Marianne skrifaði:
Impossible de le réaliser manque d expliquations
18.09.2012 - 21:37DROPS Design svaraði:
Bonjour Marianne, pour toute aide personnalisée, je vous demande de bien vouloir vous adresser à votre magasin DROPS et / ou au forum DROPS. Bon tricot !
19.09.2012 - 09:20Gisela skrifaði:
Me pueden ayudar con el cuello suave que no lo entiendo, un dibujo??
27.08.2012 - 23:05DROPS Design svaraði:
Hola Gisela, lamentablemente no es posible responder a todas las preguntas individualmente. Sugerimos busques ayuda en la tienda donde compraste las lanas o bien en los foros. Saludos!
01.09.2012 - 03:56Desiree skrifaði:
This is a suitable pattern for my wool. I like to make this in 6 colours!
20.07.2012 - 15:34
Sabrina skrifaði:
Besser als das andere Modell, wegen dem Schal.
01.06.2012 - 00:38
Barbara skrifaði:
Love it for crisp fall days - in this spice color and also rich 'berry' shades!
31.05.2012 - 19:28
Maple#mapleponcho |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
Prjónað poncho úr DROPS Nepal með köðlum og gatamynstri. Stærð S - XXXL
DROPS 143-19 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikningin sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu A.3. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PONCHO - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í tveimur stykkjum sem saumuð eru saman í lokin. Hvort stykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna. STYKKI 1: Fitjið upp 66-74-80-86 l á hringprjóna nr 4,5 með Nepal. Prjónið 12 umf í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan (1. umf = ranga). Skiptið yfir á hringprjóna nr 5,5 og prjónið næstu umf frá röngu þannig: Prjónið 6-6-6-8 l sl, 4 l br, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l br *, endurtakið frá *-*, 2 sinnum til viðbótar (= 3 l fleiri – ATH: í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat), prjónið br þar til 13-13-13-15 lykkjur eru eftir, * 1 l br, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-*, 2 sinnum til viðbótar (= 3 l fleiri) og endið með 4 l br og 6-6-6-8 l sl = 72-80-86-92 l. Prjónið nú mynstur og byrjið frá réttu þannig: Prjónið 6-6-6-8 kantlykkjur í garðaprjóni, 2 l sl, 2 l br, mynstur A.1 (= 6 l), 2 l br, 2 l sl, 3-4-5-5 l br, 2-3-3-4 l sl, 3-4-5-5 l br, mynstur A.3 (= 16-18-20-20 l – veljið mynsturteikningu fyrir rétta stærð), 3-4-5-5 l br, 2-3-3-4 l sl, 3-4-5-5 l br, 2 l sl, 2 l br, mynstur A.2 (= 6 l), 2 l br, 2 l sl og 6-6-6-8 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist ca 61-68-74-80 cm – stillið af þannig að næsta umf sé prjónuð frá réttu og að ekki hafa verið prjónaðar fleiri en 3 eða 5 umf á eftir kaðal í A.1 og A.2 – prjónið 1 umf slétt frá réttu JAFNFRAMT sem l í A.1 eru prjónaðar sléttar saman 2 og 2 og l í A.2 eru prjónaðar snúnar slétt saman 2 og 2 = 66-74-80-86 l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4,5 og prjónið 12 umf garðaprjón, fellið nú laust af með sl frá röngu, stykkið mælist ca 65-72-78-84 cm. STYKKI 2: Fitjið upp og prjónið á sama hátt og stykki 1. FRÁGANGUR: Setjið affellingarkantinn frá stykki 1 við hægri langhliðina á stykki 2 – lengst niður meðfram uppfitjunarkanti og 41-46-50-54 cm uppúr – passið að strekkja ekki of mikið á stykkinu. Saumið saman bæði stykkin með smáu spori. Saumið síðan affellingarkantinn á stykki 2 í hægri hlið á stykki 1 á sama hátt. HÁLSSKJÓL: Prjónað er hálsskjól í hvorri hlið við op að framan þannig (hálsskjólið er saumað saman við miðju að aftan í lokin): Setjið 2 prjónamerki framan í hálsmáli, ca 5-5-6-7 cm frá horni við miðju að framan og upp, mælt meðfram hvorri hlið við hálsmál. Fitjið LAUST upp 72-78-86-92 l á hringprjóna nr 4,5, prjónið nú upp frá réttu, ca 54 til 68 l kringum hálsmál (byrjið við fyrra prjónamerkið að framan og endið við seinna prjónamerki), fitjið LAUST upp 72-78-86-92 nýjar l í lok umf = ca 198-252 l. Prjónið garðaprjón fram og til baka þar til hálsskjólið mælist 7-7-8-9 cm. Nú eru prjónaðar stuttar umferðir svo að kanturinn verði hærri að aftan í hnakka þannig: Prjónið 68-74-82-88 l, setjið þessar l á þráð, prjónið út umf, snúið við og prjónið 68-74-82-88 l, setjið þessar l á þráð, prjónið út umf, * snúið við og prjónið 6-7-7-8 l, setjið þessar l á þráð, prjónið út umf, snúið, prjónið 6-7-7-8 l, setjið þessar á þráð og prjónið út umf *, endurtakið frá *-*, 2 sinnum til viðbótar. Nú eru l af þráðum settar til baka á prjóninn og haldið er áfram í garðaprjón fram og til baka yfir allar l þar til hálsskjólið mælist ca 9-9-10-11 cm þar sem það er minnst (þ.e.a.s. í lokin í hvorri hlið). Fellið mjög laust af. Setjið bæði hálsskjólin í kross við miðju að framan, yfir axlir og við miðju að aftan svo að styttri hliðarnar mætast við miðju að aftan. Saumið styttri hliðarnar saman, kant í kant yst í lykkjubogann. Hálsskjólið fellur nú laust í kringum opið á poncho. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #mapleponcho eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 9 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 143-19
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.