Jozefien De Bruijn skrifaði:
Voor de kleinzoons wil ik de schacht iets hoger maken. Kan ik dan simpelweg wat steken meerderen steken vanaf de ribbelsteken ?
15.01.2014 - 13:29DROPS Design svaraði:
Hoi Jozefien. Je kan steken opnemen langs de rand van het slofje en vanaf hier de schacht breien. Let wel op de stekenverhouding voor/na het vilten zodat de schacht niet te klein wordt - maak eerst een proeflapje en vilt deze, dan weet je precies waar je aan toe bent.
15.01.2014 - 14:25
Anja Norn skrifaði:
Der står i opskriften at tåen skal trækkes sammen. Betyder det at man laver en ring der ikke skal syes sammen? Kryber garnet så meget i vaskemaskinen at hullet lukker sig helt?
12.01.2014 - 20:21DROPS Design svaraði:
Hej Anja. Du skal ikke sy sammen, men du traekker traaden gennem maskerne paa pinden, traekker godt sammen og haefter traaden. Hullen bliver mindre og skal nok forsvinde helt naar den bliver filtet i vaskemaskinen.
13.01.2014 - 11:18
Marie Danneels skrifaði:
Zopas 2 paar kinderslofjes gemaakt en gevilt voor de éérste maal ! Ze lijken exact op deze van de foto. Heel goed gelukt en plezant om de transformatie te zien ! Ik maak er alvast nog. Groeten aan alle DROPS liefhebbers !
01.04.2013 - 11:02DOYOCO skrifaði:
Buen dia. Los felicito en especial a la autora de estos hermosos patrones me encantan. quisiera pedirle un favor si pueden colocar esquemas para poder entender mejor. gracias por todo. Un abrazo
11.10.2011 - 01:10
Drops Design skrifaði:
Bonjour Fçoise, le schéma va être supprimé car il ne correspond effectivement pas au modèle, il faut simplement suivre les instructions. bon tricot !
26.05.2009 - 10:07
Fcoise skrifaði:
Bonjour, les explications ne correspondent pas au dessin ; Quand on arrive au point mousse faut-il faire des diminutions pour faire une symétrie par rapport au début ? Merci
19.05.2009 - 09:05
Daffodil Dancers#daffodildancersslippers |
|
![]() |
![]() |
Þæfðar tátiljur úr DROPS Snow. Stærð 26 til 44. Þema: Páskar.
DROPS Extra 0-546 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Aukið er út frá réttu með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, þ.e.a.s. prjónið í aftari lykkjubogann í stað fremri, svo ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TÁTILJUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka, frá tá og út að hæl, stykkið er síðan saumað saman fyrir miðju ofan á fæti. TÁTILJA: Fitjið upp 10-11-13-14-15-17 lykkjur með prjóna 6 með litnum gulur DROPS Snow (látið endann vera ca 50 cm langan, það á að nota hann til að sauma tátiljuna saman í lokin). Setjið eitt merki í 4-4-4-5-5-5 lykkjur og eitt merki í 7-8-10-10-11-13 lykkju. Prjónið sléttprjón – JAFNFRAMT sem aukið er út um 1 lykkju hvoru megin við bæði merkin – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING, endurtakið útaukningu í 2. hverri umferð alls 6 sinnum = 34-35-37-38-39-41 lykkjur. Munið að fylgja prjónfestunni. Prjónið þar til stykkið mælist 13-13-14-16-18-20 cm. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 8-8-8-10-10-10 lykkjur GARÐAPRJÓN – lesið leiðbeiningar að ofan, 18-19-21-18-19-21 lykkjur sléttprjón, 8-8-8-10-10-10 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 31-33-36-40-44-49 cm. Fellið af. FRÁGANGUR: Herðið á tánni og saumið sauminn fyrir miðju ofan á fæti innan við ½ lykkju fram að þar sem byrjað var á garðaprjóni. Brjótið tátiljuna saman tvöfalda og saumið saman við miðju að aftan kant í kant svo saumurinn verði ekki of þykkur. ÞÆFING: Verkið má þæfa í þvottavél eða þurrkara – lesið útskýringarnar hér að neðan. Munið: Síðar er stykkið þvegið eins og hver önnur ullarflík. Í ÞVOTTAVÉL: Þvottavélar þæfa mismunandi. Ef stykkið hefur þæfst of lítið skaltu bleyta það og prófa að þæfa það aftur. Ef stykkið hefur þæfst of mikið skaltu teygja stykkið í rétta stærð á meðan það er enn blautt GERIÐ ÞANNIG: Settu stykkið í þvottavélina, notaðu þvottakerfi sem tekur um 40 mínútur (ekki ullarþvottakerfi). Þvoðu við 40°C án forþvottar - sápa er valfrjáls. Eftir þvott skaltu móta stykkið á meðan það er enn blautt. Í ÞURRKARA: Að þæfa stykki í þurrkara gefur góða stjórn á því hversu mikið stykkið þæfist. Hægt er að opna þurrkarann á meðan á ferlinu stendur til að athuga stærð verksins. Ef stykkið hefur þæfst of lítið skaltu bleyta það og prófa að þæfa það aftur. Ef stykkið hefur þæfst of mikið skaltu teygja stykkið í rétta stærð á meðan það er enn blautt. GERIÐ ÞANNIG: Leggið stykkið allt í bleyti í vatn. Setjið stykkið síðan í þurrkara og byrjið að þurrka. Þurrkið þar til stykkið er í þeirri stærð sem óskað er eftir - athugið á meðan á ferlinu stendur. HEKLAÐ BLÓM: Heklið með heklunál 5 með DROPS Snow þannig: BLAÐ (heklað með litnum lime): Heklið 4 loftlykkjur og tengið þær í hring með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju. * Heklið 1 fastalykkju um hringinn, 4 loftlykkjur, 1 hálfur stuðull í fyrstu af 4 loftlykkjum, * endurtakið *-* 5 sinnum og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu af fastalykkjum í byrjun umferðar = 5 blöð. Klippið og festið þráðinn. BLÓM (heklað með litnum natur): Heklið 4 loftlykkjur. Heklið 2 stuðla í fyrstu loftlykkju, heklið síðan 1 keðjulykkju í sömu lykkju. Klippið þráðinn og festið blómið í miðju á blaði og saumið niður fyrir miðju á tátilju. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #daffodildancersslippers eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 9 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-546
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.