DROPS Alpaca Bouclé
DROPS Alpaca Bouclé
80% Alpakka, 15% Ull, 5% Polyamide
frá 1034.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8272.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 142-21
DROPS Design: Mynstur nr ab-025
Garnflokkur C
----------------------------------------------------------

PEYSA:
Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS ALPACA BOUCLÉ frá Garnstudio
300-350-400-400-450-500 gr litur nr 5110, ljós grár

HÁLSSKJÓL:
Stærð: Ein stærð
Ummál: 71 cm
Hæð: 36 cm

Efni:
DROPS ALPACA BOUCLÉ frá Garnstudio
100 gr litur nr 5110, ljós grár

DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5 (60 cm og 80 cm) – eða þá stærð sem þarf til að 17 l og 22 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca Bouclé
DROPS Alpaca Bouclé
80% Alpakka, 15% Ull, 5% Polyamide
frá 1034.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8272.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á hringprjóna):
*1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*.

KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN:
Í byrjun umf frá réttu: Prjónið 4-4-4-6-6-6 l garðaprjón, * 3 l sl, 3 l br *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar = 16-16-16-18-18-18 l.
Í lok umf frá réttu: Prjónið * 3 l sl, 3 l br*, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, 4-4-4-6-6-6 l garðaprjón = 16-16-16-18-18-18 l.
Frá röngu eru prjónaðar síðustu 4-4-4-6-6-6 l með garðaprjóni, og sl yfir sl og br yfir br yfir þær l sem eftir eru af kantlykkjum að framan.

ÚTAUKNING:
Aukið er út um 1 l í hvorri hlið þannig: Prjónið 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið þar til 1 l er eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn til að koma í veg fyrir göt.

LEIÐBEININGAR UM MÆLINGU:
Allar mælingar eru gerðar þegar stykkið liggur flatt, mikilvægt er að ekki strekkist á stykkinu þegar mælt er.

MYNSTUR (á við um kraga):
Sjá mynsturteikningu A.1, mynsturteikningin sýnir allar umf í 1 mynstureiningu.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 160-176-186-208-226-246 l á hringprjóna nr 5 með Alpaca Bouclé.
Í 1. umf (= frá réttu) er prjónað þannig: Prjónið KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN – sjá útskýringu að ofan, prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – þar til eftir eru 16-16-16-18-18-18 l á prjóni, prjónið KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN.
Haldið áfram í garðaprjóni yfir miðju l og 16-16-16-18-18-18 kantlykkjur að framan í hvorri hlið í 4 cm. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Prjónið nú sléttprjón með 16-16-16-18-18-18 kantlykkjur að framan í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 48-49-50-51-52-53 cm er stykkinu skipt í tvennt 43-47-49-55-59-64 l í hvorri hlið (= framstykki, það verða 74-82-88-98-108-118 l á bakstykki), og hvort stykki er prjónað fyrir sig til loka.

BAKSTYKKI:
= 74-82-88-98-108-118 l. Haldið áfram í sléttprjón – JAFNFRAMT í lok 2 næstu umf eru fitjaðar upp 48-46-45-41-38-35 nýjar l fyrir ermi í hvorri hlið = 170-174-178-180-184-188 l. Prjónið nú sléttprjón – en síðustu 6 í hvorri hlið eru prjónaðar í garðaprjóni að loka máli (= kantur á ermi í hvorri hlið). Þegar stykkið mælist 64-66-68-70-72-74 cm eru felldar af miðju 18-18-20-22-24-24 l fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð fyrir sig. Í næstu umf frá hálsi er felld af 1 l = 75-77-78-78-79-81 l eftir á öxl. Fellið laust af allar l þegar stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm. ATH: Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki of stífur!

VINSTRA FRAMSTYKKI:
= 43-47-49-55-59-64 l. Haldið áfram í sléttprjóni og 16-16-16-18-18-18 kantlykkjun við miðju að framan – JAFNFRAMT í lok næstu umf frá röngu eru fitjaðar upp 48-46-45-41-38-35 nýjar l fyrir ermi = 91-93-94-96-97-99 l. Haldið áfram í sléttprjóni og kantlykkju við miðju að framan, en síðustu 6 l í byrjun umf frá réttu eru prjónaðar í garðaprjóni að loka máli (= kantur á ermi). Þegar stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm eru felldar af fyrstu 75-77-78-78-79-81 l fyrir öxl í næstu umf frá réttu = 16-16-16-18-18-18 kantlykkjur að framan eftir fyrir kraga. ATH: Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki of stífur!
Haldið áfram að prjóna yfir kantlykkjur að framan þar til kraginn mælist 7-7-8-8-9-9 cm frá öxl. Fellið af í byrjun umf frá réttu þannig: Fellið af 5 l 2-2-2-0-0-0 sinnum, 6 l 1-1-1-3-3-3 sinnum.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Prjónið á sama hátt og vinstra framstykki, nema spegilmynd.

