Camilla skrifaði:
Svaret tycks dröja länge. Jag vet vad felet är och för de som stickar storlek M och X/XL så blir det 7 partier med 6 räta. Man förstår ju ändå utifrån bilden sett. Men en felskrivning i mönstret tycker jag. Snart klar med tunikan och den blir såå fin :)
07.08.2011 - 15:19
Camilla skrifaði:
Vid stickning av M.1 står det att över alla partier med 6 räta och det är = 3 st. Jag har 7 partier med 6 räta både på fram och bakstycke. Har jag missuppfattat? Mvh Camilla
01.08.2011 - 13:19
Jutta skrifaði:
Geht schön über die Hüften,nicht zu eng.Und der Kragen....einfach toll.
21.07.2011 - 10:11
Adelaide skrifaði:
Adorei o modelo.
20.07.2011 - 16:50
DROPS Design skrifaði:
Marisa, otro modelo que está disponible en español. Disfrútalos todos!
10.07.2011 - 23:52Marisa skrifaði:
Realmente encantador! Espero que publiquen pronto los patrones. Marisa de Argentina
10.07.2011 - 21:56
Roselaine skrifaði:
Enfin un modèle d'automne-hiver avec des manches 3/4. Les torsades et le col accentuent l'élégance de ce modèle!
07.07.2011 - 09:26
Eileen skrifaði:
Beautiful
07.07.2011 - 01:42Suzanne skrifaði:
Magnifique, original, feminin, exclusif, à faire absolument, remarquable, je n'ai pas assez de qualificatifs pour exprimer le bon goût de la designer, Félicitation, il faut continuer à nous donner de ces modèles exclusifs, nous adorons
06.07.2011 - 15:16
DenisseMontagner Oltra skrifaði:
Could yo traduce it to english please ?
04.07.2011 - 19:54
Jackie#jackiesweater |
|||||||
|
|||||||
Prjónuð peysa / tunika með köðlum, ¾-síðum ermum og stórum víðum kraga úr DROPS NEPAL. Stærð XS - XXXL
DROPS 131-1 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu M.1 – Mynsturteikningin sýnir eina mynstureiningu af mynstri séð frá réttu. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- FRAM- OG BAKSTYKKI (PEYSA OG TUNIKA) - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna. ATH! Þegar tölustafir eru fyrir framan og innan í sviga = ( ), tölustafir fyrir framan sviga eiga við peysu og tölustafir innan í sviga eiga við tuniku. FRAM- OG BAKSTYKKI (PEYSA OG TUNIKA): Fitjið upp 188-212-224-248-260 l á hringprjón nr 7 með Nepal. Prjónið 1 umf br, 1 umf sl og 1 umf br. Setjið eitt prjónamerki í hvora hlið, þ.e.a.s. í byrjun umf og eftir 94-106-112-124-130 l. Prjónið nú þannig: * Prjónið 8-8-11-11-10 l sl, 5-6-6-7-8 l br, 5-6-6-7-7 l sl, 5-6-6-7-8 l br, 6 l slétt í öllum stærðum, 5-6-6-7-8 l br, 5-6-6-7-7 l sl, 5-6-6-7-8 br, 6 slétt í öllum stærðum, 5-6-6-7-8 l br, 5-6-6-7-7 l sl, 5-6-6-7-8 l br, 6 l slétt í öllum stærðum, 5-6-6-7-8 l br, 5-6-6-7-7 l sl, 5-6-6-7-8 l br, 8-8-11-11-10 l sl* (= framstykki), nú hefur verið prjónað að prjónamerki í hlið, endurtakið frá *-* einu sinni til viðbótar yfir þær l sem eftir eru (= bakstykki). Þegar stykkið mælist 5 cm, prjónið M.1 yfir alla mynstureininguna með 6 l slétt í öllum stærðum ( 3 sinnum á framstykki og 3 sinnum á bakstykki). JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 13 (16) cm er fækkað um 1 l í öllum br mynstureiningunum með því að prjóna 2 síðustu l br saman (= 16 l færri). Þegar stykkið mælist 18 (24) cm er fækkað um 1 l í öllum mynstureiningum nema þeim sem eru í hvorri hlið (= 4 mynstureiningar að framan og 4 mynstureiningar að aftan), með því að prjóna 2 fyrstu l slétt saman (= 8 l færri). Þegar stykkið mælist 23 (32) cm er fækkað um 1 l í öllum brugðnu mynstureiningunum með því að prjóna 2 fyrstu l brugðið saman (= 16 l færri). Þegar stykkið mælist 28 (40) cm er fækkað um 1 l í sléttu mynstureiningunum (nema þeim sem eru í hvorri hlið) með því að prjóna 2 síðustu l slétt saman (= 8 l færri). Þegar stykkið mælist 33 (48) cm er fækkað um 1 l í öllum brugðnu mynstureiningunum með því að prjóna 2 síðustu l brugðið saman (= 16 l færri). Nú eru 124-148-160-184-196 l á prjóni. Haldið áfram að prjóna þar til stykkið mælist 39-39-40-41-42 (53-53-54-55-56) cm. Í næstu umf eru felldar af 6-6-6-8-8 l í hvorri hlið fyrir handveg (þ.e.a.s. 3-3-3-4-4 l í hvorri hlið við bæði prjónamerkin) = 112-136-148-168-180 l eftir á prjóni. Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á stutta hringprjóna. Fitjið upp 54-56-58-60-62 l á stutta hringprjóna nr 7 með Nepal. Prjónið 1 umf br, setjið prjónamerki í byrjun umf (= miðja undir ermi). Haldið áfram þannig: 1-2-3-4-5 l sl, *4 l br, 3 l sl, 6 l br, 3 l sl*, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum, endið á 4 l br og 1-2-3-4-5 l sl. Haldið svona áfram. Eftir 1.5 cm er fellt af fyrir 2 hnappagötum þannig: Prjónið 10-11-12-13-14 l eins og áður, 2 l br saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 30 l eins og áður, 2 l br saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið út umf eins og áður. Haldið áfram að prjóna eins og áður þar til stykkið mælist 20 cm. Prjónið nú allar l öfugar, þ.e.a.s. prjónið þannig: 1-2-3-4-5 l br, * 4 l sl, 3 l br, 6 l sl, 3 l br *, endurtakið frá *-* 3 sinnum, 4 l sl og1-2-3-4-5 l br. Eftir 6 svona umf er M.1 prjónað yfir 3 mynstureiningar með 6 l sl (þ.e.a.s. það koma þrír kaðlar á ermina). Þegar stykkið mælist ca 35 cm í öllum stærðum, fellið af 6-6-6-8-8 l við miðju undir ermi (þ.e.a.s. 3-3-3-4-4 l hvoru megin við prjónamerki) – passið uppá að fellt sé af í sömu umf og mynstur eins og á fram- og bakstykki = 48-50-52-52-54 l eftir á prjóni. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki = 208-236-252-272-288 l. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Setjið eitt prjónamerki í allar skiptingarnar á milli fram- og bakstykkis og erma (= 4 prjónamerki). LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Prjónið í hring yfir allar l eins og áður – JAFNFRAMT í umf 2 byrjar úrtaka. Fellið af á ERMUM þannig: Fellið af yst á hvorri hlið á ermum með því að prjóna annað hvor 2 l sl eða 2 l br saman eftir því sem passar í mynstri. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf upp að hálsmáli. Fellið af á FRAM- OG BAKSTYKKI þannig: FYRSTA úrtaka er gert eftir 3 cm. Fellið af 1 l í 4 sléttu mynstureiningunni á fram- og bakstykki með því að prjóna 2 fyrstu l slétt saman (= 8 l færri). Prjónið 5 cm með sl yfir sl, br yfir br og M.1 yfir M.1. ÖNNUR úrtaka: Fellið af 1 l í 8 brugðnu mynstureiningunni á fram- og bakstykki með því að prjóna 2 fyrstu l brugðið saman (= 16 l færri). Haldið áfram að prjóna í 5 cm. ÞRIÐJA úrtaka: Fellið af 1 l í 4 sléttu mynstureiningunni á fram – og bakstykki með því að prjóna 2 síðustu l slétt saman (= 8 l færri). HÉR ENDAR ÚRTAKA Í STÆRÐ XS/S. Prjónið áfram í 5 cm. FJÓRÐA úrtaka (á við í fjórum stærstu stærðum): Fellið af 1 l í 8 brugðnu mynstureiningunni á fram- og bakstykki með því að prjóna 2 síðustu l brugðið saman (= 16 l færri). HÉR ENDAR ÚRTAKA Í ÞEIM STRÆÐUM SEM EFTIR ERU. Þegar berustykkið mælist 18-19-20-21-22 cm endar líka úrtaka á ermum. Nú eru 116-168 l á prjóni. Skiptið yfir á hringprjóna nr 5,5 og prjónið 1 umf slétt JAFNFRAMT er fellt af jafnt yfir til 96-104-112-120-120 l. Prjónið 1 umf brugðið. Prjónið nú 1 umf slétt JAFNFRAMT er aukið út um 40 l jafnt yfir 96-104-112-120-120 l. Prjónið 1 umf brugðið. Prjónið nú 1 umf slétt JAFNFRAMT er aukið út um 40 l jafnt yfir = 136-144-152-160-160 l. Prjónið stroff = 1 l sl / 1 l br í 7-8-8-9-9 cm. Haldið áfram með stroff = 2 l sl / 2 l br í 7-8-8-8-8 cm. Prjónið nú stroff í 8 cm þannig: Prjónið 3 l sl, * 4 l br, endurtakið frá *-*, endið á 4 l br og 1 l sl. Skiptið yfir á hringprjóna nr 7 og fellið af með sl yfir sl og br yfir br. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. Brjótið uppá neðstu 12 cm á hvorri ermi að réttu og saumið tölur svo að þær passi í hnappagötin. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #jackiesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 11 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 131-1
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.