Birch Leaves |
|||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Nepal með gatamynstri, köðlum og sjalkraga. Stærð S - XXXL
DROPS 141-19 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá teikningu A.1 til A.7. Mynsturteikningin sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. Veljið mynstur fyrir rétta stærð. ÚRTAKA (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Öll úrtaka er gerð frá réttu þannig: Fækkið lykkjum á undan prjónamerki: Prjónið 2 l slétt saman. Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki. Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. LEIÐBEININGAR (á við um kant að framan): Til að kantur að framan verði ekki of stífur að framan eru prjónaðar stuttar umferðir yfir kant að framan í hverri umf merktri með ör í mynstri A.5/A.6 þannig: * Byrjið frá réttu á hægra framstykki (= miðja að framan), í umf merktri með ör í mynstri og prjónið 1 umf slétt yfir síðustu 16-16-18-18-22-22 l (= kantur að framan – aðrar l á prjóni eru ekki prjónaðar), snúið við, herðið á þræði og prjónið sl út umf, snúið við og prjónið 1 umf eins og áður (með garðaprjón og mynstri) yfir allar l, snúið við, prjónið 1 umf slétt yfir síðustu 16-16-18-18-22-22 l (= kantur að framan á vinstra framstykki – aðrar l á prjóni eru ekki prjónaðar), snúið við, herðið á þræði og prjónið sl út umf *, endurtakið frá *-* í hverri umf merktri með ör í mynstri. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir 2 hnappagötum í hægri kanti að framan þannig: Prjónið þriðju og fjórðu l frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið síðan þar til 5 l eru eftir í kanti að framan, prjónið 2 næstu l slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 239-251-269-305-335-347 l (meðtaldar eru 16-16-18-18-22-22 l í kanti í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjóna nr 5 með Nepal. Prjónið 1 umf brugðið frá röngu. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 3 kantlykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 3 l sl, 3 l br *, endurtakið frá *-* alls 3-3-4-4-5-5 sinnum, 3 l sl, prjónið mynstur A.1 (veljið mynstur fyrir rétta stærð = 35-35-35-44-44-44 l), * 3 l sl, 3 l br *, endurtakið frá *-* alls 2-3-3-3-4-5 sinnum, 3 l sl, prjónið mynstur A.1 í stærð S + M + L (= 35 l) og mynstur A.2 í stærð XL + XXL + XXXL (= 44 l), * 3 l sl, 3 l br *, endurtakið frá *-* alls 3-3-4-4-5-5 sinnum, 3 l sl, prjónið mynstur A.1 (veljið mynstur fyrir rétta stærð = 35-35-35-44-44-44 l), * 3 l sl, 3 l br *, endurtakið frá *-* alls 2-3-3-3-4-5 sinnum, 3 l sl, prjónið mynstur A.1 í stærð S + M + L (= 35 l) og mynstur A.2 í stærð XL + XXL + XXXL (= 44 l), * 3 l sl, 3 l br *, endurtakið frá *-* alls 3-3-4-4-5-5 sinnum, 3 l sl og 3 kantlykkjur GARÐAPRJÓN. Haldið áfram með stroff þar til stykkið mælist 5 cm. Skiptið yfir á hringprjóna nr 6 og prjónið næstu umf frá réttu þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið sl JAFNFRAMT er fækkað um 8-7-9-12-12-10- l jafnt yfir næstu 21-21-27-27-33-33 l, prjónið síðustu umf í A.3 yfir l frá A.1 (veljið mynstur fyrir rétta stærð = 9-9-9-10-10-10 l færri), prjónið sl JAFNFRAMT er fækkað um 5-7-7-7-11-11 l jafnt yfir næstu 15-21-21-21-27-33 l, prjónið síðustu umf í A.3 í stærð S + M + L yfir l frá A.1 (= 9 l færri) og síðasta umf í