FRÁGANGUR:
Saumið axla – og ermasauma yst í lykkjubogann. Saumið saman kragann við miðju að aftan og saumið hann við hálsmálið aftan á hnakka. Saumið sauma undir ermum yst í lykkjubogann.

VASI:
Stykkið er prjónað fram og til baka.
Fitjið upp 24-24-24-26-26-26 l á hringprjóna nr 5 með Alpaca Bouclé.
Prjónið sléttprjón. Þegar stykkið mælist 3 cm er aukið út um 1 l í hvorri hlið – LESIÐ ÚTAUKNING. Endurtakið útaukningu með 3 cm millibili alls 3 sinnum = 30-30-30-32-32-32 l. Fellið af allar l þegar stykkið mælist 16-16-16-17-17-17 cm.
Prjónið annan vasa á sama hátt.
Saumið vasa á framstykki, ca 10-10-11-11-12-12 cm frá uppfitjunarkanti og 12 cm frá miðju að framan. ATH: Hægri og vinstri kantur á vasa er saumaður samhliða kanti við miðju að framan.

-------------------------------------------------------

HÁLSSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring.

HÁLSSKJÓL:
Fitjið LAUST upp 120 l á hringprjóna nr 5 með Alpaca Bouclé.
Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið nú A.1 út umf. Þegar stykkið mælist ca 35 cm (endið með síðustu umf í mynstri), prjónið 4 umf garðaprjón og fellið laust af allar l. ATH: Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki of stífur!

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = brugðin lykkja
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 142-21

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (61)

country flag Bettina wrote:

Ich hänge bei den Kragenende an den Vorderteilen. Dort steht bei Größe M, nachdem man 7cm gestrickt hat: "zu Beginn jeder Hin-R 2x5 M und 1x6 M abketten." Da nur noch 16 M übrig sind, würde das ja heißen, dass ich sofort alle M abketten muss? Aber das kann ja auch nicht sein, da das Stück ja schräg werden soll. Wie geht es denn dort weiter? lG Bettina

02.10.2021 - 16:03

DROPS Design answered:

Liebe Bettina, die 16 Maschen vom Kragen werden nach und nach abgekettet, am Anfang jeder Hinreihe: zuerst 5 Maschen x 2 dann die 6 übrige Maschen - dieses Video zeigt (für ein anderes Modell, dh mit anderen Maschenanzahl), wie man die Maschen für den Kragen so abkettet. Viel Spaß beim stricken!

04.10.2021 - 08:08

country flag Kathi wrote:

Das habe ich alles schon fertig. Jetzt bin ich aber beim linken Vorderteil, und da steht folgendes: LINKES VORDERTEIL: = 43-47-49-55-59-64 M... GLEICHZEITIG am Ende der nächsten Rück nächsten Rück-R 46 neue M für den Ärmel anschlagen (=93M). wie ist das gemeint? LG

27.05.2020 - 12:48

DROPS Design answered:

Liebe Kathi, Sie stricken eine Rückreihe und am Ende dieser Rückreihe schlagen Sie die 46 neuen Maschen, wenden und jetzt beginnen die Hinreihen mit den neuen Maschen für den Ärmel. Viel Spaß beim stricken!

27.05.2020 - 14:08

country flag Kathi wrote:

Hallo, liebes Drops-Team, ich bin nun beim linken Vorderteil angekommen, und verstehe nicht, wann die Maschen für die Ärmel angeschlagen werden sollen. Wie ist das gemeint: „ GLEICHZEITIG am Ende der nächsten Rück-R 46 neue M für den Ärmel anschlagen“? Ich stricke M, sehr 46 Maschen. Aber was heißt, am Ende der nächsten Rückrunde? LG, Kathi

27.05.2020 - 09:58

DROPS Design answered:

Liebe Kathi, am Ende der 2 ersten Reihe über nur Rückenteil schlagen Sie die 46 neuen Maschen, dh nachdem Sie die letzte Reihe vom Rumpfteil gestrickt haben (die Maschen von beiden Vorderteile stilllegen), stricken Sie die nächste Hinreihe über die Maschen vom Rückentil, am Ende dieser Reihe schlagen Sie 46 M an, wenden, die Rückreihe stricken und am Ende dieser Reihe schlagen Sie 46 M an. Viel Spaß beims tricken!

