Little Miss Berry |
|
|
|
Heklaður kjóll fyrir börn og sumarhattur úr DROPS Alpaca. Prjónuð og þæfð taska úr DROPS Alaska. Stærð 1 mán - 4 ára.
DROPS Baby 14-4 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- AFFELLING-1: Fækkið um 1 stuðul með því að hekla saman 2 stuðla, þ.e.a.s. heklið 1 stuðul en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 lykkjur eftir á heklunálinni), heklið 1 stuðul í næsta stuðul og dragið þráðinn í lokin í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni. AFFELLING-2: Fækkið lykkjum í byrjun á umferð þannig: Skiptið út 1 fastalykkju/stuðli með 1 keðjulykkju. Fækkið lykkjum í lok umferðar þannig: Snúið stykkinu þegar eftir er sá fjöldi fastalykkja/stuðla sem fækka á og heklið til baka. LEIÐBEININGAR (á við um kjól): Í byrjun á hverri umferð með stuðlum er fyrsta stuðli skipt út fyrir 3 loftlykkjur og í lok umferðar er síðasti stuðull heklaður í 3. loftlykkju í byrjun á fyrri umferð. Heklað er í hvern stuðul (ekki á milli). LEIÐBEININGAR (á við um hatt): Í byrjun á hverri umferð með stuðlum er 1. stuðli skipt út fyrir 3 loftlykkjur og umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- KJÓLL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fyrst er framstykkið heklað og síðan bakstykkið. Stykkið er saumað saman í lokin. FRAMSTYKKI: Lesið LEIÐBEININGAR! Heklið 106-116-126 (135-145) frekar lausar loftlykkjur (meðtaldar 3 loftlykkjur til að snúa við með) með heklunál 3 og litnum millibleikur. Fyrsta umferðin er hekluð þannig: 1 stuðull í 4. loftlykkju frá heklunálinni, * hoppið yfir 1 loftlykkju, 1 stuðull í hverja af næstu 3 loftlykkjum *, endurtakið frá *-* út umferðina en í stærð 1/3 mán + 12/18 mán er endað með 1 stuðul í hverja af síðustu 5 loftlykkjum (í stað síðustu3 loftlykkjum) og í stærð 2 ára er endað með 1 stuðul í hverja af síðustu 6 loftlykkjum (í stað 3 síðustu loftlykkjum), í stærð 3/4 ára er endað með 1 stuðul í hverja af síðustu 4 loftlykkjum = 79-86-94 (101-108) stuðlar, snúið stykkinu. Heklið 1 stuðul í hvern stuðul jafnframt því sem felldur er af 1 stuðull í hvorri hlið alls 12 sinnum – sjá AFFELLING-1: Í stærð 1/3 mán: til skiptis í hverri og annarri hverri umferð, í stærð 6/9 + 12/18 mán: í annarri hverri umferð, stærð 2 + 3/4 ára: í 3. hverri umferð = 55-62-70 (77-84) st. Þegar stykkið mælist ca 17-18-21 (24-26) cm fækkið lykkjum fyrir handveg í hvorri hlið í hverri umferð – sjá AFFELLING-2: 5 stuðlar 1 sinni, 2 stuðlar 1 sinni og 1 stuðull 3 sinnum = 35-42-50 (57-64) stuðlar. Þegar stykkið mælist ca 23-29-35 (40-44) cm setjið 1 prjónamerki mitt í stykkið (í stærð 1/3 mán og 2 ára er prjónamerkið sett í miðju stuðul). Fækkið nú lykkjum fyrir hálsmáli þannig: Heklið frá öxl og inn að hálsmáli þar til eftir eru 2-3-5 (5-6) stuðlar á undan prjónamerki (í stærð 1/3 mán og 2 ára á þetta við á undan stuðli með prjónamerki í), snúið stykkinu. Fækkið lykkjum við hálsmál í hverri umferð – sjá AFFELLING-2: 2 stuðlar 2 sinnum og 1 stuðull 3 sinnum = 8-11-13 (16-19) stuðlar eftir á öxl. Klippið frá og festið enda þegar stykkið mælist ca 27-33-39 (45-49) cm. Endurtakið í hinni hlið á hálsmáli. BAKSTYKKI: Fitjið upp og heklið á sama hátt og framstykki – setjið 1 prjónamerki