DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3696.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Sweet Buttercup

Sett með heklaðri peysu fyrir börn með laskalínu og húfu með sólfjaðramynstri úr DROPS BabyMerino

DROPS Baby 19-8
DROPS design: Mynstur nr BM-010-by-BM-011-by
Garnflokkur A
--------------------------------------------------------
PEYSA:
Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4) ára
Stærð í cm: 50/56- 62/68- 74/88 (86/92-98/104)
Efni:
DROPS BABY MERINO frá Garnstudio
150-150-150 (150-200) g nr 02, natur

DROPS HEKLUNÁL NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 20 stuðlar og 12 umferðir verði 10 x 10 cm.
DROPS PERLUTALA nr 521: 5-5-5 (6-6) st.

HÚFA:
Höfuðmál:
40/42 - 44/46 - 46/48 (48/52) cm
Efni:
DROPS BABY MERINO frá Garnstudio
50 g í allar stærðir nr 02, natur

DROPS HEKLUNÁL NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 1 sólfjöður mælist 3 cm á breidd.
--------------------------------------------------------

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3696.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

PEYSA:

HEKLLEIÐBEININGAR (á við um berustykki og ermar):
Í byrjun á hverri umferð er 1. stuðli skipt út fyrir 3 loftlykkjur og hver umferð endar með 1 stuðli í 3. loftlykkju frá byrjun á fyrri umferð.

ÚTAUKNING-1 (á við um laskalínu):
Aukið út fyrir laskalínu á 8 stöðum í umferð, þ.e.a.s. hvoru megin við öll 4 prjónamerkin.
AUKIÐ ÚT UM 4 STUÐLA VIÐ HVERT PRJÓNAMERKI ÞANNIG:
Byrjið 3. stuðlum á undan prjónamerki og heklið 2 stuðla í þennan stuðul, 2 stuðla í næsta stuðul, 1 stuðul í hvern og einn af 2 næstu stuðlum (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 stuðla), 2 stuðlar í næsta stuðul og 2 stuðlar í næsta stuðul (= 16 stuðlar fleiri í umferð).
AUKIÐ ÚT UM 2 STUÐLA VIÐ HVERT PRJÓNAMERKI ÞANNIG:
Byrjið í 2. stuðli á undan prjónamerki og heklið 2 stuðla í þennan stuðul, 1 stuðul í hvorn af 2 næstu stuðlum (prjónamerki situr mitt á milli þessa 2 stuðla), 2 stuðla í næsta stuðul (= 8 stuðlar fleiri í umferð).

ÚTAUKNING-2:
Aukið út um 1 stuðul með því að hekla 2 stuðla í 1 stuðul.

ÚRTAKA (á við um ermi):
Í byrjun á umferð er fækkað um 1 stuðul með því að skipta út 1. stuðli með 1 keðjulykkju. Í lok umferð er fækkað um 1 stuðul með því að hekla stuðla eins og áður þar til 1 stuðull er eftir í umferð, snúið stykkinu og heklið síðan eins og áður með 1 stuðli í hvern stuðul.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum á hægri kant að framan.
1 HNAPPAGAT = skiptið út þriðja stuðli frá miðju að framan með 1 loftlykkju. Í næstu umferð er heklaður 1 stuðull um þessa loftlykkju.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
STÆRÐ 1/3 MÁN: 2, 7, 12, 17 og 22 cm.
STÆRÐ 6/9 MÁN: 2, 8, 13, 19 og 24 cm.
STÆRÐ 12/18 MÁN: 2, 8, 14, 20 og 26 cm.
STÆRÐ 2 ÁRA: 2, 7, 12, 17, 22 og 27 cm.
STÆRÐ 3/4 ÁRA: 2, 8, 13, 19, 24 og 30 cm.
--------------------------------------------------------

PEYSA:
Stykkið er heklað með stuðlum ofan frá og niður þar til stykkið skiptist við ermar og fram- og bakstykki. Síðan eru ermarnar heklaðar ofan frá og niður. Heklið síðan fram- og bakstykki fram og til baka frá miðju að framan með sólfjaðramynstri til loka.

