Dea skrifaði:
Sono contenta che il mio suggerimento per il nome sia stato scelto :) in questo modello è racchiusa (secondo me) la bellezza dei colori della Sicilia, ma anche il profumo :)
26.01.2012 - 20:36
Florencia skrifaði:
Muy original, excelente eleccion de colores. Me encanta!!
21.01.2012 - 20:49
LT skrifaði:
I have nothing more to say than.... CUTE!!!
16.01.2012 - 00:12
Luana skrifaði:
Bellissima favolosa stupenda originale.........
15.01.2012 - 14:06
Annika skrifaði:
Så söt sommarväska, Jag vill ha mönstret nu, så jag kan ha den klar till sommaren.
15.01.2012 - 11:53
Rubis63 skrifaði:
J'adore, rétro et gaie, vivement cet été :o)
13.01.2012 - 22:55
Fatima skrifaði:
Wow......wunderschöne Tasche......freue mich schon jetzt auf die Anleitung
13.01.2012 - 19:37
Mathisa skrifaði:
Diese Tasche könnte ich mir in meiner sammlung ganz gut vorstellen.
13.01.2012 - 07:46
Anka skrifaði:
Håper at det kommer oppskrift på denne kule vesken.
12.01.2012 - 12:17
Jurima skrifaði:
Toller großer Sommerbeutel, würde ich gern nacharbeiten.
08.01.2012 - 17:31
Sicily#sicilybag |
|
![]() |
![]() |
Hekluð taska úr DROPS Paris með röndum og ferningum.
DROPS 139-13 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Fyrsta st í hverri umf er skipt út fyrir 3 ll. Fyrstu fl í hverri umf er skipt út fyrir 1 ll. Hver umf með st endar með 1 kl í 3. ll í byrjun umf. Hver umf með fl, endar með 1 kl í 1. ll í byrjun umf. RENDUR: Heklið rendur með 1 umf af hverjum lit þannig: * Kóral, millibleikur, natur, appelsínugulur, kóral, skærgulur, natur, millibleikur, skærgulur, appelsínugulur *, endurtakið frá *-*. ATH: Ekki klippa frá þráðinn, heldur látið hann fylgja með uppúr á röngunni á stykkinu. MYNSTUR: UMFERÐ 1: Heklið 3 ll, * 1 ll, hoppið yfir 1 l, 1 st í næstu l *, endurtakið frá *-* út umf, endið með 1 ll, hoppið yfir síðustu l, 1 kl í 3. ll í byrjun umf. UMFERÐ 2: Heklið 1 st í hvern st og hverja ll. UMFERÐ 3: Heklið 1 fl í hvern st. UMFERÐ 4: Heklið 3 ll, heklið nú stuðlana í kross, það er gert þannig: *Hoppið yfir 1 l, 1 st í næstu l, síðan 1 st í l sem hoppað var yfir *, endurtakið frá *-* út umf, endið með 1 st í síðasta st og 1 kl í 3. ll í byrjun umf. UMFERÐ 5: Heklið 1 fl í hvern st. UMFERÐ 6: Heklið 1 fl í hverja fl. UMFERÐ 7: Heklið st í hverja fl. Endurtakið umf 1 til 7. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TASKA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað frá botni og uppúr. LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! TASKA: Heklið 5 ll með litnum kóral og tengið í hring með 1 kl í fyrstu l. Heklið RENDUR – sjá útskýringu að ofan – þannig: UMFERÐ 1: Heklið 10 st um ll-hringinn, endið með 1 kl í fyrsta st. UMFERÐ 2: Heklið 2 st í hvern st = 20 st. UMFERÐ 3: Heklið 1 og 2 st í annað hvert skipti í hvern st út umf = 30 st. UMFERÐ 4: Heklið 1 st í hvern st, en í 3. hvern st eru heklaðir 2 st = 40 st. UMFERÐ 5: Heklið 1 st í hvern st, en í 4. hvern st eru heklaðir 2 st = 50 st. Haldið áfram að auka bilið um 1 st milli umf þar til 120 st eru eftir í umf. Heklið nú 1 umf með st jafnframt er aukið út um 8 st jafnt