mitt í stykkið (í stærð 1/3 mán og 2 ára er prjónamerkið sett í miðju stuðul). Fellið af fyrir handveg eins og á framstykki, en þegar stykkið mælist 19-25-31 (37-41) cm skiptist stykkið við miðju að aftan fyrir op og hvor hluti er heklaður áfram hvor fyrir sig (í stærð 1/3 mán og 2 ára er ekki heklað áfram yfir miðju lykkju með prjónamerki í). Þegar stykkið mælist ca 25-31-37 (43-47) cm fækkið lykkjum fyrir hálsmáli að aftan þannig: Heklið 9-12-14 (17-20) stuðla frá öxl og inn að hálsmáli, snúið stykkinu og fækkið um 1 stuðul í næstu umferð – sjá AFFELLING-2. Heklið út umferðina, klippið frá og festið enda, stykkið mælist ca 27-33-39 (45-49) cm. Endurtakið á hinni hlið á hálsmáli. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið hliðarsauma kant í kant með smáu spori. KANTUR: Heklið kant meðfram öllu hálsmálinu (og opi að aftan) og í kringum báða handvegi með heklunál 3 með litnum millibleikur þannig: 1 fastalykkja í fyrstu lykkju, * 6 loftlykkjur, hoppið yfir ca ½ - 1 cm, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* og endið með 6 loftlykkjum og 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun á umferð. Saumið 2 tölur meðfram hægra opi að aftan (ca ½ cm inn á stykki) – efsta talan er staðsett ca ½ - 1 cm ofan frá, notið loftlykkjubogana í gagnstæðri hlið fyrir hnappagöt. BLÚNDA: Heklið kant neðst á kjól með heklunál 3 og litnum millibleikur þannig: HEKLLEIÐBEININGAR: Þegar hekla á saman nokkra tvíbrugðna stuðla þá er það gert þannig: Heklið 1 tvíbrugðinn stuðul en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 lykkjur á heklunálinni), heklið næsta tvíbrugðna stuðulinn en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin (= 3 lykkjur á heklunálinni), haldið svona áfram þar til heklaður hefur verið sá fjöldi tvíbrugðna stuðla sem hekla á saman og dragið þráðinn í gegnum allar lykkjurnar á heklunálinni. UMFERÐ 1: Byrjið í hlið. Heklið 1 fastalykkju í fyrsta stuðul, 4 loftlykkjur (= 1 tvíbrugðinn stuðull), heklið saman 2 tvíbrugðna stuðla í sama stuðul, 3 loftlykkjur og 3 tvíbrugðnir stuðlar saman áfram í sama stuðul, * hoppið yfir ca 2 - 2½ cm, í næsta stuðul eru heklaðir 3 tvíbrugðnir stuðlar saman, 3 loftlykkjur og 3 tvíbrugðnir stuðlar saman *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn og endið með 1 keðjulykkju í 4. loftlykkju sem var hekluð í byrjun umferðar. UMFERÐ 2: Heklið keðjulykkju fram að fyrsta loftlykkjuboga, 4 loftlykkjur (= 1 tvíbrugðinn stuðull), 3 tvíbrugðnir stuðlar saman um sama loftlykkjuboga, 4 loftlykkjur, 4 tvíbrugðnir stuðlar saman um sama loftlykkjuboga, * í næsta loftlykkjuboga eru heklaðir 4 tvíbrugðnir stuðlar saman, 4 loftlykkjur og 4 tvíbrugðnir stuðlar saman *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn og endið með 1 keðjulykkju í 4. loftlykkju sem var hekluð í byrjun á umferð. UMFERÐ 3: Heklið eins og umferð 2. UMFERÐ 4: Heklið eins og umferð 2, nema 5 loftlykkjur í hvern loftlykkjuboga (í stað 4 loftlykkjur). UMFERÐ 5: Heklið 1 fastalykkju efst í fyrsta stuðlahóp, * 6 loftlykkjur, 1 fastalykkja í næsta tvíbrugðna stuðlahóp *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn og endið með 6 loftlykkjur og 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju í byrjun á umferð. HEKLAÐ BLÓM: Heklið 3 loftlykkjur með heklunál 3 og litnum ljós bleikur og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju. UMFERÐ 1: Heklið 5 loftlykkjur um hringinn og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun á umferð. UMFERÐ 2: * 4 loftlykkjur, 1 stuðull í fyrstu af 4 loftlykkjum sem eru heklaðar, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 5 blöð, klippið frá. Heklið 3 loftlykkjur með heklunál 3 og llitinn lime og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju. UMFERÐ 1: Heklið 5 fastalykkjur um hringinn og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun á umferð. UMFERÐ 2: * 4 loftlykkjur, heklið 3 stuðla í fyrstu af 4 loftlykkjum sem voru heklaðar, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 5 blöð, klippið frá. Festið blómið í litnum ljós bleikur ofan á blómið úr litnum lime og saumið blómið mitt framan á kjólinn. ------------------------------------------------------- HATTUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring. HATTUR: Heklið 4 loftlykkjur með heklunál 3 og litnum millibleikur og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju. UMFERÐ 1: Heklið 12 stuðla um hringinn – sjá LEIÐBEININGAR! UMFERÐ 2: Heklið 2 stuðla í hvern stuðul = 24 stuðlar. UMFERÐ 3: Heklið 1 stuðul í hvern stuðul = 24 stuðlar. UMFERÐ 4: * 1 stuðull í hvorn af fyrstu 2 stuðlum, 2 stuðlar í næsta stuðul *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 32 stuðlar. UMFERÐ 5: * 1 stuðull í hvern af fyrstu 3 stuðlum, 2 stuðlar í næsta stuðul *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 40 stuðlar. UMFERÐ 6: * 1 stuðull í hvern af fyrstu 4 stuðlum, 2 stuðlar í næsta stuðul *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 48 stuðlar. UMFERÐ 7: * 1 stuðull í hvern af fyrstu 5 stuðlum, 2 stuðlar í næsta stuðul *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 56 stuðlar. UMFERÐ 8: * 1 stuðull í hvern af fyrstu 6 stuðlum, 2 stuðlar í næsta stuðul *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 64 stuðlar. UMFERÐ 9: * 1 stuðull í hvern af fyrstu 7 stuðlum, 2 stuðlar í næsta stuðul *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 72 stuðlar. UMFERÐ 10: * 1 stuðull í hvern af fyrstu 8 stuðlum, 2 stuðlar í næsta stuðul *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 80 stuðlar. Endið útaukningu hér í stærð 1/3 mán. UMFERÐ 11: * 1 stuðull í hvern af fyrstu 9 stuðlum, 2 stuðlar í næsta stuðul *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 88 stuðlar. Endið útaukningu hér í stærð 6/18 mán. UMFERÐ 12: * 1 stuðull í hvern af fyrstu 10 stuðlum, 2 stuðlar í næsta stuðul *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 96 stuðlar. Endið útaukningu hér í stærð 2/4 ára. Allar stærðir. Haldið áfram hringinn með stuðlum án þess að auka út þar til stykkið mælist ca 13-14 (16) cm ofan frá. Heklið nú 1 umferð með stuðlum með 2 stuðla í 8. hvern stuðul = 90-99 (108) stuðlar í umferð. Heklið 1 umferð með stuðlum án þess að auka út, heklið síðan 1 umferð með stuðlum og með 2 stuðla í 6. hvern stuðul (í stærð 6/18 mán verða 3 stuðlar eftir í umferð á eftir síðustu útaukningu í stað 6) = 105-115 (126) stuðlar í umferð. KANTUR