Christine skrifaði:
Hi ; would it be possible knit this pattern in DK (22 sts for 10cm) ?if for instance I did an XXL to get an L result ...would that work?.... please suggest a method thank you
22.08.2026 - 12:52DROPS Design svaraði:
Dear Christine, you would have to recalculate the whole pattern with the basis on your tension, you can maybe get helped from a similar pattern in the desired tension. Happy knitting!
24.08.2026 - 08:18
Ray skrifaði:
On the front piece. Why do you reduce the sts? I can’t figure out why you need these decreases
13.07.2026 - 06:57
Ray E skrifaði:
On the front piece you start with 94 sts and on the first row decrease down to 81 sts. What does this do? I can’t figure out why you don’t just cast on 81 sts and start the M1 pattern?
13.07.2026 - 06:55DROPS Design svaraði:
Hi Ray, Casting on with extra stitches gives a loose cast-on edge. But you can of course cast on 81 stitches if you wish and have a tighter edge. Regards, Drops Team.
15.07.2026 - 06:31
Anna skrifaði:
Tack så mycket för hjälpen!
12.06.2026 - 08:46
Anna skrifaði:
Hej, ja det går att följa beskrivningen, men insidan av kragen blir ju inte likadant som utsidan. Ska det vara så? Det ser inte ut så på bilden.
11.06.2026 - 08:43DROPS Design svaraði:
Hej Anna, ja sådan har design valgt at gøre den her. Men om du vil have den ens på rätsian och avigsian, så strikker du 1rm, 1am (istället för 1rm, 2am) :)
11.06.2026 - 09:49
Anna skrifaði:
Hej, jag undrar över mönstret för kragen, när man tittar på bilden så ser det ut likadant på båda sidor. Men det blir inte så om följer mönster, insidan blir 2 rm och en avig. Hur är det tänkt att man ska göra?
10.06.2026 - 14:47DROPS Design svaraði:
Hej Anna, går det inte at följa beskrivingen? Sedan stickas det resår så här (från rätsidan): 2 m som stickas räta på alla v, * 1 rm, 2 am *, upprepa *-* och avsluta med 1 rm och 2 m som stickas räta på alla v.
11.06.2026 - 08:11
Gabriele skrifaði:
Bei den Ärmeln steht nach 12 am Anfang und Ende eine Masche zunehmen. Ist 12 Reihen oder 12 cm gemeint?
13.12.2025 - 13:13DROPS Design svaraði:
Liebe Gabriele, hier ist es 12 cm gemeint, danke für den Hinweis. Viel Spaß beim Stricken!
15.12.2025 - 11:51
Virginie Baudren skrifaði:
Bonjour dans vos explications vous parlez de diminutions pour le devant et le dos ….est ce que le pull est cintré au niveau devant la poitrine ? Je ne comprends pas ces diminutions Merci pour votre réponse je veux tricoter la taille XXL
14.02.2025 - 11:39DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Baudren, on doit diminuer au 1re rang pour avoir le bon nombre de mailles et que la bordure ne soit pas trop serrée, mais ensuite, on ne diminue que pour l'encolure devant, je ne vois pas d'autres diminutions, auxquelles pensiez-vous?
14.02.2025 - 16:10
Carola Kaandorp skrifaði:
Bij dit patroon van [2 recht, 1 averecht] heb ik moeite met het vinden van de juiste naalddikte. De breedte van het gebreide is moeilijk te meten, omdat het breisel erg rekbaar is. Kunt u zeggen hoeveel steken in tricotsteek nodig zijn voor een breedte van bijvoorbeeld 10 cm? Dan kan ik daarmee de juiste naalddikte vinden om er vervolgens het patroon mee te breien.
