Office#officecardigan |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Fabel eða DROPS Flora með brúnum á vösum, bótum á ermum og sjalkraga. Stærð S - XXXL
DROPS 142-31 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. LEIÐBEININGAR: Til að koma í veg fyrir að kanturinn framan á sjalkraganum dragist saman að framan, prjónið stuttar umf yfir l í kantinum/sjalkraganum með jöfnu millibili þannig: * Byrjið frá miðju að framan og prjónið sl aðeins yfir þær l í garðaprjóni í kantinum/sjalkraganum, snúið við, takið 1 l óprjónaða, herðið á þræði og prjónið sl út umf *, endurtakið frá *-* ca 5 cm millibili upp að öxl. HNAPPAGAT: Fellt er af fyrir hnappagötum í hægri kanti. 1 hnappagat = fellið af fjórðu og fimmtu l frá kanti og fitjið upp 2 nýjar l yfir þær l sem felldar voru af í næstu umf. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: STÆRÐ S: 24 og 32 cm. STÆRÐ M: 26 og 34 cm. STÆRÐ L: 26 og 35 cm. STÆRÐ XL: 28 og 37 cm. STÆRÐ XXL: 29 og 38 cm. STÆRÐ XXXL: 31 og 40 cm. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka. BAKSTYKKI: Fitjið upp 100-108-116-128-144-160 l (meðtalin er 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjóna nr 2,5 með litnum bleikur/brúnn eða ametyst. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í 3 cm. Skiptið yfir á prjóna nr 3 og prjónið sléttprjón. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 8 cm er fækkað um 1 l í hvorri hlið. Endurtakið úrtöku í hvorri hlið með 2 cm millibili, 5 sinnum til viðbótar = 88-96-104-116-132-148 m. Þegar stykkið mælist 24 cm er aukið út um 1 l í hvorri hlið. Endurtakið útaukningu í hvorri hlið með 2½-2½-2½-3-3-3 cm millibili, 5 sinnum til viðbótar = 100-108-116-128-144-160 l. Þegar stykkið mælist 39-40-41-42-43-44 cm er fellt af fyrir handveg í byrjun hverrar umf í hvorri hlið þannig: 4 l 0-0-0-1-1-2 sinnum, 3 l 1-1-1-1-2-3 sinnum, 2 l 1-2-3-3-4-4 sinnum og 1 l 2-4-4-4-5-6 sinnum = 86-86-90-94-98-98 l. Þegar stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm fellið af miðju 22-22-26-30-32-32 l af fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð fyrir sig. Fellið af 1 l í næstu umf frá hálsi= 31-31-31-31-32-32 l eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 58-60-62-64-66-68 cm. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 60-64-68-74-82-90 l (meðtalin er 1 kantlykkja í hlið og 10 kantlykkjur við miðju að framan) á prjóna nr 2,5 með litnum bleikur/brúnn eða ametyst. Prjónið garðaprjón í 3 cm. Skiptið yfir á prjóna nr 3 og prjónið sléttprjón, þær 10 síðustu l við miðju að framan eru prjónaðar áfram í garðarpjóni (= kantur að framan) – LESIÐ LEIÐBEININGAR! Þegar stykkið mælist 8 cm er fellt af í hlið á sama hátt og á bakstykki = 54-58-62-68-76-84 l. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Þegar stykkið mælist 24 cm byrjar útaukning í hlið (aukið er út í hlið á sama hátt og á bakstykki). Munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 33-35-36-38-39-41 cm er aukið út um 1 l í síðustu l við miðju framan fyrir sjalkraga (þ.e.a.s. prjónið 2 l í fyrstu l). Endurtakið útaukningu með 2½ cm millibili, 9 sinnum til viðbótar – ATH: Útauknar l eru prjónaðar í garðaprjóni. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 34-36-37-39-40-42 cm er prjónuð inn 1 l aukalega í kanti að framan þ.e.a.s. samanlagður lykkjufjöldi er sá sami, nema fjöldi l í kanti að framan eykst og fjöldi l í sléttprjóni fækkar). Endurtakið áfram í garðaprjóni með 2-2-1½-1½-1½-1½ cm millibili, 11-11-13-15-16-16 sinnum til viðbótar. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 39-40-41-42-43-44 cm er fellt af fyrir handveg í hliðum á sama hátt og á bakstykki. Eftir alla úrtöku og útaukningu eru 63-63-65-67-69-69 l á prjóni (þ.e.a.s 32-32-34-36-37-37 kantlykkjur í garðaprjóni fyrir kraga og 31-31-31-31-32-32 l í sléttprjóni fyrir öxl). Þegar stykkið mælist 58-60-62-64-66-68 cm eru felldar af 31-31-31-31-32-32 l á öxl, í byrjun næstu umf frá röngu, prjónið út umf. Snúið við, byrjið frá réttu og prjónið garðaprjón yfir 32-32-34-36-37-37 kragalykkjur með stuttum umf þannig: * prjónið 2 umf yfir allar l, prjónið 2 umf yfir síðustu 21-21-22-24-25-25 l á miðju framan *, endurtakið frá *-* þar til kraginn mælist 7-7-8-8½-9-9 cm (mælt meðfram styttri hliðinni) frá þeim stað þar sem fellt var af fyrir öxl. Fellið af. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp og prjónið á sama hátt og hægra framstykki, nema spegilmynd (ekki er fellt af fyrir hnappagötum í vinstri kanti að framan. ERMI: Fitjið upp 50-50-54-54-58-62 l á prjóna nr 2,5 með litnum bleikur/brúnn eða ametyst. Prjónið garðaprjón í 3 cm. Skiptið yfir á prjóna nr 3 og prjónið sléttprjón. Þegar stykkið mælist 9-9-7-11-9-7 cm er aukið út um 1 l í hvorri hlið. Endurtakið útaukningu með 2½-2-2-1½-1½-1½ cm millibili, 15-18-20-22-23-24 sinnum til viðbótar = 82-88-96-100-106-112 l. Þegar stykkið mælist 50-49-49-48-47-45 cm - ATH! Styttri mæling í stærri stærðum vegna víðari handvegs og breiðari axla – fellið af fyrir handveg í byrjun hverrar umf í hvorri hlið þannig: 4 l 0-0-0-1-1-1 sinnum, 3 l 1-1-1-1-1-1 sinnum, 2 l 3-4-4-5-5-5 sinnum og 1 l 3-2-2-2-5-8 sinnum, fellið af 2 l í hvorri hlið þar til stykkið mælist 56-56-57-57-58-58 cm, fellið síðan af 3 l 1 sinni í hvorri hlið. Fellið af þær l sem eftir eru, stykkið mælist ca 57-57-58-58-59-59 cm. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermasauma innan við 1 kantlykkju. Saumið hliðarsauma innan við 1 kantlykkju. Saumið ermar í. Saumið saman kraga við miðju að aftan (saumið yst í lykkjubogann) og saumið hann við hálsmálið aftan við hnakka. Saumið tölur í. BRÚNIR Á VÖSUM (til skrauts): Fitjið upp 28-28-30-32-34-34 l á prjóna nr 2,5 með litnum bleikur/brúnn eða ametyst. Prjónið garðaprjón í 2 cm. Skiptið yfir í litinn grár/milligrár og prjónið garðaprjón þar til brúnirnar mælast 3 cm, fellið af. Prjónið aðra brún á vasa á sama hátt. Saumið brúnirnar á vösunum niður á hvort framstykkið með lykkjuspori (saumið hliðarnar og botninn), ca 10-12 cm frá neðrikanti og 5-7 cm frá miðju að framan (mátið flíkina til þess að fá persónulegt mat á staðsetningu). BÓT Á ERMI: Fitjið upp 20 l á prjóna nr 3 með litnum grár/milligrár og prjónið þannig: UMFERÐ 1: Prjónið slétt UMFERÐ 2: Prjónið 1 l sl, 1 uppsláttur, 1 l sl, 1 uppsláttur, 6 l sl, 1 