MEÐ BLÚNDU: UMFERÐ 1: Heklið 4 loftlykkjur (= 1 tvíbrugðinn stuðull), 2 tvíbrugðnir stuðlar saman – sjá HEKLLEIÐBEININGAR undir kjóll, 3 loftlykkjur og 3 tvíbrugðnir stuðlar saman í fyrsta stuðul, * hoppið yfir ca 2 - 2½ cm, í næsta stuðul eru heklaðir 3 tvíbrugðnir stuðlar saman, 3 loftlykkjur og 3 tvíbrugðnir stuðlar saman *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn og endið með 1 keðjulykkju í 4. loftlykkju sem var hekluð í byrjun umferðar. UMFERÐ 2: Heklið 1 fastalykkju efst í fyrsta tvíbrugðna stuðlahópinn, * 6 loftlykkjur, 1 fastalykkja í næsta tvíbrugðna stuðlahóp *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn og endið með 6 loftlykkjur og 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun á umferð. Klippið frá og festið enda, hatturinn mælist ca 18-19 (21) cm ofan frá. HEKLAÐ BLÓM: Heklið 3 loftlykkjur með heklunál 3 og litnum ljós bleikur og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju. UMFERÐ 1: Heklið 5 loftlykkjur um hringinn og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun á umferð. UMFERÐ 2: * 4 loftlykkjur, 1 stuðull í fyrstu af 4 loftlykkjum sem eru heklaðar, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 5 blöð, klippið frá. Heklið 3 loftlykkjur með heklunál 3 og llitinn lime og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju. UMFERÐ 1: Heklið 5 fastalykkjur um hringinn og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun á umferð. UMFERÐ 2: * 4 loftlykkjur, heklið 3 stuðla í fyrstu af 4 loftlykkjum sem voru heklaðar, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 5 blöð, klippið frá. Festið blómið í litnum ljós bleikur ofan á blómið úr litnum lime og saumið blómið niður á hattinn. ------------------------------------------------------- TASKA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka og saumað saman í lokin. TASKA: Fitjið laust upp 27 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjón 5,5 með litnum natur Vienna. Prjónið 2 umferðir slétt, skiptið yfir í Alaska og prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist ca 47 cm – passið uppá að næsta umferð sé prjónuð frá röngu. Skiptið til baka yfir í litinn natur Vienna, prjónið 2 umferðir slétt og fellið laust af. HANDFANG: Fitjið upp 5 lykkjur á prjón 5,5 með Alaska og prjónið sléttprjón þar til handfangið mælist ca 25 cm, fellið af. Leggið handfangið saman tvöfalt á lengdina með röngu að röngu og saumið saman í ystu lykkjubogana. FRÁGANGUR: Brjótið uppá töskuna tvöfalt og saumið hliðarsauma innan við 1 kantlykkju. Saumið handfangið í hvora hlið á töskunni. Þæfið töskuna í þvottavél – sjá ÞÆFING! ÞÆFING: Setjið stykkið í þvottavél með þvottaefni án enzyma og bleikiefna saman með litlu frotte handklæði ca 50 x 70 cm. Þvoið við 40 gráður með venjulegri vindingu án forþvottar ATH: Ekki nota stutt þvottakerfi. Eftir þvott er stykkið formað til á meðan það er enn vott. EFTIR ÞÆFINGU: Ef stykkið hefur þæfst of lítið og er of stórt: Þvoðu stykkið einu sinni enn í þvottavél á meðan það er enn vott. Ef stykkið hefur þæfst of mikið og er of lítið: Togið stykkið út í rétta stærð á meðan það er enn vott, ef stykkið er of þurrt, bleytið það fyrst. Munið: Síðar er stykkið þvegið eins og