BERUSTYKKI:
Heklið 66-71-71 (76-76) LAUSAR loftlykkjur með heklunál 3,5 með Baby Merino.
UMFERÐ 1 (= ranga): Heklið 1 stuðul í 4. Loftlykkju frá heklunálinni, * hoppið yfir 1 loftlykkju, 1 stuðull í hverja af næstu 3 loftlykkjum *, endurtakið frá *-* þar til eftir eru 2-3-3 (4-4) loftlykkjur, hoppið yfir 1 loftlykkju og heklið 1 stuðul í hverja af 1-2-2 (3-3) síðustu loftlykkjum = 48-52-52 (56-56) stuðlar í umferð (meðtaldir 4 stuðlar í hvorri hlið við miðju að framan fyrir kant að framan), snúið stykkinu.
Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið þannig (frá réttu):
STÆRÐ 1/3 MÁN: Prjónamerki á milli 11. og 12. stuðuls (= prjónamerki A), á milli 17. og 18. stuðuls (= prjónamerki B), á milli 31. og 32. stuðuls (= prjónamerki C) og á milli 37. og 38. stuðuls (= prjónamerki D).
STÆRÐ 6/9 MÁN + 12/18 MÁN: Prjónamerki á milli 12. og 13. stuðuls (= prjónamerki A), á milli 18. og 19. stuðuls (= prjónamerki B), á milli 34. og 35. stuðuls (= prjónamerki C) og á milli 40. og 41. stuðuls (= prjónamerki D).
STÆRÐ 2 ÁRA + 3/4 ÁRA: Prjónamerki á milli 13. og 14. stuðuls (= prjónamerki A), á milli 19. og 20. stuðuls (= prjónamerki B), á milli 37. og 38. Stuðuls (= prjónamerki C) og á milli 43. og 44. stuðuls (= prjónamerki D).

Látið prjónamerkin síðan fylgja með niður í stykkinu.
Heklið síðan þannig – sjá HEKLLEIÐBEININGAR og ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Heklið stuðul með 1 stuðul í hvern stuðul – JAFNFRAMT í umferð 1 er aukið út um 4 stuðla fyrir laskalínu við hvert prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-1! Endurtakið útaukningu í hverri umferð alls 4-5-7 (8-10) sinnum – munið eftir HNAPPAGAT á hægri kant að framan. Aukið síðan út um 2 stuðla við hvert prjónamerki í hverri umferð alls 6-6-5 (5-4) sinnum = 160-180-204 (224-248) stuðlar í umferð. Nú hafa verið heklaðar alls 11-12-13 (14-15) umferðir og stykkið mælist ca 11-12-13 (14-15) cm frá öxl og niður (stykkið á nú að mælast ca 9-10-11 (12-13) cm frá hálsi og niður). Klippið frá.