A.4 í stærð XL + XXL + XXXL yfir l frá A.2 (= 10 l færri), prjónið sl JAFNFRAMT er fækkað um 6-4-4-10-8-4 l jafnt yfir næstu 21-21-27-27-33-33 l, prjónið síðustu umf í A.3 yfir A.1 (veljið mynstur fyrir rétta stærð = 9-9-9-10-10-10 l færri), prjónið sl JAFNFRAMT er fækkað um 5-7-7-7-11-11 l jafnt yfir næstu 15-21-21-21-27-33 l, prjónið síðustu umf í A.3 í stærð S + M + L yfir l frá A.1 (= 9 l færri) og prjónið síðustu umf í A.4 í stærð XL + XXL + XXXL yfir l frá A.2 (= 10 l færri), prjónið sl JAFNFRAMT er fækkað um 8-7-9-12-12-10 l jafnt yfir næstu 21-21-27-27-33-33 l og endið með 3 kantlykkjum í garðaprjóni = 171-183-197-217-241-261 l. Prjónið 1 umf frá röngu með sl yfir sl og br yfir br, en þær 16-16-18-18-22-22 síðustu l í hvorri hlið eru prjónaðar slétt (= kantur að framan). Prjónið nú mynstur með byrjun frá réttu – LESIÐ LEIÐBEININGAR þannig: Prjónið 16-16-18-18-22-22 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 0-1-3-0-2-4 l sléttprjón með rönguna út, prjónið mynstur eftir A.5 (veljið mynstur fyrir rétta stærð = 26-26-26-34-34-34 l), prjónið sléttprjón yfir næstu 10-14-14-14-16-22 l, prjónið A.5 í stærð S + M + L (= 26 l) og A.6 í stærð XL + XXL + XXXL (= 34 l), 0-1-3-0-2-4 l í sléttprjóni með rönguna út, prjónið mynstur A.7 (veljið mynstur fyrir rétta stærð = 15-15-17-17-21-21 l), 0-1-3-0-2-4 l sléttprjón með rönguna út, prjónið A.5 (veljið mynstur fyrir rétta stærð = 26-26-26-34-34-34 l), prjónið sléttprjón yfir næstu 10-14-14-14-16-22 l, prjónið A.5 í stærð S + M + L (= 26 l) og A.6 í stærð XL + XXL + XXXL (= 34 l) og endið með 0-1-3-0-2-4 l sléttprjón með rönguna út og 16-16-18-18-22-22 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Setjið 2 prjónamerki í stykkið, 47-50-54-59-66-71 l inn frá hvorri hlið = 77-83-89-99-109-119 l á milli prjónamerkja. Haldið áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 10 cm fækkar um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚRTAKA (= 4 l færri). Endurtakið úrtöku með 10-10-10-8-9-9 cm millibili, 3-3-3-4-4-4 sinnum til viðbótar = 155-167-181-197-221-241 l. Þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm fellið af fyrir 2 hnappagötum í hægri kanti að framan - sjá HNAPPAGAT í útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 51-53-55-57-59-61 cm fellið af fyrstu 15-15-17-17-21-21 l á prjóni, setjið 1 prjónamerki (prjónamerkið merkir hvar byrja á að prjóna upp kraga), prjónið út umf. Snúið við, fellið af fyrstu 15-15-17-17-21-21 l á prjóni, setjið 1 prjónamerki (prjónamerki merkir hvar enda á að prjóna upp kraga), prjónið út umf = 125-137-147-163-179-199 l. Haldið áfram með mynstur eins og áður með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 63-65-67-69-71-73 cm fellið af 2-4-4-4-6-8 l á hvorri hlið fyrir handveg (þ.e.a.s. 1-2-2-2-3-4 l hvoru megin við bæði prjónamerki) = 67-71-77-85-93-101 l á bakstykki og 27-29-31-35-37-41 l á framstykki. Hvor hluti er nú prjónaður til loka fyrir sig. BAKSTYKKI: Haldið áfram með mynstur eins og áður með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 75-78-81-84-87-90 cm fellið af miðju 11-11-13-13-17-17 l af fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð fyrir sig. Fellið nú af 1 l í næstu umf frá hálsmáli = 27-29-31-35-37-41 l eftir á prjóni. Prjónið