DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Alaska
DROPS Alaska
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4510.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Little Miss Berry

Heklaður kjóll fyrir börn og sumarhattur úr DROPS Alpaca. Prjónuð og þæfð taska úr DROPS Alaska. Stærð 1 mán - 4 ára.

DROPS Baby 14-4
DROPS design: Mynstur nr z-028-by
Garnflokkur A
--------------------------------------------------------

Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4) ára
Stærð í cm: 50/56- 62/68- 74/80 (86/92-98/104)

Efni:
DROPS Alpaca frá Garnstudio
Kjóll:
150-200-200-250-250 gr nr 3720 millibleikur
+ afgangur af nr 7300 lime og 3140 ljós bleikur (fyrir blóm)

Hattur:
50-50 (100) gr nr 3720 millibleikur
+ afgangur af nr 7300 lime og 3140 ljós bleikur
(fyrir blóm)

Taska:
50 gr nr 02, natur DROPS Alaska frá Garnstudio + afgangur af nr 21 natur DROPS Vienna frá Garnstudio og nr 36 bleikur DROPS Vienna frá Garnstudio + afgangur nr 3140 ljós bleikur DROPS Alpaca frá Garnstudio.

DROPS HEKLUNÁL NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 stuðlar og 13 umferðir með Alpaca verði 10 x 10 cm.
DROPS PRJÓNAR NR 5,5 (fyrir tösku) – eða þá stærð sem þarf til að 16 lykkjur og 20 umferðir í sléttprjóni með Alaska verði 10 x 10 cm.
DROPS HEKLUNÁL NR 6 (fyrir hjarta á tösku)
DROPS TRÉ TALA, ljós NR 503: 2 st (fyrir kjól)

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Alaska
DROPS Alaska
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4510.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

KJÓLL:

AFFELLING-1:
Fækkið um 1 stuðul með því að hekla saman 2 stuðla, þ.e.a.s. heklið 1 stuðul en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 lykkjur eftir á heklunálinni), heklið 1 stuðul í næsta stuðul og dragið þráðinn í lokin í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni.

AFFELLING-2:
Fækkið lykkjum í byrjun á umferð þannig: Skiptið út 1 fastalykkju/stuðli með 1 keðjulykkju.
Fækkið lykkjum í lok umferðar þannig: Snúið stykkinu þegar eftir er sá fjöldi fastalykkja/stuðla sem fækka á og heklið til baka.

LEIÐBEININGAR:
Í byrjun á hverri umferð með stuðlum er fyrsta stuðli skipt út fyrir 3 loftlykkjur og í lok umferðar er síðasti stuðull heklaður í 3. loftlykkju í byrjun á fyrri umferð. Heklað er í hvern stuðul (ekki á milli).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

KJÓLL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fyrst er framstykkið heklað og síðan bakstykkið. Stykkið er saumað saman í lokin.

