Batya skrifaði:
Hi, I want to order this sock.
22.05.2025 - 10:53
Olga Kacerovská skrifaði:
Dobrý den, chtěla bych zeptat na model 146-37 podkolenky. v návodu je uveden vzor A1 a A2, ale v tipech pro ujímání se mluví o vzoru A3. v návodu jsem ho nikde nenašla. Proto se chci zeptat jestli je to jen překlep a má to být A2 a nebo popis vzoru A3 v návodu úplně chybí?Předem děkuji za odpověď
30.12.2014 - 09:48DROPS Design svaraði:
Dobrý den, Olgo, děkuji za upozornění - v návodu byl chybně uvedený odstaveček Tip - ujímání, který sem vůbec nepatří. Nyní je vše opraveno. Hezký den!
03.03.2016 - 14:18
Therese skrifaði:
Hej, där det ska mäta 12 cm i slutet står det att man ska sticka 8m och sedan A2. det går inte ihop hela varvet ut, är det jag som gör fel eller är det fel på beskrivningen?
04.06.2014 - 16:09DROPS Design svaraði:
Hej Therese. Du har efter fellingerne 54-60 eller 66 masker paa v. Du skal nu strikke: 3 r , A.2 (= 6 m) videre, dvs, 9, 10 eller 11 gentagelser af 3 r, A.2.
11.06.2014 - 19:46
GOEHRY skrifaði:
Dans ce modèle À 12 cm de hauteur totale, diminuer 1 m dans chacune des sections 8 m end (tricoter ens à l'end les 2 premières m), répéter ces diminutions encore 4 fois (5 diminutions par tour au total) : or 5 diminutions par tout c'est pas cohéreNt, j'ai calculé plusieurs fois.
16.09.2013 - 08:43DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Goehry, effectivement, il fallait lire (5 fois au total). La correction a été faite, merci pour votre aide, bon tricot!
16.09.2013 - 09:30
Karen Marie Aanerød skrifaði:
Jeg strikker denne modellen nå, hælfellingen er misvisende på norsk, for å få 15 masker til slutt må du ta i maske løs av før hullet strikke masken etter hullet ta den løse masken over den strikkede, det blir lekre strømper, jeg strikker to par.
07.03.2013 - 10:55
Hanna skrifaði:
Wedding socks. If made in whole lenghth wedding socks even more! Made from a good yarn these would be socks that goes in the family as something old.
30.01.2013 - 17:19
Greta skrifaði:
Stupende!
16.01.2013 - 10:02
Hilde skrifaði:
Nyyyydelige
13.01.2013 - 13:08
Shakespeares skrifaði:
Minder mig om romeo & Julie.
03.01.2013 - 20:15
Kristyna skrifaði:
Jsou naprosto uzasne!!!!
27.12.2012 - 22:52
Eleonora#eleonorasocks |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
Prjónaðir háir sokkar með gatamynstri úr DROPS Fabel. Stærð 35–43.
DROPS 146-37 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2, mynsturteikningin sýnir mynstur séð frá réttu. HÆLÚRTAKA: Hælúrtaka er prjónuð í sléttprjóni þannig: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 7-7-7 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 7-7-7 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 6-6-6 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 6-6-6 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. Haldið áfram með úrtöku á sama hátt með því að prjóna þar til eftir er 1 lykkja færri áður en 1 lykkju er lyft af prjóni, þar til 15-15-15 lykkjur eru eftir á prjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður að tá. SOKKUR: Fitjið upp 90-100-110 l á sokkaprjóna nr 2,5 með Fabel. Prjónið 1 umf slétt og 1 umf brugðið. Prjónið síðan A.1 einu sinni á hæðina, þegar A.1 hefur verið prjónað eru 72-80-88 l á prjóni. Prjónið nú 1 umf slétt JAFNFRAMT er fækkað um 3-5-7 l jafnt yfir = 69-75-81 l. Haldið nú áfram þannig: * Prjónið 8 l sl, A.2 * , endurtakið frá *-* 3 sinnum, * 3 l sl, A.2 *, endurtakið frá *-* 6-7-8 sinnum. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA ! Þegar stykkið mælist 12 cm er fækkað um 1 l í hverri mynstureiningu með 8 l sl (prjónið fyrstu 2 l slétt saman), endurtakið úrtöku með 5 cm millibili 4 sinnum til viðbótar (alls 5 úrtöku umferðir) = 54-60-66 l. Prjónið nú áfram með 3 l sl, A.2 þar til stykkið mælist ca 40-42-44 cm. Haldið eftir fyrstu 21 l á prjóni fyrir hæl, setjið næstu 27-33-39 l á þráð (= ofan á fæti) og haldið eftir síðustu 6 l á prjóni fyrir hæl. Prjónið sléttprjón og A.2 yfir hællykkjur í 5-5½-6 cm (ATH! Þegar 2 umf eru eftir þar til hællinn mælist 5-5½-6 cm prjónið sléttprjón yfir allar hællykkjur). Setjið 1 prjónamerki. Prjónið HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan. Eftir hælúrtöku eru prjónaðar upp 14-14-15 l hvoru megin við hæl og þær 27-33-39 l af þræði eru settar aftur á prjóninn = 70-74-84 l. Setjið 1 prjónamerki hvoru megin við 27-33-39 l ofan á fæti. Haldið áfram með mynstur eins og áður ofan á fæti og sléttprjón undir fæti. JAFNFRAMT er lykkjum fækkað í hvorri hlið þannig: Prjónið síðustu 2 lykkjur Á UNDAN fyrra prjónamerki ofan á fæti snúnar slétt saman (þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan) og prjónið fyrstu 2 lykkjur Á EFTIR seinna prjónamerki ofan á fæti slétt saman. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf 8-8-10 sinnum til viðbótar (alls 9-9-11 úrtökur) = 52-58-62 l. Prjónið þar til stykkið mælist 18-20-22 cm frá prjónamerki á hæl (= ca 4-4-5 cm að loka máli). Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið svo að það verða 26-29-31 l bæði ofan á fæti og undir fæti. Prjónið sléttprjón yfir allar l, JAFNFRAMT er lykkjum fækkað fyrir tá hvoru megin við bæði prjónamerkin þannig : Á undan prjónamerki : Prjónið 2 l slétt saman. Á eftir prjónamerki : Prjónið 2 l snúnar slétt saman (prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan). Fækkið lykkjum í annarri hverri umf alls 5-6-7 sinnum og síðan í hverri umf 5-4-4 sinnum = 12-18-18 l eftir á prjóni. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel. Þræðið silkiborða í gataumferðina efst á sokknum og hnýtið slaufu. Prjónið annan sokk á sama hátt. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #eleonorasocks eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 12 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 146-37
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.