Miranda skrifaði:
Jag hör strumporna i storlek 16/19 och har kommit till steget med solfjädermönstret men jag förstår inte första varvet och det med att hoppa över ca 1 till 3 maskor, jag har ju 34 maskor på varvet, och det går inte att få så att jag har 10 luftmaskbågar för då är där flera tomma maskor, menar ni att man kan variera antalet maskor emellan eller ska man ha samma avstånd på alla?
10.04.2024 - 19:46DROPS Design svaraði:
Hei Miranda. Du skriver str. 16/19, mener du da str. 6/9 (fotlängd 10 cm)? Om du har 34 masker må du hoppe over 2 masker, men et par ganger må det hoppes over 3 masker ( i andre str. hoppes over annerledes, mellom 1 - 3 masker). mvh DROPS Design
15.04.2024 - 09:06
Marielle skrifaði:
Jag hittar inte hur många luftmassor jag ska lägga upp.
20.03.2021 - 14:55DROPS Design svaraði:
Hei Marielle. Slik står det i oppskriften: TOFFEL: LÄS VIRKINFO och börja med sulan. Virka 14-16-19 (25-28) lm (inkl 1 lm till att vända med) med virknål nr 3 med Baby Merino. mvh DROPS design
22.03.2021 - 15:36
Hélène Sand Pedersen skrifaði:
Bonjour, Je suis en train de crocheter le premier chausson et rencontre un problème à l'étape du point éventails. Après le tour 1, j'ai bien 10 arceaux, mais après le tour 2, je n'ai pas 5 cinq éventails, seulement 4. Il est écrit : "4B - 2 ml - 4B dans l'arceau suivant - 1B dans l'arceau suivant" ; il faut donc crocheter dans 3 arceaux en tout, c'est ça ? Mais dans ce cas, c'est logique que je n'ai pas 5 éventails puisque 10/5=2 arceaux. Merci d'avance.
16.04.2019 - 14:25DROPS Design svaraði:
Bonjour Hélène. Dans le premier arceau, vous crochetez 4 B + 2 ml + 4 B , dans l'arceau suivant 1 B; puis encore 4 B + 2 ml + 4 B (troisième arceau) et 1 B dans l’arceau suivant (quatrième) et ainsi sur tous le 10 arceaux. De cette façon, à la fin du tour 2, vous aurez 5 éventails. Bon crochet!
16.04.2019 - 19:24
Ildiko skrifaði:
I would like to get some tip on how to make the sole of these booties non-slippery. I prepared them and they are utterly loved by my little one, but they are quite slippery (worked with yarn Flora). Thank you!
16.01.2019 - 14:12DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Ilkido, please contact the store where you bought the yarn - even per mail or telephone - they may have tipps for you. Happy crocheting!
17.01.2019 - 08:31
Desiree De Lange skrifaði:
In patroon babydrops 19-9 slofjes vraag over waaierpatroon: Toer 1: *3 L, sla ongeveer 1 to 3 st over, Wat wordt met dat laatste bedoeld? Dat begrijp ik niet
28.12.2016 - 13:21DROPS Design svaraði:
Hoi Desiree. Dat je 1 tot 3 steken moet overslaan - het is een beetje inschatten wat het mooiste valt.
02.01.2017 - 12:03
Marte skrifaði:
Hvordan hekler jeg hvis jeg skal ha størrelse 1/3? Hvordan leser jeg oppskriften da?
03.03.2015 - 08:19DROPS Design svaraði:
Hei Marte. Saa hekler du den mindste str = förste tal i beskrivelsen med flere antal. F.eks: Hekle 14 lm (inkl 1 lm til å snu med) på nål 3 med Baby Merino. Første rad hekles slik: 1 fm i 2.lm fra nålen, 1 fm i hver av de neste 12 lm = 13 fm, snu arb. Osv. God fornöjelse.