FRAMSTYKKI:
Lesið LEIÐBEININGAR! Heklið 106-116-126 (135-145) frekar lausar loftlykkjur (meðtaldar 3 loftlykkjur til að snúa við með) með heklunál 3 og litnum millibleikur.
Fyrsta umferðin er hekluð þannig: 1 stuðull í 4. loftlykkju frá heklunálinni, * hoppið yfir 1 loftlykkju, 1 stuðull í hverja af næstu 3 loftlykkjum *, endurtakið frá *-* út umferðina en í stærð 1/3 mán + 12/18 mán er endað með 1 stuðul í hverja af síðustu 5 loftlykkjum (í stað síðustu3 loftlykkjum) og í stærð 2 ára er endað með 1 stuðul í hverja af síðustu 6 loftlykkjum (í stað 3 síðustu loftlykkjum), í stærð 3/4 ára er endað með 1 stuðul í hverja af síðustu 4 loftlykkjum = 79-86-94 (101-108) stuðlar, snúið stykkinu.
Heklið 1 stuðul í hvern stuðul jafnframt því sem felldur er af 1 stuðull í hvorri hlið alls 12 sinnum – sjá AFFELLING-1: Í stærð 1/3 mán: til skiptis í hverri og annarri hverri umferð, í stærð 6/9 + 12/18 mán: í annarri hverri umferð, stærð 2 + 3/4 ára: í 3. hverri umferð = 55-62-70 (77-84) st. Þegar stykkið mælist ca 17-18-21 (24-26) cm fækkið lykkjum fyrir handveg í hvorri hlið í hverri umferð – sjá AFFELLING-2: 5 stuðlar 1 sinni, 2 stuðlar 1 sinni og 1 stuðull 3 sinnum = 35-42-50 (57-64) stuðlar. Þegar stykkið mælist ca 23-29-35 (40-44) cm setjið 1 prjónamerki mitt í stykkið (í stærð 1/3 mán og 2 ára er prjónamerkið sett í miðju stuðul). Fækkið nú lykkjum fyrir hálsmáli þannig: Heklið frá öxl og inn að hálsmáli þar til eftir eru 2-3-5 (5-6) stuðlar á undan prjónamerki (í stærð 1/3 mán og 2 ára á þetta við á undan stuðli með prjónamerki í), snúið stykkinu.
Fækkið lykkjum við hálsmál í hverri umferð – sjá AFFELLING-2: 2 stuðlar 2 sinnum og 1 stuðull 3 sinnum = 8-11-13 (16-19) stuðlar eftir á öxl. Klippið frá og festið enda þegar stykkið mælist ca 27-33-39 (45-49) cm.
Endurtakið í hinni hlið á hálsmáli.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp og heklið á sama hátt og framstykki – setjið 1 prjónamerki mitt í stykkið (í stærð 1/3 mán og 2 ára er prjónamerkið sett í miðju stuðul). Fellið af fyrir handveg eins og á framstykki, en þegar stykkið mælist 19-25-31 (37-41) cm skiptist stykkið við miðju að aftan fyrir op og hvor hluti er heklaður áfram hvor fyrir sig (í stærð 1/3 mán og 2 ára er ekki heklað áfram yfir miðju lykkju með prjónamerki í). Þegar stykkið mælist ca 25-31-37 (43-47) cm fækkið lykkjum fyrir hálsmáli að aftan þannig: Heklið 9-12-14 (17-20) stuðla frá öxl og inn að hálsmáli, snúið stykkinu og fækkið um 1 stuðul í næstu umferð – sjá AFFELLING-2. Heklið út umferðina, klippið frá og festið enda, stykkið mælist ca 27-33-39 (45-49) cm.
Endurtakið á hinni hlið á hálsmáli.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið hliðarsauma kant í kant með smáu spori.

KANTUR:
Heklið kant meðfram öllu hálsmálinu (og opi að aftan) og í kringum báða handvegi með heklunál 3 með litnum millibleikur þannig: 1 fastalykkja í fyrstu lykkju, * 6 loftlykkjur, hoppið yfir ca ½ - 1 cm, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* og endið með 6 loftlykkjum og 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun á umferð.
Saumið 2 tölur meðfram hægra opi að aftan (ca ½ cm inn á stykki) – efsta talan er staðsett ca ½ - 1 cm ofan frá, notið loftlykkjubogana í gagnstæðri hlið fyrir hnappagöt.

BLÚNDA:
Heklið kant neðst á kjól með heklunál 3 og litnum millibleikur þannig:

HEKLLEIÐBEININGAR:
Þegar hekla á saman nokkra tvíbrugðna stuðla þá er það gert þannig: Heklið 1 tvíbrugðinn stuðul en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 lykkjur á heklunálinni), heklið næsta tvíbrugðna stuðulinn en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin (= 3 lykkjur á heklunálinni), haldið svona áfram þar til heklaður hefur verið sá fjöldi tvíbrugðna stuðla sem hekla á saman og dragið þráðinn í gegnum allar lykkjurnar á heklunálinni.

UMFERÐ 1: Byrjið í hlið. Heklið 1 fastalykkju í fyrsta stuðul, 4 loftlykkjur (= 1 tvíbrugðinn stuðull), heklið saman 2 tvíbrugðna stuðla í sama stuðul, 3 loftlykkjur og 3 tvíbrugðnir stuðlar saman áfram í sama stuðul, * hoppið yfir ca 2 - 2½ cm, í næsta stuðul eru heklaðir 3 tvíbrugðnir stuðlar saman, 3 loftlykkjur og 3 tvíbrugðnir stuðlar saman *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn og endið með 1 keðjulykkju í 4. loftlykkju sem var hekluð í byrjun umferðar.
UMFERÐ 2: Heklið keðjulykkju fram að fyrsta loftlykkjuboga, 4 loftlykkjur (= 1 tvíbrugðinn stuðull), 3 tvíbrugðnir stuðlar saman um sama loftlykkjuboga, 4 loftlykkjur, 4 tvíbrugðnir stuðlar saman um sama loftlykkjuboga, * í næsta loftlykkjuboga eru heklaðir 4 tvíbrugðnir stuðlar saman, 4 loftlykkjur og 4 tvíbrugðnir stuðlar saman *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn og endið með 1 keðjulykkju í 4. loftlykkju sem var hekluð í byrjun á umferð.
UMFERÐ 3: Heklið eins og umferð 2.
UMFERÐ 4: Heklið eins og umferð 2, nema 5 loftlykkjur í hvern loftlykkjuboga (í stað 4 loftlykkjur).
UMFERÐ 5: Heklið 1 fastalykkju efst í fyrsta stuðlahóp, * 6 loftlykkjur, 1 fastalykkja í næsta tvíbrugðna stuðlahóp *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn og endið með 6 loftlykkjur og 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju í byrjun á umferð.

