Karin Van Doorn skrifaði:
Dank voor het snelle antwoord! Dat die spleten worden dichtgenaaid, zie ik niet in de instructies staan. Net zo min als de precieze instructies voor de raglan, waar eerder een opmerking over is gemaakt. Het zou wel degelijk behulpzaam zijn als er ook vermeld werd hoe de steken te breien op de verkeerde kant en in de naalden op de goede kant waar je niet mindert.
14.04.2025 - 17:47
Karin Van Doorn skrifaði:
Klopt het dat er een opening is tussen mouw en lijf als je begonnen bent met de pas? Zo ja, hoort dat bij het patroon?
13.04.2025 - 21:55DROPS Design svaraði:
Dag Karin,
Dat klopt dat er een opening onder de oksel zit, maar deze wordt op het einde dicht genaaid.
14.04.2025 - 06:52
Ingrid Hilborn skrifaði:
Jag skulle vilja sticka denna tröja i storlek cl 122/128. Kan ni erbjuda en sådan "översättning" vad gäller antal maskor som ska läggas upp, hur många raglanintagningar etc.?
29.11.2023 - 12:50DROPS Design svaraði:
Hej Ingrid, här hittar du koftor till baby i samma stickfasthet: Koftor till baby
30.11.2023 - 10:17
Ingrid Hilborn skrifaði:
Vilken diameter på knapparna rekommenderas?
04.07.2023 - 16:33DROPS Design svaraði:
Hej Ingrid, knappen er ca 20 mm :)
05.07.2023 - 08:01
Le Terrier skrifaði:
Auriez-vous explication pour tricoter le gilet avec aiguilles droite et non circulaire car je ne comprends pas Merci
01.11.2022 - 19:46DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Le Terrier, nous ne sommes malheureusement pas en mesure de pouvoir adapter chacun de nos modèles à chaque demande, toutefois, ce gilet se tricote en allers et retours sur aiguille circulaire (les 2 devants et le dos jusqu'aux emmanchures), vous pouvez ainsi le tricoter sur aiguilles droites (vos mailles seront juste plus serrées); pour les manches (et plus encore), retrouvez ici des astuces. Bon tricot!
02.11.2022 - 07:36
Wilma skrifaði:
Kan iemand me dit patroon regel voor regel mailen? van af de v hals omhoog.nu staat het zo apart van elkaar terwijl het inelkaar moet voegen.
02.10.2018 - 18:12DROPS Design svaraði:
Dag Wilma, Helaas kan ik je het patroon niet mailen, maar je kunt wel voor jezelf de tekst selecteren en deze plakken in een tekstverwerkingsprogramma, waarna je het voor jezelf overzichtelijk kunt maken. Je kan ook altijd hulp vragen bij de winkel waar je het garen gekocht hebt.
04.10.2018 - 11:57
Eva Johansson skrifaði:
Hej, Går det att sticka denna modellen i slätstickning istället?
04.10.2016 - 12:58DROPS Design svaraði:
Hej Eva. Hvad mener du? Den er strikket i glat efter ribben?
04.10.2016 - 14:19
Mette Dræby skrifaði:
Jeg kan ikke få lommerne til at passe.. På billedet er de vist som om de sider tæt på forkantet. Men i opskriften er beskrevet som om de sidder næsten midt på siddesømmen...
06.04.2015 - 21:27DROPS Design svaraði:
Hej Mette, bare følg opskriften så får du lommerne så de passer til den størrelse du strikker. God fornøjelse!
13.05.2015 - 16:03
Annie Broda skrifaði:
Sauf erreur de ma part, il manque une partie de l'explication du raglan : d'après la photo, il faut tricoter les mailles comme elles viennent. Il pourrait être utile de le mentionner, notamment pour les tricoteuses de peu d'expérience. Cordialement A B
24.06.2013 - 14:56DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Broda, sauf erreur, il est indiqué au début des explications comment tricoter les mailles et diminuer pour le raglan. Bon tricot !
24.06.2013 - 16:09
Esther skrifaði:
Welke lengte rondbreinaalden heb ik hiervoor nu nodig? En welke lengte nld zonder knop? Het is me niet helemaal duidelijk. Rondbreinaalden kun je beter te kort dan te lang bestellen geloof ik.
