Cassiopeia |
|||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||
Heklað hálsmen úr DROPS Cotton Viscose.
DROPS 146-14 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- BLÓM: Heklið 5 ll og tengið í hring með 1 kl í fyrstu ll – sjá mynsturteikningu A.1. UMFERÐ 1: Heklið 2 ll (þær koma í stað 1. hst). Heklið nú 9 hst um hringinn = 10 hst. Heklið nú fram og til baka þannig: Heklið 1 ll, 1 kl í fyrsta hst, 9 ll, 1 kl í sama hst * 1 kl í hvern og einn af næstu 2 hst, 9 ll, 1 kl í sama hst *, endurtakið frá *-* 3 sinnum til viðbótar (= 5 ll-bogar). Heklið 2 ll (þær koma í stað fyrsta hst). Um ll-boga er heklað 3 hst, 2 st, 2 tbst, 2 st, 4 hst, 1 kl í næstu kl frá fyrri umf. Sjá mynsturteikningu A.2. Um næstu 4 ll-boga er heklað þannig: Heklið 4 hst, 2 st, 2 tbst, 2 st, 4 hst, 1 kl í næstu kl frá fyrri umf = 5 blöð. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1-A.5. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÁLSMEN - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fyrst er miðjuhringurinn (stór hringur) heklaður á hálsmeninu, síðan eru heklaðir hringir (litlir hringir) í hliðum. STÓR HRINGUR: Heklið 12 ll með heklunál nr 3 og tengið í hring með 1 kl í fyrstu ll – sjá mynstur A.5. UMFERÐ 1: Heklið 2 ll (koma í stað 1. hst), 19 hst um ll-hringinn = 20 hst. Endið á 1 kl í 2. ll. UMFERÐ 2: Heklið 3 ll (koma í stað 1. st), 1 st í 1. hst, 2 st í hvern hst í umf = 40 st í umf. Endið á 1 kl í 3. ll. UMFERÐ 3: Heklið 4 ll (koma í stað 1. tbst), 1 tbst í 1. st, * 1 tbst í næsta st, 2 tbst í næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn (heklið 3 tbst yfir 2 st)= 60 tbst í umf. Endið á 1 kl í 4. ll. Nú er heklað þannig: Í 1. tbst er heklað BLÓM – sjá útskýringu að ofan. Eftir síðustu umf í blómi er haldið áfram að hekla hringinn í stóra hringnum með rönguna á móti þér þannig: Heklið 1 kl LAUST í aftari lykkjubogann í hvern af næstu 10 tbst, 9 ll, 1 kl LAUST í aftari lykkjubogann í sama tbst eins og síðasta kl. Snúið við og heklið frá réttu í ll-boga þannig: Heklið 4 hst, 2 st, 2 tbst, 2 st, 4 hst – sjá mynstur A.2. Heklið nú 1 kl LAUST í aftari lykkjubogann í hvern af næstu 20 tbst. Heklið BLÓM – sjá útskýringu að ofan. Eftir síðustu umf í blómi er haldið áfram að hekla í kringum hringinn með rönguna á móti þér þannig: Heklið 1 kl LAUST í aftari lykkjubogann í hvern af næstu 20 tbst, 9 ll, 1 kl LAUST í aftari lykkjubogann í sama tbst og síðast kl. Snúið við og heklið frá réttu í ll-bogann þannig: Heklið 4 hst, 2 st, 2 tbst, 2 st, 4 hst – sjá mynstur A.2. Heklið nú með rönguna á móti þér þannig: Heklið 1 kl LAUST í aftari lykkjubogann í hvern af næstu tbst. Klippið frá og festið enda. LÍTILL HRINGUR NR 1 (VINSTRI HLIÐ): Heklið 12 ll með heklunál nr 3 og tengið í hring með 1 kl í fyrstu ll. UMFERÐ 1: Heklið 2 ll (koma í stað 1. hst), 19 hst um hringinn = 20 hst. Endið á 1 kl í 2. ll – sjá mynsturteikningu A.3. UMFERÐ 2: Heklið 4 ll (koma í stað 1. tbst), 1 tbst í 1. hst, 2 tbst í hvern af næstu 6 hst. Festið nú hringinn við stóra hringinn þannig: Heklið 1 kl á milli tbst á blaði og vinstri hlið á stóra hringnum. Heklið 2 tbst í hvern af næstu 3 hst á litla hringnum, 1 kl á milli tbst í 1. blaðið á blóminu. Heklið 2 tbst í hvern af næstu 3 hst á litla hringnum, 1 kl á milli tbst í 2. blaði á blóminu. Heklið 2 tbst í hvern af næstu hst á litla hringnum = 40 tbst. Endið á 1 kl í 4. ll. Heklið nú fram