HEKLAÐ BLÓM:
Heklið 3 loftlykkjur með heklunál 3 og litnum ljós bleikur og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju.
UMFERÐ 1: Heklið 5 loftlykkjur um hringinn og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun á umferð.
UMFERÐ 2: * 4 loftlykkjur, 1 stuðull í fyrstu af 4 loftlykkjum sem eru heklaðar, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 5 blöð, klippið frá.
Heklið 3 loftlykkjur með heklunál 3 og llitinn lime og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju.
UMFERÐ 1: Heklið 5 fastalykkjur um hringinn og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun á umferð.
UMFERÐ 2: * 4 loftlykkjur, heklið 3 stuðla í fyrstu af 4 loftlykkjum sem voru heklaðar, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 5 blöð, klippið frá.
Festið blómið í litnum ljós bleikur ofan á blómið úr litnum lime og saumið blómið mitt framan á kjólinn.

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HATTUR:
Stærð: 1/3 - 6/18 mån (2/4) ára
Höfuðmál: ca 40/42 - 44/46 (48/50) cm

LEIÐBEININGAR:
Í byrjun á hverri umferð með stuðlum er 1. stuðli skipt út fyrir 3 loftlykkjur og umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HATTUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í hring.

HATTUR:
Heklið 4 loftlykkjur með heklunál 3 og litnum millibleikur og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju.
UMFERÐ 1: Heklið 12 stuðla um hringinn – sjá LEIÐBEININGAR!
UMFERÐ 2: Heklið 2 stuðla í hvern stuðul = 24 stuðlar.
UMFERÐ 3: Heklið 1 stuðul í hvern stuðul = 24 stuðlar.
UMFERÐ 4: * 1 stuðull í hvorn af fyrstu 2 stuðlum, 2 stuðlar í næsta stuðul *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 32 stuðlar.
UMFERÐ 5: * 1 stuðull í hvern af fyrstu 3 stuðlum, 2 stuðlar í næsta stuðul *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 40 stuðlar.
UMFERÐ 6: * 1 stuðull í hvern af fyrstu 4 stuðlum, 2 stuðlar í næsta stuðul *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 48 stuðlar.
UMFERÐ 7: * 1 stuðull í hvern af fyrstu 5 stuðlum, 2 stuðlar í næsta stuðul *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 56 stuðlar.
UMFERÐ 8: * 1 stuðull í hvern af fyrstu 6 stuðlum, 2 stuðlar í næsta stuðul *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 64 stuðlar.
UMFERÐ 9: * 1 stuðull í hvern af fyrstu 7 stuðlum, 2 stuðlar í næsta stuðul *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 72 stuðlar.
UMFERÐ 10: * 1 stuðull í hvern af fyrstu 8 stuðlum, 2 stuðlar í næsta stuðul *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 80 stuðlar. Endið útaukningu hér í stærð 1/3 mán.
UMFERÐ 11: * 1 stuðull í hvern af fyrstu 9 stuðlum, 2 stuðlar í næsta stuðul *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 88 stuðlar. Endið útaukningu hér í stærð 6/18 mán.
UMFERÐ 12: * 1 stuðull í hvern af fyrstu 10 stuðlum, 2 stuðlar í næsta stuðul *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 96 stuðlar. Endið útaukningu hér í stærð 2/4 ára.
Allar stærðir. Haldið áfram hringinn með stuðlum án þess að auka út þar til stykkið mælist ca 13-14 (16) cm ofan frá.
Heklið nú 1 umferð með stuðlum með 2 stuðla í 8. hvern stuðul = 90-99 (108) stuðlar í umferð. Heklið 1 umferð með stuðlum án þess að auka út, heklið síðan 1 umferð með stuðlum og með 2 stuðla í 6. hvern stuðul (í stærð 6/18 mán verða 3 stuðlar eftir í umferð á eftir síðustu útaukningu í stað 6) = 105-115 (126) stuðlar í umferð.

