DROPS Super Sale - 30% AFSLÁTTUR á 6 garntegundum í allan júní!
Product image DROPS Fabel yarn
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 682.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4092.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS AW2425
DROPS Baby 17-16

#littlenuggetjacket

DROPS design: Modell nr FA-021-by
--------------------------------------------------------

Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4) ára
Stærð í cm: 50/56-62/68-74/80 (86/92-98/104)

Efni:
PEYSA:
DROPS FABEL frá Garnstudio
100-150-150 (200-200) gr litur nr 0100, natur
50-50-50 (50-50) gr litur nr 912, súkkulaði.
BUXUR:
100-100-150 (150-200) gr litur nr 912, súkkulaði.
SOKKAR:
50-50-50 (50-50) gr litur nr 0100, natur
+ 1 afgangur af lit nr 912, súkkulaði.

Eða notið
DROPS FLORA frá Garnstudio
PEYSA:
100-150-150 (200-200) gr litur nr 01, natur
50-50-50 (50-50) gr litur nr 08, brúnn.
BUXUR:
100-100-150 (150-200) gr litur nr 08, brúnn.
SOKKAR:
50-50-50 (50-50) gr litur nr 01, natur
+ 1 afgangur af lit nr 08, brúnn.

PEYSA:
DROPS PRJÓNAR nr 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 l og 32 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS TRÉTALA nr 513: 5-5-5 (6-6) stk.-

BUXUR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (40 cm) nr 2,5 – eða þá stærð sem þarf til að 26 l og 34 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.

SOKKAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR nr 2,5 – eða þá stærð sem þarf til að 26 l og 34 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 682.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4092.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

PERLUPRJÓN:
UMFERÐ 1: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-*.
UMFERÐ 2: Prjónið brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur og sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur.
Endurtakið umferð 2.

LEIÐBEININGAR ÚRTAKA – á við buxur
Fækkið um 3 l á undan prjónamerki: Prjónið 2 l slétt saman, 1 l sl.
Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki: 1 l sl, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir.

LEIÐBEININGAR ÚRTAKA 1- á við sokka:
Fækkið lykkjum á undan stroff lykkjum: 2 l slétt saman.
Fækkið lykkjum á eftir stroff lykkjum: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir.

LEIÐBEININGAR ÚRTAKA 2 – á við sokka:
Fækkið lykkjum á undan prjónamerki: 2 l slétt saman.
Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki:Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir.

HÆLÚRTAKA:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið þar til 6-7-7 (7-8) l eru eftir, takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið þar til 6-7-7 (7-8) l eru eftir, takið 1 l óprjónaða, 1 l br, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið þar til 5-6-6 (6-7) l eru eftir, takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið þar til 5-6-6 (6-7) l eru eftir, takið 1 l óprjónaða, 1 l br, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við.
Haldið áfram á sama hátt með því það fækki um 1 l áður en 1 l er steypt yfir þar til 8-10-10 (10-12) l eru eftir á prjóni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 60-66-74 (84-88) l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjóna nr 3 með litnum súkkulaði Fabel eða litnum brúnn Flora. Prjónið GARÐAPRJÓN í 4 cm – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir í litinn natur og haldið áfram þannig (umf 1 = rétta): 1 kantlykkja, 3 l sléttprjón, 6 l PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, sléttprjón þar til 10 l eru eftir, 6 l perluprjón, 3 l sléttprjón og 1 kantlykkja. Prjónið svona þar til stykkið mælist 17-18-21 (24-26) cm.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Fækkið um 3 l í hvorri hlið fyrir handveg = 54-60-68 (78-82) l. Prjónið síðan sléttprjón og 6 l perluprjón + 1 kantlykkju í hvorri hlið þar til stykkið mælist 22-24-28 (32-35) cm. Haldið áfram í sléttprjóni og 1 kantlykkju í hvorri hlið þar til stykkið mælist 25-27-31 (35-38) cm. Prjónið nú garðaprjón yfir allar l til loka – JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 26-28-32 (36-39) cm fellið af miðju 24-24-24 (28-28) l af fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Prjónið síðan 1 cm í garðaprjóni yfir 15-18-22 (25-27) l á hvorri öxl, fellið síðan af, stykkið mælist ca 27-29-33 (37-40) cm.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka.
Fitjið upp 18-21-25 (28-30) l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjóna nr 3 með litnum súkkulaði Fabel eða litnum brúnn Flora. Prjónið garðaprjón í 4 cm. Skiptið yfir í litinn natur, prjónið þannig (frá miðju að framan, umf 1 = rétta): 1 kantlykkju, 7-10-14 (17-19) l sléttprjón, 6 l perluprjón, 3 l sléttprjón og 1 kantlykkja. Þegar stykkið mælist 17-18-21 (24-26) cm fellið af 3 l frá hlið = 15-18-22 (25-27) l eftir á prjóni. Prjónið áfram í sléttprjóni og perluprjóni eins og áður þar til stykkið mælist 22-24-28 (32-35) cm. Haldið áfram í sléttprjóni og 1 kantlykkju í hvorri hlið þar til stykkið mælist 25-27-31 (35-38) cm. Prjónið nú garðaprjón yfir allar l þar til stykkið mælist 27-29-33 (37-40) cm, fellið af.

