Elisabeth skrifaði:
Bitte welche drops wolle kann ich anstatt Fabel nehmen lg
11.04.2025 - 15:30DROPS Design svaraði:
Liebe Elisabeth, benutzen Sie den Garnumrechner um die Alternative sowie die passende Garnmenge zu finden. Viel Spaß beim Stricken!
11.04.2025 - 16:18
Gudrun-Louise Larsen skrifaði:
Jeg strikker denne i 12/18 mnd og er ferdig med borden oppe. Skal strikke glattstrikk i rødt til den er 42 cm men min er 46 cm nå. Er det bare å starte felling til arm hull ?
19.09.2024 - 10:57DROPS Design svaraði:
Hei Gudrun-Louise. Mulig strikkefastheten din ikke stemmer helt eller skjørtet er blitt litt lengre enn hva som står i oppskriften, men ja, start med felling til ermhull. Plagget vi bli litt lengre enn målene du da ser på målskissen. (vær obs på garnmengden når du har strikket den litt lengre, at du har nok garn). mvh DROPS Design
23.09.2024 - 09:56
Jenny De Jong skrifaði:
Waarom maakt Drops geen nieuwe patronen voor baby's en kinderen? Sommige patronen kunnen in deze tijd nog wel, maar andere patronen zijn echt te ouderwets! Ik heb een Kinderkledinggroep (haken en breien) op Facebook en ik heb zolangzamerhand alle patronen van Drops al in de groep gezet. Er is al jaren niets nieuws meer gekomen. Vriendelijke groeten, Jenny de Jong
25.08.2024 - 17:36DROPS Design svaraði:
Dag Jenny,
Garnstudio brengt regelmatig (bijna ieder jaar) collecties uit voor baby's en kinderen. De laatste kindercollectie is nr 48 en is in 2024 uitgekomen. De laatste babycollectie (46) is in 2023 uit gekomen.
28.08.2024 - 20:54
Kirsi Malmiharju skrifaði:
Miten saan tilattua Petite Heidi -ohjeen langat 2-vuotiaan kokoon?
05.04.2020 - 10:21DROPS Design svaraði:
Hei, voit tilata langat halutusta verkkokaupasta. Esim. Käsityöliike Menita, Tapion kauppa, Liljan lankakauppa ja Kippovalimo Böök, ovat liikkeitä, joilla on runsaat lankavalikoimat.
05.05.2020 - 14:33
Berit Alette Anthi skrifaði:
Det er jo blått også på bildet, jeg finner det ikke i oppskriften. Syns det er akkurat det som gjør kjolen spesiell
07.02.2019 - 20:16DROPS Design svaraði:
Hej Berit, det som er blåt er en del af Fabel farven 159. God fornøjelse!
08.02.2019 - 15:32
Mary skrifaði:
Gorgeous! I would certainly make this if I had any littlies.
08.12.2016 - 18:13
Ulla Jouttijarvi skrifaði:
Kunne godt ønske mig den i større størrelse. Har strikket den til mit barnebarn, der nu er vokset ud af den.
07.12.2016 - 14:52
Marie skrifaði:
Nydelig kjole! Strikker den nå for andre gang til veslejenta mi. Strikker skjørtet i ensfarget sort for å få den mer bunad-aktig. Har fått masse skryt for denne på 17. mai og i jula =)
17.12.2014 - 10:37
Bergljot Sand skrifaði:
Etter å ha studert skissene, beskrivelsen , bildene og tidligere kommentarer forstår jeg ikke hvordan boleroen skal monteres. Jeg har sydd sammen sidene, kan ikke se hvordan noen skal kunne kle den på. Det blir jo armhull, men hvordan få armene inn i dem. Skal det sted sammen fra kanten med Fabel-garn til ytterkanten?
25.11.2014 - 02:54DROPS Design svaraði:
Hei Bergljot. Du syer kun sömmen sammen ved pilen. Du skal ikke lukke siderne helt. Aermegabet kommer paa de lige stykke överst paa tegningen.
27.11.2014 - 16:18
Ruth skrifaði:
Je ne comprends pas quel est le nombre de mailles que je dois monter sur mon aiguille circulaire pour faire la robe nouveau-né? Partir avec 34 mailles ce n'est pas assez pour le bas de la robe . Au secours....
13.11.2014 - 05:07DROPS Design svaraði:
Bonjour Ruth, les 34 m à monter correspondent à la partie jupe (= 14 cm dans le schéma) de la robe. On tricote ensuite la bordure jacquard du bas de la robe puis la bordure jacquard de la taille et l'empiècement. Bon tricot!
13.11.2014 - 10:04
Petite Heidi#petiteheididress |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónaður kjóll fyrir börn með norrænu mynstri og stuttum umferðum, bolero og sokkar, prjónað úr DROPS Fabel og Alpaca.
DROPS Baby 16-25 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR (á við um kjól): Sjá mynsturteikningu M.1 og M.2 – mynsturteikning sýnir 1 mynstureiningu af mynstri, allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. Í 3 miðju umferðum í M.2 sem prjónað er með Fabel, höfum við notað ljós rauðu eininguna í dokkunni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um kjól): Öll úrtakan er gerð frá réttu! Lykkjum er fækkað fyrir handveg innan við 3 lykkjur garðaprjón. Fækkið lykkjum á undan 3 lykkjum þannig: 2 lykkjur slétt saman. Fækkið lykkjum á eftir 3 lykkjum þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir. HÆLÚRTAKA (á við um sokka): UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið þar til 6-7-7 (7-8) lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, snúið við. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið þar til 6-7-7 (7-8) lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða, 1 lykkja brugðin, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, snúið við. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið þar til 5-6-6 (6-7) lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, snúið við. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið þar til 5-6-6 (6-7) lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða, 1 lykkja brugðin, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, snúið við. Haldið áfram á sama hátt með því það fækki um 1 lykkju áður en 1 lykkju er steypt yfir þar til 8-10-10 (10-12) lykkjur eru eftir á prjóni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1 (á við um sokka): Fækkið lykkjum á undan stroffi: Prjónið 2 lykkjur slétt saman. Fækkið lykkjum á eftir stroffi: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2 (á við um sokka): Fækkið lykkjum á undan prjónamerki: Prjónið 2 lykkjur slétt saman. Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- KJÓLL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kjólinn er fyrst prjónaður frá hlið að hlið, síðan eru teknar upp lykkjur í neðri kanti og prjónaður er faldur. Eftir það eru teknar upp lykkjur í efri kant og berustykkið er prjónað. KJÓLL: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 34-52-72 (82-94) lykkjur með Fabel á hringprjón 3. Prjónið slétt fram og til baka – JAFNFRAMT (til að kjólinn verði víðari í neðri kant) eru prjónaðar STUTTAR UMFERÐIR þannig: Prjónið 2 umferðir yfir allar lykkjur, * Prjónið 17-26-36 (41-47) lykkjur, snúið, herðið á þræði, takið fyrstu lykkjuna óprjónaða og prjónið til baka, prjónið 4 umferðir yfir allar lykkjur, prjónið 28-43-60 (68-78) lykkjur, snúið, herðið á þræði, takið fyrstu lykkjuna óprjónaða og prjónið til baka, prjónið 2 umferðir yfir allar lykkjur *, endurtakið frá *-*. (Þ.e.a.s. 1 mynstureining = 10 umferðir í neðstu lykkju og 6 umferðir í efstu lykkju). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 44-48-54 (60-66) cm efst (það mælist þá ca 73-80-90 (100-110) cm neðst), fellið LAUST af. Saumið kjólinn saman kant í kant, mitt að aftan. FALDUR Í NEÐRI KANTI: Prjónið upp með Fabel á hringprjón 3: 1 lykkja í annarri hverri umferð neðst á pilsi = ca 175-192-216 (240-264) lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið. Skiptið yfir í rauður Alpaca og prjónið 1 umferð slétt og 1 umferð brugðið. Skiptið yfir í natur Alpaca og prjónið 1 umferð slétt JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn aukinn út til 180-198-234 (252-270) lykkjur. Prjónið síðan M.1 (= 10-11-13 (14-15) mynstureiningar hringinn). Eftir M.1 er skipt yfir í rauður Alpaca – prjónið 2 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir í Fabel, prjónið 6 umferðir garðaprjón. Fellið síðan LAUST af. BERUSTYKKI: Prjónið upp með litnum rauður Alpaca á hringprjón 3. 1 lykkja í annarri hverri umferð efst á pilsi = ca 106-116-130 (144-158) lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið. Skiptið yfir í natur – prjónið 1 umferð slétt JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn aukinn út til 112-120-136 (152-168) lykkjur. Prjónið nú M.2 (= 14-15-17 (19-21) mynstureiningar hringinn). JAFNFRAMT í síðustu umferð í M.2 er fækkað um 6-6-6 (8-10) lykkjur jafnt yfir = 106-114-130 (144-158) lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í hvora hlið (= 53-57-65 (72-79) lykkjur bæði á fram- og bakstykki). Skiptið yfir í rauður Alpaca, prjónið 2 umferðir garðaprjón, haldið áfram í sléttprjóni. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 28-34-42 (47-52) cm prjónið 4 umferðir með garðaprjón yfir 12 lykkjur í hvorri hlið (= 6 lykkjur hvoru megin við hvort prjónamerki), aðrar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Í næstu umferð eru felldar af miðju 6 lykkjurnar í hvorri hlið og fram- og bakstykki er prjónað til loka hvort fyrir sig. FRAMSTYKKI: = 47-51-59 (66-73) lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og 3 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið – JAFNFRAMT er fækkað um 1 lykkju í hvorri hlið fyrir handveg – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umferð alls 4-4-4 (5-5) sinnum = 39-43-51 (56-63) lykkjur. Þegar stykkið mælist 33-40-48 (53-58) cm eru miðju 9-11-13 (16-17) lykkjur settar á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka hvor fyrir sig. Fækkið nú lykkjum í byrjun á hverri umferð frá hálsi þannig: 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 4 sinnum = 9-10-13 (14-17) lykkjur eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 38-45-54 (60-66) cm. BAKSTYKKI: = 47-51-59 (66-73) lykkjur. Fækkið lykkjum fyrir handvegi eins og á framstykki og prjónið áfram þar til stykkið mælist 36-43-52 (58-64) cm. Fellið nú af miðju 17-19-21 (24-25) lykkjurnar af fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka hvor fyrir sig. Fækkið síðan um 1 lykkju í byrjun á hverri umferð frá hálsi 2 sinnum = 9-10-13 (14-17) lykkjur eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 38-45-54 (60-66) cm. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið upp á hringprjón 3 með Fabel 65-70-75 (80-85) lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði að framan). Prjónið 1 umferð brugðið, 1 umferð slétt, 1 umferð brugðið og fellið síðan af með sléttum lykkjum. ------------------------------------------------------- BOLERO - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað með sléttum lykkjum fram og til baka í öllum umferðum (= garðaprjón). BOLERO: Fitjið upp 34-38-40 (44-48) lykkjur á prjón 3 með Fabel. Prjónið 4 umferðir slétt. Klippið frá. Skiptið yfir í rauður Alpaca, fitjið upp 14-17-21 (24-27) lykkjur í byrjun á prjóni, prjónið síðan 34-38-40 (44-48) lykkjur sem eftir eru og fitjið upp 14-17-21 (24-27) lykkjur í lok umferðar = 62-72-82 (92-102) lykkjur. Prjónið GARÐAPRJÓN fram og til baka – sjá útskýringu að ofan – JAFNFRAMT (til að bolero jakkinn verði víðari í ystri köntunum) eru prjónaðar STUTTAR UMFERÐIR þannig: * Prjónið 5 umferðir yfir allar lykkjur, prjónið 10-12-15 (18-20) lykkjur, snúið, herðið á þræði, takið fyrstu lykkjuna óprjónaða og prjónið til baka, prjónið 1 umferð yfir allar lykkjur, prjónið 10-12-15 (18-20) lykkjur, snúið, herðið á þræði, takið fyrstu lykkju óprjónaða, prjónið til baka *, endurtakið frá *-* þar til stykkið mælist ca 22-25-28 (31-35) cm fyrir miðju. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Næsta umferð er prjónuð þannig (frá réttu): Fellið af fyrstu 14-17-21 (24-27) lykkjur, prjónið út umferð og fellið af fyrstu 14-17-21 (24-27) lykkjur í hinni hliðinni. Skiptið yfir í Fabel og prjónið 4 umferðir slétt yfir þær 34-38-40 (44-48) lykkjur sem eftir eru. Fellið af. FRÁGANGUR: Brjótið uppá stykkið tvöfalt í miðju – sjá teikningu 1 og saumið hliðarsauma í ystu lykkjubogana. Heklið í kringum allt opið með litnum rauður Alpaca og heklunál 3 þannig: * 1 fastalykkja, 4 loftlykkjur, 1 stuðull í fyrstu loftlykkju, hoppið yfir ca 1 cm *, endurtakið frá *-*, endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju. ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. SOKKUR: Fitjið upp 44-48-48 (52-56) lykkjur á sokkaprjón nr 2,5 með Fabel. Prjónið stroff = 2 lykkjur slétt/2 lykkjur brugðiðr í 7-8-9 (10-11) cm. Haldið eftir fyrstu 18-22-22 (22-26) lykkjur á sokkaprjóni fyrir hæl (setjið aðrar 26-26-26 (30-30) lykkjur á þráð = ofan á fæti). Prjónið sléttprjón yfir hællykkjur í 3-3½-4 (4-4½) cm – setjið prjónamerki. Prjónið síðan HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan! Takið síðan upp 8-9-10 (11-12) lykkjur hvoru megin við hæl og setjið til baka lykkjur af þræði (= ofan á fæti) á prjóninn = 50-54-56 (62-66) lykkjur. Haldið áfram með stroff yfir 26-26-26 (30-30) lykkjur ofan á fæti á sokknum og sléttprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru. JAFNFRAMT er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við stoff lykkjur – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1 í annarri hverri umferð alls 5-7-6 (7-9) sinnum = 40-40-44 (48-48) lykkjur. Prjónið slétt yfir slétt og brugðið yfir brugðið þar til sokkurinn mælist 7-8-9 (10-12) cm frá prjónamerki á hæl (nú eru eftir 3-3-3 (4-4) cm að loka máli). Setjið prjónamerki í hvora hlið á sokknum, þ.e.a.s. að það verða 20-20-22 (24-24) lykkjur bæði ofan á fæti og undir fæti. Haldið áfram í sléttprjóni yfir allar lykkjur – JAFNFRAMT er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við hvort prjónamerki – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2: Fækkið lykkjum í annarri hverri umferð 3 sinnum og síðan í hverri umferð 5-5-6 (7-7) sinnum = 8 lykkjur eftir á prjóni, klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru. Sokkurinn mælist nú ca 10-11-12 (14-16) cm. Prjónið annan sokk á sama hátt. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #petiteheididress eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 16-25
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.