ERMI:
Héðan er ermin mæld! Heklið stuðul með 1 stuðli í hvern stuðul fram og til baka yfir 34-38-44 (48-54) stuðla á milli prjónamerkis A og B. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 3 cm er fækkað um 1 stuðul í hvorri hlið – sjá ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku í hvorri hlið með 3-4-2 (2-2) cm millibili alls 3-3-6 (7-10) sinnum = 28-32-32 (34-34) stuðlar. Haldið áfram með 1 stuðli í hvern stuðul. Þegar ermin mælist 12-14-15 (20-24) cm er hekluð blúnda með sólfjöðrum þannig:
UMFERÐ 1: * 2 loftlykkjur, hoppið yfir ca 1 til 3 lykkjur, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* þar til það verða 11-11-11 (13-13) loftlykkjubogar.
UMFERÐ 2: Heklið keðjulykkju í miðju á fyrsta loftlykkjuboga, 3 loftlykkjur, * 4 stuðlar + 2 loftlykkjur +
Stuðlar um næsta loftlykkjuboga, 1 stuðull um næsta loftlykkjuboga *, endurtakið frá *-* út umferðina, snúið stykkinu.
UMFERÐ 3: 3 loftlykkjur, * 4 stuðlar + 2 loftlykkjur + 4 stuðlar mitt í stuðlahóp (þ.e.a.s. um loftlykkjuboga efst á sólfjöður), 1 stuðull í stuðul frá fyrri umferð *, endurtakið frá *-*, snúið stykkinu.
Endurtakið 3. umferð 1 sinni til viðbótar, klippið frá og heklið aðra ermi alveg eins á milli prjónamerkis C og D.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Heklið nú sólfjaðramynstur fram og til baka frá miðju að framan þannig:
UMFERÐ 1: Heklið 1 stuðul í hvern og einn af 25-28-31 (34-37) stuðlum á vinstra framstykki fram að prjónamerki A JAFNFRAMT er aukið út um 4-4-5 (5-6) stuðla jafnt yfir (ekki yfir kant að framan) – sjá ÚTAUKNING-2 = 29-32-36 (39-43) stuðlar, heklið 1 stuðul í hvern og einn af 42-48-54 (60-66) stuðlum á bakstykki frá prjónamerki B að prjónamerki C JAFNFRAMT er aukið út um 8-8-10 (10-12) stuðla jafnt yfir = 50-56-64 (70-78) stuðlar og heklið að lokum 1 stuðul í hvern og einn af 25-28-31 (34-37) stuðlum á hægra framstykki frá prjónamerki D JAFNFRAMT er aukið út um 4-4-5 (5-6) stuðla jafnt yfir = 29-32-36 (39-43) stuðlar = 108-120-136 (148-164) stuðlar í umferð, snúið stykkinu.

UMFERÐ 2: 3 loftlykkjur, 1 stuðull í hvern og einn af 3 næstu stuðlum (= kantur að framan), 3 loftlykkjur, hoppið yfir 2 stuðla, * 1 fastalykkja í næsta stuðul, 3 loftlykkjur, hoppið yfir ca 2 stuðla (á þeim stað sem verður að hoppa yfir 3 stuðla) *, endurtakið frá *-* þannig að það verða 30-34-38 (42-46) loftlykkjubogar og það eru eftir 6 eða 7 stuðlar, heklið 3 loftlykkjur og endið með 1 stuðli í hvern og einn af 4 síðustu stuðlum (= kantur að framan), snúið stykkinu. Nú eru 31-35-39 (43-47) loftlykkjubogar með 4 stuðlum í hvorri hlið við kant að framan, snúið stykkinu.

UMFERÐ 3: 3 loftlykkjur, 1 stuðull í hvern og einn af 3 næstu stuðlum, hoppið yfir fyrsta loftlykkjubogann, * 4 stuðlar + 2 loftlykkjur + 4 stuðlar um næsta loftlykkjuboga, 1 stuðull um næsta loftlykkjuboga *, endurtakið frá *-* þar til 2 loftlykkjubogar eru eftir, heklið 4 stuðla + 2 loftlykkjur + 4 stuðlar í næsta loftlykkjuboga og endið með 1 stuðli í hvern og einn af 4 stuðlum á kanti að framan = 15-17-19 (21-23) sólfjaðrir með 4 stuðlum í hvorri hlið við miðju að framan fyrir kant að framan, snúið stykkinu.

UMFERÐ 4: 3 loftlykkjur, 1 stuðull í hvern og einn af 3 næstu stuðlum, * 4 stuðlar + 2 loftlykkjur + 4 stuðlar mitt í næsta stuðlahóp (þ.e.a.s. um loftlykkjuboga efst á sólfjöður), 1 stuðull í stuðul frá fyrri umferð *, endurtakið frá *-* þar tl 1 stuðlahópur er eftir, 4 stuðlar + 2 loftlykkjur + 4 stuðlar mitt í þessum stuðlahóp og endið með 1 stuðli í hvern og einn af 4 stuðlum á kanti að framan, snúið stykkinu. Endurtakið umferð 4 þar til stykkið mælist ca 21-23-24 (26-28) cm.

