Roseane skrifaði:
LINDO
04.06.2012 - 17:55
Elisabeth skrifaði:
Lækker vams og lidt anderledes med hulmønstret
03.06.2012 - 10:58
Ellen Snippert skrifaði:
Mooie kleuren warme indruk met luchtig breiwerk mooi
02.06.2012 - 16:46Angel skrifaði:
Very cosy and pretty but yoke is too deep its to baggy around the armholes would still make it but with some ajustment
02.06.2012 - 09:39
Monica skrifaði:
Gillar färgen och mönstret - kanske lite mera vidd. Blir att tänka på en mjuk mossmatta. Gör den gärna som klänning.
01.06.2012 - 23:02
Elisabeth skrifaði:
Lækker trøje
01.06.2012 - 23:00
Heidi skrifaði:
Can we have something like this in crochet?
31.05.2012 - 20:01
Forest Fairy#forestfairysweater |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Delight og DROPS Kid-Silk með gatamynstri, berustykki og háum kraga. Stærð S til XXXL
DROPS 141-29 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- BYRJUN Á NÝJUM ÞRÆÐI: Til þess að litaskiptin með Delight verði falleg þegar byrjað er á nýjum þræði verður að finna dokku sem byrjar á þeim lit sem síðast var prjónað með. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A-1 til A-5 – mynsturteikningin sýnir 1 mynstureiningu af mynstri bæði á breiddina og á hæðina. LITARENDUR – FRAM – OG BAKSTYKKI: Prjónið 18-18-19-19-20-20 cm með litnum dökk grænn Kid-Silk + Delight, síðan jafnt langt með litnum mosagrænn Kid-Silk + Delight, síðan jafn langt með litnum eplagrænn Kid-Silk + Delight. Að lokum er stykkið prjónað til loka með litnum ljós beige Kid-Silk + Delight. LITARENDUR – ERMAR: Prjónið 17-17-18-18-18-18 cm með litnum dökk grænn Kid-Silk + Delight, síðan jafn langt með litnum mosagrænn Kid-Silk + Delight, síðan er prjónað með litnum eplagrænn Kid-Silk + Delight jafn langt og þarf þar til skipt er yfir í litinn ljós beige Kid-Silk + Delight á stroffi, þegar rendur á fram- og bakstykki eru nægilega langar. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna. LESIÐ BYRJUN Á NÝJUM ÞRÆÐI! FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 180-195-215-240-255-280 l á hringprjóna nr 4 með 1 þræði Delight + 1 þræði af litnum dökk grænn Kid-Silk. Prjónið stroff 2 l sl, 3 l br í 8 cm. Skiptið yfir á hringprjóna nr 5, prjónið 1 umf sléttprjón JAFNFRAMT sem fækkað er um 26-30-28-31-35-38 l jafnt yfir = 154-165-187-209-220-242 l. Haldið áfram með mynstur A-1 einu sinni á hæðina. LESIÐ LITARENDUR – FRAM – OG BAKSTYKKI! Prjónið nú sléttprjón í 2 cm – JAFNFRAMT í síðustu umf er fækkað um 11-9-18-14-12-21 l jafnt yfir = 143-156-169-195-208-221 l. Haldið áfram með mynstur A-2 einu sinni á hæðina. Stykkið mælist nú ca 23 cm á hæðina. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið nú sléttprjón í 7-8-9-10-11-12 cm – jafnframt í FYRSTU umf er fækkað um 9-8-8-10-10-6 l jafnt yfir og í SÍÐUSTU umf er fækkað um 8-8-7-10-9-5 l jafnt yfir = 126-140-154-175-189-210 l. Haldið áfram með mynstur A-3 einu sinni á hæðina og síðan 2 cm í sléttprjóni – JAFNFRAMT í síðustu umf í sléttprjóni er aukið út um 18-13-17-14-18-15 l jafnt yfir = 144-153-171-189-207-225 l. Prjónið nú mynstur A-4 einu sinni á hæðina, síðan 2 cm í sléttprjóni og síðan A-5 einu sinni á hæðina. Prjónið 1 umf slétt jafnframt sem aukið er út um 0-3-1-3-1-3 l jafnt yfir = 144-156-172-192-208-228 l. Haldið áfram í sléttprjón þar til stykkið mælist 50-51-52-53-54-55 cm. Næsta umf er prjónuð þannig: Fellið af fyrstu 12 l, prjónið 60-66-74-84-92-102 l, fellið af næstu 12 l og prjónið út umf (= 60-66-74-84-92-102 l). Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. LESIÐ LITARENDUR – ERMAR! Fitjið upp 45-45-50-50-55-55 l á sokkaprjóna nr 4 með 1 þræði af Delight + 1 þræði af litnum dökk grænn Kid-Silk. Prjónið stroff = 2 l sl, 3 l br í 8 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna og prjónið 1 umf sléttprjón jafnframt sem fækkað er um 1-1-6-6-0-0 l jafnt yfir = 44-44-44-55-55 l. Haldið áfram með mynstur A-1 einu sinni á hæðina, prjónið nú 2 cm sléttprjón – JAFNFRAMT í síðustu umf er aukið út um 8-8-8-8-10-10 l jafnt yfir = 52-52-52-52-65-65 l. Nú er mynstur A-2 prjónað einu sinni á hæðina. Eftir A-2 mælist stykkið ca 23 cm. Haldið áfram með 3 cm í sléttprjóni – JAFNFRAMT í síðustu umf er aukið út um 4-4-4-4-0-0 l jafnt yfir = 56-56-56-56-65-65 l. Prjónið nú A-3 einu sinni á hæðina (í stærð XXL og XXXL er prjónuð fyrsta og síðasta l í sléttprjóni). Síðan 2-2-1-1-1-1 cm í sléttprjóni – JAFNFRAMT í síðustu umf er aukið út um 0-0-7-7-7-7 l jafnt yfir = 56-56-63-63-72-72 l. Haldið áfram með A-4 einu sinni á hæðina (í stærð S og M er prjónuð fyrsta og síðasta l í sléttprjóni). Prjónið nú 1 cm í sléttprjóni – JAFNFRAMT í síðustu umf í sléttprjóni er aukið út um 7-7-9-9-9-9 l jafnt yfir = 63-63-72-72-81-81 l. Prjónið A-5 einu sinni á hæðina. Prjónið 1 umf í sléttprjóni jafnframt sem fækkað er um 1-1-0-0-1-1 l = 62-62-72-72-80-80 l. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 45-45-44-44-44-44 cm (styttri mál í stærri stærðum vegna breiðari axla). Í næstu umf eru felldar af 12 l við miðju undir ermi = 50-50-60-60-68-68 l eftir á prjóni. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setji inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 220-232-268-288-320-340 l. ATH: Munið eftir að skipta yfir í litinn ljós beige Kid-Silk þegar prjónaðir hafa verið 18-18-19-19-20-20 cm alls á fram- og bakstykki með litnum eplagrænn. Prjónið 1 umf í sléttprjóni jafnframt er fækkað um 17-15-23-22-26-25 l jafnt yfir = 203-217-245-266-294-315 l. Haldið áfram með mynstur A-3 einu sinni á hæðina, síðan 2-2-2-2-4-4 umf í sléttprjóni – JAFNFRAMT í fyrstu umf í sléttprjóni er fækkað um 35-42-49-56-56-63 l jafnt yfir = 168-175-196-210-238-252 l. Prjónið mynstur A-3 einu sinni til viðbótar á hæðina, síðan 2-2-2-2-4-4 umf í sléttprjóni – JAFNFRAMT í fyrstu umf í sléttprjóni er fækkað um 49-49-63-70-77-84 l jafnt yfir = 119-126-133-140-161-168 l. Að lokum er mynstur A-3 prjónað einu sinni til viðbótar – ATH: Í stærð S og M er einungis prjónaðar 8 fyrstu umf af A-3. Prjónið síðan 1 umf í sléttprjóni JAFNFRAMT er fækkar um 29-31-33-35-51-53 l jafnt yfir = 90-95-100-105-110-115 l. Berustykkið mælist nú ca 21-21-25-25-26-26 cm og öll peysan mælist ca 71-72-77-78-80-81 cm. Prjónið nú upphækkun að aftan við hnakka í sléttprjóni (haldið áfram með sama lit og síðasta rönd) þannig: Prjónið fram að miðju að aftan, setjið 1 prjónamerki, prjónið 8 l framhjá prjónamerki, snúið við og prjónið 16 l br til baka, snúið við og prjónið 24 l sl. Haldið áfram að prjóna yfir 8 l fleiri í hvert skipti áður en snúið er við þar til alls hefur verið prjónað yfir 64-64-80-80-80-80 l, snúið við og prjónið 1 umf í sléttprjóni yfir allar l aftur fram að miðju að aftan. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 4 og haldið áfram með stroff = 2 l sl, 3 l br í 10 cm (haldið áfram með sama lit). Fellið síðan af með sl yfir sl og br yfir br. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. Heklið með litnum ljós beige Kid-Silk með heklunál nr 3,5 efst í kringum kraga (byrjið við miðju að aftan) þannig: Heklið 1 fl í fyrstu l, * 4 ll, 1 st í fyrstu ll (= 1 oddur/picot), hoppið yfir 1 l, 1 fl í næstu l *, endurtakið frá *-* og endið með 1 kl í fyrstu fl í umf. Heklið á sama hátt neðst niðri í kringum ermar með litnum dökk grænn Kid-Silk. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #forestfairysweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 13 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 141-29
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.