26.02.2013 - 11:25DROPS Design svaraði:
Je kan hiervoor het beste standaard 80 cm gebruiken. Breinaalden zonder knoop is van DROPS standaard 20 cm lang, maar je kan ook een andere lengte gebruiken - het maakt hier niets uit. Je kan ook de mouwen in de rondte breien. Leer eventueel de magic-loop techniek.
27.02.2013 - 17:13
Happy Sunday#happysundaycardigan |
|
|
|
Prjónuð peysa úr DROPS Fabel með laskalínu, vösum, v-hálsmáli og bótum á ermum. Stærð S - XXXL
DROPS 142-23 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. HNAPPAGÖT: Fellt er af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = fellið af 5. og 6. l frá kanti og fitjið upp 2 nýjar l yfir þær l sem felldar voru af í næstu umf. Fellið af fyrir hnappagati þegar stykkið mælist: STÆRÐ S: 2, 10, 18, 26 og 33 cm. STÆRÐ M: 2, 10, 18, 26 og 34 cm. STÆRÐ L: 2, 10, 18, 26 og 35 cm. STÆRÐ XL: 2, 10, 19, 27 og 36 cm. STÆRÐ XXL: 2, 11, 20, 29 og 37 cm. STÆRÐ XXXL: 2, 11, 20, 29 og 38 cm. ÚRTAKA (á við um v-hálsmál): Fækkið lykkjum innan 1 kantlykkju í garðaprjóni. Öll úrtaka er gerð frá réttu þannig: Fækkið lykkjum Á UNDAN 1 kantlykkju í garðaprjóni: Prjónið 2 l sl saman. Fækkið lykkjum Á EFTIR 1 kantlykkju í garðaprjóni: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. LASKALÍNA: Fækkið um 2 l í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og ermum. Byrjið 6 l á undan prjónamerki og prjónið þannig: Prjónið 2 l sl saman, 1 l sl, 2 l br, 2 l sl (prjónamerki er staðsett á milli þessa 2 l), 2 l br, 1 l sl, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 262-286-310-338-370-406 l (meðtaldar eru 10 l fyrir kant við miðju að framan) á hringprjóna nr 2,5 með litnum barkarbrúnn Fabel. Prjónið 1 umf br frá röngu, prjónið næstu umf frá réttu þannig: Prjónið 2 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* þar til 4 l eru eftir, endið með 2 l sl og 2 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN. Haldið svona áfram með stroff. Munið eftir HNAPPAGÖT í hægri kanti – sjá útskýringu að ofan. Þegar stroffið mælist 4 cm prjónið nú 1 umf sl frá réttu, en síðustu 10 l í hvorri hlið við miðju að framan eru prjónaðar eins og áður (= kantur að framan) – JAFNFRAMT er fækkað um 42-46-50-54-58-66 l jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað yfir kant að framan) = 220-240-260-284-312-340 l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 3 og haldið áfram í sléttprjóni (kantur að framan er prjónaður eins og áður). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 6 cm eru sett 2 prjónamerki í stykkið, 60-65-70-76-83-90 l inn frá hvorri hlið (= 100-110-120-132-146-160 l á milli prjónamerkja á bakstykki). Fækkið nú um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerki (= 4 l færri). Endurtakið úrtöku með 3 cm millibili, 4 sinnum til viðbótar = 200-220-240-264-292-320 l. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 10 cm er gert op fyrir vasa og í næstu umf er prjónað frá réttu þannig: Prjónið fyrstu 46-48-50-56-60-66 l eins og áður, setjið síðustu 28-28-28-32-32-36 l sem prjónaðar voru á þráð fyrir vasaopi, prjónið eins og áður þar til 18-20-22-24-28-30 l eru eftir á prjóni, setjið síðustu 28-28-28-32-32-36 l sem prjónaðar voru á þráð fyrir vasaopi og prjónið þær l sem eftir eru eins og áður. Í næstu umf eru fitjaðar upp 28-28-28-32-32-36 nýjar l yfir hvort af 2 vasaopunum og haldið áfram eins og áður. Þegar stykkið mælist 22 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerki í hliðum (= 4 l fleiri). Endurtakið útaukningu með 2½-2½-2½-3-3-3 cm millibili, 4 sinnum til viðbótar = 220-240-260-284-312-340 l. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Þegar stykkið mælist 34-35-36-37-38-39 cm eru 2 næstu umf prjónaðar (byrjað frá réttu) þannig: Prjónið 10 l í kanti að framan eins og áður, setjið þær síðan á þráð og prjónið út umf, snúið við, prjónið þær 10 l í kanti að framan eins og áður og setjið þær síðan á þráð, prjónið út umf. Í næstu umf (= rétta) fellt er af 1 l hvoru megin við miðju að framan fyrir v-hálsmáli – LESIÐ ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku fyrir hálsmáli í hvorri hlið í annarri hverri umf (þ.e.a.s. í hverri umf frá réttu), 0-0-2-9-17-26 sinnum til viðbótar og síðan í 4. hverri umf (þ.e.a.s. í annarri hverri umf frá réttu) þar til 6 l eru eftir á undan prjónamerki í laskalínu á framstykki (prjónamerki í laskalínu er sett í framstykki þegar fram- og bakstykki og ermar eru sameinaðar – sjá útskýringu að neðan hjá berustykki)= alls ca 9-16-15-12-9-5 sinnum í 4. hverri umf – ATH: Í stærð S verða eftir 9 úrtökur í 4. hverri umf fækkaðar í 6. hverri umf þar til eftir eru 6 l á undan prjónamerki í laskalínu = alls ca 4 sinnum í 6. hverri umf. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 35-36-37-38-39-40 cm er fellt af fyrir handveg í hvorri hlið þannig: Prjónið þar til 6 l eru eftir á undan fyrra prjónamerki í hlið, fellið af næstu 12 l, prjónið þar til 6 l eru eftir á undan prjónamerki í hinni hliðinni, fellið af næstu 12 l og prjónið út umf. Nú eru 88-98-108-120-134-148 l á bakstykki og ca 43-48-53-59-66-73 l á hvoru framstykki (það fer eftir því hve margar l voru felldar af fyrir v-hálsmáli). Geymið stykkið og prjónið ermar (úrtaka fyrir v-hálsmáli heldur áfram á berustykki). ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 72-72-72-76-76-76 l á sokkaprjóna nr 2,5 með litnum barkarbrúnn Fabel. Prjónið 1 umf slétt, prjónið nú stroff (= 2 l sl, 2 l br). Þegar stroffið mælist 4 cm er prjónuð 1 umf slétt JAFNFRAMT er fækkað um 14-14-12-14-14-12 l jafnt yfir = 58-58-60-62-62-64 l. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 3 og prjónið slétt. Þegar stykkið mælist 8-8-9-8-10-8 cm er aukið út um 2 l við miðju undir ermi. Endurtakið útaukningu með 3½-3-2½-2½-2-2 cm millibili, 11-13-15-16-18-19 sinnum til viðbótar = 82-86-92-96-100-104 l. Þegar stykkið mælist 51-51-51-50-50-50 cm (styttri mál í stærri stærðum vegna víðari handvegs og breiðari axla) fellt er af 12 l undir ermi = 70-74-80-84-88-92 l eftir á prjóni. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Sameinið ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = ca 314-342-374-406-442-478 l. Setjið 1 prjónamerki í allar skiptingar milli fram- og bakstykki og erma (= 4 prjónamerki). Haldið áfram í sléttprjóni og úrtöku fyrir v-hálsmáli eins og áður. JAFNFRAMT í næstu umf frá réttu byrjar úrtaka fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan (= 8 l færri). Endurtakið úrtöku í 4. hverri umf (þ.e.a.s. í annarri hverri umf frá réttu), 3-2-1-0-0-0 sinnum til viðbótar og síðan í annarri hverri umf (þ.e.a.s. í hverri umf frá réttu), alls 21-24-28-32-34-36 sinnum. Eftir alla úrtöku í laskalínu og v-hálsmáli eru ca 90-96-100-108-118-128 l eftir á prjóni. Prjónið 1 umf slétt JAFNFRAMT er fækkað um 28-28-28-34-34-38 l milli 2 prjónamerkja á bakstykki (þ.e.a.s. fækkað er um ca 10-16-20-22-32-38 l á milli 2 prjónamerkja á bakstykki), fellið laust af allar l. KANTUR AÐ FRAMAN/VIÐ HÁLSMÁL: Setjið þær 10 l fyrir kant að framan af þræði frá hægra framstykki á prjóna nr 2,5. Haldið áfram með stroff eins og áður, nema með litnum brúnn Fabel, að aukið er fitjuð upp 1 l í lok umf inn að stykkinu (= kantlykkja til þess að sauma í). Prjónið nú áfram þar til hálsmálið mælist ca 30-31-32-34-35-37 cm frá þeim stað þar sem l voru settar tilbaka á prjóninn (leggið kantinn við hálsmál inn að flíkinni við miðju að aftan, strekkið aðeins og sjáið til þess að hann passi), fellið af. Endurtakið eins meðfram vinstra framstykki. Saumið kantinn við opið í hálsmáli innan við 1 kantlykkju svo að kanturinn í hálsmál liggi vel að þrengingu fyrir v-hálsmáli. Saumið við miðju að aftan innan við affellingarkantinn (saumurinn á að snúa inn á móti röngu á flíkinni). VASI: Setjið þær 28-28-28-32-32-36 l af þræði á öðru framstykkinu á prjóna nr 2,5. Byrjið á röngu með litnum brúnn Fabel og prjónið 1 umf br með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið JAFNFRAMT er aukið út um 8 l jafnt yfir = 36-36-36-40-40-44 l. Prjónið nú stroff frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* þar til 3 l eru eftir og endið með 2 l sl og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Þegar stroffið mælist ca 6-7 cm er fellt laust af með sl yfir sl og br yfir br. Brjótið stroffið saman tvöfalt út á móti réttu og saumið niður í hvorri hlið í gegnum bæði stykkin innan við 1 kantlykkju. INNAN Í VASA: Prjónið upp 1 nýja l í hverjaaf þeim 28-28-28-32-32-36 l sem voru í opi fyrir vasa. Prjónið sléttprjón fram og til baka á prjóna nr 3 með litnum barkarbrúnn Fabel þar til vasinn mælist ca 6 cm, fellið laust af. Saumið vasann fastan frá röngu á peysunni með smáu lausu spori. Prjónið vasa á hinu framstykkinu á sama hátt. BÓT Á ERMI: Stykkið er prjónað fram og til baka. Fitjið upp 20 l á prjóna nr 3 með litnum brúnn Fabel. Prjónið þannig: UMFERÐ 1: Prjónið slétt. UMFERÐ 2: Prjónið 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 6 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 6 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl = 28 l. UMFERÐ 3: Prjónið 1 l sl yfir allar l, uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt. UMFERÐ 4: Prjónið 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 8 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 8 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl = 36 l. UMFERÐ 5: Prjónið sl yfir allar l, uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt. UMFERÐ 6: Prjónið 1 sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 3 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 10 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 3 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 3 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 10 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 3 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl = 44 l. UMFERÐ 7: Prjónið sl yfir allar l, uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt. UMFERÐ 8: Prjónið 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 4 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 12 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 4 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 4 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 12 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 4 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl = 52 l. UMFERÐ 9: Prjónið sl yfir allar l, uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt. UMFERÐ 10: Prjónið 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 5 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 14 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 5 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 5 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 14 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 5 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl = 60 l. UMFERÐ 11: Prjónið sl yfir allar l, uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt. UMFERÐ 12: Prjónið 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 6 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 16 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 6 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 6 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 16 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 6 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl = 68 l. UMFERÐ 13: Prjónið sl yfir allar l, uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt. UMFERÐ 14: Prjónið 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 7 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 18 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 7 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 7 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 18 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 7 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl = 76 l. UMFERÐ 15: Prjónið sl yfir allar l, uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt. UMFERÐ 16: Prjónið 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 8 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 20 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 8 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 8 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 20 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 8 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl = 84 l. UMFERÐ 17: Fellið af allar l. Saumið saman op á bót fyrir ermi frá miðju og út með smáu, fínu spori. Prjónið aðra bót til viðbótar á sama hátt. Saumið bótina fasta aftan á ermi með litnum brúnn – saumið með stingsaum. Bæturnar eru saumaðar ca 20 cm frá neðri hluta ermar og ca 2-3 cm frá miðju undir ermi við bakhlið á ermi. Festið gjarna bæturnar með nálum fyrst og mátið peysuna til að sjá hvort þær sitji á réttum stað áður en þær eru saumaðar fastar. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #happysundaycardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 16 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 142-23
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.