Monika skrifaði:
Takk skal du ha for rask tilbakemelding. Da har jeg gjort riktig, men det ser så rart ut når "stripene" ikke møter hverandre. Da fortsetter jeg monteringen idag! Den blir lekker! Har brukt andre farger som passer meg!
28.02.2008 - 10:34
DROPS Design skrifaði:
Til Monika: Hei, Foldene treffer ikke på hverandre fordi man strikker 2 folder på hver forst. og bare 2 folder totalt på bakst.
28.02.2008 - 09:59
DROPS Design skrifaði:
Til Ranveig: Det beste er nok å besøke din nærmeste DROPS/GARNSTUDIO-forhandler. Du finner en oversikt over alle butikker på vår webside.
28.02.2008 - 09:53
Monika skrifaði:
Når jeg sier fold, mener jeg den ene stripen som stikkes opp til skulder på for- og bakstykke. Jeg trodde de ville treffe hverandre på skulder når jeg skulle sy sammen?
28.02.2008 - 07:31
Monika skrifaði:
Jeg skal montere,men C.Viscose (fold)treffer ikke hverandre på skulder. Strikker L, her står det på rygg at jeg skal strikke 11 cm. før fold, og h.forstykke 8 cm. Dermed treffer ikke disse hverandre på skulder.
27.02.2008 - 21:05
Ranveig Ostnes skrifaði:
Kann dere hjelpe meg med et alternativ garn til denne oppskriften(jakke med folder strikket sidelengs )
27.02.2008 - 14:52
DROPS Design skrifaði:
Dessverre stemmer ikke strikkefastigheten når du strikke glatt istedenfor riller. Du må nok regner litt om. Hvis du har kjøpt orginalgarnet kan du sikker få hjelp av din DROPS/GARNSTUDIO-forhandler.
27.02.2008 - 11:09
Ranveig Ostnes skrifaði:
Kan jeg strikke glatt strikk å bruke rangen ut .Det ble ikke pent med rille strikk .
26.02.2008 - 22:45
DROPS Design skrifaði:
Retstrik og glatstrik holder ikke helt samme strikkefasthed, så du vil være nødt til at regne en del af opskriften om.... det er muligt at du kan få hjælp med det hos din Garnstudio/DROPS forhandler. God fornøjelse!
25.02.2008 - 13:50
Linda skrifaði:
Jøss, tenkte jeg da jeg så bildet. Meget imponerende design,- strikkefingrene fikk kløe her :-) Takk!
25.02.2008 - 01:40
Greyscale |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa með fellingum / stuttum umferðum, prjónuðu frá hlið í garðaprjóni úr DROPS Alpaca og DROPS Cotton Viscose. Stærð S - XXXL.
DROPS 106-1 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR: Garðaprjón gefur mikið eftir og er mjög teygjanlegt. Stykkið kemur til með að teygjast töluvert, bæði á breiddina og á lengdina, miðað við mál og teikningu. STUTTAR UMFERÐIR: Stuttu umferðirnar eru prjónaðar með Cotton Viscose. 1 felling er prjónuð með stuttum umferðum (umf 1- ranga) þannig: Prjónið 75 l, snúið við og prjónið til baka, Prjónið 68 l, snúið við og prjónið til baka, Prjónið 62 l, snúið við og prjónið til baka, Prjónið 55 l, snúið við og prjónið til baka, Prjónið 49 l, snúið við og prjónið til baka, Prjónið 42 l, snúið við og prjónið til baka, Prjónið 36 l, snúið við og prjónið til baka, Prjónið 29 l, snúið við og prjónið til baka, Prjónið 23 l, snúið við og prjónið til baka, Prjónið 16 l, snúið við og prjónið til baka, Prjónið yfir allar l á prjóni, snúið við og prjónið til baka, Prjónið yfir allar l á prjóni, snúið við og prjónið til baka, Prjónið 16 l, snúið við og prjónið til baka, Prjónið 23 l, snúið við og prjónið til baka, Prjónið 29 l, snúið við og prjónið til baka, Prjónið 36 l, snúið við og prjónið til baka, Prjónið 42 l, snúið við og prjónið til baka, Prjónið 49 l, snúið við og prjónið til baka, Prjónið 55 l, snúið við og prjónið til baka, Prjónið 62 l, snúið við og prjónið til baka, Prjónið 68 l, snúið við og prjónið til baka, Prjónið 75 l, snúið við og prjónið til baka. MÆLING: Mælt er frá uppfitjunarkanti. Mælið þar sem fellingin er grennst. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka. Allt stykkið er prjónað í garðaprjóni, þ.e.a.s. lykkjur eru prjónaðar slétt í öllum umf. Byrjið á að prjóna frá hlið. LESIÐ LEIÐBEININGAR! BAKSTYKKI: Fitjið laust upp 102-104-106-109-111-113 l á prjóna nr 3,5 með litnum milligrár DROPS Alpaca. Prjónið 5-11-13-15-19-21 umf (umf 1 = rétta). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Í lok næstu umf (frá röngu) fitjið upp 3 nýjar l fyrir handveg. Haldið áfram að fitja upp 3 nýjar l í lok á 6. hverri umf (frá röngu): 0-0-1-2-4-5 sinnum = 105-107-112-118-126-131 l. Í lok næstu umf frá röngu eru fitjaðar upp 38-41-40-39-35-35 l = 143-148-152-157-161-166 l. Haldið áfram að prjóna garðaprjón yfir allar l þar til stykkið mælist 9-10-11-12-14-16 cm (passið uppá að næsta umf sé frá réttu). Prjónið nú áfram með litnum perlugrár DROPS Cotton Viscose. Prjónið 1 umf. Prjónið nú STUTTAR UMFERÐIR – sjá útskýringu að ofan. Þegar stuttar umferðir hafa verið prjónaðar er prjónuð 1 umf yfir allar l (frá röngu). Prjónið nú áfram með litnum ljós grár DROPS Alpaca. Haldið áfram fram og til baka yfir allar l þar til stykkið mælist 17-19-21-23-26-28 cm – lesið MÆLING að ofan. Fellið af 5 l í byrjun umf (frá réttu) fyrir hálsmáli = 138-143-147-152-156-161 l. Haldið áfram þar til stykkið mælist 25-27-29-31-36-38 cm. Aukið út um 5 l í lok umf (frá röngu) = 143-148-152-157-161-166 l. Haldið áfram fram og til baka yfir allar l þar til stykkið mælist 32-35-38-41-47-49 cm (passið uppá að næsta umf er frá réttu). Prjónið áfram með litnum perlugrár DROPS Cotton Viscose. Prjónið 1 umf. Prjónið nú STUTTAR UMFERÐIR. Þegar stuttar umferðir hafa verið prjónaðar, prjónið 1 umf yfir allar l áður en prjónað er áfram með litnum milligrár DROPS Alpaca. Prjónið þar til stykkið mælist ca 40-43-45-47-52-54 cm. Fellið af 38-41-40-39-35-35 l í byrjun umf (frá réttu) fyrir handveg = 105-107-112-118-126-131 l. Í næstu umf (frá réttu) fellið af 3 l í byrjun umf. Haldið áfram að fella af 3 l í byrjun á 6. hverri umf (frá réttu): 0-0-1-2-4-5 sinnum = 102-104-106-109-111-113 l. Prjónið fram og til baka þar til stykkið mælist 42-46-50-54-62-66 cm. Fellið laust af. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp og prjónið frá hlið að miðju að framan. Fitjið laust upp 102-104-106-109-111-113 l á prjóna nr 3,5 með litnum milligrár DROPS Alpaca. Prjónið áfram og fitjið upp nýjar l fyrir handveg á sama hátt og á bakstykki = 143-148-152-157-161-166 l. Þegar stykkið mælist 6-7-8-9-12-14 cm (passið uppá að næsta umf sé frá réttu) prjónið áfram með litnum perlugrár Cotton Viscose. Prjónið 1 umf. Prjónið nú STUTTAR UMFERÐIR. Þegar stuttar umferðir hafa verið prjónaðar, prjónið 1 umf yfir allar l (frá röngu). Prjónið nú áfram með litnum ljós grár DROPS Alpaca. Haldið áfram fram og til baka yfir allar l. Þegar stykkið mælist 13-15-17-17-19-21 cm – lesið MÆLING - (passið uppá að næsta umf sé frá réttu) prjónið áfram með litnum perlugrár DROPS Cotton Viscose. Prjónið 1 umf. Prjónið nú STUTTAR UMFERÐIR. Þegar stuttar umferðir hafa verið prjónaðar, prjónið 1 umf yfir allar l (frá röngu). Prjónið nú með litnum hvítur DROPS Alpaca. Prjónið þar til stykkið mælist 3-3-3-5-6-6 cm eftir síðustu fellingu (stykkið mælist alls ca 17-19-21-23-26-28 cm). Fellið af fyrir hálsmáli í byrjun hverrar umf frá réttu: 9-9-11-9-11-8 l 1 sinni, 5 l 7 sinnum og 2 l 1-1-1-2-2-4 sinnum = 97-102-104-109-111-115 l. Prjónið 11 umf fram og til baka yfir allar l. Fellið laust af. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp og prjónið frá miðju að framan og út að hlið. Fitjið laust upp 97-102-104-109-111-115 l á prjóna nr 3,5 með litnum hvítur DROPS Alpaca. Prjónið 11 umf (umf 1 = rétta) fram og til baka yfir allar l. Fitjið nú upp nýjar l fyrir hálsmáli í lok hverrar umf frá röngu: Fitjið upp 2 l 1-1-1-2-2-4 sinnum, 5 l 7 sinnum og 9-9-11-9-11-8 l 1 sinni = 143-148-152-157-161-166 l. Haldið áfram fram og til baka yfir allar l þar til stykkið mælist ca 10-10-10-12-13-14 cm (passið uppá að næsta umf sé frá réttu). Prjónið nú áfram með litnum perlugrár DROPS Cotton Viscose. Prjónið 1 umf. Prjónið nú STUTTAR UMFERÐIR. Þegar stuttar umferðir hafa verið prjónaðar, prjónið nú 1 umf yfir allar l (frá röngu). Prjónið nú með litnum ljós grár DROPS Alpaca. Haldið áfram fram og til baka yfir allar l þar til stykkið mælist ca 17-18-19-20-20-21 cm (pasið uppá að næsta umf sé prjónuð frá réttu). Prjónið nú með litnum perlugrár DROPS Cotton Viscose. Prjónið 1 umf. Prjónið nú STUTTAR UMFERÐIR. Þegar stuttar umferðir hafa verið prjónaðar, prjónið 1 umf yfir allar l (frá röngu). Prjónið nú með litnum milligrár DROPS Alpaca. Jafnframt þegar stykkið mælist 4-4-3-2-2-2 cm eftir síðustu fellingu er fellt af fyrstu 38-41-40-39-35-35 l (frá réttu) fyrir handveg. Í næstu umf (frá réttu) fellið af 3 l í byrjun umf. Haldið áfram að fella af 3 l í byrjun á 6. hverri umf (frá réttu: 0-0-1-2-4-5 sinnum = 102-104-106-109-111-113 l. Haldið áfram fram og til baka yfir allar l þar til stykkið mælist 6-7-8-9-12-14 cm eftir síðustu fellingu. Fellið laust af. ERMI: Öll ermin er prjónuð í garðaprjóni, þ.e.a.s. lykkjur eru prjónaðar slétt í öllum umf. Fitjið laust upp 55-57-60-62-62-66 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjóna nr 3,5 með litnum ljós grár DROPS Alpaca. Prjónið þar til stykkið mælist ca 3 cm. Prjónið nú með litnum perlugrár DROPS Cotton Viscose. Þegar stykkið mælist 5 cm er prjónað með litnum ljós grár DROPS Alpaca. Jafnframt þegar stykkið mælist 5-5-5-7-9-7 cm er aukið út um 1 l í hvorri hlið með 5-4-3½-2½-2-2 cm millibili alls 9-11-12-15-17-18 sinnum = 73-79-84-92-96-102 l. Jafnframt þegar stykkið mælist 18 cm er prjónað áfram með litnum perlugrár DROPS Cotton Viscose. Þegar stykkið mælist 20 cm er prjónað aftur með litnum ljós grár DROPS Alpaca. Þegar stykkið mælist 48-48-47-47-45-44 cm fellið af 3 l í hvorri hlið fyrir handveg. ATH! Styttri mál í stærri stærðum vegna víðari handvegs og breiðari axla. Haldið áfram að fella af fyrir ermakúpu í hvorri hlið í annarri hverri umf: Fellið af 2 l 2-2-2-2-1-0 sinnum og 1 l 10-12-14-15-24-28 sinnum. Haldið áfram að fella af 2 l í hvorri hlið þar til stykkið mælist 54-55-55-56-56-57 cm. Fellið af 3 l í hvorri hlið 1 sinni. Fellið af þær l sem eftir eru, stykkið mælist ca 55-56-56-57-57-58 cm. FRÁGANGUR: Saumið axlarsauma. Saumið ermar í. Saumið erma- og hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju. HEKLAÐUR KANTUR: Byrjið við miðju að framan neðst á hægra framstykki. Heklið með litnum hvítur DROPS Alpaca og heklunál nr 3 þannig: Heklið 1 fl, * 2 ll, hoppið yfir ca 1 cm, 1 fl í næstu l *, endurtakið frá *-* upp meðfram hægra framstykki, í kringum hálsmál og niður meðfram vinstra framstykki. FRÁGANGUR: Saumið tölur í ca 1 cm frá kanti meðfram vinstra framstykki. Efsta talan á að vera staðsett ca 1 cm neðan við úrtöku í hálsmáli, hinar tölurnar eru staðsettar með ca 4 cm millibili. Hneppið tölum í heklaða kantinn. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 13 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 106-1
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.