KANTUR MEÐ BLÚNDU:
UMFERÐ 1: Heklið 4 loftlykkjur (= 1 tvíbrugðinn stuðull), 2 tvíbrugðnir stuðlar saman – sjá HEKLLEIÐBEININGAR undir kjóll, 3 loftlykkjur og 3 tvíbrugðnir stuðlar saman í fyrsta stuðul, * hoppið yfir ca 2 - 2½ cm, í næsta stuðul eru heklaðir 3 tvíbrugðnir stuðlar saman, 3 loftlykkjur og 3 tvíbrugðnir stuðlar saman *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn og endið með 1 keðjulykkju í 4. loftlykkju sem var hekluð í byrjun umferðar.
UMFERÐ 2: Heklið 1 fastalykkju efst í fyrsta tvíbrugðna stuðlahópinn, * 6 loftlykkjur, 1 fastalykkja í næsta tvíbrugðna stuðlahóp *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn og endið með 6 loftlykkjur og 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun á umferð. Klippið frá og festið enda, hatturinn mælist ca 18-19 (21) cm ofan frá.

HEKLAÐ BLÓM:
Heklið 3 loftlykkjur með heklunál 3 og litnum ljós bleikur og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju.
UMFERÐ 1: Heklið 5 loftlykkjur um hringinn og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun á umferð.
UMFERÐ 2: * 4 loftlykkjur, 1 stuðull í fyrstu af 4 loftlykkjum sem eru heklaðar, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 5 blöð, klippið frá.
Heklið 3 loftlykkjur með heklunál 3 og llitinn lime og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju.
UMFERÐ 1: Heklið 5 fastalykkjur um hringinn og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun á umferð.
UMFERÐ 2: * 4 loftlykkjur, heklið 3 stuðla í fyrstu af 4 loftlykkjum sem voru heklaðar, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 5 blöð, klippið frá.
Festið blómið í litnum ljós bleikur ofan á blómið úr litnum lime og saumið blómið niður á hattinn.

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

TASKA:

Mál:
Fyrir þæfingu: ca 16 cm á breidd og 24 cm á hæð.
Eftir þæfingu: ca 12 cm á breidd og 15 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TASKA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka og saumað saman í lokin.

TASKA:
Fitjið laust upp 27 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjón 5,5 með litnum natur Vienna.
Prjónið 2 umferðir slétt, skiptið yfir í Alaska og prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist ca 47 cm – passið uppá að næsta umferð sé prjónuð frá röngu. Skiptið til baka yfir í litinn natur Vienna, prjónið 2 umferðir slétt og fellið laust af.

HANDFANG:
Fitjið upp 5 lykkjur á prjón 5,5 með Alaska og prjónið sléttprjón þar til handfangið mælist ca 25 cm, fellið af.
Leggið handfangið saman tvöfalt á lengdina með röngu að röngu og saumið saman í ystu lykkjubogana.

FRÁGANGUR:
Brjótið uppá töskuna tvöfalt og saumið hliðarsauma innan við 1 kantlykkju. Saumið handfangið í hvora hlið á töskunni. Þæfið töskuna í þvottavél – sjá ÞÆFING!

ÞÆFING:
Setjið stykkið í þvottavél með þvottaefni án enzyma og bleikiefna saman með litlu frotte handklæði ca 50 x 70 cm.
Þvoið við 40 gráður með venjulegri vindingu án forþvottar ATH: Ekki nota stutt þvottakerfi.
Eftir þvott er stykkið formað til á meðan það er enn vott.

EFTIR ÞÆFINGU:
Ef stykkið hefur þæfst of lítið og er of stórt: Þvoðu stykkið einu sinni enn í þvottavél á meðan það er enn vott.
Ef stykkið hefur þæfst of mikið og er of lítið: Togið stykkið út í rétta stærð á meðan það er enn vott, ef stykkið er of þurrt, bleytið það fyrst.
Munið: Síðar er stykkið þvegið eins og venjuleg ullarflík.