NÆSTA UMFERÐ ER HEKLUÐ ÞANNIG:
4 loftlykkjur, 1 tvíbrugðinn stuðull í hvern og einn af 3 næstu stuðlum, * 4 tvíbrugðnir stuðlar + 2 loftlykkjur + 4 tvíbrugðnir stuðlar mitt í næsta stuðlahóp, 1 tvíbrugðinn stuðull í stuðul frá fyrri umferð *, endurtakið frá *-* þar til 1 stuðlahópur er eftir, 4 tvíbrugðnir stuðlar + 2 loftlykkjur + 4 tvíbrugðnir stuðlar mitt í þennan stuðlahóp og endið með 1 tvíbrugðnum stuðli í hvern og einn af þeim 4 stuðlum á kanti að framan, snúið við.
Endurtakið þessa umferð þar til stykkið mælist ca 26-28-31 (33-36) cm frá öxl og niður. Klippið frá og festið enda.

HEKLAÐUR KANTUR:
Heklið kant í lokin með heklunál 3,5 með Baby Merino þannig – byrjið neðst á hægra framstykki, heklið meðfram framstykki, í kringum háls, aftan í hnakka, haldið áfram meðfram hálsi og niður meðfram vinstra framstykki: 1 fastalykkja í fyrstu lykkju, * 3 loftlykkjur, hoppið yfir ca 1 cm, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-*.

FRÁGANGUR:
Saumið ermasauma og blúndu á ermum saman kant í kant með smáu fínu spori. Saumið tölur í.
--------------------------------------------------------

HÚFA:

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í byrjun á umferð með fastalykkjum er 1. fastalykkju skipt út fyrir 1 loftlykkju og hver umferð endar með 1 keðjulykkju í loftlykkju í byrjun á umferð.
---------------------------------------------------------

HÚFA:
Húfan er hekluð ofan frá og niður.
Heklið 4 loftlykkjur með heklunál 3,5 með Baby Merino og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju.
UMFERÐ 1: Heklið 6 fastalykkjur um hringinn - SJÁ HEKLLEIÐBEININGAR.
UMFERÐ 2-4: 1 fastalykkja í hverja fastalykkju = 6 fastalykkjur.
UMFERÐ 5: 2 fastalykkjur í hverja fastalykkju = 12 fastalykkjur.
UMFERÐ 6: 2 fastalykkjur í hverja fastalykkju = 24 fastalykkjur.
UMFERÐ 7: * 1 fastalykkja í fyrstu fastalykkju, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 36 fastalykkjur.
UMFERÐ 8: * 1 fastalykkja í hverja og eina af 2 fyrstu fastalykkjum, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 48 fastalykkjur.
UMFERÐ 9: * 1 fastalykkja í hverja og eina af 3 fyrstu fastalykkjum, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 60 fastalykkjur.
UMFERÐ 10: 3 loftlykkjur, * hoppið yfir 2 fastalykkjur (með jöfnu millibili er hoppað yfir 1 fastalykkju alls 6-12-18 (24) sinnum), 1 fastalykkja í næstu lykkju, 2 loftlykkjur *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn þannig að það verða 22-24-26 (28) loftlykkjubogar, endið með 1 keðjulykkju í 1. loftlykku í byrjun á umferð.
UMFERÐ 11: Heklið keðjulykkju að miðju á fyrsta loftlykkjuboga, 1 loftlykkja, * 2 stuðlar + 1 loftlykkja + 2 stuðlar um næsta loftlykkjuboga, 1 fastalykkja um næsta loftlykkjuboga *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn og endið með 2 stuðlum + 1 loftlykkju + 2 stuðla um síðasta loftlykkjuboga og 1 keðjulykkju í loftlykkju í byrjun á umferð = 11-12-13 (14) sólfjaðrir.
UMFERÐ 12-15: 3 loftlykkjur, * 3 stuðlar + 1 loftlykkja + 3 stuðlar mitt í næsta stuðlahóp (þ.e.a.s. um loftlykkjur efst í sólfjaðrakanti), 1 stuðull í fastalykkju/stuðul frá fyrri umferð *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn og endið með 3 stuðla + 1 loftlykkju + 3 stuðla mitt í síðasta stuðlahóp og 1 keðjulykkja í 3. loftlykkju í byrjun á umferð.
UMFERÐ 16: 3 loftlykkjur, * 3 stuðlar + 2 loftlykkjur + 3 stuðlar mitt í næsta stuðlahóp, 1 stuðull í stuðul frá fyrri umferð *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn og endið með 3 stuðla + 2 loftlykkjur + 3 stuðla mitt í síðasta stuðlahóp og 1 keðjulykkja í 3. loftlykkju í byrjun á umferð.
UMFERÐ 17: 3 loftlykkjur, * 4 stuðlar + 2 loftlykkjur + 4 stuðlar mitt næsta stuðlahóp, 1 stuðull í stuðul frá fyrri umferð *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn og endið með 4 stuðla + 2 loftlykkjur + 4 stuðla mitt í síðasta stuðlahóp og 1 keðjulykkja í 3. loftlykkju frá byrjun á fyrri umferð.
Endurtakið umferð 17 þar til húfan mælist ca 10-11-12 (13) cm frá miðju á höfði.
NÆSTA UMFERÐ ER HEKLUÐ ÞANNIG: 4 loftlykkjur, * 4 tvíbrugðnir stuðlar + 2 loftlykkjur + 4 tvíbrugðnir stuðlar mitt í næsta stuðlahóp, 1 tvíbrugðinn stuðull í stuðul frá fyrri umferð *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn og endið með 4 tvíbrugðnum stuðlum + 2 loftlykkjur + 4 tvíbrugðnum stuðlum mitt í síðasta stuðlahóp og 1 keðjulykkju í 4. loftlykkju í byrjun á umferð.
Endurtakið þessa umferð þar til húfan mælist ca 14-15-16 (18) cm frá miðju á höfði og niður. Klippið frá og festið enda.

