DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4950.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Chocolate Fudge

Settið samanstendur af: Prjónaðri húfu og axlarskjóli prjónað frá hlið með köðlum og garðaprjóni úr DROPS Snow.

DROPS 114-31
DROPS Design Mynstur nr EE-261
Garnflokkur E
--------------------------------------------------------

HÚFA:
Stærð: S/M - L/XL
Höfuðmál: ca 54 - 58 cm

Efni:
DROPS SNOW frá Garnstudio
150-150 gr litur nr 23, moldvarpa

DROPS PRJÓNAR NR 7 – eða þá stærð sem þarf til að 12 l og 24 umf með garðaprjóni verði 10 x 10 cm.

AXLARSKJÓL:
Stærð: S/M - L/XL - XXL/XXXL

Efni:
DROPS SNOW frá Garnstudio
400-400-450 gr litur nr 48, beige

DROPS HRINGPRJÓNAR NR 8 (80 cm) – eða þá stærð sem þarf til að 11 l og 22 umf með garðaprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS TALA NR 536: 5 stk.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4950.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HÚFA:

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu M.1. Mynsturteikningin sýnir mynstur séð frá réttu.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað frá hlið, fram og til baka. Tvær fyrstu lykkjur frá réttu eru prjónaðar með tveimur þráðum (til að kanturinn verði stífari) og GARÐAPRJÓN til loka – sjá útskýringu að ofan!

HÚFA:
Fitjið upp 38-42 lykkjur á prjóna nr 7 með Snow. Prjónið nú MYNSTUR frá réttu – sjá útskýringu að ofan: Prjónið 2 lykkjur garðaprjón, M.1 (= 14 lykkjur), 22-26 lykkjur garðaprjón. Haldið áfram með þetta mynstur JAFNFRAMT eru prjónaðar stuttar umferðir, fram og til baka, byrjið frá réttu þannig:
* Prjónið 2 umferðir yfir allar lykkjur,
2 umferðir yfir 36-40 lykkjur,
2 umferðir yfir 34-38 lykkjur,
2 umferðir yfir 31-35 lykkjur *, endurtakið frá *-*
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram þar til M.1 hefur verið prjónað 10-11 sinnum á hæðina, stykkið mælist ca 50-55 cm þar sem það er lengst. Fellið laust af í síðustu umferð í síðustu mynstureiningunni.

FRÁGANGUR:
Saumið saman uppfitjunarkantinn og affellingarkantinn kant í kant. Þræðið þráðinn í gegnum efstu lykkju í kanti á húfunni, herðið að og festið vel.

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

AXLARSKJÓL:

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu M.2. Mynsturteikningin sýnir mynstur séð frá réttu.

HNAPPAGAT:
Fellt er af fyrir hnappagati þegar stykkið mælist 2 cm á hæðina. Fellið af frá réttu þannig: Prjónið 7-7-7 l, fellið af 1 lykkju, * prjónið 8-9-10 lykkjur, fellið af 1 lykkju *, endurtakið frá *-* alls 4 sinnum, endið með að prjóna 3 lykkjur = 5 hnappagöt.
Fitjið upp nýjar lykkjur yfir þær sem felldar voru af í næstu umferð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

AXLARSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað frá hlið, fram og til baka á hringprjóna.

