DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 638.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS Baby 16-26
DROPS Design: Mynstur nr fa-018-by
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------

Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mánaða (2 – 3/4) ára
Lengd fótar: 10-11-12 (14-16) cm
Stærð fótar 15/17-18/19-20/21 (22/23-24/25)

Efni:
DROPS FABEL frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
50 gr fyrir allar stærðir litur nr 161, bleikur draumur

DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5 – eða þá stærð sem þarf til að 26 lykkjur og 34 umferðir með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 638.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HÆLÚRTAKA:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið þar til 6-7-7 (7-8) lykkjur eru eftir, lyftið 1 lykkju af prjóni, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir, snúið.
UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið þar til 6-7-7 (7-8) lykkjur eru eftir, lyftið 1 lykkju af prjóni, 1 lykkja brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir, snúið.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið þar til 5-6-6 (6-7) lykkjur eru eftir,
lyftið 1 lykkju af prjóni, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir, snúið.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið þar til 5-6-6 (6-7) lykkjur eru eftir, lyftið 1 lykkju af prjóni, 1 lykkja brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir, snúið.
Haldið áfram á sama hátt með því fækka um 1 lykkju áður en 1 lykkju er steypt yfir þar til 8-10-10 (10-12) lykkjur eru eftir á prjóni.

ÚRTAKA-1:
Fækkið lykkjum á undan stroffprjóni þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman.
Fækkið lykkjum á eftir stroffprjóni þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir.

ÚRTAKA-2
Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman.
Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Sokkarnir eru prjónaðir í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður að tá.

SOKKUR:
Fitjið upp 44-48-48 (52-56) lykkjur á sokkaprjóna nr 2,5 með DROPS Fabel.
Prjónið stroffprjón = 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur bruðgið í 7-8-9 (10-11) cm. Haldið eftir fyrstu 18-22-22 (22-26) lykkjum á prjóni fyrir hæl (setjið hinar 26-26-26 (30-30) lykkjur á þráð = ofan á fæti). Prjónið sléttprjón yfir hællykkjur í 3-3½-4 (4-4½) cm – setjið prjónamerki. Prjónið síðan HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan!
Takið síðan upp 8-9-10 (11-12) lykkjur sitt hvoru megin við hæl og setjið til baka lykkjur af þræði (= ofan á) fæti á prjóninn = 50-54-56 (62-66) lykkjur.
Haldið áfram í stroffprjóni yfir 26-26-26 (30-30) lykkjur ofan á fæti og sléttprjóni yfir þær lykkjur sem eftir eru. JAFNFRAMT er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við stoffprjónslykkjurnar – SJÁ ÚRTAKA-1 í annarri hverri umferð alls 5-7-6 (7-9) sinnum = 40-40-44 (48-48) lykkjur. Prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til sokkurinn mælist 7-8-9 (10-12) cm frá prjónamerki á hæl (nú eru eftir 3-3-3 (4-4) cm að loka máli).
Setjið prjónamerki í hvora hlið á sokknum, þ.e.a.s. að það verða 20-20-22 (24-24) lykkjur bæði ofan á fæti og undir fæti. Haldið áfram í sléttprjón yfir allar lykkjjur – JAFNFRAMT er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við hvort prjónamerki – SJÁ ÚRTAKA-2: Fækkið lykkjum í annarri hverri umferð 3 sinnum og síðan í hverri umferð 5-5-6 (7-7) sinnum = 8 lykkjur eftir á prjóni.
Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru. Sokkurinn mælist nú ca 10-11-12 (14-16) cm.

Prjónið annan sokk alveg eins.
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Tiny Toes

Stine, Norway

Baby sokker

Lona, Denmark

Tiny Toes

Sonja, Germany

Tiny Toes

Valgerður, Iceland

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 16-26

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (61)

country flag Madelene wrote:

These socks, knit to gauge are too wide in leg and foot. 44 sts for leg/40 sts for foot size 1- 3 months ..

15.12.2021 - 00:37

DROPS Design answered:

Dear Madelene, please check and keep the tension (26 sts = 10 cm); socks are then worked with rib K2/P2 and ribbing is tightening piece together and should fit perfectly. Happy knitting!

15.12.2021 - 08:21

country flag Lisa wrote:

Kanskje dumt spørsmål men er det ment at disse sokkene brukes rett på foten eller over en annen sokk?

