Vibeke Aasebø skrifaði:
Hei. Det er feil på dette mønsteret. En må felle seg ned i 64 masker før stjernemønster på M1, ellers passer det ikke. Irriterende når en må ta opp igjen flere omganger når en oppdager dette
26.09.2011 - 20:52
Christine skrifaði:
Schade Anleitung für die Socken ist immer noch nicht da.
08.07.2011 - 19:58
Nanna skrifaði:
Aivan upeat!
27.06.2011 - 19:30
Elisabeth skrifaði:
Super super
27.06.2011 - 09:27
Camilla Nyman skrifaði:
Underbara! dom vill jag sticka.
10.06.2011 - 17:53
Charlotte Larsen skrifaði:
Kjempe fine. Ønsker meg også mønster på disse.
09.06.2011 - 23:27
Lotta Nord skrifaði:
Jätte finna för den som kan sticka strumpor ( inte jag Än)
01.06.2011 - 18:11
Elisabeth skrifaði:
Kan vældig godt lide mønste
25.05.2011 - 17:21
Ingrid Larssen skrifaði:
Kjæmpefine, ønsker mønster på disse.
25.05.2011 - 14:45
Liss skrifaði:
Herlig!!! :))
23.05.2011 - 17:14
Shadowfax#shadowfaxsocks |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónaðir sokkar fyrir dömur og herra með norrænu mynstri úr DROPS Karisma. Stærð 35-46.
DROPS 135-7 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu M.1 til M.10. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. HÆLÚRTAKA: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið þar til eftir eru 7-7-8-8 lykkjur, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir, snúið. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið þar til eftir eru 7-7-8-8 lykkjur, lyftið 1 lykkju yfir eins og prjóna eigi brugðið, 1 lykkja brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir, snúið. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið þar til eftir eru 6-6-7-7 lykkjur, lyftið 1 lykkju yfir eins og prjóna eigi slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir, snúið. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið þar til eftir eru 6-6-7-7 lykkjur, lyftið 1 lykkju yfir eins og prjóna eigi brugðið, 1 lykkja brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir, snúið. Haldið áfram á sama hátt með því að fækka um 1 lykkju áður en 1 lykkju er steypt yfir þar til 9-9-11-11 lykkjur eru eftir á prjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður að tá. SOKKUR: Fitjið upp 64-64-68-68 lykkjur á sokkaprjóna nr 3 með litnum koksgrár. Prjónið 1 umf slétt, prjónið síðan 4 umferðir stroff = 1 lykkja slétt / 1 lykkja brugðið. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 3,5. Prjónið A.4, síðan A.1 í stærð 35/37 -38/40 (= 16 lykkjur) og A.2 í stærð 41/43 – 44/46 (= 17 lykkjur) yfir allar lykkjur. Prjónið síðan A.3 - JAFNFRAMT í síðustu umferð í mynsturteikningu er fækkað um 4 lykkjur jafnt yfir = 60-60-64-64 lykkjur. Prjónið síðan A.5 (= 4 lykkjur) yfir allar lykkjur, JAFNFRAMT í síðustu umferð í mynsturteikningu er fækkað um 4 lykkjur jafnt yfir = 56-56-60-60 lykkjur. Prjónið 1 umferð með litnum hvítur. Síðan er prjónað þannig: A.6 (= 35 lykkjur), A.7 (= 4 lykkjur) yfir næstu 20-20-24-24 lykkjur, endið með A.8 (= 1 lykkja). Prjónið A.7 og A.8 alls 5 sinnum á hæðina (= 20 umferðir), síðan eru lykkjur A.6 (= 35 lykkjur) settar á þráð = 21-21-25-25 lykkjur á prjóni fyrir hæl. Prjónið A.9 yfir þessar lykkjur í 5-5½-6-6½ cm. Setjið eitt prjónamerki, síðan er prjónað HÆLÚRTAKA - sjá útksýringu að ofan. Eftir hælúrtöku eru prjónaðar upp 12-12-14-14 lykkjur hvoru megin við hæl og þær 35 lykkjur af þræði eru settar aftur á prjóninn = 68-68-74-74 lykkjur. Þær 35 lykkjur ofan á fæti eru prjónaðar áfram í A.6, lykkjur undir fæti eru prjónaðar í A.9, JAFNFRAMT er lykkjum fækkað hvoru megin við lykkjur ofan á fæti þannig: Prjónið 2 lykkjur á undan A.6 slétt saman og 2 lykkjur á eftir A.6 snúnar slétt saman (þ.e.a.s. prjónað er aftan í lykkjubogann í stað framan), endurtakið úrtöku í annarri hverri umferð alls 5 sinnum = 58-58-64-64 lykkjur. Haldið áfram með mynstur A.6 og A.9. Þegar A.6 hefur verið prjónað 2 sinnum á hæðina er prjónað áfram þannig: Prjónið A.10 (= 3 lykkjur), A.9 yfir næstu 29 lykkjur, A.10 (= 3 lykkjur), A.9 yfir næstu 23-23-29-29 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 17-19-21-24 cm frá prjónamerki á hæl (= 5-5-6-6 cm til loka). Haldið nú áfram með mynstur eins og áður – JAFNFRAMT sem lykkjum fækkað fyrir tá hvoru megin við miðjulykkju í A.10 í hvorri hlið. Fækkið lykkjum á undan lykkju þannig: Prjónið 2 síðustu lykkjur á undan miðjulykkju slétt saman með litnum hvítur. Fækkið lykkjum á eftir lykkju þannig: Lyftið fyrstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt með litnum hvítur, steypið lyftu lykkjunni yfir. Endurtakið úrtöku í hverri umferð alls 9-9-10-10 sinnum = 22-22-24-24 lykkjur eftir. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 með litnum hvítur = 11-11-12-12 lykkjur. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið. Prjónið annan sokk á sama hátt. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #shadowfaxsocks eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 11 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 135-7
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.