Pernilla skrifaði:
Precis en sådan här tröja har jag letat efter. Jag vill ha feminin skärning i midjan och vida ärmar (strutformade) nertill. Perfekt! Möjligen kunde halsringningen göras annorlunda.
15.01.2009 - 20:58
Lusi skrifaði:
Wunderbar leicht und sommerlich! Gefällt mir sehr gut!
12.01.2009 - 13:01
Outi skrifaði:
Lovely! Todella kaunis!
11.01.2009 - 18:23Nadine skrifaði:
J'adore ce modèle. Il est parfait et tellement féminin. C'est certain qu'il fera parti des modèles que je confectionnerai.
11.01.2009 - 14:10
Ilse skrifaði:
Sierlijk en elegant.
11.01.2009 - 10:58
Ilse skrifaði:
Sierlijk en elegant.
11.01.2009 - 10:58
Lisette skrifaði:
This is my absolute favourite. Love the shape of the sleeves and the lightness of the material. Can't wait to make (and wear) this one!
11.01.2009 - 10:22
Satin skrifaði:
Sehr schick & für den Sommer genau das Richtige!
10.01.2009 - 21:23
Elisabeth skrifaði:
Sød model og flot farve
10.01.2009 - 19:47
Elisabeth skrifaði:
Sød model og flot farve
10.01.2009 - 19:47
Avalon#avalonsweater |
|
|
|
Prjónuð peysa úr DROPS Kid-Silk með víðu stroffi á ermum og umferðum af DROPS Cotton Viscose eða DROPS Safran. Stærð XXXL.
DROPS 113-13 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum. LEIÐBEININGAR: Byrjið alltaf í nýrri dokku í hlið á stykki þannig að gengið sé frá þráðum á hliðasaumum. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka. Lesið LEIÐBEININGAR! FRAMSTYKKI: Fitjið upp 86-92-98-106-114-122 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjóna nr 6 með Kid-Silk. Prjónið 2 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – og haldið síðan áfram í sléttprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist ca 16-17-18-19-20-21 cm (passið uppá að næsta umferð sé frá réttu) skiptið yfir í Cotton Viscose eða Safran. Prjónið 1 umferð slétt – JAFNFRAMT er fækkað um 12 lykkjur jafnt yfir = 74-80-86-94-102-110 lykkjur. Prjónið 3 umferðir slétt. Skiptið yfir í Kid-Silk, prjónið 1 umferð slétt frá réttu, næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 1 kantlykkja, * 2 lykkjur brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* og endið með 1 kantlykkju. Skiptið yfir í Cotton Viscose eða Safran, prjónið 4 umferðir slétt. Prjónið síðan til loka í sléttprjóni og Kid-Silk. Þegar stykkið mælist 37-38-39-40-41-42 cm fellið af lykkjur í hvorri hlið fyrir handveg. Fellið af í byrjun hverrar umferðar: 4 lykkjur 1-1-1-2-2-2 sinnum, 2 lykkjur 1-2-3-2-3-4 sinnum og 1 lykkja 2-2-2-3-4-5 sinnum = 58-60-62-64-66-68 lykkjur eftir á prjóni. Þegar stykkið mælist 46-48-50-52-54-56 cm setjið miðju 12-12-14-14-16-16 lykkjur við miðju að framan á þráð fyrir hálsmáli. Hvor hlið er nú prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af í byrjun umferðar frá hálsmáli: 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkja 3 sinnum = 16-17-17-18-18-19 lykkjur eftir á öxl. Fellið síðan af þegar stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm. BAKSTYKKI: Fitjið upp og prjónið á sama hátt og framstykki. Fellið af fyrir handveg eins og á framstykki og prjónið áfram þar til stykkið mælist 53-55-57-59-61-63 cm. Fellið af miðju 24-24-26-26-28-28 lykkjur fyrir hálsmáli og prjónið til loka hvora öxl fyrir sig. Í næstu umferð er felld af 1 lykkja við hálsmáli = 16-17-17-18-18-19 lykkjur eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm. STROFF: Prjónið tvö stroff hvor fyrir sig í mismunandi lengdum. Þau eru síðan lögð saman og prjónuð saman. STYKKI 1: Fitjið upp 80-82-84-86-88-90 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjóna nr 6 með Kid-Silk. Prjónið 2 umferðir garðaprjón, haldið áfram í sléttprjóni – JANFRAMT í 5. umferð er felld af 1 lykkja í hvorri hlið. Endurtakið úrtöku í 3. hverri umferð alls 18 sinnum = 44-46-48-50-52-54 lykkjur. Haldið síðan áfram að prjóna þar til stykkið mælist 28 cm. Geymið stykkið. STYKKI 2: Fitjið upp og prjónið eins og STYKKI 1 en nú er fellt af til skiptis í annarri hverri og 3. hverri umferð alls 18 sinum. Prjónið þar til stykkið mælist 23 cm. ERMI: Leggið STYKKI 2 á stroffi á STYKKI 1 (bæði stykkin með réttuna upp). Prjónið stykkin saman með Cotton Viscose eða Safran þannig: Prjónið fyrstu lykkju frá stykki 1 saman við fyrstu lykkju frá stykki 2. Prjónið síðan aðra lykkju frá stykki 1 saman við aðra lykkju frá stykki 2 o.s.frv. þar til allar lykkjur hafa verið prjónaðar = 44-46-48-50-52-54 lykkjur. Prjónið 3 umferðir slétt með Cotton Viscose eða Safran og prjónið síðan til loka í sléttprjóni og Kid-Silk. Þegar stykkið mælist 31 cm er aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið. Endurtakið útaukningu með 5-4-4-3-2-2 umferðir millibili alls 6-7-7-8-9-10 sinnum = 56-60-62-66-70-74 lykkjur. Þegar stykkið mælist 47-46-45-44-43-42 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna hærri ermakúpu og breiðari axla) fellið af fyrir ermakúpu í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið: 4 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkja 5-6-7-8-9-10 sinnum. Fellið síðan af 2 lykkjur á hvorri hlið þar til stykkið mælist 56 cm og fellið síðan af í lokin 3 lykkjur 1 sinni á hvorri hlið. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru. Stykkið mælist ca 57 cm. FRÁGANGUR: Saumið annan axlasauminn. HÁLSMÁL: Takið upp ca 74 til 84 lykkjur (meðtaldar lykkjur af þræði að framan) í kringum hálsmál á prjóna nr 6 með Kid-Silk. Prjónið 7 umferðir sléttprjón og fellið síðan LAUST af, hálsmál á að rúllast upp. Saumið hinn axlasauminn og upp meðfram hálsmáli. Saumið ermar í og saumið erma- og hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju – tvö lögin af stroffi á ermum eru saumuð hvort fyrir sig. SNÚRA: Heklið með Cotton Viscose eða Safran með heklunál nr 3,5 LAUST loftlykkjuband ca 150-160-170-180-190-200 cm, snúið og heklið 1 keðjulykkju í hverja loftlykkju til baka. Þræðið snúruna inn í gataumferð í mitti – byrjið við miðju að framan. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #avalonsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 19 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 113-13
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.