16.08.2021 - 12:10

DROPS Design answered:

Hei Lisa. Det kan du gjøre akkurat som du ønsker. De sitter nok best på /lengst på om det er en sokk/strømpebukse under. mvh DROPS design

16.08.2021 - 14:32

country flag A Van Den Engel wrote:

Hoeveel garen is nodig voor. Een babytruitje voor 6 tot 9 maanden? Breien op nld nr. 3

02.07.2021 - 19:01

DROPS Design answered:

Dag A Van Den Engel,

Bij elk patroon staat aangegeven hoeveel garen je nodig hebt. Via deze link kun je een aantal voorbeelden vinden van babytruitjes, zodat je kunt kijken hoeveel garen je ongeveer nodig hebt.

05.07.2021 - 12:23

country flag Seona G wrote:

Hi there! I’m getting on well with the pattern, but am unsure how to measure the foot length from the marker. Should I be measuring from the back of the heel, ie where the heel flap finishes and the next part of the heel starts, or should I be measuring from where the heel ends and I begin picking up stitches for the foot section? Thanks in advance! I did place a marker before starting the heel decrease, but because I placed it on the first stitch, it has ended up in a strange place!

07.05.2021 - 19:12

DROPS Design answered:

Dear Seona, it is best if you put the marker in the middle of the stitches used for the heel, and measure from there. Or even better, if you try the piece on the intended user, and check the fool length to make sure it fits. Happy Knitting!

07.05.2021 - 22:47

country flag Carmen wrote:

Vad göra om man glömt göra hälmarkering?

11.02.2021 - 19:45

DROPS Design answered:

Hei Carmen. Prøv å finne ut hvor markering skal være ut i fra å lese oppskriften, slik at du får målt fra riktig sted. mvh DROPS design

15.02.2021 - 15:06

country flag Verena Raguse wrote:

Hallo ich würde diese Socken gerne in kleinster Größe mit Nadeln in Stärke 3.0 stricken. Mein Garn hat 50g - 150m. Wie viele Maschen nehme ich dann am besten auf und bleiben die einzelnen Strickschritte gleich? Zum Beispiel bei der Ferse, bis nur noch 6 Maschen übrig sind...ect...

13.01.2021 - 18:48

DROPS Design answered:

Liebe Frau Raguse, wenn Sie die richtige Maschenprobe nicht bekommen können, sollte die Anleitung komplett je nach Ihrer Maschenprobe umgerechnet werden (siehe hier). Vielleicht finden Sie das passende Modell aus alle unsere Sockmodellen für Baby herausfinden - filtern Sie die Resultate mit Ihrer Maschenprobe. Viel Spa beim stricken!

14.01.2021 - 07:24

country flag Hildegunn wrote:

Hvordan måler jeg lengden på foten før start av tåfelling? Skal strikke str 24/25. Dvs 12 cm før felling. Merket som skulle settes på hælen, settes vel i starten/ evt slutten av pinnen? Når jeg legger sokken flatt, blir merket mitt ca 1,5 cm inn på arbeidet siden markeringen på hælen er satt i starten av omgangen. Hvor måler jeg fra? Vis gjerne med et bilde hvis det er mulig.

26.03.2020 - 10:23

DROPS Design answered:

Hej Hildegunn, har du set vores video :)

How to knit the socks in DROPS Baby 16-26 from Garnstudio Drops design on Vimeo.

31.03.2020 - 10:04

country flag Erla wrote:

Längden på foten är det hela foten hälen inräknad . sticker strumpa ett årig står 9 cm ?

19.01.2020 - 17:57

DROPS Design answered:

Hej. Du mäter från markeringen på hälen så det blir hela foten inkl hälen. Mvh DROPS Design

29.01.2020 - 08:33

country flag Sally wrote:

Do you have a similar pattern on two needles.

07.12.2019 - 15:03

DROPS Design answered:

Dear Sally, these socks are worked on two needles - and can be worked with the same yarn = yarn group A; either DROPS Delight or DROPS Fabel. Happy knitting!

09.12.2019 - 08:38

country flag Cilja wrote:

Nu kom jag på vad jag gjorde fel....🙈Glömde hälavmaskningen...så nu stämmer det

05.03.2019 - 18:38