Marion skrifaði:
Bonjour, Les diminutions du raglan doivent être effectuées tous les combien de rangs ? Merci
20.09.2023 - 06:37DROPS Design svaraði:
Bonjour Marion, on diminue pour le raglan tous les rangs sur l'endroit, autrement dit tous les 2 rangs. Bon tricot!
20.09.2023 - 07:48
Deni skrifaði:
Can you please explain how to cast off sts at the end of the row ,referring to sleeve edge. Thank you.
20.02.2023 - 14:56DROPS Design svaraði:
Dear Deni, when you are done with the sleeve edge, cast off the first 3-3-4-5-5-6 stitches, work as before until 3-3-4-5-5-6 stitches remain, cast off these 3-3-4-5-5-6 stitches, then cut the yarn, pull it into the last stitch and put piece aside. Happy knitting!
21.02.2023 - 09:50
Johanna skrifaði:
Hej Jag har en fråga angående garnet till det här mönstret. Det står att man kan ha drops alpaca och drops kid silk men är inte det väldigt tunt garn? Stämmer det verkligen?
02.10.2020 - 21:54DROPS Design svaraði:
Hei Johanna. Ja, det stemmer. Både DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk er tynne kvaliteter, men når du strikker med begge samtidig (2 tråder) blir det tykkere. mvh DROPS design
05.10.2020 - 11:53
Therese skrifaði:
Jag förstår inte raglan beskrivningen med minskningarna? vart i arbetet gör man det? / Jag är nybörjare och blev helt kär i designen på koftan + att jag känner för en utmaning :-)
25.09.2020 - 16:25DROPS Design svaraði:
Hei Therese. Tommel opp for utmaningen :) Forklaring til hvordan raglan skal strikkes finner du under: INSTRUKTIONER og RAGLAN i oppskriften. Når det skal felles til raglan finner du under OK. Det felles til raglan etter du har strikket hull til beltet og det skal strikkes over alle maskene igjen. Usikker på hvordan raglanfellingene skal strikkes? Se på hjelpevideoene til oppskriften. God Fornøyelse!
28.09.2020 - 10:48
Jennifer skrifaði:
Trop bien le gilet j'aime bien c'est forme la.
14.09.2012 - 09:53
Janne skrifaði:
Hei. herlig form og anvendelig jakke, ønsker en med lange ermer
13.07.2012 - 09:00
Mary skrifaði:
Screams "knit me".Which I will do when released.
09.07.2012 - 00:43Josée skrifaði:
Short sleeves mean nothing to get in the way when working, long body length, cozy turn up collar... and pockets! A winner in my books!
04.07.2012 - 02:41Barbara skrifaði:
Gorgeous!
23.06.2012 - 08:39
Ana skrifaði:
En general me gustan todos los patrones, de este en concreto me gusta su largo y las mangas, muy elegante.
21.06.2012 - 11:42
Cozy December#cozydecemberjacket |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð síð peysa úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk með víðum, ¾-löngum ermum, djúpri laskalínu, belti og vösum. Stærð S - XXXL.
DROPS 142-8 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka) Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. LASKALÍNA: Fækkið lykkjum í hvorri hlið við 4 l í garðaprjóni. Öll úrtaka er gerð frá réttu þannig: Fækkið um 1 l Á UNDAN 4 l í garðarpjóni: Prjónið 2 l sl saman. Fækkið um 1 l Á EFTIR 4 l í garðaprjóni: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. Fækkið um 2 l Á UNDAN 4 l í garðaprjóni: Prjónið 3 l sl saman. Fækkið um 2 l Á EFTIR 4 l í garðaprjóni: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 2 l sl saman, steypið óprjónuðu l yfir. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið LAUST upp 200-216-232-248-268-284 l (meðtaldar eru 12 kantlykkjur í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjóna nr 4 með 1 þræði af hvorri tegund. Setjið 1 prjónamerki eftir 53-57-61-65-70-74 l inn frá hvorri hlið (= 94-102-110-118-128-136 l milli prjónamerkja að aftan). Prjónið 10 umf GARÐAPRJÓN yfir allar l – sjá útskýringu að ofan! Skiptið yfir á hringprjóna nr 5 og haldið áfram í sléttprjóni, en þær 12 kantlykkjur í hvorri hlið að framan eru prjónaðar í garðaprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 40 cm í öllum stærðum, næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 50-54-57-60-65-68 l eins og áður, fellið af 6-6-8-10-10-12 l fyrir handveg, prjónið 88-96-102-108-118-124 l eins og áður, fellið af 6-6-8-10-10-12 l fyrir handveg og prjónið út umf (= 50-54-57-60-65-68 l). Geymið stykkið og prjónið kant á ermum. KANTUR Á ERMI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið LAUST upp 112-120-126-132-140-146 l á hringprjóna nr 4 með 1 þræði af hvorri tegund. Prjónið 10 umf í garðaprjóni fram og til baka – JAFNFRAMT í síðustu um eru felldar af 3-3-4-5-5-6 l í byrjun og enda umf = 106-114-118-122-130-134 l, klippið frá. Geymið stykkið og prjónið annan kant til viðbótar á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið inn kanta fyrir ermar á sama hringprjón nr 5 eins og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 400-432-452-472-508-528 l (prjónið ekki l þegar þær eru settar á prjóninn). Setjið 1 prjónamerki í allar skiptingar á milli fram- og bakstykkis og erma – prjónið nú 2 l hvoru megin við hvert prjónamerki í garðaprjóni (þ.e.a.s. það verða 4 l í garðaprjóni í hverri laskaúrtöku) og hinar l sem eru eftir eru prjónaðar eins og áður í sléttprjóni og kantlykkjur í garðaprjóni. Þegar prjónaðar hafa verið 3 umf (1. umf = ranga), eru gerð göt fyrir belti, þau eru gerð á milli allra 4 l í garðaprjóni í laskalínu (allar l eru prjónaðar eins og áður í garðaprjóni og sléttprjóni) þannig: Fyrst eru prjónaðar 6 umf fram og til baka yfir hægra framstykki = 50-54-57-60-65-68 l, klippið frá. Prjónið nú 6 umf fram og til baka yfir l yfir ermi = 106-114-118-122-130-134 l, klippið frá. Prjónið nú 6 umf fram og til baka yfir bakstykki = 88-96-102-108-118-124 l, klippið frá. Haldið áfram með 6 umf fram og til baka yfir hina ermina og að lokum 6 umf fram og til baka yfir vinstra framstykki. Prjónið nú yfir allar l – JAFNFRAMT er lykkjum fækkað fyrir LASKALÍNA í næstu umf frá réttu – sjá útskýringu að ofan (fækkið um 1 l hvoru megin við allar laskalykkjur). Það þarf að fækka um fleiri lykkjur á ermum en á fram- og bakstykki, þetta er gert í hverri umf frá réttu þannig: Á fram- og bakstykki: 1 l 32-34-36-38-41-43 sinnum til viðbótar. Á ermum: 1 l 22-22-24-26-26-28 sinnum til viðbótar og síðan 2 l 10-12-12-12-14-14 sinnum. Eftir úrtöku eru 96-104-108-112-120-124 l eftir á prjóni og stykkið mælist ca 80-82-84-86-88-90 cm. Prjónið 1 umf slétt jafnframt er fækkað um 20-24-24-24-24-24 l jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað yfir kanta að framan) = 76-80-84-88-96-100 l. KRAGI: Skiptið yfir á hringprjóna nr 4 og haldið áfram í garðaprjóni yfir allar l – JAFNFRAMT í 4. umf, er aukið út um 1 l í hvorri hlið – aukið út með því að slá uppá prjóninn fyrir framan síðustu l, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt til að sleppa við göt. Endurtakið útaukningu í 4. hverri umf til loka. Prjónið garðaprjón þar til kraginn mælist 14-15-15-16-16-17 cm, fellið laust af. BELTI: Fitjið laust upp 8 l á prjóna nr 4 með 1 þræði af hvorri tegund og prjónið garðaprjón í ca 100-110-120-130-140-150 cm, fellið af. VASI: Fitjið upp 33-33-35-35-37-37 l á prjóna nr 4 með 1 þræði af hvorri tegund. Prjónið garðaprjón í 20-20-21-21-22-22 cm, fellið af. Prjónið annan vasa alveg á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið saman kanta á ermum kant í kant yst í lykkjubogann og saumið saman undir handveg. Saumið vasana á stykkið ca 18 cm frá neðri kanti og ca 10-11-12-13-14-15 cm fyrir miðju að framan. Þræðið beltið í götin á laskalykkjum í hvorri hlið. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #cozydecemberjacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 11 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 142-8
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.