Snn-karin skrifaði:
Kjempefin bukse. Akkurat slik har jeg leita etter.
04.11.2008 - 18:35
Loulou skrifaði:
Fantaisie et gaieté des couleurs!
31.10.2008 - 16:30
Anita Wangen skrifaði:
Denne vil jeg strikke til gutten min : )
28.10.2008 - 21:53
Kalidou skrifaði:
J'ai voté pour la version fille mais j'aime aussi beaucoup la version garçon
27.10.2008 - 17:01
Wiktoria Merete skrifaði:
Perfekt variant av kjolen til gutt. Friske farger og artig idè. Håper denne kommer med i mønsterheftet!!
24.10.2008 - 05:12
RMargie Redmon skrifaði:
Gorgeous pattern, would leave legs open and put in snaps for diaper changes.
22.10.2008 - 23:25
Jelena skrifaði:
Bare nyderlig!!!
22.10.2008 - 22:28
Alvhild skrifaði:
Gutter skal også pynte seg av og til. Denne er like søt som kjolen, og kan også være et alternativ for de minste jentebabyene.
21.10.2008 - 21:39
Irma skrifaði:
Jammer dat er geen voetjes aan het pakje worden gebreid
18.10.2008 - 14:06
Jeannette skrifaði:
Jeg kan så ikke lide farverne, men modellen er flot, og jeg kan sagtens forestille mig at strikke den i nogle andre farver.
17.10.2008 - 23:36
Little Shepherd#littleshepherdoverall |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
Prjónaðar buxur á börn með eða án hnappagata á milli skálma úr DROPS Fabel og DROPS Alpaca.
DROPS Baby 16-23 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu M.1. Mynsturteikning sýnir eina einingu af mynstri. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. ATH: Þegar prjónað er með Fabel í M.1 höfum við notað appelsínugulu eininguna í dokkunni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA 1: Fækkið lykkjum hvoru megin við prjónamerki að framan. Þegar eftir eru 3 lykkjur á undan prjónamerki er prjónað þannig: 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA 2: Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum fyrir handveg innan við 2 lykkjur með því að prjóna 2 lykkjur slétt saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- BUXUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Prjónað er neðan frá og upp. SKÁLM (án hnappagata): Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjón. Fitjið upp 62-70-76 (84-86) lykkjur með Alpaca í litnum bensínblár á sokkaprjón 2,5. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – í 2 cm. Skiptið yfir í Fabel og haldið áfram í sléttprjóni. Setjið eitt prjónamerki í byrjun umferðar = innan á skálm. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 3-3-4 (4-5) cm aukið út um eina lykkju hvoru megin við prjónamerki í 4.-6.-6. (6.- 9.) hverri umferð alls 9-9-10 (10-10) sinnum = 80-88-96 (104-106) lykkjur. Þegar stykkið mælist 14-18-21 (23-30) cm skiptist stykkið við prjónamerki og prjónað er áfram fram og til baka (þetta er gert til að það verði einfaldara að setja skálmarnar inn á sama hringprjón í lokin). JAFNFRAMT eru fitjaðar upp nýjar lykkjur í hvorri hlið fyrir saum = 82-90-98 (106-108) lykkjur. Þegar stykkið mælist 16-20-23 (25-32) cm fellið af 3 lykkjur í hvorri hlið = 76-84-92 (100-102) lykkjur. Geymið stykkið og prjónið aðra skálm á sama hátt. SKÁLM (með hnappagötum): Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón. Fitjið upp 64-72-78 (86-88) lykkjur (meðtalin ein kantlykkja í hvorri hlið) með Alpaca í litnum bensínblár á hringprjón 2,5. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – í 2 cm. Skiptið yfir í Fabel, haldið áfram í sléttprjóni og eina kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 3-3-4 (4-5) cm aukið út um eina lykkju í hvorri hlið í 4.-6.-6. (6.-9.) hverri umferð alls 9-9-10 (10-10) sinnum = 82-90-98 (106-108) lykkjur. Þegar stykkið mælist 16-20-23 (25-32) cm fellið af 3 lykkjur í hvorri hlið = 76-84-92 (100-102) lykkjur. Geymið stykkið og prjónið aðra skálm á sama hátt. BUXUR: Setjið skálmarnar inn á sama hringprjón 2,5 = 152-168-184 (200-204) lykkjur. Setjið eitt prjónamerki við miðju að framan og eitt prjónamerki við miðju að aftan – umferðin byrjar við miðju að aftan. Prjónið síðan sléttprjón JAFNFRAMT því sem fækkað er um 2 lykkjur að framan – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA 1. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umferð alls 6 sinnum = 140-156-172 (188-192) lykkjur. Takið prjónamerkið frá að framan. Þegar stykkið mælist 30-37-45 (50-57) cm er prjónuð upphækkun að aftan þannig (byrjið við prjónamerki mitt að aftan): Prjónið 12 lykkjur, snúið stykkinu (til að koma í veg fyrir göt er fyrsta lykkjan tekin óprjónuð þegar prjónað er til baka og hert á þræðinum). Prjónið 24 lykkjur, snúið stykkinu. Haldið áfram að prjóna 12 lykkjur fleiri í hvert skipti sem snúið er við, 8-10-10 (12-12) sinnum til viðbótar. Prjónið síðan 1 umferð hringinn yfir allar lykkjur – JAFNFRAMT er fækkað um 14-12-10 (8-12) lykkjur jafnt yfir = 126-144-162 (180-180) lykkjur. Takið frá prjónamerkið að aftan. SETJIÐ NÚ EITT PRJÓNAMERKI Í HVORA HLIÐ ÞANNIG: STÆRÐ 1/3 MÁN: Setjið eitt prjónamerki mitt á milli 2 lykkja þannig að það verða 63 lykkjur á fram- og bakstykki. STÆRÐ 6/9 MÁN: Setjið eitt prjónamerki mitt í lykkju, þannig að það verða 71 lykkjur á fram- og bakstykki + 1 lykkja í hvorri hlið. STÆRÐ 12/18 MÁN: Setjið eitt prjónamerki mitt á milli 2 lykkja þannig að það verða 81 lykkjur á fram- og bakstykki. STÆRÐ 2 OG 3/4 ÁRA: Setjið eitt prjónamerki mitt í lykkju, þannig að það verða 89 lykkjur á fram- og bakstykki + 1 lykkja í hvorri hlið. ALLAR STÆRÐIR: Skiptið yfir í Alpaca í litnum bensínblár. Umferðin byrjar síðan við prjónamerki í annarri hliðinni. Prjónið 2 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir í Alpaca í litnum turkos, prjónið 2 umferðir garðaprjón. Prjónið síðan M.1 – stillið af að lykkjur merktar með ör komi við miðju að framan. Eftir M.1 er prjónað til loka með litnum turkos og garðaprjón – JAFNFRAMT í umferð 1 er fækkað um 6-6-6 (8-8) lykkjur jafnt yfir (fækkið um jafn margar lykkjur að framan og að aftan) = 120-138-156 (172-172) lykkjur. Þegar stykkið mælist 38-46-54 (59-67) cm (mælt við miðju að framan) fellið af 4-5-6 (7-7) lykkjur í hvorri hlið fyrir handveg = 56-64-72 (79-79) lykkjur eftir á fram- og bakstykki. Hvort stykki er prjónað til loka fyrir sig. FRAMSTYKKI: = 56-64-72 (79-79) lykkjur. Haldið áfram í garðaprjóni fram og til baka – JAFNFRAMT er fækkað um 1 lykkju í hvorri hlið fyrir handveg – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA 2. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umferð alls 8-9-9 (8-5) sinnum = 40-46-54 (63-69) lykkjur. Þegar stykkið mælist 43-52-60 (66-71) cm fellið af miðju 12-14-18 (21-23) lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fækkið síðan um 1 lykkju við hálsmál í annarri hverri umferð 5 sinnum – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA 2 = 9-11-13 (16-18) lykkjur eftir á öxl. Þegar stykkið mælist 48-57-66 (72-80) cm fellið af fyrir 2 hnappagötum á öxl þannig: Prjónið 1 lykkju, 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2-4-6 (9-11) lykkjur, 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur. Prjónið síðan 2 umferðir til viðbótar yfir allar lykkjur, fellið síðan af. BAKSTYKKI: = 56-64-72 (79-79) lykkjur. Fellið af fyrir handvegi eins og á framstykki = 40-46-54 (63-69) lykkjur. Haldið síðan áfram að prjóna þar til handvegur mælist 8-9-10 (11-11) cm. Í næstu umferð eru felldar af miðju 18-20-24 (27-29) lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fækkið síðan um 1 lykkju við hálsmál í annarri hverri umferð 2 sinnum – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2 = 9-11-13 (16-18) lykkjur eftir á öxl. Fellið af þegar handvegur mælist 11-12-13 (14-14) cm. FRÁGANGUR (án hnappagata á milli skálma): Saumið saman efst innan á hvorri skálm innan við kantlykkju. Saumið síðan saman op á milli skálma – framstykki að bakstykki. Saumið tölur í á öxlum. FRÁGANGUR (með hnappagötum á milli skálma): Kantur fyrir tölur á bakhlið á skálm. Takið upp 84-104-120 (130-166) lykkjur með Alpaca í litnum turkos á hringprjón 2,5 – byrjið neðst á vinstri skálm. Takið upp lykkjur meðfram allri skálminni og síðan meðfram hægri skálm. Prjónið 10 umferðir garðaprjón fram og til baka, fellið af. Kantur fyrir hnappagöt í framhlið á skálm: Takið upp 84-104-120 (130-166) lykkjur með Alpaca í litnum turkos á hringprjón 2,5 – byrjið neðst á hægri skálm. Takið upp lykkjur meðfram allri skálminni og síðan niður meðfram vinstri skálm. Prjónið 3 umferðir garðaprjón fram og til baka – í næstu umferð eru fellt af fyrir 10 hnappagötum jafnt yfir (5 hnappagöt í hvorri skálm). Eitt hnappagat = fellið af 2 lykkjur og fitjið upp 2 nýjar lykkjur yfir þær lykkjur sem felldar voru af í næstu umferð. Prjónið að auki 6 umferðir garðaprjón, fellið af. Saumið tölur í kant að aftan ásamt á öxlum. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #littleshepherdoverall eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 18 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 16-23
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.