venjuleg ullarflík. HEKLAÐ HJARTA: Heklið 2 loftlykkjur með heklunál 6 og litnum bleikur Vienna og heklið 1 fastalykkju í fyrstu af 2 loftlykkjum, snúið stykkinu. Heklið 1 loftlykkju, síðan eru heklaðar 3 fastalykkjur í fastalykkju frá fyrri umferð, snúið stykkinu. Heklið 1 loftlykkju, 2 fastalykkjur í fyrstu fastalykkju, 1 fastalykkja í næstu fastalykkju og 2 fastalykkjur í síðustu fastalykkju = 5 fastalykkjur, snúið stykkinu. Heklið 1 loftlykkju, 2 fastalykkjur í fyrstu fastalykkju, 1 fastalykkja í næstu fastalykkju, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju, 1 fastalykkja í næstu fastalykkju og 2 fastalykkjur í síðustu fastalykkjur = 8 fastalykkjur, snúið stykkinu. * Heklið 1 loftlykkju, hoppið yfir 1 fastalykkju, 1 fastalykkja í hverja og eina af næstu 3 fastalykkjum, snúið stykkinu. Heklið 1 loftlykkju, hoppið yfir 1 fastalykkju, 1 fastalykkja í hvora af næstu 2 fastalykkjum, snúið stykkinu. Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hvora af næstu 2 fastalykkjum, snúið stykkinu. Heklið 1 loftlykkju og 1 keðjulykkju í loftlykkju í byrjun á fyrri umferð, klippið frá og festið enda *. Endurtakið frá *-* á hinni hliðinni á hjartanu og saumið síðan hjartað á töskuna. HEKLAÐ BLÓM: Heklið 3 loftlykkjur með heklunál 3 með litnum ljós bleikur Alpaca og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju. UMFERÐ 1: Heklið 5 fastalykkjur um hringinn og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun á umferð. UMFERÐ 2: * 4 loftlykkjur, 1 stuðull í fyrstu af 4 loftlykkjum sem voru heklaðar, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 5 blöð, klippið frá. Saumið blómið mitt á hjartað. ------------------------------------------------------- Peysa sjá DROPS Baby 14-5 Skór sjá DROPS Baby 14-5 ------------------------------------------------------- |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (174)
Hélène skrifaði:
Bonjour, Dans l'info crochet, je ne comprends pas ce que veut dire "piquer dans la bride et non pas entre les deux". Merci !
20.03.2015 - 18:21DROPS Design svaraði:
Bonjour Hélène, on pique le crochet sous les 2 brins de la bride du rang précédent, comme dans la vidéo ci-dessous. Bon crochet!
21.03.2015 - 10:13Dumot skrifaði:
Bonsoir, J'essaye donc de faire la robe, j'ai une laine avec un crochet de 4, et je la fait pour l'age de 3/4ans, si j'ai bien compris pour le devant et le dos bas de la robe il faut que cela mesure 45cm de large avec la bordure dentelle ? je pense que du coup il faut que je réduise le nombre de ml pour la chainette ? mais de combien il faut que je réduise ? Merci de m'aider.
16.03.2015 - 21:23DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Dumot, la robe se réalise sur la base d'un échantillon de 24 B x 13 rangs = 10 x 10 cm, vous pouvez ajuster sur cette base en fonction de votre échantillon (règle de 3), ou rechercher un modèle mieux adapté à votre tension. Bon crochet!
17.03.2015 - 09:00Helena skrifaði:
Hi!:) The picture to this pattern shows a jacket but i can't find its pattern.can you please send me the link or the pattern? Thanx!:)
04.03.2015 - 19:58DROPS Design svaraði:
Dear Helena, please click here for the pattern to the jacket. Happy crocheting!