uppsláttur, 1 l sl, 1 uppsláttur, 2 l sl, 1 uppsláttur, 1 l sl, 1 uppsláttur, 6 l sl, 1 uppsláttur, 1 l sl, 1 uppsláttur, 1 l sl = 28 l. UMFERÐ 3: Prjónið sl yfir allar l, uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt. UMFERÐ 4: Prjónið 1 l sl, 1 uppsláttur, 2 l sl, 1 uppsláttur, 8 l sl, 1 uppsláttur, 2 l sl, 1 uppsláttur, 2 l sl, 1 uppsláttur, 2 l sl, 1 uppsláttur, 8 l sl, 1 uppsláttur, 2 l sl, 1 uppsláttur, 1 l sl = 36 l. UMFERÐ 5: Prjónið sl yfir allar l, uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt. UMFERÐ 6: Prjónið 1 l sl, 1 uppsláttur, 3 l sl, 1 uppsláttur, 10 l sl, 1 uppsláttur, 3 l sl, 1 uppsláttur, 2 l sl, 1 uppsláttur, 3 l sl, 1 uppsláttur, 10 l sl, 1 uppsláttur, 3 l sl, 1 uppsláttur, 1 l sl = 44 l. UMFERÐ 7: Prjónið sl yfir allar l, uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt. UMFERÐ 8: Prjónið 1 l sl, 1 uppsláttur, 4 l sl, 1 uppsláttur, 12 l sl, 1 uppsláttur, 4 l sl, 1 uppsláttur, 2 l sl, 1 uppsláttur, 4 l sl, 1 uppsláttur, 12 l sl, 1 uppsláttur, 4 l sl, 1 uppsláttur, 1 l sl = 52 l. UMFERÐ 9: Prjónið sl yfir allar l, uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt. UMFERÐ 10: Prjónið 1 l sl, 1 uppsláttur, 5 l sl, 1 uppsláttur, 14 l sl, 1 uppsláttur, 5 l sl, 1 uppsláttur, 2 l sl, 1 uppsláttur, 5 l sl, 1 uppsláttur, 14 l sl, 1 uppsláttur, 5 l sl, 1 uppsláttur, 1 l sl = 60 l. UMFERÐ 11: Prjónið sl yfir allar l, uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt. UMFERÐ 12: Prjónið 1 l sl, 1 uppsláttur, 6 l sl, 1 uppsláttur, 16 l sl, 1 uppsláttur, 6 l sl, 1 uppsláttur, 2 l sl, 1 uppsláttur, 6 l sl, 1 uppsláttur, 16 l sl, 1 uppsláttur, 6 l sl, 1 uppsláttur, 1 l sl = 68 l. UMFERÐ 13: Prjónið sl yfir allar l, uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt. UMFERÐ 14: Prjónið 1 l sl, 1 uppsláttur, 7 l sl, 1 uppsláttur, 18 l sl, 1 uppsláttur, 7 l sl, 1 uppsláttur, 2 l sl, 1 uppsláttur, 7 l sl, 1 uppsláttur, 18 l sl, 1 uppsláttur, 7 l sl, 1 uppsláttur, 1 l sl = 76 l. UMFERÐ 15: Prjónið sl yfir allar l, uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt. UMFERÐ 16: Prjónið 1 l sl, 1 uppsláttur, 8 l sl, 1 uppsláttur, 20 l sl, 1 uppsláttur, 8 l sl, 1 uppsláttur, 2 l sl, 1 uppsláttur, 8 l sl, 1 uppsláttur, 20 l sl, 1 uppsláttur, 8 l sl, 1 uppsláttur, 1 l sl = 84 l UMFERÐ 17: Fellið af allar l. Saumið saman op undir höndum og bætur á ermar frá miðju og út með smáu, fínu spori. Prjónið aðra bót til viðbótar á sama hátt. Saumið bótina niður aftan á hvora ermi með stingsaumi (mátið peysuna til þess að fá rétta staðsetningu). HEKLAÐUR KANTUR: Byrjið frá réttu í hægra framstykki við efsta hnappagatið og heklið með heklunál nr 5 með 2 þráðum af litnum grár/milligrár þannig: Heklið 1 fl í fyrstu umf í garðaprjóni, * 1 ll, hoppið yfir 2 umf í garðaprjóni, 1 fl í næstu umf í garðaprjóni *, endurtakið frá *-* meðfram öllum sjalkraganum að efstu tölu í vinstra framstykki. Klippið frá og festið enda. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #officecardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 11 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 142-31
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.