Yvonne skrifaði:
Har just avslutat detta arbete.Allt gick utmärkt. Men kragen? Jag hittar inget i mönstret vad jag ska göra med de 20 maskor i var sida jag har på en tråd?
05.01.2013 - 13:01DROPS Design svaraði:
Sticka enligt besk under Vänster Framst: .... Sticka sedan med rätst över kragen så här: * 2 v över endast de yttersta 15-15-15-18-18-18 m (mot mitt fram), 2 v över alla m *, upprepa *-* tills kragen mäter ca 5½-5½-6-6-6½-6½ cm innerst längs den kortaste sidan (den kommer då att mäta det dubbla ytterst),sätt m på 1 tråd. MONTERING: Sy kragen tills mitt bak med maskstygn. Se gärna instruktionsvideo!
23.01.2013 - 14:21
Kathie H skrifaði:
For the body of sweater making size med when doing diagram B it is a repeat of 16 sts to worked over 168 sts ..but a repeat of 16sts equals 160.. leaving me with 8 sts to many-so am I to do do pattern B on these 8 sts?..is this correct or is the pattern incorrect?
03.11.2012 - 22:08DROPS Design svaraði:
Dear Katie H, you have to repeat diagram B on all the 160 sts + half diagram B = 8 sts to reach the whole 168 sts, then work diagram C (5 sts). Happy Knitting!
13.11.2012 - 15:41
Brigitte skrifaði:
Pourriez vous me dire si, pour le Modèle n° u-676 tous les rangs envers sont ao points mousse s il vous plait merci
10.10.2012 - 14:22DROPS Design svaraði:
Bonjour Brigitte, les diagrammes représentent tous les rangs des points fantaisie, ceux sur l'endroit aussi bien que ceux sur l'envers. 1 case noire = 1 m end sur l'envers, 1 case blanche = à tricoter en jersey env sur l'envers. Bon tricot !
10.10.2012 - 15:06
Eveline skrifaði:
Bij de 2e keer meerderen op het lijf staat er dat je voor de maat m 205 steken zou hebben, maar volgens mij is 163 + 2x 16 195
06.08.2012 - 21:17DROPS Design svaraði:
Hoi Eveline. Volgens mij heb je gelijk. Ik heb dit doorgestuurd naar ons Design Team en wacht op een reactie. Als het patroon fout is dan zullen wij het patroon aanpassen en een correctie plaatsen.
22.08.2012 - 10:26
Eveline skrifaði:
Bij de 2e keer meerderenop het lijf staat er dat je voor de maat m 205 steken zou hebben, maar volgens mij is 163 + 2x 16 195
04.08.2012 - 21:31DROPS Design svaraði:
Zie antwoord hierboven
22.08.2012 - 10:27Delores1234 skrifaði:
This is really nice. Very versatile would work well with all age groups.
04.08.2012 - 14:52
Mona Jensen skrifaði:
Den er bare helt perfekt
02.08.2012 - 12:49Michele skrifaði:
Can you please give me an indication when this pattern will be available to use? I would be grateful if I could be emailed today. Thank you
24.07.2012 - 20:56
Kristien skrifaði:
Zeer mooi,zou hem graag breien wanneer is het patroon online aub
23.07.2012 - 10:14
Gitte Jensen skrifaði:
SMUK
22.07.2012 - 21:10
Eva Luna#evalunacardigan |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Karisma með gatamynstri og sjalkraga. Stærð XS - XXXL.
DROPS 141-6 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. HNAPPAGAT: Fellt er af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið þriðju og fjórðu l frá miðju að framan slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: STÆRÐ XS/S: 6, 13, 20, 27, 34 og 40 cm. STÆRÐ M: 6, 13, 20, 27, 34 og 41 cm. STÆRÐ L: 6, 14, 21, 28, 35 og 42 cm. STÆRÐ XL: 6, 14, 22, 29, 36 og 43 cm. STÆRÐ XXL: 6, 14, 22, 30, 37 og 44 cm. STÆRÐ XXXL: 6, 14, 22, 30, 38 og 45 cm. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A-1 til A-4. Mynsturteikningin sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA (á við um hálsmál): Fækkið lykkjum frá réttu innan við allar l í garðaprjóni, þ.e.a.s. kantur að framan + þær l sem auknar eru út fyrir kraga. Fækkið lykkjum frá vinstri hlið, á undan öllum l í garðaprjóni þannig: Prjónið 2 l sl saman. Fækkið lykkjum frá hægri hlið, á eftir öllum l í garðaprjóni þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið laust upp 211-231-251-281-311-341 l (meðtaldar eru 5 kantlykkjur í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjóna nr 4 með Karisma. Fyrsta umf er prjónuð (= ranga) þannig: Prjónið 5 l sl, 2 l sl saman, * 7 l sl, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 2 l sl saman, steypið óprjónuðu l yfir *, endurtakið frá *-*, þar til 14 l eru eftir, 7 l sl, 2 l snúnar slétt saman, 5 l sl = 171-187-203-227-251-275 l. Prjónið 2 umf slétt yfir allar l. Setjið 1 prjónamerki eftir 45-49-53-59-65-71 l inn frá hvorri hlið (= 81-89-97-109-121-133 l á milli prjónamerkja á bakstykki). Haldið áfram þannig: Prjónið 5 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN (sjá utskýringu að ofan), prjónið mynstur A-1 þannig: mynstur a yfir 4 l, mynstur b yfir 152-168-184-208-232-256 l og mynstur c yfir 5 l, síðan 5 kantlykkjur í garðaprjóni. Prjónið A-1 einu sinni á hæðina. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 6 cm byrjar úrtaka fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið nú mynstur A-2 á sama hátt (kantur að framan er prjónaður í garðaprjóni allan tímann), endurtakið A-2 alls 3 sinnum á hæðina. Haldið áfram með mynstur A-3 – JAFNFRAMT í 1. umf er fækkað um 12-12-12-8-8-8 l jafnt yfir (fækkið um 6-6-6-4-4-4 l yfir bakstykki og 3-3-3-2-2-2 l yfir hvort framstykki, lykkjum er ekki fækkað yfir kant að framan) = 159-175-191-219-243-267 l, fækkið einnig um 12-12-12-8-8-8 l jafnt yfir í síðustu umf af A-3 – jafnið út úrtökuna á sama hátt eins og undanfarnar úrtökur = 147-163-179-211-235-259 l. Þegar A-3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið A-4 1 sinni á hæðina. Eftir A-4 mælist stykkið ca 32 cm. Haldið áfram með A-3 – JAFNFRAMT í 1. umf er aukið út um 16 l jafnt yfir (8 l yfir bakstykki og 4 l yfir hvort framstykki) = 163-179-195-227-251-275 l. Aukið út á sama hátt í síðustu umf af A.3 = 179-195-211-243-267-291 l. Þegar A-3 hefur verið prjónað einu sinni, prjónið A-2 (útaukning fyrir kraga byrjar áður en A-2 hefur verið prjónað til loka – sjá útskýringu að neðan). KRAGI: Jafnframt þegar stykkið mælist 39-7-40-41-42-43-44 cm, byrjar útaukning fyrir kraga í hvorri hlið við miðju að framan. Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á undan síðustu l í garðaprjóni í hvorri hlið – í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt til þess að koma í veg fyrir göt. Endurtakið útaukningu í annarri hverri umf þar til auknar hafa verið út 15-15-15-18-18-18 l í hvorri hlið, þ.e.a.s. að alls eru 20-20-20-23-23-23 l í garðaprjóni í hvorri hlið. Prjónið A-2 þar til stykkið mælist ca 41-42-43-44-45-46 cm – stillið af eftir eina heila mynstureiningu. Prjónið nú fyrstu umf af A-3 þannig: aukið út fyrir kraga og prjónið kant að framan eins og áður, fellið af 1 l fyrir hálsmáli – SJÁ ÚRTAKA, prjónið þar til eftir eru 2-3-3-4-4-5 l á undan prjónamerki í hlið, fellið af 4-6-6-8-8-10 l fyrir handveg, prjónið nú þar til eftir eru 2-3-3-4-4-5 l á undan næsta prjónamerki, fellið af 4-6-6-8-8-10 l fyrir handveg, prjónið þar til 2 l eru eftir á undan kant að framan, fellið af 1 l við háls – SJÁ ÚRTAKA, prjónið kant að framan og aukið út fyrir kraga eins og áður. Prjónið nú hvort stykkið til loka fyrir sig. VINSTRA FRAMSTYKKI: Lesið allan kaflann áður en prjónað er áfram! MYNSTUR: Haldið áfram með A-3 þar til mynstrið hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina síðan er A-4 prjónað einu