nú áfram þar til stykkið mælist 77-80-83-86-89-92 cm og fellið af. HÆGRA FRAMSTYKKI: Haldið áfram með mynstur eins og áður með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 77-80-83-86-89-92 cm – passið uppá að prjóna jafn langt eins og á bakstykki, fellið af. VINSTRA FRAMSTYKKI: Prjónið á sama hátt og hægra framstykki. ERMI: Stykkið er prjónað í hring. Fitjið upp42-42-42-48-48-48 l á sokkaprjóna nr 5 með Nepal. Prjónið 1 umf slétt, prjónið síðan stroff (= 3 l sl, 3 l br). Þegar stykkið mælist 8 cm er skipt yfir á sokkaprjóna nr 6. Prjónið 1 umf slétt JAFNFRAMT er fækkað um 8-7-6-11-10-9 l jafnt yfir = 34-35-36-37-38-39 l. Prjónið nú sléttprjón. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf. Þegar stykkið mælist 10 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki undir ermi. Endurtakið útaukningu með 13-10-7½-6-5-4 cm millibili, 3-4-5-6-7-8 sinnum til viðbótar = 42-45-48-51-54-57 l. Þegar stykkið mælist 52-52-51-50-48-45 cm (styttri mál í stærri stærðum vegna víðari handvegs og breiðari axla) prjónið stykkið til loka fram og til baka frá miðju undir ermi þannig: Stærð S + M + L + XL: Fitjið upp 1 nýja l í hvorri hlið (= kantlykkja til að sauma í) og prjónið síðan þar til stykkið mælist 53-53-52-51 cm, fellið laust af. Stærð XXL + XXXL: Fitjið upp 1 nýja l í hvorri hlið (= kantlykkja til að sauma í) og prjónið síðan þar til 2 umf eru eftir þar til stykkið mælist 50-48 cm. Fellið nú af 5 l í byrjun á næstu 2 umf áður en fellt er laust af allar l. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlarsauma. Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju (einingin sem prjónuð var fram og til baka upp meðfram ermi á að passa inn í úrtöku fyrir handveg. Saumið tölur í. KRAGI: Prjónið upp frá réttu (innan við 1 kantlykkju) á hringprjóna nr 5 – byrjið við miðju að framan við prjónamerki á hægra framstykki þannig: Prjónið upp ca 38 til 46 l upp að öxl, síðan 16 til 22 l meðfram hnakka og 38 til 46 l niður meðfram vinstra framstykki að prjónamerki = 92 til 114 l. Prjónið 1 umf slétt frá röngu. Prjónið nú 1 umf slétt frá réttu JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn aukin jafnt yfir til 137-143-149-155-161-167 l. Prjónið nú stroff (frá röngu) þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * 3 l br, 3 l sl *, endurtakið frá *-* þar til 4 l eru eftir og endið með 3 l br og 1 kantlykkju í garðaprjóni (frá réttu verða 3 l sl í hvorri hlið innan við kantlykkju). Haldið áfram með stroff þar til kraginn mælist ca 5 cm. Aukið út um 1 l í hverja af miðju 12 br einingunum, séð frá réttu (= aftan við hnakka) = 149-155-161-167-173-179 l. Haldið áfram með sl yfir sl og br yfir br þar til kraginn mælist ca 9-9-11-11-13-13 cm. Prjónið nú áfram þannig: Prjónið 1 umf eins og áður og setjið fyrstu 16 l sem prjónaðar voru á 1 þráð, snúið við, prjónið út umf og setjið fyrstu 16 l sem prjónaðar voru í umferð á 1 þráð. Snúið við, prjónið út umf og setjið fyrstu 15-15-15-18-18-18 l sem prjónaðar voru í byrjun umf yfir á fyrri þráðinn, snúið við, prjónið út umf og setjið fyrstu 15-15-15-18-18-18 l sem prjónaðar voru í byrjun umf yfir á seinni þráðinn. Haldið svona áfram að setja fyrstu 15-15-15-18-18-18 l sem prjónaðar voru á þráði í hvorri hlið þar til það eru alls 61-61-61-70-70-70 