yfir = 128 st. Haldið áfram með rendur jafnframt er heklað MYNSTUR – sjá útskýringu að ofan! Þegar stykkið mælist ca 32 cm (mælt frá miðju hrings og uppúr), endið á 1 umf með st, klippið frá. HEKLAÐUR FERNINGUR: Það eru 4 mismunandi litasamsetningar á ferningunum. Ferningur-1: Litur-1 = kóral, litur-2 = skærgulur. Ferningur-2: Litur-1 = appelsínugulur, litur-2 = kóral. Ferningur-3: Litur-1 = millibleikur, litur-2 = appelsínugulur. Ferningur-4: Litur-1 = skærgulur, litur-2 = millibleikur. Heklið 4 ll með lit-1 og tengið í hring með 1 kl í fyrstu ll. UMFERÐ 1: Heklið 1 ll, 8 fl um hringinn, endið með 1 kl í fyrstu fl UMFERÐ 2 (Skiptið yfir í lit-2): Heklið 5 ll (= 1 fl + 4 ll), * 1 fl í næstu fl, 4 ll *, endurtakið frá *-* alls 7 sinnum og endið með 1 kl í 1. ll í byrjun umf = 8 fl með 4 ll á milli. UMFERÐ 3: Heklið 1 ll, heklið nú þannig um hvern ll-boga: 1 fl, 1 hálf-st, 2 st, 1 hálf-st og 1 fl, endið umf með 1 kl í ll í byrjun umf 8 blöð. Klippið frá. UMFERÐ 4 (Skiptið yfir í litinn natur): Heklið 1 fl efst á fyrsta blaðinu, * 8 ll, 1 fl efst á næsta blaði, 3 ll, 1 fl efst á næsta blaði *, endurtakið frá *-* út umf, en endið með 1 kl í kl í byrjun umf. UMFERÐ 5: * Um ll-boga í horni er heklað þannig: Heklið 5 st + 2 ll + 5 st, 4 st í næsta ll-boga * endurtakið frá *-* alls 4 sinnum, endið með 1 kl í fyrsta st í byrjun umf, klippið frá. 1 ferningur = ca 10 x 10 cm. Heklið nú 2 ferninga af hverri litasamsetningu. Saumið þá saman kant í kant með 1 spori í hverja l í þessari röð: Ferningur-1, ferningur-2, ferningur-3, ferningur-4, ferningur-1, ferningur-2, ferningur-3 og ferningur-4 – að lokum er ferningur-4 saumaður á móti ferningi-1 svo að það myndist hringur. AXLARÓL: Heklið 5 ll með litnum kóral með heklunál nr 3,5 og tengið í hring með 1 kl í fyrstu ll. Heklið nú 1 fl í hverja l þar til stykkið mælist ca 75 cm. Klippið frá og festið enda. Heklið 2 alveg eins axlarólar. FRÁGANGUR: Saumið saman hringinn með ferningum efst á töskunni – saumið kant í kant með 1 spori í hverja l – látið rönguna á ferningunum standa út þegar saumað er saman (þetta verður brotið saman niður með töskunni síðar). Heklið 1 umf með litnum dökk bleikur og st efst á ferningunum – það eiga að vera 1 st í hvern st og 1 st í hverja ll = 16 st hver ferningur = 128 st alls. Skiptið yfir í litinn natur, heklið 1 umf með 1 st í hvern st. Klippið frá og festið enda. Brjótið niður uppábrotnu ferningana yfir töskunna. Festið 1 axlaról í hvora hlið á töskunni þannig (sjá einnig mynd): Þræðið endann á axlarólinni frá röngu og út í gegnum efsta hornið til vinstri á 1 ferningi, setjið 1 hnút á endann á axlarólinni, svo að hún sitjið föst. Hoppið yfir 1 ferning og þræðið hinn endann á axlarólinni frá röngu og út í gegnum efsta hornið til hægri á næsta ferningi, setjið 1 hnút. Festið hina axlarólina á sama hátt í hina hliðina á töskunni. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sicilybag eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 11 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 139-13
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.