manches, ou bien s'arrêtent-ils après les diagrammes C2 ? Autre formulation, dois-je fermer les manches jusqu'à la partie droite du dos ? Je n'ai jamais tricoté de boléro et suis un peu perdue Merci d'avance

24.09.2020 - 11:37

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Milhem, vous faites la couture en commençant au bord de la manche et en remontant tout le long des côtés jusqu'aux diagrammes C/D= côtés X d'un côté /Y de l'autre- ajustez la longueur de la couture si besoin en essayant le boléro avant de relever les mailles de la bordure. Bon tricot!

24.09.2020 - 14:26

country flag Barbara wrote:

Na opzetten moet je de boordsteek breien. De naald terug staat als brei de boordsteek terug op dezelfde manier. Betekent dat dan dat waar recht staat, je terug averecht moet breien en waar averecht staat, je recht moet breien? Ik hoor t graag

14.04.2020 - 21:05

DROPS Design answered:

Dag Barbara,

Ja dat klopt, dus zoals je gewend bent een boordsteek te breien. Waar je recht breit op de goede kant brei je averecht op de verkeerde kant en vice verca.

16.04.2020 - 12:34

country flag Alicia wrote:

Buenas tardes. ¿Hay algún video para ver cómo se hace la lazada en la hilera revés? En este patrón deben hacerse en los diagramas A2,B 2 , C2 y D2. Mi pregunta se debe a que en esa lazada me queda un agujero un poco más grande que los otros. Muchas gracias . Saludos.

07.02.2020 - 00:04

DROPS Design answered:

Hola Alicia. Todos los vídeos relacionados con el patrón puedes encontrarlos bajo los diagramas. Las lazadas por el lado derecho y por el lado revés se trabajan de la misma manera. Es posible que algunos puntos trabajados retorcidos queden más abiertos que otros. Puedes probar a sustituir las lazadas por levantar la hebra entre los puntos. En este caso el tejido quedaría más cerrado.

01.03.2020 - 00:02

country flag Maria Hedlund wrote:

Hej! Går det att sticka denna i räta maskor ist för mönstret som är på armar och rygg? Att man stickar samma antal maskor men ist för mönster stickar man bara slätstickning? (förutom på den breda resår kanten som går runt tröjan) Tack för svar! Mvh/Maria

22.09.2019 - 10:54

DROPS Design answered:

Hej Maria, ja det bör gå bra, men flätorna behöver fler maskor, så måttet blir kanske lite större i enbart slätstickning... Lycka till :)

25.09.2019 - 08:15

country flag Bianca wrote:

Ein sehr schöner Bolero - ich habe ihn als Jäckchen für´s Dirndl gestrickt - sieht super aus und ist ganz leicht nachzustricken!

27.09.2018 - 15:33