Adry skrifaði:
Volevo sapere se negliaumenti, una volta messo il segno nelle maglie prestabilite, poi il marker lo devo passare o deve sempre restare nella maglia segnata?
05.03.2013 - 02:09DROPS Design svaraði:
Buongiorno, i marker servono per indicare il punto degli aumenti e inoltre delimitano le varie parti della giacca: durante il lavoro vanno spostati verso l'alto, devono rimanere nelle m. indicate. Buon lavoro!!
06.03.2013 - 10:52
Susanne skrifaði:
Ich hab's gestrickt und es ist suuuuper geworden!! Allerdings habe ich unten nicht ganz so viel zugenommen, also nicht ganz so zipfelig.
12.08.2012 - 20:54
Linda skrifaði:
Hej Drops. Jeg kan ikke rigtig få maskeantallet til at passe efter at jeg har lavet de 30 udtagninger. Jeg kan se at der skal være 406 masker, men når jeg ligger tallene sammen (53+102+102+102+53)giver det 412 masker. Hvad skal jeg gøre?
26.07.2012 - 13:00DROPS Design svaraði:
Du starter med 166 m og sætter 4 mærker i arbejdet. Du øger 2 m på hver side af hvert mærke = 8 nye m per gang. 8 m x 30 = 240 nye m + 166 = 406 m i alt.
25.12.2012 - 16:48
Susanne skrifaði:
Ich finde in der Anleitung werden die Blendmaschen nicht genügend erwähnt. Es sind zuerst 5 und dann später 10?
14.07.2012 - 13:12DROPS Design svaraði:
Ja, beim oberen Teil sind es 5 Maschen als Bendenmaschen definiert, aber der Teil wird ja sowieso komplett kraus re gestrickt. Unten sind es dann 10 M , die kraus re gestrickt werden und der Rest wird glatt re gestrickt. Über diesen 10 Blendenmaschen wird weder auf- noch abgenommen.
02.08.2012 - 16:00
Linda skrifaði:
Så er garnet bestilt, så må jeg pænt vente til det kommer hjem, så jeg kan komme igang.
11.07.2012 - 18:25
Stephanie skrifaði:
Hallo, kann mir jemand das Rückenteil erklären? Ist das schon nach 4cm Krausrippe fertig?! Oder muss ich weiterstricken? Aber wie lange und mit welchen Zu/Abnahmen? Danke für eure Hilfe!
29.02.2012 - 21:21DROPS Design svaraði:
Ja, nach 4 cm Krausrippe am Rücken wird das Vorder- und Rückenteil auf die gleiche Nadel gelegt.
01.03.2012 - 09:01
Line skrifaði:
Jeg tenker jeans....superfin
18.01.2012 - 11:52Radar skrifaði:
Super joli très design j ai hâte de le tricoter !!!! Belgique
16.01.2012 - 16:57WiLDaBoUtCoLoR skrifaði:
I really love this design. Such a flowing garment! It's lovely :'}
15.01.2012 - 01:14
Maj Eriksson skrifaði:
Håller med! Hoppas mönstret blir gratis!
14.01.2012 - 19:41
Orion#orioncardigan |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Delight með stuttum ermum, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S-XXXL.
DROPS 136-16 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- BYRJUN Á NÝJUM ÞRÆÐI: Til þess að litaskiptin með Delight verði falleg þegar byrjað er á nýjum þræði, verður að finna dokku sem byrjar á þeim lit sem síðast var prjónað með. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. HNAPPAGAT: Fellt er af fyrir 4 hnappagötum í hægra framstykki í kanti á berustykki – fellið af í byrjun umf frá röngu. 1 hnappagat = fellið af fjórðu l frá miðju að framan og fitjið upp 1 nýja lykkju yfir þá sem felld var af í næstu umf. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: STÆRÐ S og M: 2, 8 og 14 cm. STÆRÐ L og XL: 2, 6, 10 og 16 cm. STÆRÐ XXL og XXXL: 2, 6½, 11 og 16 cm. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað ofanfrá og niður. Til þess að fá pláss fyrir allar l, er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan. Munið eftir HNAPPAGAT í hægra framstykki í kanti – sjá útskýringu að ofan! LESIÐ LEIÐBEININGAR UM BYRJUN Á NÝJUM ÞRÆÐI! FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 138-152-158-166-170-184 l (meðtaldar eru 5 kantlykkjur að framan hvoru megin við miðju að framan) á hringprjóna nr 3,5 með Delight (fitjið upp jafnt og ekki of fast – þetta verður hálsmálið). Prjónið 1 umf slétt frá röngu. Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið þannig (frá réttu): Setjið 1. prjónamerki í 21.-22.-23.-23.-24.-26. l, 2. prjónamerki í 54.-60.-62.-66.-67.-72. l, 3. prjónamerki í 85.-93.-97.-101.-104.-113. l og 4. prjónamerki í 118.-131.-136.-144.-147.-159. l, þá eru 20-21-22-22-23-25 l eftir síðasta prjónamerki (l fram að 1. prjónamerki = vinstra framstykki, l milli 1. og 2. prjónamerkis og l milli 3. og 4. prjónamerki = ermar, l milli 2. og 3. prjónamerki = bakstykki og l eftir 4. prjónamerki = hægra framstykki). LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN HALDIÐ ER ÁFRAM! Haldið áfram í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan- jafnframt í umf 1, er aukið út um 1 l hvoru megin við þær 4 l við prjónamerki – aukið út með því að slá 1 sinni upp á prjóninn (= 8 útaukningar). Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt til þess að koma í veg fyrir göt (þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Endurtakið útaukningu í annarri hverri umf alls 23-25-28-30-32-35 sinnum = 322-352-382-406-426-464 l. Munið eftir HNAPPAGAT! Prjónið 1 umf slétt til baka frá röngu eftir síðustu útaukningu, klippið frá. Setjið fyrstu 44-47-51-53-56-61 l (meðtalið 1. prjónamerki) á þráð-1 (= vinstra framstykki), setjið eftirfarandi 78-87-94-102-106-115 l á þráð-2 (= ermi), haldið eftir næstu 78-84-92-96-102-112 l (meðtalið er 2. og 3. prjónamerki) á prjóni (= bakstykki), setjið eftirfarandi 78-87-94-102-106-115 l á þráð-3 (= ermi ) og setjið síðustu 44-47-51-53-56-61 l (meðtalið er 4. prjónamerki) á þráð-4 (= hægra framstykki). BAKSTYKKI: = 78-84-92-96-102-112 l. Til þess að koma í veg fyrir að hálsmálið verði ekki jafnt vítt að framan og að aftan, eru prjónaðir 4 cm í garðaprjóni fram og til baka yfir lykkjur á bakstykki (endið eftir 1 umf frá röngu), klippið frá. FRAM- OG BAKSTYKKI: Prjónið inn l af þræði-1 (= 44-47-51-53-56-61 l), fitjið upp 2-4-6-8-10-12 nýjar l undir ermi, prjónið nú yfir lykkjur á bakstykki (= 78-84-92-96-102-112 l), fitjið upp 2-4-6-8-10-12 nýjar l undir ermi og prjónið að lokum inn lykkjur af þræði-4 á prjóninn (= 44-47-51-53-56-61 l). Nú eru 170-186-206-218-234-258 l á prjóni. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Haldið áfram í garðaprjóni fram og til baka- jafnframt í umf 1 er aukið út um 24-26-28-36-42-46 l jafnt yfir (en ekki auka út yfir þær 10 l sem eru við miðju að framan) = 194-212-234-254-276-304 l. Þegar prjónaðir hafa verið 5 cm í garðaprjóni (stillið af eftir 1 umf frá röngu) er skipt yfir á hringprjóna nr 5. Prjónið 1 umf slétt frá réttu jafnframt er fækkað um 48-52-58-64-68-76 l jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað yfir 10 lykkjur við miðju að framan)= 146-160-176-190-208-228 l. Setjið prjónamerki eftir 40.-43.-47.-51.-55.-60. l frá hvorri hlið. Haldið áfram í sléttprjón og 10 l garðaprjón hvoru megin við miðju að framan – JAFNFRAMT í umf 1 frá réttu – eru aukið út um 1 l hvoru megin við 2 prjónamerkin (aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn br til þess að koma í veg fyrir göt). Endurtakið útaukningu í hverri umf frá réttu þar til sléttprjónaði hlutinn mælist 40 cm (miðja að aftan). Nú eru prjónaðar 8 umf í garðaprjóni yfir allar l jafnframt er haldið áfram með útaukningu í hliðum. Fellið LAUST af. VINSTI ERMI: Prjónað er fram og til baka á hringprjóna nr 3,5 frá miðju undir ermi – setjið prjónamerki fyrir miðju í 2-4-6-8-10-12 l sem fitjaðar voru upp við miðju undir ermi á fram- og bakstykki. Byrjið við prjónamerki og prjónið upp 1 l í hverja af þeim 1-2-3-4-5-6 l sem fitjaðar voru upp undir ermi við framstykki, prjónið inn 78-87-94-102-106-115 l af þræði-2, prjónið upp 9 l við þá 4 cm í garðaprjóni sem prjónað var aukalega á bakstykki og að lokum er prjónuð upp 1 l í hverja af þeim 1-2-3-4-5-6 l sem fitjaðar voru upp undir ermi við bakstykki. Þ.e.a.s. fram að prjónamerki = alls 89-100-109-119-125-136 l. Setjið líka prjónamerki við miðju á ermi - HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið garðaprjón og stuttar umferðir fram og til baka frá prjónamerki við miðju undir ermi þannig: * Prjónið saman þar til eftir eru 20-21-22-23-24-25 l, snúið við, prjónið þar til eftir eru 20-21-22-23-24-25 l, snúið við, prjónið út umf, prjónið 3 umf yfir allar l *, endurtakið frá *-* þar til stykkið mælist 10-10-12-12-14-14 cm frá prjónamerki við miðju á ermi. Fellið af allar l. HÆGRI ERMI: Prjónið á hringprjóna nr 3,5 með því að byrja á að prjóna upp 1 l í hverj af þeim 1-2-3-4-5-6 l sem prjónaðar voru upp undir ermi við bakstykki, prjónið nú upp 9 l meðfram þeim 4 cm í garðaprjóni sem prjónaðir voru aukalega á bakstykki, prjónið inn 78-87-94-102-106-115 l af þræði-3 og prjónið saman 1 l í hverja af þeim 1-2-3-4-5-6 l sem fitjaðar voru upp undir ermi við framstykki. Prjónið nú til loka á sama hátt og vinstri ermi. FRÁGANGUR: Saumið ermasauma undir ermum yst í lykkjubogann. Saumið tölur í. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #orioncardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 10 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 136-16
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.