Tapia skrifaði:
Tout simplement magnifique et très original
09.06.2012 - 14:51
Annika skrifaði:
Vill ha...
09.06.2012 - 11:26
LOUCHART skrifaði:
J'adore un peu plus long ça fait une robe assorti au sac superbe
08.06.2012 - 18:45
THERESE skrifaði:
Sur un jean, superbe tunique amincissante!
07.06.2012 - 10:52
Anita Tholen skrifaði:
?? Zou je zoiets in de winkel kopen ??
04.06.2012 - 08:56
Silvia Helbig skrifaði:
Sehr elegant
03.06.2012 - 22:17
Bente Ranum skrifaði:
Kjempefin
02.06.2012 - 12:33
Elisabeth skrifaði:
Superflot
01.06.2012 - 17:22
Sirpa Hirvelä skrifaði:
Aina varma valinta vaatepulmiin.
01.06.2012 - 16:48
Renée Rhodin skrifaði:
This one "has my name on it "
01.06.2012 - 07:56
Buenos Aires#buenosairesdress |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
Prjónaður kjóll úr DROPS Fabel með röndum, öldumynstri og opi framan við hálsmál. Stærð S - XXXL
DROPS 140-30 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A-1 til A-8 fyrir öldumynstur – mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. Sjá mynsturteikningu A-9 fyrir rendur. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- KJÓLL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið LAUST upp 308-352-396-440-484 l á hringprjóna nr 3,5 með litnum svartur DROPS Fabel (það er mikilvægt að fitja laust upp svo að uppfitjunarkanturinn verði ekki stífur). Prjónið 1 umf brugðið, 1 umf slétt og 1 umf brugðið. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf og 1 prjónamerki eftir 154-176-198-220-242 l (þau merkja hliðarnar). Haldið áfram með A-1 (= 14-16-18-20-22 mynstureiningar hringinn) og rendur eftir A-9 til loka. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 20-21-22-23-24 cm, prjónið A-2 einu sinni hringinn = 280-320-360-400-440 l. Haldið áfram með A-3. Þegar stykkið mælist 35-36-37-38-39 cm, prjónið A-4 einu sinni hringinn = 252-288-324-360-396 l. Haldið áfram með A-5. Þegar stykkið mælist 45-46-47-48-49 cm, prjónið A-6 einu sinni hringinn = 224-256-288-320-352 l. Haldið áfram með A-7. Þegar stykkið mælist 57-58-59-60-61 cm, prjónið A-8 einu sinni hringinn = 252-288-324-360-396 l. Haldið áfram með A-5. Þegar stykkið mælist 72-72-73-74-75 cm, prjónið næstu umf þannig (passið uppá að þetta er ein umf án útaukninga og úrtöku): Fellið af fyrstu 3-3-4-5-6 l, prjónið 60-69-77-85-93 l, setjið 1 prjónamerki (hér er op framan á hálsi), prjónið 60-69-77-85-93 l, fellið af 6-6-8-10-12 l, prjónið 120-138-154-170-186 l og fellið af síðustu 3-3-4-5-6 l, klippið frá. Hvor hluti er prjónaður fyrir sig. BAKSTYKKI: = 120-138-154-170-186 l. Prjónið áfram mynstur, nema síðustu 6-6-14-22-30 l í hvorri hlið eru prjónaðar í sléttprjóni. Jafnframt er fellt af fyrir handveg í byrjun hverrar umf á hvorri hlið þannig: 3 l 0-0-1-2-3 sinnum, 2 l 0-1-3-4-5 sinnum og 1 l 0-4-5-5-6 sinnum = 120-126-126-132-136 l. Haldið áfram með mynstur – nú eru 6-0-0-3-5 m sléttprjón í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 87-89-91-93-95 cm, fellið af miðju 34-34-40-40-46 l fyrir hálsmáli. Hvor öxl = 43-46-43-46-45 l, er prjónuð fyrir sig, haldið áfram með mynstur eins og áður, nema nú eru líka prjónaðar 1-1-7-7-4 síðustu l við hálsmál í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 88-90-92-94-96 cm, prjónið 2 mynstureiningar af A-5 án útaukninga, þ.e.a.s. að fellt er af 4-5-4-5-4 l í hverri sléttri umf 2 sinnum = 35-36-35-36-37 l á öxl. Fellið þær af í næstu umf. VINSTRA FRAMSTYKKI: = 60-69-77-85-93 l. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Haldið áfram með mynstur, síðustu 6-6-14-22-30 l við hálsmál eru prjónaðar í sléttprjóni, síðustu 3 l við miðju að framan eru prjónaðar í mynstri, nema í garðaprjóni, þ.e.a.s. slétt frá röngu. JAFNFRAMT er fellt af fyrir handveg í hlið eins og á bakstykki = 60-63-63-66-68 l. Þegar stykkið mælist 80-81-82-83-84 cm, fellið af fyrir hálsmáli í byrjun hverrar umf frá röngu: 9 l 1 sinni, 3 l 1 sinni, 2 l 1-1-2-2-3 sinnum og 1 l 3-3-4-4-5 sinnum – þær l sem ekki ganga upp í mynstrið þegar fellt er af, eru prjónaðar í sléttprjóni = 43-46-43-46-45 l eftir á öxl. Þegar stykkið mælist 88-90-92-94-96 cm, prjónið A-5 tvisvar sinnum á hæðina, nema nú án útaukninga bara með úrtöku, þ.e.a.s. að fellt er af 4-5-4-5-4 l í hverri sléttri umf 2 sinnum = 35-36-35-36-37 l eftir á prjóni. Í næstu umf frá réttu, er fellt af. HÆGRA FRAMSTYKKI: Prjónið á sama hátt og vinstra framstykki, nema þegar fellt er af fyrir hálsmáli, gerið það í byrjun hverrar umf frá réttu. Sjáið til þess að enda í sömu rönd í A-9 eins og á vinstra framstykki. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið LAUST upp 74-76-80-84-90 l á sokkaprjóna nr 3,5 með litnum svartur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf (= miðja undir ermi): Prjónið 1 umf brugðið, 1 umf slétt og 1 umf brugðið. Haldið áfram þannig (í röndum eftir A-9): 1-2-4-6-0 l sléttprjón, A-5 4-4-4-4-5 sinnum og 1-2-4-6-0 l sléttprjón. Þegar stykkið mælist 15-13-12-12-11 cm, aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki við miðju undir ermi – útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Endurtakið útaukningu með 3½-2½-2-1½-1½ cm millibili 9-13-16-19-20 sinnum til viðbótar = 94-104-114-124-132 l. Þegar stykkið mælist 49-48-46-45-43 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna víðari handvegs og breiðari axla), fellið af 8 l við miðju undir ermi og stykkið er prjónað til loka fram og til baka. Haldið áfram með mynstur – JAFNFRAMT er fellt af fyrir handveg í byrjun hverrar umf í hvorri hlið: 3 l 1 sinni og síðan 2 l í hvorri hlið þar til stykkið mælist 54 cm, fellið nú af 3 l 1 sinni í hvorri hlið. Fellið af þær l sem eftir eru, stykkið mælist ca 55 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Prjónið upp ca 80 til 100 l kringum hálsmál á hringprjóna nr 3,5 með litnum svartur – byrjið við miðju að framan við opið. Prjónið 1 umf slétt frá röngu, fellið síðan af með sl frá réttu. Heklið 1 umf með litnum svartur og fl kringum hálsmál og op (byrjið við miðju að aftan) – jafnframt er hekluð 1 hnappagatslykkja efst við op í hægri hlið, byrjið þegar 1 cm er eftir við op, heklið 5 ll, síðan 1 fl efst við op, heklið fram að miðju að aftan og klippið frá. Saumið ermar í og saumið 1 tölu efst við op í vinstri hlið. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #buenosairesdress eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 14 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 140-30
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.