Theresa Suszko skrifaði:
I’ve tried this pattern with the same yarn and followed it to the T! And can’t get the snowman part over the foot it’s to tight ! I even kept the stitches loosley! Would like to know how the model got it on her foot?
08.06.2021 - 04:57DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Suzko, remember to always check and keep the correct tension, even when working the pattern, this means you might have to use larger needles if necessary so that the snowmen will not be tight around the leg, hope this helps. Happy knitting!
08.06.2021 - 08:42
Verena skrifaði:
Hallo, nach der Fersenabnahme und Wiederaufnahme der Maschen habe ich in Gr. 41/43 60 Maschen auf den Nadeln. 30 davon vom Hilfsfaden, in der Anleitung dann aber ist von 32 M die Rede: „Auf beiden Seiten der 24-24-24-32 M. vom Hilfsfaden je eine Markierung einziehen.“ Können Sie mir hier bitte helfen? Danke und viele Grüße
14.01.2021 - 22:41DROPS Design svaraði:
Liebe Verena, also diese 32 Maschen sind: 1 der 10 aufgenonmmenen Maschen + die 30 stillgelegten Maschen + 1 der 10 aufgenommenen Maschen. Viel Spaß beim stricken!
15.01.2021 - 07:15
Dubost skrifaði:
Bonjour il me semble que le diagramme est à l'envers.
06.12.2020 - 15:23DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Dubost, les chaussettes se tricotent de haut en bas, on va donc commencer le diagramme par le haut du bonhomme de neige (par son chapeau) pour qu'il soit à l'endroit quand on porte les chaussettes - les diagrammes se lisent toujours de bas en haut - voir aussi cette leçon sur les diagrammes. Bon tricot!
07.12.2020 - 09:20
Karin skrifaði:
Kunnen deze sokken ook op een rondbrei naald gemaakt worden?
23.10.2017 - 07:25DROPS Design svaraði:
Hallo Karin, Jazeker, dat kan prima. Eigenlijk kan je bijna alles wel op de rondbreinaald breien, en als je rondbreinaald te lang is kun je de magic loop toepassen.
25.10.2017 - 10:06
Meeli skrifaði:
Väga kena muster ja ilusad sokid . valge kudusin karvase litritega lõngaga.
30.10.2014 - 11:15
Bente Friberg skrifaði:
Er det nødvendigt at spilde papir og blækpatron på den samme reklame for filtgarner, hver gang man skal printe en opskrift? det er da spild af papir og blækpatron som absolut ikke er gratis. Meget irriterende.
06.03.2014 - 23:24DROPS Design svaraði:
Hej Bente. For at kunne tilbyde dig de gratis mönstre er vi afhaengig af garnsalget - derfor er reklamer ogsaa nödvendigt ;-) Men du kan jo altid vaelge hvilke sider du vil printe i din printmenu, og saa kan du jo vaelge reklamen fra.
07.03.2014 - 10:00
Frosty Feet#frostyfeetsocks |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
Prjónaðir sokkar úr DROPS Karisma með jólamynstri. Stærð 32-43. Þema: Jól
DROPS Extra 0-786 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu M.1. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. FRANSKUR HNÚTUR: Stingdu nálinni upp í lykkjuna þar sem hnúturinn á að vera. Leggðu nálina flata niður að stykkinu og vefjið þræðinum 2 sinnum í kringum nálina og dragið nálina í gegnum þessar lykkjur þannig að það myndast tvöfaldur hnútur á þræðinum. Stingið nálinni niður í næstu lykkju og festið á bakhlið. HÆLÚRTAKA: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið þar til 9-9-9-11 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju af prjóni, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið þar til 9-9-9-11 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju af prjóni, 1 lykkja brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið þar til 8-8-8-10 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju af prjóni, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið þar til 8-8-8-10 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju af prjóni, 1 lykkja brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. Haldið áfram með úrtöku alveg eins með því það fækki um 1 lykkju áður en 1 lykkju er steypt yfir þar til 18-8-10-10 lykkjur eru eftir á prjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna ofan frá og niður að tá. SOKKUR: Fitjið upp 52-56-56-64 lykkjur á sokkaprjóna 3 með litnum rauður DROPS Karisma. Prjónið 1 umferð slétt, haldið áfram og prjónið stroff 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt. Þegar stroffið mælist 4-5-5-6 cm prjónið 1 umferð slétt JAFNFRAMT er fækkað um 4-8-8-4 lykkjur jafnt yfir = 48-48-48-60 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5. Haldið áfram með M.1 yfir allar lykkjur (= 4-4-4-5 sinnum). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Eftir M.1 er prjónað með litnum rauður að loka máli. Prjónið 3 cm sléttprjón. Haldið eftir fyrstu 12-12-13-15 lykkjum á prjóni, setjið næstu 24-24-22-30 lykkjur á þráð (= mitt ofan á fæti) og haldið eftir síðustu 12-12-13-15 lykkjum á prjóni = 24-24-26-30 lykkjur fyrir hæl. Prjónið sléttprjón fram og til baka yfir hællykkjur í 4½-5-5½-6 cm. Setjið eitt merki. Prjónið síðan HÆLÚRTAKA – lesið útskýringu að ofan! Eftir hælúrtöku eru prjónaðar upp 10-10-12-10 lykkjur í hvorri hlið á hæl og 24-24-22-30 lykkjur af þræði eru settar til baka á prjóninn = 52-52-56-60 lykkjur. Setjið eitt merki hvoru megin við 24-24-24-32 lykkjur mitt á fæti. Haldið áfram hringinn JAFNFRAMT er lykkjum fækkað í hvorri hlið þannig: Prjónið síðustu 2 lykkjur á undan 24-24-24-32 lykkjum á fæti slétt saman og fyrstu 2 lykkjur á eftir 24-24-24-32 lykkjum á fæti snúnar slétt saman (þ.e.a.s. prjónið í aftari lykkjubogann í stað fremri). Endurtakið úrtöku í annarri hverri umferð alls 4 sinnum = 44-44-48-52 lykkjur. Þegar stykkið mælist ca 15,5-18,5-20,5-23 cm frá merki á hæl (= ca 3,5-3,5-3,5-4 cm að loka máli) prjónið 1 umferð slétt yfir allar lykkjur. Setjið eitt merki í hvora hlið þannig að það verða 22-22-24-26 lykkjur bæði ofan á fæti og undir fæti. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni yfir allar lykkjur JAFNFRAMT er lykkjum fækkað fyrir tá hvoru megin við bæði merkin: 3 lykkjur á undan merki: 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkið situr mitt á milli þessa 2 lykkja), 2 lykkjur snúnar slétt saman (þ.e.a.s. prjónið í aftari lykkjubogana í stað fremri). Endurtakið úrtöku í annarri hverri umferð alls 3-3-3-4 sinnum og síðan í hverri umferð alls 6-6-7-7 sinnum = 8 lykkjur eftir á prjóni. Klippið þráðinn, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. FRÁGANGUR: Saumið út 5 lykkjur með lykkjuspori með litnum appelsína á hvern snjókall fyrir nef – sjá mynsturteikningu. Saumið út FRANSKUR HNÚTUR – sjá útskýringu að ofan með litnum koksgrár á hvern snjókall – sjá mynsturteikningu. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #frostyfeetsocks eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 18 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-786
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.