Mynstur

diagram measurements
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Sweet Buttercup

Bianca Nägeli, Switzerland

Buttercup Jacket

gossycrafts, United States

Sweet Buttercup

JMFS, United States

Sweet Buttercup

Cupcake and Tea, Sweden

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 19-8

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (46)

country flag Bianca Nägeli wrote:

Ein einfaches und wunderschönes Muster! Vielen Dank für die genaue Anleitung, so macht Häkeln Spass!

12.04.2023 - 21:05

country flag Cayla Annie wrote:

Empiècements: rang 1, vous dites : , *sauter 1 ml, 1 B dans chacune des 3 ml suiv*, Doit-on fait une ml après la bride avant de sauter la ml ? Ce qui ferait : faire une B dans la 4ème ml à partir du crochet, faire 1 ml, sauter 1ml, 1B dans les 3ml suivantes. Ainsi on conserve les 68ml sinon on perd des m’l sur le rang Merci pour votre reponse

27.05.2022 - 19:13

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Cayla, comme la chaînette de base est souvent plus serrée que le 1er rang, on crochète volontairement davantage de mailles en l'air que l'on a besoin de brides au 1er rang, autrement dit, au 1er rang, sautez les mailles en l'air indiquée, sans les remplacer, vous avez ainsi entre 48 à 56 brides sur la chaînette de 66 à 76 mailles en l'air en fonction de la taille. Bon crochet!

30.05.2022 - 07:45

country flag Mireille MONIER wrote:

Bonjour je n'arrive pas à faire le rang 10 du bonnet impossible d'arriver à 26 arceau si je saute 6 fois uniquement 1 maille serrée. Pouvez vous m'aider merci. Sinon vos modèles sont magnifiques

25.04.2022 - 10:06

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Monier, il y avait malheureusement une erreur dans la correction de ce tour, vous devez en fait sauter 18 fois 1 maille serrée (au lieu de 6 en taille 12/18 mois), la correction est faite et le texte est juste désormais, merci pour votre retour. Bon crochet!