05.03.2015 - 09:59Rachel skrifaði:
I am working on the hat, I have done the increases to size desired. My question is do I keep the same number of stitches, and crochet until it is the correct length and then do the last rows with increases, (every eighth, then every sixth, or am I doing these rows to get it to the proper Leigh?
12.02.2015 - 23:50DROPS Design svaraði:
Dear Rachel, when you have the correct number of sts (= 80-88-96 sts), continue in the round without any increase until piece measures 13-14-16 cm from the top, then work the inc row to reach 90-99-108 sts. Happy crocheting!
13.02.2015 - 09:36Sue skrifaði:
Should I be starting each row with a chain 3? Or should I be making a double crochet directly into 1st stitch?
07.02.2015 - 17:42DROPS Design svaraði:
Dear Sue, replace first dc at beg of row with 3 ch unless otherwise stated. Happy crocheting!
08.02.2015 - 18:56Theresa skrifaði:
I love the pattern for baby drops 14-4 which says its for a dress, hat and bag but yet the picture has a picture has a sweater hanging on hanger in picture. Is the pattern for the over sweater available? It is beautiful and I would love to make it. Thank you. Theresa Watson
25.01.2015 - 06:54DROPS Design svaraði:
Dear Theresa, please click here to get the UK-English of cardigan, hat and shoes. Happy crocheting!
26.01.2015 - 10:12TinaD skrifaði:
Ich würde das Kleid gern Weihnachtlich das heißt in Rot & unten weiß häkeln. Können Sie mir da eine Wolle mit der richtigen Stärke empfehlen? Lg
15.12.2014 - 11:04DROPS Design svaraði:
Liebe Tina, das Originalgarn Alpaca hat sowohl rot als auch weiß oder natur in der Farbpalette, stöbern Sie dort einfach mal durch. Alternativgarne finden Sie unter Garnalternativen oben im Kopf neben dem Foto. Beachten Sie, dass sich bei einem anderen Garn als dem originalen der Verbrauch ändern kann.
15.12.2014 - 14:24TinaD skrifaði:
Hallo! Danke! Habe mit der Nadelstärke 3 gehäkelt. Nun eine noch schmälere Nadel? Kann ich es nicht einfach umwandeln?
12.12.2014 - 23:21DROPS Design svaraði:
Sie hatten für 24 Stb 15 cm statt 10 cm mit Nadel Nr. 3? Das ist allerdings sehr ungewöhnlich, es ist ja das anderthalbfache der angegebenen Maschenprobe... Das lässt sich auch kaum mit einer kleineren Nadel beheben. Haben Sie denn das Originalgarn verwendet bzw. eins mit einer ähnlichen Lauflänge? Wenn Sie ein viel dickeres Garn verwendet haben, macht sich das auch in der Maschenprobe bemerkbar.
14.12.2014 - 10:17TinaD skrifaði:
Hallo! Ich möchte gerne das Kleid in Größe 0-3 Monate häkeln. Habe die Maschenprobe gemacht & leider kam bei mir 15cm breite mal 16cm höhe raus. Nun hab ich das Problem, das ich die Zielhöhe & die Zielbreite nicht rauslesen kann. Ich bitte um schnelle Antwort. MfG
10.12.2014 - 14:38DROPS Design svaraði:
Die Maße finden Sie ganz am Ende in der Maßskizze. Sie sollten aber auf jeden Fall die Maschenprobe einhalten, indem Sie eine andere Nadelstärke wählen, ansonsten wird das Kleid unförmig, da sich eine andere Maschenprobe auch auf die Breite der Armausschnitte und auf den Halsausschnitt auswirkt.
10.12.2014 - 22:06Miriam Hawkins skrifaði:
Where can i find the pattern for the matching coat in the other picture its so cute.i cant find it .i would love the whole outfit for my little girl
13.11.2014 - 09:07DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Hawkins, please click here to get the pattern BabyDrops 14-5 for the cardigan. Happy crocheting!
13.11.2014 - 09:59