KANTUR AÐ FRAMAN:
Prjónið upp 65-69-79 (89-96) l innan við 1 kantlykkju við miðju að framan með litnum natur á prjóna nr 3. Prjónið perluprjón – JAFNFRAMT er lykkjum fækkað í hverri umf frá hálsmáli og niður: 4 l 1 sinni, 2 l 2 sinnum og 1 l 2-2-2 (4-4) sinnum = 55-59-69 (77-84) l. Þegar kantur að framan mælist 6-6-6 (7-7) cm er fellt af fyrir 5-5-5 (6-6) hnappagötum jafnt yfir – það efsta á að vera 1 cm frá toppi og það neðsta ca 3 cm frá neðri brún. 1 hnappagat = fellið af 2 l og fitjið upp í næstu umf 2 nýjar l yfir þær l sem felldar voru af.
Prjónið áfram þar til kanturinn að framan mælist 8-8-8 (9-9) cm, fellið af.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Prjónið á sama hátt og hægra framstykki, nema spegilmynd, þ.e.a.s. að á eftir garðaprjóni er prjónuð fyrsta umf þannig (frá hlið, umf 1 = rétta): 1 kantlykkja, 3 l sléttprjón, 6 l perluprjón, 7-10-14 (17-19) l sléttprjón og 1 kantlykkja. Fellið ekki af fyrir hnappagötum í vinstra framstykki.

ERMI:
Stykkið er prjónað fram og til baka.
Fitjið upp 33-35-39 (41-43) l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjóna nr 3 með litnum súkkulaði Fabel eða litnum brúnn Flora. Prjónið garðaprjón í 4 cm, skiptið yfir í litinn natur og haldið áfram í sléttprjóni. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 6 cm er aukið út um 1 l í hvorri hlið, endurtakið útaukningu í 5. hverri umf alls 8-9-10 (12-13) sinnum = 49-53-59 (65-69) l. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 17-19-21 (26-29) cm prjónið perluprjón yfir miðju 29-31-35 (39-41) l (aðrar lykkjur eru prjónaðar eins og áður). Fellið af þegar stykkið mælist 19-21-23 (28-31) cm.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma kant í kant svo að saumurinn verði ekki of þykkur.

HÁLSMÁL:
Prjónið upp ca 70 til 84 l í kringum hálsmál á prjóna nr 3 með litnum súkkulaði. Prjónið 3 umf slétt fram og til baka, fellið af.
Saumið ermar í, saumið erma- og hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju. Saumið tölur í.

-------------------------------------------------------

BUXUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Byrjað er á skálmum.

SKÁLM:
Fitjið laust upp 64-68-72 (76-80) l á sokkaprjóna nr 2,5 með litnum súkkulaði Fabel eða litnum brúnn Flora.
Setjið prjónamerki í byrjun umf = innan á skálm. Prjónið stroff = 2 l sl/2 l br í hring í 5 cm. Haldið áfram í sléttprjóni – JAFNFRAMT í fyrstu umf er fækkað um 8-8-10 (12-12) l jafnt yfir = 56-60-62 (64-68) l.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 8 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki. Endurtakið útaukningu í 3.-4.-6. (8.-10.) hverri umf 8 sinnum = 72-76-78 (80-84) l. Þegar stykkið mælist 16-20-23 (25-32) cm skiptist stykkið við innanverðu á skálm og stykkið er prjónað fram og til baka (þetta er gert til að það verði léttara að setja báðar skálmarnar á sama hringprjón). Fitjið upp 1 nýja l í hvorri fyrir saum = 74-78-80 (82-86) l. Þegar stykkið mælist 18-22-25 (29-34) cm fellið af 3 l í hvorri hlið = 68-72-74 (76-80) l.
Geymið stykkið og prjónið hina skálmina á sama hátt.

BUXUR:
Setjið inn skálmarnar á sama hringprjón nr 2,5 = 136-144-148 (152-160) l. Setjið eitt prjónamerki við miðju að framan. Prjónið síðan sléttprjón í hring – JAFNFRAMT er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerki, miðja að framan – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA – endurtakið úrtöku í annarri hverri umf alls 6 sinnum = 124-132-136 (140-148) l.
Þegar stykkið mælist 29-35-38 (43-50) cm er aukið út um 24-24-24 (28-28) l jafnt yfir = 148-156-160 (168-176) l. Prjónið síðan stroff = 2 l sl / 2 l br 7-7-8 (9-9) cm. Fellið síðan LAUST af með sl yfir sl og br yfir br. Buxurnar mælast ca 36-42-46 (52-59) cm.

FRÁGANGUR:
Saumið saman opið á innanverðu á hvorri skálm, innan við 1 kantlykkju. Saumið saman op í klofi.

-------------------------------------------------------

SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður að tá.

SOKKAR:
Fitjið upp 44-48-48 (52-56) l á sokkaprjóna nr 2,5 með litnum natur Fabel eða litnum natur Flora. Prjónið stroff = 2 l sl/2 l br í 7-8-9 (10-11) cm. Haldið eftir fyrstu 18-22-22 (22-26) l á prjóni fyrir hæl (hinar 26-26-26 (30-30) l eru settar á þráð = ofan á fæti). Prjónið sléttprjón yfir hællykkjur í 3-3½-4 (4-4½) cm – setjið eitt prjónamerki. Prjónið síðan HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan! Eftir það eru teknar upp 8-9-10 (11-12) l hvoru megin við hæl og l af þræði ofan á fæti eru settar til baka á prjóninn = 50-54-56 (62-66) l. Haldið áfram með stroff yfir 26-26-26 (30-30) l frá efri hlið á sokk og sléttprjón yfir þær l sem eftir eru. JAFNFRAMT er fækkað um 1 l hvoru megin við stroff lykkjur – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA 1 – í annarri hverri umf alls 5-7-6 (7-9) sinnum = 40-40-44 (48-48) l. Prjónið sl yfir sl og br yfir br, þar til sokkurinn mælist 7-8-9 (10-12) cm frá prjónamerki á hæl (nú eru eftir 3-3-3 (4-4) cm að loka máli). Setjið eitt prjónamerki í hvora hlið á sokknum, þ.e.a.s. að það verða 20-20-22 (24-24) l bæði ofan fæti og undir fæti. Skiptið yfir í litinn súkkulaði og haldið áfram í sléttprjóni yfir allar l – JAFNFRAMT er fækkað um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerki – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA 2: Fækkið lykkjum í annarri hverri umf 3 sinnum og síðan í hverri umf 5-5-6 (7-7) sinnum = 8 l eftir á prjóni.
Klippið frá og þræðið þráðinn gegnum þær l sem eftir eru.Sokkurinn mælist ca 10-11-12 (14-16) cm.

Prjónið annan sokk á sama hátt.

Mynstur

Diagram measurements for DROPS Baby 17-16
Diagram measurements for DROPS Baby 17-16
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!
Ertu búin að klára þetta mynstur?
Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #littlenuggetjacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery.

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 17-16

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (40)

country flag Sonja Beaton skrifaði:

BabyDROPS 17-16 by DROPS Design fra: DROPS hentesett. Jakke, bukse og sokker i ”Fabel”. Hei, jeg skal strikke denne dressen men finner ikke mønster til buksa. Har skrevet det ut to ganger, men mønster er ikke der.

17.02.2016 - 13:20

DROPS Design svaraði:

Hej Sonja. Saa vidt jeg kan se, saa staar opskriften her, mellem jakken og sokkerne.