25.04.2022 - 12:10

country flag Ines Hannusch wrote:

Hallo IhrLieben, ich muss leider einigen Kommentatorinnen recht geben, dass die Anleitung gruselig ist. DieJacke ist zuckersüß und ich häkele wirklich schon sehr lange, fast alles Großprojekte wie Decken und auch ganz filigrane aufwendige Sachen aber so eine Anleitung hat mir noch nciht vorgelegen. gibt es die nicht besser, mit anschaulichen Skizzen zur Beschreibung ???

24.02.2022 - 14:22

country flag Ana Cecilia Ramirez wrote:

I bolen når man skal lage buer har jeg 158 masker om jeg deler det med tre så er det 51 buer men dere mener at det skal bli 30 buer. \r\nOgså hekler jeg for stramt, det ble ikke 1 cm pr rad.

02.02.2022 - 18:22

country flag Claudia wrote:

Wenn ich 2 Stb aufnehme wiederhole ich das doch 4 x und nicht 6x, ich hab doch nur 4 Markierungen? So eine süße Jacke aber diese Anleitung finde ich leider nicht so gut

06.12.2021 - 14:15

DROPS Design answered:

Liebe Claudia, es wird zuerst 4 Stb bei jeder Markierung 4 Mal zugenommen, dh 48 Stb + 4 x 16 Stb = 112 Stb; dann jeweils 2 Stb x 4 Markierung = jeweils 8 Stb x 6 = 48 Stb +112= 160 Stb. Kann das Ihnen helfen?

06.12.2021 - 15:33

country flag Claudia wrote:

Leider verstehe ich nicht ganz die Blende. Ich mache 3 Lm als Ersatz für das 1. Stb + 3 Stb in die 4. Lm von Reihe 1? Am Ende der Reihe 4 Stb in die 3. Lm der Vorrunde? Diese Stb werden dann mitgezählt? Da komme ich auf 52 Stb bei der kleinsten Größe. Sehr verwirrend das die Stb für die Blende nicht aufgeschrieben sind.

06.12.2021 - 14:10

DROPS Design answered:

Liebe Claudia, die Luftmaschenkette ist oft so fest, daß man hier mehr Luftmaschen (66) häkelt als man Stäbchen (48) braucht, so häkeln Sie: 1 Stb in das 4. Lm (= 2 Stb über 4 Lm), dann *1 Lm überspringen, 1 Stb in die je nächsten 3 Lm* x 15 (= 3 Stbx15 = 45Stb über 4x15=60 Lm), 1 lm überspringen, 1 Stb in die letzte Lm (= 1 Stb über 2 Lm) = 2+45+1=48 Stäbchen über 4+60+2=66 Lm. Viel Spaß beim häkeln!

06.12.2021 - 15:23

country flag Catarina wrote:

Kofta för strl 6/9 mån. Har följt era instruktioner men kommer fel hela tiden på varv 1. Om det första jag gör på varv 1 är att "virka 1 st i 4 lm från nålen, *hoppas över 1 lm, 1 st i varje av följande 3 lm*" etc så får jag stolpar i löpmaskorna från 6-8, 10-12... etc fram till 66-68. Jag fattar inte hur ni menar att jag ska ha 4 st i början och i slutet av varvet. Jag har INGEN i första lm och bara två i slutet. Hur ska man göra maska för maska ?

10.10.2021 - 01:50

country flag Isabelle Bock wrote:

Jeg søger som Susanne en opskalering af opskriften - men dame modellerne er klart for store til en 6 eller 9 årig (mine kandidater til jakken). Kan I hjælpe?

18.03.2021 - 17:36

country flag Carina wrote:

Hej! Har samma problem som "Gun Hansson 03.03.2017 - 17:11" skrev om till er. Men svaret från er till henne är ju jättekonstigt och hjälper inte alls. Problemet gäller första varvet med stolpar där det står att varvet slutar med 4 st i var sida. Det har ju ingenting att göra med vad som händer längre fram i arbetet. Det blir inte 4 st i var sida! Tacksam om ni kan ge ett bättre svar, helst på svenska !

10.04.2020 - 10:43

DROPS Design answered:

Hej Carina, jo du virkar st hela varvet ut och de 4 st (ut av de totalt 48-52-52-56-56st) i varje sida är framkanten!

29.04.2020 - 09:48