Carmen-Gabriela skrifaði:
Hallo:) Gibt es ein Video für die lockere Bommel/Pompon/Quaste? Mein Gebilde ist etwas eigenartig^ - Ich habe die Fäden serpentinenartig in die Hand gelegt, i.d. Mitte zus.gebunden, die Schlingenenden kann man durchschneiden. Nun ist es wie eine Schleife. Aber wie hochkant befestigen? - Ich möchte mir dieses TOP-MODELL nicht vermasseln.
11.09.2019 - 17:28DROPS Design svaraði:
Liebe Carmen-Gabriela, hier zeigen wir wie man einen Pompon macht, je mehr Garn Sie benutzen, desto dichter wird der Pompon, benutzen Sie etwas weniger Garn, um einen lockeren Pompon zu haben. Viel Spaß beim stricken!
12.09.2019 - 08:28Lada skrifaði:
Awesome! I just doubt it really requires 5 bolls of ESKIMO to knit this hat. Will see:-)
21.10.2015 - 10:32
Mirjam skrifaði:
Kul!
11.12.2013 - 13:30
Vero skrifaði:
Muss man nach den ersten 10 cm wirklich auf re und li jeweils eine Masche ABnehmen? Danke!
05.11.2012 - 16:17DROPS Design svaraði:
Hallo Vero, Sie haben völlig Recht, auf der einen Seite wird zugenommen Ich werde dies sofort korrigieren.
12.11.2012 - 18:33
DROPS Deutsch skrifaði:
Wir haben leider nicht die Möglichkeit Anleitungen umzuschreiben aber ich schicke Ihren Wunsch an das Designteam weiter.
16.01.2012 - 09:09
Lembke skrifaði:
Sehr geehrte Damen, ich habe eine große Bitte, ist es möglich mir für eine Teufelsmütze im Halbpatent eine Anleitung zu schicken. es geht um die Abnahme bzw. Zunahmestellen in einwandfreier Optik.Ich habe die Mützen vor 30Jahren gestrickt und leider die Musterlösüng verlegt.Bitte helfen sie mir. Danke
15.01.2012 - 18:47
Demma skrifaði:
Ohje ja malli olivat tosi ihania, mutta langa menekki ei pitänyt alkuunkaan paikkaansa. En tehnyt omaan pipooni tupsua, mutta silti minulta meni vain hitusen yli 100g lankaa. Tuskin tupsu kuitenkaan 150grammaa painaa... :( ?
20.10.2009 - 19:33
Jag skrifaði:
Den är såååå söt=)
04.10.2009 - 14:13
Anna skrifaði:
Påskkycklingens Återkomst :D
07.09.2009 - 15:20
Gillian skrifaði:
I am going to make the hat without the pom-pom to fit under the hood of my coat. Ideal for cold wintry nights walking home from work.
01.09.2009 - 21:59
Joust#joustset |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Settið samanstendur af: prjónuðu hálsskjóli með tölum og húfu úr DROPS Snow.
DROPS 117-25 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HÁLSSKJÓL: GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í hverri umf. HNAPPAGAT: Fellt er af fyrir 4-4-5 hnappagötum í hægri kanti að framan frá röngu: 1 hnappagat = Prjónið 2 l sl saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. STÆRÐ S/M – L/XL: Prjónið 2 l garðaprjón, 2 l br, fellið af fyrir hnappagati, prjónið 8-8 l í stroffi, fellið af fyrir hnappagati, prjónið 6-10 l í stroffi, fellið af fyrir hnappagati, prjónið 8-8 í stroffi, fellið af fyrir hnappagati og endið með 2 l br og 2 l garðaprjón. STÆRÐ XXL/XXXL: Prjónið 2 l garðaprjón, 2 l br, 2 l sl, * fellið af fyrir hnappagati, prjónið 6 l í stroffi *, endurtakið frá *-* alls 4 sinnum, fellið af fyrir 1 hnappagati, endið með 2 l sl, 2 l br og 2 l garðaprjón. ÚTAUKNING: Aukið er út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn (þ.e.a.s. prjónað er aftan í lykkjubogann), svo ekki myndist gat. ÖLDUMYNSTUR: Prjónið 1 mynstureiningu af öldumynstri = 24 umf. Aukið út í neðri kanti á stykki með því að prjóna 2 l í síðustu l, endurtakið í annarri hverri umf alls 6 sinnum, fellið síðan af með því að prjóna 2 síðustu l sl saman, endurtakið í annarri hverri umf alls 6 sinnum. STUTTAR UMFERÐIR: Prjónið stuttar umferðir, með byrjun frá réttu þannig: Prjónið 17-21-25 l, snúið við – sjá LEIÐBEININGAR að neðan og prjónið 17-21-25 l til baka, prjónið 21-25-29 l, snúið við og prjónið 21-25-29 l til baka, prjónið 2 umf yfir allar l *, endurtakið frá *-*. LEIÐBEININGAR: Fyrir hvert skipti sem snúið er við í miðju stykki er fyrsta l tekin óprjónuð eins og prjóna eigi hana sl, herðið á þræði og prjónið til baka, þetta er gert til þess að koma í veg fyrir göt í snúningunum. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÁLSSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað frá hlið. HÁLSSKJÓL: Fitjið upp 38-42-46 l á prjóna nr 7 með litnum púðurfjólublár Snow. Síðustu 2 l í umf (efst við hálsmál) er prjónuð með 2 þráðum til loka. Prjónið frá réttu þannig: Prjónið 2 l GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, stroff 2 l sl /2 l br þar til 4 l eru eftir, endið með 2 l sl, 2 l garðaprjón (með tvöföldum þræði). Þegar stroffið mælist 4 cm er prjónuð 1 umf brugðið frá röngu, JAFNFRAMT er fækkað um 8 l jafnt yfir umf = 30-34-38 l. Skiptið yfir á prjóna nr 8 og prjónið garðaprjón, prjónið nú STUTTAR UMFERÐIR og ÖLDUMYNSTUR með byrjun frá réttu – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist ca 36-38-40 cm efst á hálsskjóli – endið eftir 1 heila mynstureiningu bæði á stuttum umferðum og öldumynstri – skiptið yfir á prjóna nr 7. Prjónið 1 umf slétt frá réttu, JAFNFRAMT er aukið út um 8 l jafnt yfir í umf – LESIÐ ÚTAUKNING = 38-42-46 l. Prjónið nú frá röngu: Prjónið 2 l garðaprjón, stroff 2 l br / 2 l sl þar til 4 l eru eftir, endið með 2 l br og 2 l garðaprjón. Haldið áfram þar til stroffið mælist 2 cm. Í næstu umf, frá röngu fellið af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Haldið áfram með stroff 2 l sl / 2 l br með 2 l garðaprjón í hvorri hlið. Fellið af sl yfir sl og br yfir br þegar stroffið mælist 4 cm. Stykkið mælist ca 40-42-44 cm efst og 104-110-116 cm neðst. Saumið tölur í vinstra megin. ------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HÚFA: GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í hverri umf. ÚTAUKNING: Aukið er út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn innan við síðustu l. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt (þ.e.a.s. prjónað er aftan í lykkjubogann), svo ekki myndist gat. ÚRTAKA: Í byrjun umf: Takið fyrstu l óprjónaða, prjónið næstu l, steypið óprjónuðu l yfir. I lok umf: Takið næst síðustu l óprjónaða, prjónið síðustu l, steypið óprjónuðu l yfir. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA: Fitjið upp 25-26-27 l á prjóna nr 7 með litnum púðurfjólublár Snow og prjónið 6 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Haldið áfram í garðaprjón,JAFNFRAMT er aukið út og fellt af í annarri hverri umf (= hver umf frá réttu) – LESIÐ ÚTAUKNING og ÚRTAKA þannig: Aukið út um 1 l í hægri hlið og fækkið um 1 l í vinstri hlið í annarri hverri umf (= hver umf frá réttu) þar til stykkið mælist 9-10-11 cm. Fækkið um 1 l á hægri hlið og aukið út um 1 l í vinstri hlið í annarri hverri umf (= hver umf frá réttu) þar til stykkið mælist 18-20-22 cm. Aukið út um 1 l í hægri hlið og fækkið um 1 l í vinstri hlið í annarri hverri umf þar til stykkið mælist 22½-25-27½ cm (prjónuð hefur verið hálf húfan). Fækkið um 1 l í hægri hlið og aukið út um 1 l í vinstri hlið í annarri hverri umf þar til stykkið mælist 27-30-33 cm. Aukið út um 1 l í hægri hlið og fækkið um 1 l í vinstri hlið í annarri hverri umf þar til stykkið mælist 36-40-44 cm (prjónuð hefur verið hálf húfan). Fækkið um 1 l í hægri hlið og aukið út um 1 l í vinstri hlið í annarri hverri umf þar til stykkið mælist 45-50-55 cm. Fellið af. FRÁGANGUR: Fram = Sá hluti sem hefur 3 horn. Aftur = Sá hluti sem hefur 2 heil horn og 2 hálf horn. Saumið nú húfuna saman að aftan – sjá teikningu – þannig: Saumið kant í kant með því að sauma fyrra hálfa hornið saman við fyrri helming á fyrsta heila horninu. Saumið nú annað hálfa hornið á fyrsta heila hornið saman við fyrri helming á seinna heila horninu. Saumið nú annan helminginn af öðru heila horninu saman með síðasta hálfa horninu. Að lokum er húfan saumið fyrir miðju að aftan. HEKLAÐUR KANTUR: Heklið kant í kringum neðri kant á húfunni með litnum beige og heklunál nr 8 þannig: * 1 fl, 1 ll, hoppið fram ca 1 cm *, endurtakið frá *-* og endið með kl í fyrstu fl. DÚSKUR: Klippið 36 cm langan þráð í litnum beige (svo að dúskurinn fái lengd upp á ca 18 cm). Klippið eins marga þræði og þarf til að þeir fylli vel í lófaflötinn. Festið þræðina saman með því snúa þræði utan um miðju á þráðunum nokkrum sinnum. Hnýtið saman vel. Festið dúskinn efst á húfuna þannig að löngu þræðirnir falla niður yfir húfuna. Festið vel. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #joustset eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 22 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 117-25
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.