27.12.2024 - 22:59DROPS Design svaraði:
Dag Carola,
18 steken in de breedte en 24 steken in de hoogte in patroon met 1 draad van elke kwaliteit = 10 x 10 cm. In het patroon wordt een naalddikte van 5.5 mm aanbevolen, maar maak altijd een proeflapje en pas eventueel de naalddikte aan totdat de stekenverhouding klopt. Het proeflapje moet niet opgerekt worden. Ik leg het vaak op een stoffen ondergrond (bijvoorbeeld de bank) en strijk het dan met mijn hand een beetje plat om vervolgens op te meten.
01.01.2025 - 17:04
Ingrid Reiner skrifaði:
Was bedeutet bei der Anleitung zum Schalkragen dieser Teil: Nach ca. 5 cm von der Vorderseite gesehen in den mittleren 12 li.-Partiene (hinten im Nacken) je 1 M. aufnehmen. Ich verstehe nicht was mit 12 li.-Partiene gemeint ist? Bitte um Erklärung. Danke Ingrid Reiner
01.09.2024 - 21:41DROPS Design svaraði:
Liebe Reiner, die links Partiene in diesem Bündchen sind die Partiene, die mit 2 Maschen links gestrickt werden, dh so wird dann der Schlalgraken gestrickt: Bündchen wie zuvor (1 re, 2 li) bis die Mittleren 12 linke Partiene, dann 12 Mal (1 re, 3 li), dann Bündchen wie zuvor. Viel Spaß beim Stricken!
02.09.2024 - 09:24
Parker#parkersweater |
|||||||
|
|
|||||||
Prjónuð peysa fyrir herra með sjalkraga úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk. Stærð S til XXXL.
DROPS 135-45 |
|||||||
|
MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu M.1 – mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. ---------------------------------------------------------- FRAMSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka. Fitjið upp 94-105-115-126-136-147 l (meðtalin er 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjóna nr 5,5 með 1 þræði af Alpaca + 1 þræði af Kid-Silk. Prjónið frá réttu) þannig: * Prjónið 3 l sl, 2 l sl saman, 2 l sl *, endurtakið frá *-* þar til eftir eru 3-0-3-0-3-0 l, prjónið þær slétt = 81-90-99-108-117-126 l. Næsta umf er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni * 1 l br, 2 l sl *, endurtakið frá *-* þar til 2 l eru eftir, prjónið 1 l br og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Prjónið M.1 yfir allar l, prjónið 1 kantlykkju í hvorri hlið sem prjónuð er í garðaprjóni í öllum umf (M.1 byrjar og endar með 1 l sl, séð frá réttu, á undan kantlykkju í hvorri hlið). Þegar stykkið mælist ca 47-48-49-50-51-52 cm er prjónuð næsta umferð frá réttu þannig: Fellið af 4 l fyrir handveg, prjónið 26-30-34-38-42-46 l í M.1 eins og áður (= vinstra framstykki), fellið af 21-22-23-24-25-26 l fyrir hálsmáli, prjónið umf út með M.1 eins og áður (= 30-34-38-42-46-50 l). Snúið og fellið af 4 fyrstu l fyrir handveg, prjónið út umf = 26-30-34-38-42-46 l eftir á hægra framstykki. Setjið l af vinstra framstykki á þráð. HÆGRA FRAMSTYKKI: Prjónið M.1 yfir allar l á prjóni, jafnframt er fellt af fyrir handveg í byrjun hverrar umf frá hlið: 3 l 0-0-1-1-2-2 sinnum, 2 l 0-1-1-2-2-3 sinnum og 1 l 2-3-3-4-4-5 sinnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 54-55-56-57-58-59 cm er felld af 1 l við hálsmál, endurtakið úrtöku þar til stykkið mælist 60-61-62-63-64-65 cm. Eftir úrtöku eru 22-23-24-25-26-27 l eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 68-70-72-74-76-78 cm. VINSTRA FRAMSTYKKI: Setjið til baka lykkjur af þræði á prjóninn og prjónið eins og hægra framstykki, nema