Marion wrote:
Vorab zur Erklärung, ich bin Häkel-Anfänger ... sehe ich das richtig, dass die schriftliche Anleitung bezüglich der Verknotung der Fäden von dem Video abweicht? Was geschieht mit dem Anfangsfaden der Luftmaschenrings?
31.07.2019 - 08:27DROPS Design answered:
Liebe Marion, die Beschreibung der Verknotung wurde etwas korrigiert, das war missverständlich. Nun passen Anleitung und Video zusammen. :-) Den Anfangsfaden des Luftmaschenrings verstechen Sie in den Maschen, sodass er befestigt und unsichtbar wird. Viel Spaß beim Tragen Ihres neuen Schmuckes! :-)
31.07.2019 - 17:07Ciska wrote:
Hoi Drops, ik zou graag de armband haken. Die bij het patroon van Summer Flair hoort. Er staat: Haak volgens telpatroon A1. Maar deze ontbreekt, en er staan 2 vraagtekens in de legenda. Kunnen jullie een tekening van A1, of een geschreven uitleg toevoegen. Bedankt Groetjes Ciska.
13.08.2018 - 23:03DROPS Design answered:
Dag Ciska, Het telpatroon is wel aanwezig bij het patroon. Mogelijk werd de afbeelding niet goed geladen. Zou je het nog eens willen proberen en op F5 klikken en/of eventueel een ander apparaat/browser willen proberen?
14.08.2018 - 09:48
Summer Flair |
||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||
Settið samanstendur af: Hekluðu armbandi og hálsmeni með skúfum. Settið er heklað úr DROPS Paris.
DROPS 190-11 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Armband: Sjá mynsturteikningu A.1. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- ARMBAND - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring. ARMBAND: Heklið með heklunál 4 með litnum skær bleikur DROPS Paris. Heklið 5 loftlykkjur og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju sem var hekluð. Heklið síðan eftir mynsturteikningu A.1. Þegar stykkið mælist ca 19 cm frá loftlykkjuhring dragið lykkjuna á heklunálinni til þannig að hún mælist ca 12 cm, hnýtið löngu lykkjuna (= 2 þræðir) saman við hinn þráðinn (= 1 þráður). Þræðið perlu á 3 þræðina og festið vel með því að gera tvöfaldan hnút yst. Klippið 3 þræðina þannig að endinn verði ca 1 cm. Armbandið er fest utan um úlnlið með því að þræða 5 loftlykkjur í byrjun á stykki um perluna í lok á stykki. Heklið annað armband til viðbótar á sama hátt með litnum bleikvínrauður. ------------------------------------------------------- HÁLSMEN MEÐ SKÚFUM - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fyrst eru gerðir 7 skúfar með perlu á toppnum á hverjum skúf, síðan eru skúfarnir hnýttir saman og í lokin er hekluð ein umferð með loftlykkjum og stuðlum til að hnýta saman utan um háls. HÁLSMEN MEÐ SKÚFUM: Gerið 2 skúfa með litnum millibleikur, 2 skúfa með litnum skær bleikur, 2 skúfa með litnum bleikvínrauður og 1 skúf með litnum rústrauður (= 7 skúfar) þannig: 1 skúfur: Klippið 22 þræði ca 12 cm og leggið alla þræðina saman. Klippið 2 þræði ca 20 cm. Vefjið einn af þráðunum utan um 22 þræðina og hnýtið hnút í miðju. Brjótið í tvennt við hnút og vefjið hinum þræðinum 3 sinnum hringinn ca 1½ cm niður frá uppábrotinu, hnýtið hnút. Þræðið tréperlu á endann efst á skúf (= 2 þræðir í gegnum perlu). Gerið hina skúfana á sama hátt. Setjið skúfan í röð eftir eigin ósk, t.d. millibleikur, skær bleikur, bleikvínrauður, rústrauður, bleikvínrauður, skærbleikur, milli bleikur. Passið uppá að hnúturinn af bandi sem vafið er utan um 1½ cm fyrir neðan á uppábrotinu snúi að sömu hlið á öllum skúfunum, þannig að það verði rétta án hnúta og ranga með hnútum. Hnýtið nú skúfana saman efst á hverjum skúf þannig: ATH: Skúfarnir eru hnýttir þétt þannig að þeir geti legið alveg þétt við hliðina á hverjum öðrum. Hnýtið 2 þræðina á 1. skúf saman við einn af þráðunum á 2. skúf, hnýtið hina þræðina á 2. skúf saman við einn af þráðum á 3. skúf, hnýtið hina þræðina á 3. skúf saman við einn af þráðum á 4. skúf. Haldið svona áfram þar til 1 þráður á 6. skúf er eftir, hnýtið annan þráðinn á 6. skúf saman við 2 þræði á 7. skúf. Þræðið hvern og einn af þráðunum í gegnum fína nál og þræðið í gegnum götin á gerlunum eina og eina, festið þræðina á skúfunum (í þráð sem vafið er utan um 3 sinnum). Nú eru þræðirnir sem vafið er utan um hnýttir 1½ cm niður frá uppábroti saman þannig: Hnýtið einn af þráðunum á 1. skúf saman við einn af þráðum á 2. skúf, hnýtið seinni þráðinn á 2. skúf saman við einn af þráðum á 3. skúf. Haldið svona áfram þar til allir skúfarnir hafa verið hnýttir saman. Notið fína nál til að fela alla enda á skúfum þannig að þeir sjáist ekki frá réttu. Klippið frá þannig að skúfarnir verði jafnir. Heklið nú eina umferð með loftlykkjum og stuðlum (= snúra sem er notuð til að hnýta utan um háls) þannig: Heklið loftlykkjur með heklunál 4 með litnum millibleikur þar til loftlykkjuröðin mælist 43 cm, heklið síðan frá réttu á skúfum, * 1 stuðull um þráðinn sem hnýttur er á milli 2 fyrstu/næstu skúfa, 1 loftlykkja *, heklið frá *-* þar til heklaður er 1 stuðull um þráðinn á milli skúfa (= 6 stuðlar), haldið síðan áfram með loftlykkjur þar til loftlykkjuröðin mælist 43 cm. Klippið frá. Þræðið perlu í báðar snúrurnar (= loftlykkjuröð). Hnýtið hnút í endann á hverjum skúf og klippið enda þannig að þeir verði alveg eins í hvorri hlið. Hálsmenið er hnýtt aftan í hnakka. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |