Susanne Lindberg skrifaði:
Jag hittar inte diagram på mönstret till byxorna och nederkant på tröjan.
17.01.2021 - 14:17DROPS Design svaraði:
Hei Susanne. Det er ingen mønster til denne modellen, men et melert garn som gir den effekten. DROPS Fabel farge nr. 912, chocolate. mvh DROPS design
18.01.2021 - 15:11
Anki Alinder skrifaði:
Jag blir lite fundersam över varför byxmönster inte har en ökning för att göra byxan högre i bakstycket, "Förr i tiden" när mina nu vuxna barn var små gjorde man alltid byxan högre bak , Det gjorde att byxan satt uppe ordentligt i bak
30.06.2020 - 20:25
Alysha Durham skrifaði:
Is the bind off 3 stitches for the back piece before or after the edge stitch and moss stitches ?
26.06.2019 - 18:40DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Durham, you will cast off the first 3 stitches at the beginning of next 2 rows (= both from RS and from WS), ie you will cast off 1 edge st and 2 stitches in stocking stitch, then continue with 1 edge st, 6 sts in moss st, stocking st until 7 sts remain, 6 sts in moss st, 1 edge st. Happy knitting!
27.06.2019 - 08:32
DELATTRE MARIE PIERRE skrifaði:
Bonjour et merci pour votre réponse. C'est dommage que ce ne soit pas précisé car je pensais à un jacquard naturel/ brun. Si j'avais su je commandais Fabel. :( Merci pour vos modèles en tout cas.
29.04.2019 - 10:29
DELATTRE MARIE PIERRE skrifaði:
Bonjour. Je m'apprêtais à faire ce modèle mais je me rends compte que le diagramme ne figure pas dans les explications. De plus il apparaît 3 couleurs sur le modèle : écru et 2 tons de "chocolat" or il n'est indiqué que naturel et chocolat brun. J'ai la laine et je ne peux pas faire ce travail. Urgent. MERCI !!
27.04.2019 - 13:43DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Delattre, il n'y a pas de diagramme pour ce modèle, seulement le schéma des mesures du gilet et du pantalon (cf bas de page). On a besoin de 2 couleurs seulement, naturel (Flora ou Fabel) et si vous avez choisi brun, vous aurez un effet uni, si vous avez choisi Fabel, les différentes couleurs apparaîtront d'elles-mêmes au fur et à mesure (voir nuancier). Bon tricot!
29.04.2019 - 08:54
Elisabeth skrifaði:
Hei. Jeg har funnet denne dressen "Little Nugget" hvor det er en del mønster i fine brunfargen. MEN, mønsteret følger ikke med oppskriften. Jeg ønsker å begynne på dette strikketøyet denne helgen :-(
24.01.2018 - 14:05DROPS Design svaraði:
Hei Elisabeth. Om du bruker garnet som er oppgitt i oppskriften, DROPS Fabel farge nr 912, chocolate, så er dette et flerfarget nøste slik at du ikke trenger mønster. Klikk på Fargekart-linken og du vil se fargene bedre. God Fornøyelse!
25.01.2018 - 11:59
Annelies Rennert skrifaði:
Hallo, bin bei den Socken. Verstehe nicht das nach 4 cm, für meine Größe, ein Markierungsfaden eingezogen werden soll. Wo wird er eingezogen d n dann soll ja einmal vor dem Faden und nach dem Faden abgenommen werden. Wieviel Reihen, dann steht auf beiden Seiten der Ferse zunehmen. Bitte um Hilfe. Mfg. A. Rennert
13.03.2017 - 16:41DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Rennert, der Markierungsfaden wird zwischen den Maschen auf der Nadel eingesetzt, so daß Sie von Markierungsfaden messen können. Dann auf beiden Seiten der Fersen werden Sie Maschen auffassen. Siehe Video für solche Socken unten. Viel Spaß beim stricken!