l á þræði í hvorri hlið. Setjið nú lykkjur af þræði til baka á prjóninn og prjónið 1 umf eins og áður yfir allar 149-155-161-167-173-179 l – ATH: til að koma í veg fyrir göt í skiptingum þegar stykkinu er snúið við er þráðurinn í vikinu á undan næstu l sett snúið á prjóninn og prjónað saman með fyrstu l á prjóni. Í næstu umf er fellt af með sl yfir sl og br yfir br. Saumið kragann fastan neðst niðri í hvorri hlið við kant að framan – saumið kant í kant svo að saumurinn verði ekki of þykkur. VASI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 28-28-28-36-36-36 l á hringprjóna nr 6 með Nepal. Prjónið mynstur eftir teikningu A.5 (veljið mynstur fyrir rétta stærð) með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar vasinn mælist ca 17-17-17-20-20-20 cm – stillið af eftir heila mynstureiningu með gatamynstri í miðju – fellið af frá réttu, 2 l yfir hvorn kaðal og 3 l yfir gatamynstur fyrir miðju = 21-21-21-27-27-27 l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 5 og prjónið 4 umf garðaprjón og fellið af með sl frá röngu. Prjónið annan vasa til viðbótar á sama hátt, en í stærð XL + XXL + XXXL er prjónað mynstur A.6 í stað A.5. Saumið 1 vasa á hvort framstykki með lykkjuspori innan við 1 kantlykkju – ca 13-13-13-17-17-17 cm frá neðri brún (mátið peysuna til þess að ná fram réttri staðsetningu) – mynstur á vasanum á að passa við mynstureiningu á framstykki. BELTI: Fitjið upp 9 l á prjóna nr 5 og prjónið garðaprjón fram og til baka þar til beltið mælist ca 150-190 cm, fellið af. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (66)
Oksana skrifaði:
The model is described in quite complicated way. Could you please specify about collar in here: there are 61-61-61-70-70-70 sts in total on stitch holder in each side - so IN TOTAL or IN EACH SIDE? (Why not to describe the quantity of short rows instead? It is equal for all the sizes, isnt it)
27.08.2015 - 17:02DROPS Design svaraði:
Dear Oksana, you work short rows over collar sts slipping the first 16 sts (then the first 15-18 sts) sts at beg of every row (in each side) on a thread/ st holder until you have a total of 61-70 sts on each st holder (= on each side), you will repeat this a total of 4 times (1 time 16 sts + 3 times 15-18 sts) on each side. Happy knitting!
28.08.2015 - 09:49Eefje skrifaði:
Wanneer je in het patroon met rondbreinaald 6 moet beginnen staat er een aantal keer aangegeven dat bepaalde stukken recht gebreid moeten worden. Ik heb nu het volgende gebreid: 3 knt.stk. - 14 r. - 26 p. (patroon) - 14 - 26 p. - 17 r. - 26 p. - 14 - 26 p. - 14 - 3 knt stk. Ik heb nu 183 steken, dat klopt, maar de stukken recht komen me nogal willekeurig voor. Klopt dat?
16.02.2015 - 15:20DROPS Design svaraði:
Hoi Eefje. Het patroon zou correct moeten zijn. Maar twijfel je nog, dan geef aan waar in het patroon je precies bent, dan kan ik nakijken en bevestigen. bvd.
17.02.2015 - 15:40Frieda skrifaði:
Bedankt voor het patroon. Hij is mooi geworden en ik ben er erg blij mee
15.02.2015 - 11:39Frieda skrifaði:
Ik ben nu met de laatste naalden van de kraag bezig, maar kom er niet zo goed uit. In de beschijving staat om gaatjes te voorkomen, een lus voor de volgende steek gedraaid op de naald gezet moet worden. Welke lus wordt hiermee bedoeld?