AXLARSKJÓL:
Fitjið upp 47-51-55 lykkjur á hringprjóna nr 8 með Snow. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – JAFNFRAMT eru prjónaðar 2 fyrstu lykkjur á prjóni (séð frá réttu) með tveimur þráðum til loka. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 2 cm er fellt af fyrir HNAPPAGAT í næstu umferð frá réttu – sjá útskýringu að ofan!
Þegar stykkið mælist 4 cm er aukið út í síðustu umferð í garðaprjóni frá röngu þannig:
Prjónið garðaprjón yfir 4 fyrstu lykkjur, aukið síðan út um 6 lykkjur jafnt yfir næstu 10 lykkjur í garðaprjóni, garðaprjón yfir næstu 17-21-25 lykkjur, aukið út um 6 lykkjur jafnt yfir næstu 10 lykkjur í garðaprjóni, endið á garðaprjóni = 59-63-67 l.
LESTU ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!
Haldið áfram með mynstur og stuttar umferðir frá réttu þannig:
Prjónið 2 lykkjur garðaprjón, 4 lykkjur brugðið (slétt frá röngu) M.2 (= 16 lykkjur), 2 lykkjur brugðið (slétt frá röngu), garðaprjón yfir næstu 15-19-23 lykkjur, M.2 (= 16 lykkjur), 4 lykkjur garðaprjón. JAFNFRAMT eru prjónaðar stuttar umferðir frá réttu þannig:
* Prjónið 1 umferð yfir allar lykkjur,
1 umferð yfir 20 lykkjur, snúið við,
1 umferð til baka yfir 20 lykkjur,
1 umferð yfir allar lykkjur,
2 umferðir yfir 37-41-45 lykkjur,
2 umferðir yfir 33-37-41 lykkjur,
2 umferðir yfir 29-33-37 lykkjur,
2 umferðir yfir allar lykkjur,
2 umferðir yfir 37-41-45 lykkjur,
2 umferðir yfir 33-37-41 lykkjur,
2 umferðir yfir 29-33-37 lykkjur *, endurtakið frá *-*.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram með mynstur.
Þegar stykkið mælist 128-148-168 cm mælt frá kanti að neðan (stillið af eftir heila mynstureiningu af M.2) prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið garðaprjón JAFNFRAMT er fækkað um 6 lykkjur jafnt yfir alla kaðla = 47-51-55 lykkjur. Haldið áfram að prjóna garðaprjón yfir allar lykkjur. Fellið af þegar kantur í garðaprjóni mælist 4 cm. Saumið tölur í stykkið.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = setjið 4 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, 4 lykkjur slétt, 4 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 4 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, 4 lykkjur slétt, 4 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 114-31

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (199)

country flag Marguerite wrote:

Bonjour, pouvez-vous me dire si un modèle de gants ou de moufles assorti existe. J'ai cherché, en vain. D'avance, merci beaucoup pour votre réponse. Bonne journée à vous.

20.11.2023 - 08:01

DROPS Design answered:

Bonjour Marguerite, nous avons une paire de manchettes que vous pourriez assortir avec ce modèle, découvrez-les ici. Bon tricot!

20.11.2023 - 11:32

country flag Marguerite wrote:

Depuis le temps que j'ai ce modèle dans mes classeurs, je l'ai enfin tricoté ! Il est simplement magnifique ! Très ingénieuse l'utilisation de rangs raccourcis (confondus dans les points mousse) pour basculer d'une torsade à une autre. Pour ma part, je n'ai fait ni augmentation ni boutonnière et ai directement commencé sur le rang de montage avec 63 mailles. A nouveau, merci beaucoup pour tous vos magnifiques modèles et votre site internet bien agréable. Avec beaucoup de douceur.

13.11.2023 - 14:10

country flag Christine Foiratier wrote:

Bonsoir J'ai réalisé cet ouvrage sans aucune difficulté, les explications sont claires et vos tutos très explicites. C'est un magnifique chauffe-épaule que je vais porter avec grand plaisir cet hiver au Canada. Tricotement votre !!!!

29.10.2023 - 19:07

country flag RAYMOND JOSS wrote:

I need help with understanding the short rows for the hat. When do I start the short rows. Is it on the very first row and exactly which stitch do I start with.

08.11.2022 - 02:26

DROPS Design answered:

Dear Mrs Joss, you will have to work the established pattern and short rows at the same time, start from the right side and work 2 rows over 2 sts, 2 rows over the first 36-40 sts (work the first 36-40 sts from RS, turn and work return row); 2 rows over 34-38 sts (work the first 34-38 sts from RS, turn and work return row), 2 rows over 31-35 sts (work the first 31-35 sts from RS, turn and work return row). Repeat these 8 rows - you will have worked 8 rows over the bottom stitches (including all stitches M.1), and only 2 rows over the top sts (towards the bottom of hat). Happy knitting!

08.11.2022 - 09:09

country flag Anne Merete Halvorsrød wrote:

Forstår ikke oppskrift EE-261. Hals. Er ferdig med knapphullet og har økt til 67 masker på vrangen . Har strikket 1 pinne mønster på retten . Men forstår ikke helt når de forkortende pinnene skal strikkes ? Skjønner at jeg snu og slikt , men fortset ikke hbirdsn mønster og begge flettene passer inn her ?