og til baka þannig: UMFERÐ 1: Heklið * 1 ll, 1 fl í næsta tbst, 6 ll, 1 kl í sömu fl *, endurtakið frá *-* 3 sinnum til viðbótar (= alls 4 sinnum ) = 4 blöð. Sjá mynstur A.4. UMFERÐ 2: Heklið nú um fyrsta ll-bogann þannig: Heklið 2 ll (koma í stað fyrsta hst), 3 hst, 2 st, 4 hst, 1 kl í ll frá fyrri umf. Um 3 næstu ll-boga er heklað þannig: Heklið 4 hst, 2 st, 4 hst, 1 kl í ll frá fyrri umf = 4 blöð. Klippið frá og festið enda. LÍTILL HRINGUR NR 2 (VINSTRI HLIÐ): Heklið eins og lítill hringur nr 1, en 2. umf er hekluð þannig: Heklið 4 ll (koma í stað 1. tbst), 1 tbst í 1. hst, 2 tbst í hvern af næstu 8 hst. Festið nú litla hringinn nr 1 og 2 saman þannig: Heklið 1 kl á milli st á 2. blaði á litla hringnum nr 1. Heklið tbst í hvern af næstu 3 hst á hring nr 2, 1 kl á milli st á 1. blaði á litla hringnum nr 1. Heklið 2 tbst í hvern af næstu hst á hring nr 2 = 40 tbst. Endið á 1 kl í 4. ll. Heklið nú áfram eins og hringur nr 1. LÍTILL HRINGUR NR 3 (HÆGRI HLIÐ): Heklið eins og lítill hringur nr 1, en 2. umf er hekluð þannig: Heklið 4 ll (koma í stað 1. tbst), 1 tbst í 1. hst, 2 tbst í hvern af næstu 8 hst. Festið nú hringinn við stóra hringinn þannig: Heklið 1 kl á milli tbst á 4. Blaðinu á blómi. Heklið 2 tbst í hvern af næstu hst á litla hringnum, 1 kl á milli tbst á 5. blaði á blómi. Heklið 2 tbst í hvern af næstu 3 hst á litla hringnum, 1 kl á milli tbst á blaði í hægri hlið við stóra hringinn. Heklið 2 tbst í hvern af næstu hst á litla hringnum = 40 tbst. Endið á 1 kl í 4. ll. Heklið nú áfram eins og lítill hringur nr 1. LÍTILL HRINGUR NR 4 (HÆGRI HLIÐ): Heklið eins og lítill hringur nr 1, en 2. umf er hekluð þannig: Heklið 4 ll (koma í stað 1. tbst), 1 tbst í 1. hst, 2 tbst í hvern af næstu 10 hst. Festið nú hringinn við lítinn hring nr 3 þannig: Heklið 1 kl á milli st í 4. blaði á litlum hring nr 3. Heklið 2 tbst í hvern af næstu 3 hst á litlum hring nr 4, 1 kl á milli st í 3. blaði á litlum hring nr 3. Heklið 2 tbst í hvern af næstu hst á litlum hring nr 4 = 40 tbst. Endið á 1 kl í 4. ll. Heklið nú áfram eins og lítill hringur nr 1. TENGING: Heklið nú tengingu ca 36 cm með ll, í báðum hliðum. Byrjið á 1 kl í gegnum ysta kantinn á blaði við miðju að framan á hring nr 2 og 4. Klippið frá og festið enda. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (36)
Lala skrifaði:
Bonjour, j'essaye de faire ce modèle et cela fait 3 fois que je recommence car mon premier cercle gondole et pourtant j'ai bien suivi les explications. Aurait-il pas un erreur dans les explications ?
28.04.2014 - 15:20DROPS Design svaraði:
Bonjour Lala, avez-vous pensé à essayer de commencer par un rond magique ? cf vidéo ci-dessous. Bon crochet!
28.04.2014 - 16:02Anteide skrifaði:
Hat mir Spaß gemacht. Allerdings habe ich den hinteren Teil auch noch etwas attraktiver gemacht, drei Reihen und noch 3 kleine Rosetten.
04.05.2013 - 17:31Lea skrifaði:
Andekas lahendus kaelusele.
03.02.2013 - 18:33Ljubica skrifaði:
Beautiful
25.01.2013 - 01:07May skrifaði:
Super mooi, en nog leuker om te maken.
17.01.2013 - 16:58Elena skrifaði:
Muy original
15.01.2013 - 16:14Candau skrifaði:
Modele très original mais quelques pointes de couleur vives auraient sublime ce modele
13.01.2013 - 13:00Hoferlin skrifaði:
Super beau a retenir
13.01.2013 - 06:19Inger Alderblad skrifaði:
Kul att se ett vackert halsmycke
05.01.2013 - 23:06Mpze skrifaði:
Bijoux de peau
03.01.2013 - 01:52