03.03.2015 - 13:56
Melanie Jahrstorfer skrifaði:
Hallo Zusammen, versuche gerade verzweifelt den BAbyschuh Baby Drops 19-9 zu häkeln leider versteh ich die Anleitung für die Sohle nicht. Gibt es da eine Videoanleitung? Mfg jahrstorfer
02.02.2015 - 15:30DROPS Design svaraði:
Die 1.R besteht aus festen M. In der nächsten R nehmen Sie am Anfang und am Ende der R je 2 M zu, indem Sie in die 1. fM und die letzte M nicht 1 fM, sondern je 3 fM häkeln, Sie stechen also 3x in die 1. M und 3x in die letzte M ein. Dann häkeln Sie ohne Zunahmen fM hin und zurück, so lange, bis nur noch 1 R fehlt, um eine Gesamthöhe von 3-4-4 (4,5-5) cm ab Anschlag zu erreichen. Nun nehmen Sie am Anfang und am Ende der nächsten R jeweils 2 fM ab, dafür häkeln Sie die ersten 2 fM zusammen, dann… unten geht's weiter!
04.02.2015 - 18:47
Jahrstorfer skrifaði:
Hallo zusammen, verstehe leider des mit der Sohle nicht gibt es da vllt eine Videoanleitung? mfg jahrstorfer
02.02.2015 - 15:28DROPS Design svaraði:
Fortsetzung: ... häkeln Sie die nächsten 2 fM zusammen, häkeln die R so weit, bis noch 4 fM übrig sind, diese häkeln Sie auch wieder paarweise zusammen (also jeweils 2 fM zu 1 fM zusammenhäkeln). Dann häkeln Sie eine Stäbchen-Runde um das ganze Stück, das Sie bisher gehäkelt haben, Sie häkeln also nicht mehr in Hin- und Rück-R weiter, sondern rundum, wie in der Anleitung beschrieben.
04.02.2015 - 18:50
Basia skrifaði:
Mam nadzieje ze po polsku będzie badziej jasne. kiedy można sie spodziewac tłumaczenia? pozdrawiam
01.05.2014 - 13:25Basia skrifaði:
Ale dziwnie rozpisany ten wzór. pół dnia musiałam rozszyfrowywac o co autorowi chodziło. a wszystko rozjasnił by jakiś schemat i pisanie wprost. pozdrawiam
15.04.2014 - 15:29DROPS Design svaraði:
Czy tłumaczenie na polski coś pomoże w tej chwili? Pozdrawiam
15.04.2014 - 18:30
Sweet Buttercup Socks#sweetbuttercupsocks |
|
|
|
Heklaðar tátiljur fyrir börn með sólfjaðramynstri úr DROPS BabyMerino
DROPS Baby 19-9 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun á hverri umferð sem er hekluð fram og til baka með fastalykkjum er fyrsta fastalykkjan skipt út fyrir 1 loftlykkju og umferðin endar með 1 fastalykkju í loftlykkju í byrjun á fyrri umferð. Í byrjun á hverri umferð sem er hekluð í hring með fastalykkju er fyrstu fastalykkju skipt út fyrir 1 loftlykkju og umferðin endar með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju í byrjun á umferð. Í byrjun á hverri umferð með stuðli er fyrsta stuðli skipt út fyrir 3 loftlykkjur og í lok umferðar er hekluð 1 keðjulykkja í þriðju loftlykkju frá byrjun á umferð. Heklið í hverja lykkju (ekki á milli). LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 fastalykkju/stuðul með því að hekla 2 fastalykkjur/stuðla þannig: Heklið 1 fastalykkju/stuðul, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 lykkjur á heklunálinni), heklið síðan næstu fastalykkju/stuðul, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni – nú hefur fækkað um 1 fastalykkju/stuðul. HEKLLEIÐBEININGAR: Í umferð eftir að stuðull á tátilju hafa verið heklaðir saman 2 og 2 verður að hekla aðeins fast framan á tátiljunni, þ.e.a.s. að herða aðeins á þræðinum á milli hverra stuðla sem eru heklaðir. Þetta er gert svona til að miðju stykkið framan á tátiljunni verði ekki of laust. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TÁTILJUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Byrjað er á að hekla sólann. TÁTILJA: SJÁ HEKLLEIÐBEININGAR og byrjið með sóla. Heklið 14-16-19 (25-28) loftlykkjur (meðtalin 1 loftlykkja til að snúa við með) með heklunál 3 með BabyMerino. Fyrsta umferðin er hekluð þannig: 1 fastalykkja í aðra loftlykkju frá heklunálinni, 1 fastalykkja í hverja af næstu 12-14-17 (23-26) loftlykkjum = 13-15-18 (24-27) fastalykkja, snúið stykkinu. Heklið síðan 1 fastalykkju í hverja fastalykkju frá fyrri umferð JAFNFRAMT er aukið út um 2 fastalykkjur í byrjun og í lokin á fyrstu umferð með því að hekla 3 fastalykkjur í fyrstu og síðustu fastalykkju í umferð = 17-19-22 (28-31) fastalykkjur. Heklið fastalykkjur fram og til baka þar til 1 umferð er eftir áður en stykkið mælist 3-4-4 (4½-5) cm. Fækkið síðan um 2 fastalykkjur í hvorri hlið – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA = 13-15-18 (24-27) fastalykkjur í umferð. ATH! Í lok umferðar þegar eftir eru 4 fastalykkjur þá eru síðustu fastalykkjurnar heklaðar saman 2 og 2. Stykkið mælist ca 3-4-4 (4½-5) cm. Klippið frá og festið enda. Heklið síðan sóla þannig: UMFERÐ 1: Byrjið við miðju að aftan (= mitt á annarri skammhliðinni), heklið 1 fastalykkju í fyrstu lykkju, 3 loftlykkjur (= 1 stuðull), heklið 1-2-2 (3-3) stuðul fram að horni, 2 stuðlar í hornið, 1 stuðull í hverja af 13-15-18 (24-27) fastalykkjurm meðfram hlið, 2 stuðlar í hornið 4-6-6 (8-8) stuðlar meðfram skammhlið (= tá), 2 stuðlar í hornið, 13-15-18 (24-27) stuðlar meðfram hlið, 2 stuðlar í hornið og 2-3-3 (4-4) stuðlar meðfram skammhlið að miðju að aftan, endið með 1 keðjulykkju í þriðju loftlykkju í byrjun á umferð = 42-50-56 (72-78) stuðlar. NÆSTA UMFERÐ Í STÆRÐ 2 ÁRA + 3/4 ÁRA (þessi umferð er ekki hekluð í hinum stærðunum): Heklið 1 umferð með 1 stuðli í hvern stuðul. NÆSTA UMFERÐ ER HEKLUÐ SVONA Í ÖLLUM STÆRÐUM: Heklið 1 stuðul í hvern stuðul, en fækkið um 1 stuðul í hvoru 2 hornunum framan á tá – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA = 40-48-54 (70-76) stuðlar. HEKLIÐ SÍÐAN SVONA FRÁ MIÐJU AÐ AFTAN (heklið 1 loftlykkju í hverja lykkju frá fyrri umferð): UMFERÐ 1: 14-17-20 (27-30) fastalykkjur, 1 hálfur stuðull, heklið 2 stuðla saman – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA, 6-8-8 (10-10) stuðlar, heklið 2 stuðla saman, 1 hálfur stuðull og 14-17-20 (27-30) fastalykkjur = 38-46-52 (68-74) lykkjur. UMFERÐ 2: 13-16-19 (26-29) fastalykkjur, 1 hálfur stuðull, heklið 2 stuðla saman, 6-8-8 (10-10) stuðlar, heklið 2 stuðla saman, 1 hálfur stuðull og 13-16-19 (26-29) fastalykkjur = 36-44-50 (66-72) lykkjur. UMFERÐ 3: 12-15-18 (25-28) fastalykkjur, 1 hálfur stuðull, heklið 2 stuðla saman, 6-8-8 (10-10) stuðlar, heklið 2 stuðla saman, 1 hálfur stuðull og 12-15-18 (25-28) fastalykkjur = 34-42-48 (64-70) lykkjur. UMFERÐ 4 Í STÆRÐ 2 ÁRA + 3/4 ÁRA (þessi umferð er ekki hekluð í hinum stærðunum): (24-27) fastalykkjur, 1 hálfur stuðull, heklið 2 stuðla saman, (10-10) stuðlar, heklið 2 stuðla saman, 1 hálfur stuðull og (24-27) fastalykkjur = (62-68) lykkjur. UMFERÐ 5 Í STÆRÐ 3/4 ÁRA (þessi umferð er ekki hekluð í hinum stærðunum): (26) fastalykkjur, 1 hálfur stuðull, heklið 2 stuðla saman, (10) stuðlar, heklið 2 stuðla saman, 1 hálfur stuðull og (26) fastalykkjur = (66) fastalykkjur. NÆSTA UMFERÐ ER HEKLUÐ SVONA Í ÖLLUM STÆRÐUM: 11-14-17 (23-25) fastalykkjur, 1 hálfur stuðull, heklið 10-12-12 (14-14) næstu stuðla saman 2 og 2, 1 hálfur stuðull og 11-14-17 (23-25) fastalykkjur = 29-36-42 (55-59) lykkjur. NÆSTA UMFERÐ ER HEKLUÐ SVONA Í ÖLLUM STÆRÐUM! SJÁ HEKLLEIÐBEININGAR! 9-12-15 (21-23) fastalykkjur, 1 hálfur stuðull, heklið 2 stuðla saman, 5-6-6 (7-7) stuðlar, heklið 2 stuðla saman, 1 hálfur stuðull og 9-12-15 (21-23) fastalykkjur = 27-34-40 (53-57) lykkjur. NÆSTA UMFERÐ ER HEKLUÐ SVONA Í STÆRÐ 2 ÁRA + + 3/4 ÁRA (þessi umferð er ekki hekluð í hinum stærðunum): (20-22) fastalykkjur, 1 hálfur stuðull, heklið stuðla saman, (7-7) stuðlar, heklið 2 stuðla saman, 1 hálfur stuðull og (20-22) fastalykkjur = (51-55) lykkjur. ALLAR STÆRÐIR: = 27-34-40 (51-55) lykkjur. Heklið 2-2-3 (3-4) umferðir með 1 stuðul í hvern stuðul JAFNFRAMT sem í umferð 1 er fækkað um 1-0-0 (7-3) stuðla jafnt yfir – SJÁ ÚRTAKA = 26-34-40 (44-52) stuðlar. SÓLFJAÐRAMYNSTUR: Heklið kant með sólfjaðramynstri efst á stroffi þannig: UMFERÐ 1: 1 keðjulykkja í fyrstu lykkju, * 3 loftlykkjur, hoppið yfir ca 1 til 3 lykkjur, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn og endið með 3 loftlykkjur og 1 keðjulykkju í keðjulykkju í byrjun á umferð þannig að það verða 10-10-10 (12-12) loftlykkjubogar. UMFERÐ 2: Heklið keðjulykkju að miðju á fyrsta loftlykkjuboga, 3 loftlykkjur, * 4 stuðlar + 2 loftlykkjur + 4 stuðlar um næsta loftlykkjuboga, 1 stuðull um næsta loftlykkjuboga *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn og endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð = 5-5-5 (6-6) sólfjaðrir. UMFERÐ 3: 3 loftlykkjur, * 4 stuðlar + 2 loftlykkjur + 4 stuðlar mitt í stuðlahóp (þ.e.a.s. um loftlykkjuboga efst á sólfjöður), 1 stuðull í næsta stuðul frá fyrri umferð (þ.e.a.s. í stuðul á milli sólfjaðra) *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn og endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð, klippið frá og festið enda. Heklið aðra tátilju á sama hátt. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sweetbuttercupsocks eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 9 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 19-9
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.