10.01.2022 - 20:50

country flag Martje wrote:

Ik heb jaren geleden de halswarmer gebreid. Nu in een andere kleur. Maar de dubbele steken komen nu bij de hals ipv onderaan. Moet meteen na opzetten mogelijk beginnen met dubbele draad?

01.12.2021 - 14:45

DROPS Design answered:

Dag Martje

Nee, de dubbele steken (dus de eerste 2 steken met dubbele draad komt aan de kant van de schouder. Je breit het werk heen en weer en als je op de foto kijkt is het begin van de naald op de rechter schouder en brei je eerst de knoopsgaten en dan brei je de voorkant richting de linker schouder.

09.12.2021 - 14:00

country flag Lisa wrote:

Bonsoir, Je n'ai pas compris vos explications ; commence t-on par tricoter la Torsade dès le début du rang avec le rang raccourci à la suite ou , La Torsade au début et le rang raccourci en fin de rang ? Les rangs raccourcis se faisant en fin de rangs me semble T-Il ? merci de votre reponse et patience pour une novice en Tricot

30.11.2021 - 19:12

DROPS Design answered:

Bonjour Lisa, je ne comprends pas bien votre question, c'est sans doute la raison.... j'essaie de reprendre: pour le bonnet, vous tricotez: 2 m point mousse, la torsade M.1 et 22-26 m point mousse. En même temps, vous tricotez les rangs raccourcis (on tourne à chaque fois après la torsade, donc la torsade va se tricoter tous les rangs). Vous commencez les rangs raccourcis sur l'endroit, donc vous tricoterez (la 1ère fois par ex) 1 rang sur l'endroit sur 36-40 m, tournez et tricotez toutes ces mailles sur l'envers (y compris la torsade) et ainsi de suite. En espérant que ce soit plus clair ainsi. Bon tricot!

01.12.2021 - 07:20

country flag Lisa wrote:

Bonjour, Les rangs raccourcis se Tricotent-Ils juste après la Torsade ( pour le bonnet) ou en fin de rang merci de votre réponse

27.11.2021 - 10:07

DROPS Design answered:

Bonjour Lisa, vu sur l'endroit, vous commencerez toujours par les 2 mailles point mousse + M.1 (= 16 mailles) car les rangs raccourcis se font après 36-40 m/ après 34-38 m et après 31-35 m. Bon tricot!

29.11.2021 - 08:45

country flag Lisa wrote:

Bonjour, Doit-OnTricoter Les Torsades à part ( end, env, end, env etc...) ceci en ne Tricotant pas le restant des mailles ou Bien commencer La Torsade Tout en Finissant le Rang à La Suite ? Merci De Votre Reponse

26.11.2021 - 13:12

DROPS Design answered:

Bonjour Lisa, je ne comprends pas bien votre question, en fonction du bonnet/chauffe-épaules, vous tricotez les rangs raccourcis sur le nombre de mailles indiqué et en même temps, vous tricotez le diagramme sur les mailles tricotées (si vous devez tricoter ces mailles dans le nombre de mailles à tricoter, alors suivez le diagramme comme indiqué - pour le chauffe-épaules, les 2 torsades cou/bas vont se tricoter à un rythme différent, car le nombre de rangs tricotés sur ces mailles est aussi différent. Bon tricot!

26.11.2021 - 15:52

country flag Angela wrote:

Bonjour, Je commence à Tricoter le Bonnet Drops avec la Torsade Horizontale, je le trouve superbe ; Une petite question : A partir de quel rang Tricote t-on le 1er rang raccourci, ça n'est pas précisé dans les explications Merci de votre reponse

20.11.2021 - 15:41

DROPS Design answered:

Bonjour Angela, vous tricotez les rangs raccourcis du bonnet dès le 1er rang, autrement dit, vous tricotez le rang 1 et 2 sur toutes les mailles (dans les différents points indiqués), puis tricotez ensuite les 36-40 premières mailles sur 2 rangs, les 34-38 m sur 2 rangs, les 31-35 premières mailles sur 2 rangs = 8 rangs en bas du bonnet mais 2 seulement en haut. et répétez ces 8 rangs ainsi. Bon tricot!

22.11.2021 - 07:49