17.02.2016 - 13:36

country flag Sonja Beaton skrifaði:

BabyDROPS 17-16 by DROPS Design fra: 138kr DROPS hentesett. Jakke, bukse og sokker i ”Fabel”. Jeg skal strikke denne dressen, men hvor er mønstret til buksa?? Skrev det ut to ganger, men mønstret er ikke med. Mvh Sonja

17.02.2016 - 13:16

country flag Inger Berg skrifaði:

Tusen takk for svaret. Da er det bare for meg å kjøpe garnet og sette i gang med å strikket dette sette. Skal strikke hentesett. Igjen tusen takk. Hilsen Inger.

28.05.2015 - 13:51

country flag Inger Berg skrifaði:

Jeg finner ikke diagrammet for mønsteretstrikken på buksa. Bildet viser ei bukse med flott mønsterstrikk. Hvor finner jeg dette. Hilsen Inger Berg.

27.05.2015 - 21:20

DROPS Design svaraði:

Hei Inger. Der er ikke noget mönster paa buksen. Det er garnet der sörger for "mönstret". Se DROPS Fabel her

28.05.2015 - 10:37

country flag Marjo Snaaijer skrifaði:

Goede middag, heel leuk patroon voor een baby! Kan alleen nergens in het patroon de kleurenschakering vinden. Broek begint met 5 cm chocolate en verder naturel breien, maar volgens foto is de broek gemeleerd. graag wil ik weten hoe nu te handelen, met vriendelijke groet. Marjo Snaaijer

14.09.2014 - 12:13

DROPS Design svaraði:

Hoi Marjo. Volgens het patroon en foto wordt de broek alleen met de kleur 912, soft chocolate gebreid. Er wordt hier niet met naturel gebreid. Door de print/kleurwisseling in het garen zelf zijn er wel stukken met naturel. Kijk op de Fabel kleurenoverzicht

17.09.2014 - 15:35

country flag Gitte skrifaði:

Kan det godt passe at bukser og jakke skal strikkes på to forskellige pinde 2.5 og 3? Da der på garnet er anvist pind 2.5?

30.07.2014 - 14:03

DROPS Design svaraði:

Hej Gitte. Ja, det er korrekt. Anvisningen på banderolen er standard, men der kan bruges andre pinde i et mønster afhængig af form, mønster og struktur. Husk at strikke en prøve først for at tjekke din strikkefasthed. God fornøjelse.

04.08.2014 - 15:57

country flag Jette skrifaði:

Vedr. jakken. Kan ikke forstå, at der ikke skal slås flere masker op? og der står man skal slå op med chokolade og strikke 4 cm retstrik, men der er jo ikke chokolade hele vejen rundt?

03.05.2014 - 22:55

DROPS Design svaraði:

Jo men forkanten strikker du på til sidst ifölge opskriften. God fornöjelse!

07.05.2014 - 10:35

country flag Ruth skrifaði:

The pattern says use sz 1 ndl or what gives you gauge I am using 3.00 for the pants cuff and using that would get the 26X34 st in st st. But the socks I made I used sz 1 just to see how they would look. My question is in the chart, what should the measurement in inches be for the cuff on the smallest size? I am terrible at getting gauge, and I hope don't want to mess this up.

25.03.2014 - 21:32

DROPS Design svaraði:

Dear Ruth, measurements in chart are given in cm, please click here to convert into inches. Happy knitting!

26.03.2014 - 09:52

country flag Jacqueline skrifaði:

I'm making the socks 1st size . I have 40 stitches now on needle after decrease. It says 18 s on needle 26 on holder. Should the 18 read 14?

22.11.2013 - 15:35

DROPS Design svaraði:

Dear Jacqueline, the sentence with dec (socks) should be deleted, after ribbing, just divide for heel/upper foot so that you get 18 sts for heel and 26 on holder. Happy knitting !

23.11.2013 - 10:02

country flag Monika Funk skrifaði:

Hallo liebes DROPS-Team, ich habe diese wünderschöne Strickvorlage entdeckt und würde sie gerne arbeiten. Leider fehlt in dieser Beschreibung das Muster-Diagramm. Ist es möglich diese zugesendet zu bekommen? Vielen Dank für Ihre Mühe. LG Monika Funk

03.02.2013 - 23:25

DROPS Design svaraði:

Lieeb Frau Funk, es gibt zu diesem Modell kein Muster-Diagramm, da sich das Muster der Hose aus dem Faden ergibt (Fabel Farbe 912). Das Muster der Jacke ist ein einfaches Perlmuster.

05.02.2013 - 15:24