sinni (þær l sem ekki ganga upp í mynstri við hálsmál þar sem úrtaka fyrir hálsmáli er í gangi, eru prjónaðar í sléttprjóni), prjónið nú A-3 einu sinni enn og síðan sléttprjón til loka – 1 l í lokin við handveg er prjónuð í garðaprjóni allan tíman. HANDVEGUR: Jafnframt er fellt af fyrir handveg í byrjun hverrar umf frá hlið: 2 l 0-0-0-2-3-4 sinnum og síðan 1 l 0-0-2-3-5-6 sinnum. KRAGI og HÁLSMÁL: Haldið áfram með útaukningu fyrir kraga, endurtakið úrtöku fyrir hálsmál í annarri hverri umf 4 sinnum til viðbótar og síðan í 4. hverri umf 5-5-6-6-7-7 sinnum. Eftir að úrtöku er lokið á kraga og hálsmáli eru 50-53-54-59-60-62 l á prjóni. Þegar stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm, eru felldar af fyrstu 30-33-34-36-37-39 l frá réttu fyrir öxl, prjónið út umf (= 20-20-20-23-23-23 l eftir fyrir kraga). Prjónið nú í garðaprjóni yfir kraga þannig: * Prjónið 2 umf yfir einungis síðustu 15-15-15-18-18-18 l (við miðju að framan), 2 umf yfir allar l *, endurtakið frá *-* þar til kraginn mælist ca 5½-5½-6-6-6½-6½ cm innst meðfram styttri hliðinni (hann mælist þá tvöfaldur yst), setjið l á þráð. HÆGRA FRAMSTYKKI: Prjónið á sama hátt og vinstra framstykki, nema spegilmynd. Þegar fella á af við axlir, er það gert frá röngu, svo að ekki þarf að klippa frá til þess að halda áfram með kraga. BAKSTYKKI: = 81-87-95-109-121-131 l. Fellið af fyrir handveg í hvorri hlið eins og á framstykki = 81-87-91-95-99-103 l. JAFNFRAMT er A-3 prjónað til loka með síðustu l í hvorri hlið með garðaprjóni, haldið áfram með A-4 einu sinni á hæðina (teljið út svo að l merkt með 1 ör í mynstri verði við miðju að aftan, þær l í hvorri hlið sem ekki ganga upp í mynstur eru prjónaðar í sléttprjóni). Prjónið nú A-3 einu sinni áður en haldið er áfram í sléttprjón til loka. Þegar stykkið mælist 58-60-62-64-66-68 cm, fellið af miðju 19-19-21-21-23-23 l af fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið af 1 l í næstu umf sem prjónuð er frá hálsi = 30-33-34-36-37-39 l eftir á hvorri öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm. ERMI: Stykkið er prjónað fram og til baka. Fitjið laust upp 63-63-63-73-73-73 l (meðtalin er 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjóna nr 4 með Karisma. Fyrsta umf er prjónuð (= ranga) þannig: Prjónið 1 l sl, 2 l sl saman, * 7 l sl, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 2 l sl saman, steypið óprjónuðu l yfir *, endurtakið frá *-*, þar til 10 l eru eftir, 7 l sl, 2 l snúnar slétt saman, 1 l sl = 51-51-51-59-59-59 l. Prjónið 2 umf slétt yfir allar l. Haldið áfram (1. umf = rétta) þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið mynstur A-1 þannig: Mynstur a yfir 4 l, mynstur b yfir 40-40-40-48-48-48 l og mynstur c yfir 5 l, endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Prjónið A-1 einu sinni á hæðina: LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! MYNSTUR: Haldið áfram með A-2 á sama hátt, fjórum sinnum á hæðina, prjónið síðan A-3 einu sinni, A-4 einu sinni (teljið út að l merk með 1 ör í mynstri verður á miðri ermi), A-3 einu sinni síðan A-2 til loka. ÚTAUKNING: Jafnframt þegar stykkið mælist 12-12-14-14-16-16 cm, aukið út um 1 l í hvorri hlið. Endurtakið útaukningu með 4½-3½-2½-2½-2-1½ cm millibili 8-10-12-11-14-17 sinnum til viðbótar = 69-73-77-83-89-95 l – útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni þar til þær ganga upp í mynstur. ERMAKÚPA: Þegar stykkið mælist 50-49-48-47-46-45 cm (styttri mál í stærri stærðum vegna víðari handvegs og breiðari axla), fellið af fyrir handveg í byrjun hverrar umf í hvorri hlið: 4 l 1 sinni, síðan 2 l í hvorri hlið þar til stykkið mælist 55 cm í öllum stærðum (passið uppá að mynstrið færist ekki til þegar úrtaka er í gangi, þær l sem ekki ganga upp í mynstri eru prjónaðar í sléttprjóni), í lokin eru felldar af 3 l 1 sinni í hvorri hlið áður en felldar eru af þær l sem eftir eru.. Stykkið mælist ca 56 cm í öllum stærðum. FRÁGANGUR: Saumið axlarsauma. Saumið kragann saman við miðju að aftan með lykkjuspori og saumið niður á bakstykki. Saumið ermasauma innan við 1 kantlykkju og saumið ermar í fram- og bakstykki. Saumið tölur í. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #evalunacardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 13 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 141-6
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.