spegilmynd. BAKSTYKKI: Fitjið upp og prjónið eins og framstykki þar til stykkið mælist 47-48-49-50-51-52 cm. Fellið af fyrir handveg í byrjun hverrar umf í hvorri hlið: 4 l 1 sinni, 3 l 0-0-1-1-2-2 sinnum, 2 l 0-1-1-2-2-3 sinnum og 1 l 2-3-3-4-4-5 sinnum = 69-72-75-78-81-84 l. Þegar stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm, er fellt af miðju 25-26-27-28-29-30 l fyrir hálsmáli. Prjónið hvora öxl (= 22-23-24-25-26-27 l) fyrir sig þar til stykkið mælist 68-70-72-74-76-78 cm, fellið af. ERMI: Ermin er prjónuð fram og til baka. Fitjið upp 57-57-60-60-63-66 l (meðtalin er 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjóna nr 5,5 með 1 þræði af Alpaca + 1 þræði af Kid-Silk. Prjónið 1 umf slétt frá réttu jafnframt er fækkað um 6 l jafnt yfir = 51-51-54-54-57-60 l. Næsta umf er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni * 1 l br, 2 l sl *, endurtakið frá *-* þar til 2 l eru eftir, endið með 1 l br og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Prjónið M.1 yfir allar l, með 1 kantlykkju sem prjónuð er í garðaprjóni í öllum umf. (M.1 byrjar og endar með 1 l sl, séð frá réttu, á undan kantlykkju í hvorri hlið). Þegar stykkið mælist 12 cm, er aukið út um 1 l í hvorri hlið innan við kantlykkju. Endurtakið útaukningu með 4½-4½-4½-3-3-3 cm millibili alls 9-9-9-12-12-12 sinnum = 69-69-72-78-81-84 l – útauknu l eru prjónaðar jafnóðum inn í M.1. Þegar stykkið mælist 52-51-50-49-48-47 cm (styttri mæling í stærri stærðum vegna víðari handvegs og breiðari axla) er fellt af í byrjun hverrar umf í hvorri hlið: 4 l 1 sinni, 2 l 3 sinnum og 1 l 2-4-5-6-8-9 sinnum. Fellið af 2 l í hvorri hlið þar til stykkið mælist 59 cm, að lokum eru felldar af 3 l 1 sinni í hvorri hlið. Fellið af, stykkið mælist ca 60 cm í öllum stærðum. FRÁGANGUR: Saumið axlarsauma. SJALKRAGI: Byrjið við miðju að framan á vinstri hlið við l sem felld var af fyrir hálsmáli. Prjónið upp á hringprjóna nr 5,5 með 1 þræði af hvorri tegund þannig: Prjónið 38 til 45 l upp að öxl, síðan eru prjónaðar upp 26 til 32 l aftan við hnakka, að lokum 38 til 45 l niður meðfram vinstri hlið við úrtöku fyrir háls = 102 til 122 l (ekki eru l teknar upp þar sem fellt var af framan á hálsmáli). Prjónið 1 umf slétt frá röngu JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn aukinn í 128-134-140-146-152-158 l. Prjónið stroff frá réttu) þannig: Prjónið 2 l slétt í öllum umf, * 1 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* og endið með 1 l sl og 2 l sem prjónaðar eru slétt í öllum umf. Haldið áfram þar til kraginn mælist ca 5 cm. Aukið út um 1 l í hverja og eina af miðju 12 br einingum, séð frá réttu (= aftan við hnakka) = 140-146-152-158-164-170 l. Haldið áfram með sl yfir sl og br yfir br þar til kraginn mælist ca 11-11-12-12-13-13 cm – passið upp á að næsta umf sé prjónuð frá réttu. Prjónið 4 umf í sléttprjóni yfir allar l, fellið nú af með sl frá réttu. Ytri brúnin á að rúllast upp. Leggið kragann tvöfaldan (hægri hlið yfir vinstri hlið) neðst við opið við háls og saumið fastan við hálshálsmálið í gegnum bæði stykkin. MEIRI FRÁGANGUR: Saumið ermar í, saumið erma- og hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #parkersweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 3 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 135-45
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.