27.05.2020 - 11:40

country flag Kathi wrote:

Hallo liebes Drops- Team, bei der Unterteilung des Rumpfteils habe ich festgestellt, dass mir zwei Maschen fehlen. Ich stricke Größe M. Wie kann ich das nun am besten lösen? Ich möchte natürlich nicht noch mal neu beginnen, und habe deshalb überlegt, die Mitte (Rückenteil) dann nur mit 80 Maschen zu stricken. Macht das Sinn? Oder gibt es eine andere Möglichkeit, die am Ende nicht zu sehr auffällt? Vielen Dank schon mal für die Unterstützung. LG

27.12.2019 - 11:05

DROPS Design answered:

Liebe Kathi, leider können wir nicht jede Anleitung nach jeder Wunsch anpassen - am besten wenden Sie sich bitte an Ihrem Laden, wo Sie die Wolle gekauft haben - auch telefonisch oder per E-Mail. Viel Spaß beim stricken!

02.01.2020 - 11:28

country flag Dollygk wrote:

Hello and many thanks for all the free designs you offer! I am knitting this pattern but the design 'dips' after the edge rib stitches. Is it supposed to do this?? How can I send you a picture so you can understand. Thankyou all!

24.10.2019 - 10:14

DROPS Design answered:

Dear Mrs Dollygk, make sure you keep correct tension, please show your work to your store (even sending a picture by mail), so that they can check together with you. Happy knitting!

24.10.2019 - 10:57

country flag Patty Manzi wrote:

What is the EASE measurement for this garment? The Finished Measurement says 41" (for Large size), but on the diagram is shows 52. Does it truly have 11 inch Ease for size Large? thank you.

01.10.2019 - 20:38

DROPS Design answered:

Dear Mrs Manzi, we are not used to work with ease; to check your size, measure a similar garment you have and like the shape and compare them to the measurements in the chart (= in cm, not in inches). Read more about sizing and convert into inches here. Happy knitting!

02.10.2019 - 08:18

Georgann B. Smallwood wrote:

I would like to use a cotton/linen blend yard for this jacket. (Aran 8 wpi) Do you have any size suggestions / instructions for this weight? Thank you! I love this pattern and want to use the yarn I have.

26.03.2018 - 01:55

DROPS Design answered:

Dear Mrs Smallwood, you can use here DROPS Bomull-Lin, please find here all relevant informations about alternatives. Happy knitting!

26.03.2018 - 11:43

country flag Yvonne wrote:

Heb patroon exact gevolgd, steeds gemeten conform aanwijzingen, steekproef was goed etc. Toch was het vest al snel te kort en te wijd. En met het dragen werd dit steeds erger: het werd steeds korter en wijder! Ik kan het vest helaas niet meer dragen, het is helemaal uit verhouding. Ik heb ook poncho 133-4 gemaakt en daarbij gebeurt dit ook, alleen bij een poncho komen de verhoudingen minder precies, dus dan maar korter en wijder. Maar hoe kan het dat deze wol zo reageert na correcte verwerking?

20.12.2017 - 23:38

DROPS Design answered:

Hallo Yvonne, Dat is erg jammer om te horen. Voor klachten over het garen kun je het beste even contact opnemen met het verkooppunt waar je het garen hebt gekocht. Zij kunnen je eventueel verder helpen.

12.03.2018 - 10:58

country flag Lene Thorkelin wrote:

Jeg bryder mig ikke om bouclé garn. Kan I anbefale en anden garntype til denne model?

24.09.2017 - 10:31

DROPS Design answered:

Hei Lene. DROPS Alpaca Boucle tilhører garngruppe C og du kan velge andre kvaliteter vi har i samme garngruppe. Om du ønsker ensfarget ullkvalitet kan du velge DROPS Brushed Alpaca Silk, DROPS Nepal, DROPS Big Merino, DROPS Air og DROPS Alaska eller multifarget ved DROPS Big Delight. Du kan også velge mellom DROPS Paris og DROPS Bomull-Lin om du ønsker bomullsgarn. Bare gå inn på oversikten over garn og velg kvalitet og farger, men HUSK å overholde strikkefastheten som er oppgitt i oppskriften. God Fornøyesle!

27.09.2017 - 08:19

country flag Gina Von Staden wrote:

Danke vielmals. Alles Gute, bis zur nächsten dummen Frage. Gina

18.04.2016 - 10:15