14.03.2017 - 09:25
Annelies Rennert skrifaði:
Hallo, bin bei der Hose. Wenn ich auf beiden markierten Seiten 8x 1 Masche zugenommen habe, dann stricke ich für meine gewünschte Größe bis 20cm. Dann soll am markierungsfaden die Arbeit geteilt werden und hin und zurück fertig stricken. Ja wie weit stricken? Nur die hin und rückreihe und dann auf beiden Seiten 1 neue Masche anschlagen, oder? Danke Mfg. A. Rennert
25.02.2017 - 13:14DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Rennert, Sie stricken 2 cm (2. Größe) hin und zurück, dann sollen Sie 3 M auf beiden Seiten abketten. Viel Spaß beim stricken!
27.02.2017 - 09:40
Annelies Rennert skrifaði:
Nach den drei Maschen abnehmen für den Arm an den Rücken und an den Vorderteilen, wie stricke ich dann weiter. Es fehlen doch die drei glatten Maschen. Wenn ich drei glatte Maschen Stricke ve schiebt sich das perlmuster ode Stricke ich nur noch drei perlmuster. Etwas schlecht erklärt.
15.02.2017 - 10:43DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Rennert, wenn Sie die 3 M auf beiden Seiten abgekettet haben, dann stricken Sie dann glatt re mit 6 M Perlmuster (= die selben wie zuvor) und 1 Randm auf beiden Seiten. Viel Spaß beim stricken!
15.02.2017 - 12:31
Emma skrifaði:
Hur mycket garn går det åt om man vill sticka hela setet?
14.05.2016 - 21:09DROPS Design svaraði:
Hej Emma. 300 gram i mindste störrelse (100+50+100+50 gr)
17.05.2016 - 12:08
Little Nugget#littlenuggetjacket |
|
![]() |
![]() |
Sett með prjónaðri peysu, buxum og sokkum fyrir börn úr DROPS Fabel eða DROPS Flora
DROPS Baby 17-16 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. PERLUPRJÓN: UMFERÐ 1: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-*. UMFERÐ 2: Prjónið brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur og sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. Endurtakið umferð 2. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA – á við buxur Fækkið um 3 l á undan prjónamerki: Prjónið 2 l slétt saman, 1 l sl. Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki: 1 l sl, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA 1- á við sokka: Fækkið lykkjum á undan stroff lykkjum: 2 l slétt saman. Fækkið lykkjum á eftir stroff lykkjum: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA 2 – á við sokka: Fækkið lykkjum á undan prjónamerki: 2 l slétt saman. Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki:Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir. HÆLÚRTAKA: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið þar til 6-7-7 (7-8) l eru eftir, takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið þar til 6-7-7 (7-8) l eru eftir, takið 1 l óprjónaða, 1 l br, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið þar til 5-6-6 (6-7) l eru eftir, takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið þar til 5-6-6 (6-7) l eru eftir, takið 1 l óprjónaða, 1 l br, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við. Haldið áfram á sama hátt með því það fækki um 1 l áður en 1 l er steypt yfir þar til 8-10-10 (10-12) l eru eftir á prjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka. BAKSTYKKI: Fitjið upp 60-66-74 (84-88) l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjóna nr 3 með litnum súkkulaði Fabel eða litnum brúnn Flora. Prjónið GARÐAPRJÓN í 4 cm – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir í litinn natur og haldið áfram þannig (umf 1 = rétta): 1 kantlykkja, 3 l sléttprjón, 6 l PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, sléttprjón þar til 10 l eru eftir, 6 l perluprjón, 3 l sléttprjón og 1 kantlykkja. Prjónið svona þar til stykkið mælist 17-18-21 (24-26) cm. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Fækkið um 3 l í hvorri hlið fyrir handveg = 54-60-68 (78-82) l. Prjónið síðan sléttprjón og 6 l perluprjón + 1 kantlykkju í hvorri hlið þar til stykkið mælist 22-24-28 (32-35) cm. Haldið áfram í sléttprjóni og 1 kantlykkju í hvorri hlið þar til stykkið mælist 25-27-31 (35-38) cm. Prjónið nú garðaprjón yfir allar l til loka – JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 26-28-32 (36-39) cm fellið af miðju 24-24-24 (28-28) l af fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Prjónið síðan 1 cm í garðaprjóni yfir 15-18-22 (25-27) l á hvorri öxl, fellið síðan af, stykkið mælist ca 27-29-33 (37-40) cm. HÆGRA FRAMSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka. Fitjið upp 18-21-25 (28-30) l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjóna nr 3 með litnum súkkulaði Fabel eða litnum brúnn Flora. Prjónið garðaprjón í 4 cm. Skiptið yfir í litinn natur, prjónið þannig (frá miðju að framan, umf 1 = rétta): 1 kantlykkju, 7-10-14 (17-19) l sléttprjón, 6 l perluprjón, 3 l sléttprjón og 1 kantlykkja. Þegar stykkið mælist 17-18-21 (24-26) cm fellið af 3 l frá hlið = 15-18-22 (25-27) l eftir á prjóni. Prjónið áfram í sléttprjóni og perluprjóni eins og áður þar til stykkið mælist 22-24-28 (32-35) cm. Haldið áfram í sléttprjóni og 1 kantlykkju í hvorri hlið þar til stykkið mælist 25-27-31 (35-38) cm. Prjónið nú garðaprjón yfir allar l þar til stykkið mælist 27-29-33 (37-40) cm, fellið af. KANTUR AÐ FRAMAN: Prjónið upp 65-69-79 (89-96) l innan við 1 kantlykkju við miðju að framan með litnum natur á prjóna nr 3. Prjónið perluprjón – JAFNFRAMT er lykkjum fækkað í hverri umf frá hálsmáli og niður: 4 l 1 sinni, 2 l 2 sinnum og 1 l 2-2-2 (4-4) sinnum = 55-59-69 (77-84) l. Þegar kantur að framan mælist 6-6-6 (7-7) cm er fellt af fyrir 5-5-5 (6-6) hnappagötum jafnt yfir – það efsta á að vera 1 cm frá toppi og það neðsta ca 3 cm frá neðri brún. 1 hnappagat = fellið af 2 l og fitjið upp í næstu umf 2 nýjar l yfir þær l sem felldar voru af. Prjónið áfram þar til kanturinn að framan mælist 8-8-8 (9-9) cm, fellið af. VINSTRA FRAMSTYKKI: Prjónið á sama hátt og hægra framstykki, nema spegilmynd, þ.e.a.s. að á eftir garðaprjóni er prjónuð fyrsta umf þannig (frá hlið, umf 1 = rétta): 1 kantlykkja, 3 l sléttprjón, 6 l perluprjón, 7-10-14 (17-19) l sléttprjón og 1 kantlykkja. Fellið ekki af fyrir hnappagötum í vinstra framstykki. ERMI: Stykkið er prjónað fram og til baka. Fitjið upp 33-35-39 (41-43) l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjóna nr 3 með litnum súkkulaði Fabel eða litnum brúnn Flora. Prjónið garðaprjón í 4 cm, skiptið yfir í litinn natur og haldið áfram í sléttprjóni. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 6 cm er aukið út um 1 l í hvorri hlið, endurtakið útaukningu í 5. hverri umf alls 8-9-10 (12-13) sinnum = 49-53-59 (65-69) l. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 17-19-21 (26-29) cm prjónið perluprjón yfir miðju 29-31-35 (39-41) l (aðrar lykkjur eru prjónaðar eins og áður). Fellið af þegar stykkið mælist 19-21-23 (28-31) cm. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma kant í kant svo að saumurinn verði ekki of þykkur. HÁLSMÁL: Prjónið upp ca 70 til 84 l í kringum hálsmál á prjóna nr 3 með litnum súkkulaði. Prjónið 3 umf slétt fram og til baka, fellið af. Saumið ermar í, saumið erma- og hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju. Saumið tölur í. ------------------------------------------------------- BUXUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Byrjað er á skálmum. SKÁLM: Fitjið laust upp 64-68-72 (76-80) l á sokkaprjóna nr 2,5 með litnum súkkulaði Fabel eða litnum brúnn Flora. Setjið prjónamerki í byrjun umf = innan á skálm. Prjónið stroff = 2 l sl/2 l br í hring í 5 cm. Haldið áfram í sléttprjóni – JAFNFRAMT í fyrstu umf er fækkað um 8-8-10 (12-12) l jafnt yfir = 56-60-62 (64-68) l. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 8 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki. Endurtakið útaukningu í 3.-4.-6. (8.-10.) hverri umf 8 sinnum = 72-76-78 (80-84) l. Þegar stykkið mælist 16-20-23 (25-32) cm skiptist stykkið við innanverðu á skálm og stykkið er prjónað fram og til baka (þetta er gert til að það verði léttara að setja báðar skálmarnar á sama hringprjón). Fitjið upp 1 nýja l í hvorri fyrir saum = 74-78-80 (82-86) l. Þegar stykkið mælist 18-22-25 (29-34) cm fellið af 3 l í hvorri hlið = 68-72-74 (76-80) l. Geymið stykkið og prjónið hina skálmina á sama hátt. BUXUR: Setjið inn skálmarnar á sama hringprjón nr 2,5 = 136-144-148 (152-160) l. Setjið eitt prjónamerki við miðju að framan. Prjónið síðan sléttprjón í hring – JAFNFRAMT er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerki, miðja að framan – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA – endurtakið úrtöku í annarri hverri umf alls 6 sinnum = 124-132-136 (140-148) l. Þegar stykkið mælist 29-35-38 (43-50) cm er aukið út um 24-24-24 (28-28) l jafnt yfir = 148-156-160 (168-176) l. Prjónið síðan stroff = 2 l sl / 2 l br 7-7-8 (9-9) cm. Fellið síðan LAUST af með sl yfir sl og br yfir br. Buxurnar mælast ca 36-42-46 (52-59) cm. FRÁGANGUR: Saumið saman opið á innanverðu á hvorri skálm, innan við 1 kantlykkju. Saumið saman op í klofi. ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður að tá. SOKKAR: Fitjið upp 44-48-48 (52-56) l á sokkaprjóna nr 2,5 með litnum natur Fabel eða litnum natur Flora. Prjónið stroff = 2 l sl/2 l br í 7-8-9 (10-11) cm. Haldið eftir fyrstu 18-22-22 (22-26) l á prjóni fyrir hæl (hinar 26-26-26 (30-30) l eru settar á þráð = ofan á fæti). Prjónið sléttprjón yfir hællykkjur í 3-3½-4 (4-4½) cm – setjið eitt prjónamerki. Prjónið síðan HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan! Eftir það eru teknar upp 8-9-10 (11-12) l hvoru megin við hæl og l af þræði ofan á fæti eru settar til baka á prjóninn = 50-54-56 (62-66) l. Haldið áfram með stroff yfir 26-26-26 (30-30) l frá efri hlið á sokk og sléttprjón yfir þær l sem eftir eru. JAFNFRAMT er fækkað um 1 l hvoru megin við stroff lykkjur – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA 1 – í annarri hverri umf alls 5-7-6 (7-9) sinnum = 40-40-44 (48-48) l. Prjónið sl yfir sl og br yfir br, þar til sokkurinn mælist 7-8-9 (10-12) cm frá prjónamerki á hæl (nú eru eftir 3-3-3 (4-4) cm að loka máli). Setjið eitt prjónamerki í hvora hlið á sokknum, þ.e.a.s. að það verða 20-20-22 (24-24) l bæði ofan fæti og undir fæti. Skiptið yfir í litinn súkkulaði og haldið áfram í sléttprjóni yfir allar l – JAFNFRAMT er fækkað um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerki – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA 2: Fækkið lykkjum í annarri hverri umf 3 sinnum og síðan í hverri umf 5-5-6 (7-7) sinnum = 8 l eftir á prjóni. Klippið frá og þræðið þráðinn gegnum þær l sem eftir eru.Sokkurinn mælist ca 10-11-12 (14-16) cm. Prjónið annan sokk á sama hátt. |
|
![]() |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #littlenuggetjacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 16 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 17-16
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.