Hanna Sigurjónsdóttir skrifaði:
Þvílík snilld að fá þetta núna á íslensku:)
25.04.2013 - 22:18
Anne-Mette skrifaði:
Som med alle andre sokker jeg har strikket efter opskrifter herfra, er de alt for store. Str. 40/41 er reelt str. 44/45.
12.02.2013 - 23:15
Ingelise Hansen skrifaði:
Der er vist forkerte symboler på farvevalg, den hvide tern skal strikkes natur og den sorte tern skal strikkes grå.
01.01.2012 - 18:19
Jette skrifaði:
Glæder mig til opskriften kommer.savner flere mønstre på lange strømper strikket på pind nr 3,og med mønster
01.07.2011 - 16:33
Jette skrifaði:
Glæder mig til opskriften kommer.savner flere mønstre på lange strømper strikket på pind nr 3,og med mønster
01.07.2011 - 16:33
Laurie skrifaði:
Adorable and the perfect height. Love them.
28.06.2011 - 18:50
Mna skrifaði:
Kule!!
22.06.2011 - 11:56
Cynthia skrifaði:
I love that this is thinner yarn with the traditional pattern. I want to wear socks like this in my shoes, so this would be great!
26.05.2011 - 03:49
Elisabeth skrifaði:
Måske jeg skulle prøve at strikke strømper
25.05.2011 - 17:17
Line Hundal skrifaði:
Gleder meg til å strikke disse
22.05.2011 - 01:27
Snowfall#snowfallsocks |
|||||||
|
|||||||
Prjónaðir sokkar fyrir dömur og herra með norrænu mynstri úr DROPS Fabel. Stærð 35-46.
DROPS 135-8 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu M.1, M.2 og M.3, allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. ÚRTAKA: Fækkið lykkjum á undan merki þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman. Fækkið lykkjum á eftir merki þannig: Prjónið 2 lykkjur snúnar slétt saman (þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan). HÆLÚRTAKA: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið þar til 9-10-10-11 lykkjur eru eftir, 2 lykkjur snúnar slétt saman (prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan), snúið við. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið þar til 9-10-10-11 lykkjur eru eftir, 2 lykkjur brugðið saman, snúið við. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið þar til 8-9-9-10 lykkjur eru eftir, 2 lykkjur snúnar slétt saman, snúið við. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið þar til 8-9-9-10 lykkjur eru eftir, 2 lykkjur brugðið saman, snúið við. Haldið áfram á sama hátt með því að það fækki um 1 lykkju í hvert sinn sem prjónaðar eru 2 lykkjur saman þar til 14-14-16-16 lykkjur eru eftir á prjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SOKKUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður að tá. SOKKUR Fitjið upp 100-108-112-120 l á sokkaprjóna nr 2,5 með litnum grár. Prjónið stroff = 2 lykkjur slétt/2 lykkjur brugðið í 10 cm. Prjónið nú 1 umferð slétt jafnframt er fækkað um 16-12-16-12 lykkjur jafnt yfir = 84-96-96-108 lykkjur. Haldið áfram með M.1 ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram með M.2 – jafnframt í fyrstu og síðustu umferð í M.2 er fækkað um 6 lykkjur jafnt yfir = 72-84-84-96 lykkjur. Stykkið mælist nú ca 24 cm, setjið merki í byrjun umferðar. Haldið áfram með M.3 – JAFNFRAMT í umferð 5, er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við merki – SJÁ ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku í 5. hverri umferð alls 6-10-8-12 sinnum. ATH: Á meðan úrtaka stendur yfir, kemur mynstrið ekki til með að ganga upp við miðju að aftan, en sjáið til þess að það gangi annars upp hringinn. Eftir úrtöku eru 60-64-68-72 lykkjur á prjóni. Þegar stykkið mælist 42-44-46 cm, haldið eftir fyrstu 15-16-17-18 lykkjum á prjóni fyrir hæl, setjið næstu 30-32-34-36 lykkjur á þráð (= ofan á fæti) og haldið eftir síðustu 15-16-17-18 lykkjur á prjóni fyrir hæl. Stykkið er prjónað til loka með litnum grár. Haldið áfram í sléttprjóni fram og til baka yfir 30-32-34-36 hællykkjur í 5-5½-6-6½ cm – setjið nú 1 merki. Prjónið nú HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan. Eftir hælúrtöku eru prjónaðar upp 13-14-15-16 lykkjur hvoru megin við hæl og 30-32-34-36 lykkjur af þræði eru settar til baka á prjóninn = 70-74-80-84 lykkjur. Setjið eitt merki hvoru megin við 30-32-34-36 lykkjur ofan á fæti. Prjónið nú sléttprjón hringinn JAFNFRAMT er lykkjum fækkað í hvorri hlið þannig: Prjónið 2 síðustu lykkjur Á UNDAN fyrra merki ofan á fæti snúnar slétt saman (þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan) og prjónið 2 fyrstu lykkjur Á EFTIR seinna merki á fæti slétt saman. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umferð alls 9-9-10-10 sinnum = 52-56-60-64 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 18-20-22-25 cm frá merki á hæl (= ca 4-4-5-5 cm að loka máli). Setjið merki í hvora hlið þannig að það verða 26-28-30-32 lykkjur bæði ofan á fæti og undir fæti. Haldið áfram í sléttprjóni JAFNFRAMT er lykkjum fækkað fyrir tá hvoru megin við bæði merkin þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merki, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkið er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), 2 lykkjur snúnar slétt saman. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umferð alls 4-3-5-5 sinnum og síðan í hverri umferð 7-9-8-9 sinnum = 8 lykkjur eftir á prjóni. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. Prjónið annan sokk á sama hátt. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #snowfallsocks eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 11 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 135-8
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.