07.02.2015 - 10:15DROPS Design svaraði:
Hoi Frieda. Je neemt een steken op tussen de te breien st een de st op de nld en plaatst deze verdraait op de nld (zet de lus vóór de volgende st). Zie hier hoe je een st opneemt:
10.02.2015 - 15:16Karin WITTEVEEN skrifaði:
Bij de tekening A5 staat bij de regels 11 en 12 in het midden niets. Wat moet je hier breien. Ik heb nog een vraag, Er wordt bij het begin van het patroon gezegd om 0 1 3 0 2 4 in averechts tricotsteek te breien. Maar wat wordt hiermee bedoeld.
04.02.2015 - 16:34DROPS Design svaraði:
Hoi Karin. Je begint dat weer opnieuw met de teltekening in het midden (het ajourpatroon). 1 herhaling van het kabelpatroon is gewoon meer naalden dan 1 herhaling van het ajourpatroon in het midden. De getallen 0-1-3-0-2-4 verwijzen naar welke maat je breit, dus brei je bijv maat S, dan moet je 0 st breien, en maat M 1 st averechte tricotst enzovoort.
05.02.2015 - 13:42Karin Witteveen skrifaði:
In het patroon 141-19 staan bij de laatste regels niets ingevuld wat moet ik hier breien.
04.02.2015 - 08:57DROPS Design svaraði:
Hoi Karin. Wat bedoel je precies? Dan zal ik proberen je verder te helpen :-)
04.02.2015 - 13:18Iliane skrifaði:
Hallo, ich habe diese Jacke (etwas kürzer) gestrickt und finde das Muster wunderschön! Im Nachhinein würde ich die Maschen an der Seite, die hier in der Anleitung gl re gestrickt dind, links stricken. So fügen sie sich zwischen den Zöpfen besser ein und die Abnahmen fallen nicht gleich so auf. Das gl re sieht zu aufgesetzt aus, als würde es dort nicht hingehören. Liebe Grüße, iliane
09.10.2014 - 22:59Anika skrifaði:
Hallo, ist es möglich, die Antworten auf die Fragen von Birgit (30.08.12) und Wera (10.09.12)in die Anleitung mit aufzunehmen? Diese Informationen sind m.E. unerlässlich, um korrekt stricken zu können. Danke und viele Grüße
30.04.2014 - 19:19DROPS Design svaraði:
Liebe Anika, die Antwort auf die Frage vom 30.08.12 findet sich bereits in der Anleitung, unter "Muster": "Die Diagramme zeigen alle R der Muster, wie sie auf der Vorderseite erscheinen." Ob die Diagramme A.5 und A.6 noch deutlicher erklärt werden müssen, werde ich anfragen. Viel Spaß beim Stricken!
30.04.2014 - 23:58Claudia skrifaði:
Die Abnahmen neben den Markierern befinden sich jedoch in den Mustern. Oder habe ich da etwas missverstanden?
21.10.2013 - 22:07DROPS Design svaraði:
Liebe Claudia, die Markierer sitzen in den glatt re Streifen zwischen A.5 bzw. A.6 (je nach Grösse). Siehe: "Nach den ersten 47-50-54-59-66-71 M und vor den letzten 47-50-54-59-66-71 M je 1 Markierer anbringen".
22.10.2013 - 09:14Claudia skrifaði:
Leider komme ich nach dem Abnahmetipp nicht mehr mit dem Muster A5 klar. Ich habe nur noch 8 Maschen in der Mitte anstatt den 10?
20.10.2013 - 20:58DROPS Design svaraði:
Liebe Claudia, die Abnahmen werden in den glatt re gestrickten Streifen gemacht und nicht innerhalb des Musters A5.
21.10.2013 - 12:15