HEKLAÐ HJARTA:
Heklið 2 loftlykkjur með heklunál 6 og litnum bleikur Vienna og heklið 1 fastalykkju í fyrstu af 2 loftlykkjum, snúið stykkinu.
Heklið 1 loftlykkju, síðan eru heklaðar 3 fastalykkjur í fastalykkju frá fyrri umferð, snúið stykkinu.
Heklið 1 loftlykkju, 2 fastalykkjur í fyrstu fastalykkju, 1 fastalykkja í næstu fastalykkju og 2 fastalykkjur í síðustu fastalykkju = 5 fastalykkjur, snúið stykkinu.
Heklið 1 loftlykkju, 2 fastalykkjur í fyrstu fastalykkju, 1 fastalykkja í næstu fastalykkju, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju, 1 fastalykkja í næstu fastalykkju og 2 fastalykkjur í síðustu fastalykkjur = 8 fastalykkjur, snúið stykkinu.
* Heklið 1 loftlykkju, hoppið yfir 1 fastalykkju, 1 fastalykkja í hverja og eina af næstu 3 fastalykkjum, snúið stykkinu. Heklið 1 loftlykkju, hoppið yfir 1 fastalykkju, 1 fastalykkja í hvora af næstu 2 fastalykkjum, snúið stykkinu. Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hvora af næstu 2 fastalykkjum, snúið stykkinu. Heklið 1 loftlykkju og 1 keðjulykkju í loftlykkju í byrjun á fyrri umferð, klippið frá og festið enda *. Endurtakið frá *-* á hinni hliðinni á hjartanu og saumið síðan hjartað á töskuna.

HEKLAÐ BLÓM:
Heklið 3 loftlykkjur með heklunál 3 með litnum ljós bleikur Alpaca og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju.
UMFERÐ 1: Heklið 5 fastalykkjur um hringinn og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun á umferð.
UMFERÐ 2: * 4 loftlykkjur, 1 stuðull í fyrstu af 4 loftlykkjum sem voru heklaðar, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 5 blöð, klippið frá. Saumið blómið mitt á hjartað.

Peysa sjá DROPS Baby 14-5

Skór sjá DROPS Baby 14-5

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 14-4

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (173)

country flag Rosanna wrote:

Alpaca è lana 100%. E' proprio estivo? Il colore 3720 è rosa chiaro e non rosa antico. Mi suggerite un filato estivo per questo modello? Grazie, ciao

09.02.2016 - 18:47

DROPS Design answered:

Buonasera Rosanna, abbiamo corretto il nome del colore, il 3720 è rosa medio. Per quanto riguarda il filato Alpaca è un filato leggero, che viene spesso usato anche per capi estivi, in ogni caso qui può trovare i filati alternativi che può utilizzare per questo vestitino, in particolare i cotoni Safran, DROPS Loves you 6 e il nuovo DROPS Loves you 7. Buon lavoro!

09.02.2016 - 20:56

country flag Rosenbusch Franziska wrote:

Hallo, ich habe gerade mit dem Kleidchen begonnen. Leider scheitere ich bereits an der 1. Reihe. Ich komme bei 135 Lm immer auf 114 Stb. Ich habe 135 Lm, dann das 1Stb in die 4.Lm, 1Lm leer, dann 6Stb jeweils in eine Lm wieder eine leer und dann wieder 6 immer so weiter bis ans Ende. Die letzten Stb sind dann nur noch 4. Können Sie mir veraten wo ich den Fehler gemacht habe? Vielen Dank im Voraus. Gruß

02.02.2016 - 13:10

DROPS Design answered:

Die 6 Stb gelten für Gr. 2 Jahre nur am Ende der R. Ansonsten überspringen Sie 1 Lm und häkeln 3 Stb im Wechsel. Auf diese Weise überspringen Sie 32 Lm, bleiben also 103 Lm, in die Sie Stb häkeln, dabei zählen die ersten 3 Lm als 1 Stb, somit sind es 101 Stb.

06.02.2016 - 14:05

country flag De Bruyne Bernadette wrote:

Nergens zie ik de beschrijving van het jasje staan in de Nederlandse beschrijving, misschien kijk ik erover. kunnen jullie mij zeggen waar ik deze kan vinden. vriendelijk bedankt voor Uw antwoord

28.10.2015 - 14:53

DROPS Design answered:

Hoi Bernadette. Het jasje vind je in BabyDROPS 14-5

29.10.2015 - 13:03

country flag Manuela wrote:

Ich gestehe, dass ich auf das Kleid nur wegen des entzückenden Kindes aufmerksam wurde! Zu guterletzt habe ich das gesamte Ensemble aus Kleid, Jacke, Schuhe (mit Riemchen! DER Bringer) und Hut gearbeitet und viele bewundernde Kommentare bekommen.

15.06.2015 - 11:20

country flag Diana wrote:

Hallo, Ich habe das süsse Kleid fast fertig, verstehe aber bei der Anleitung für die Spitzenkante die letzte Reihe 5 nicht ganz. Wie ist es gemeint, eine feste Masche in die Gruppe der Doppelstäbchen zu häkeln? Macht man die fM so locker,dass sie über die ersten vier Doppelstäbchen geht oder häkelt man die Doppelstäbchen zusammen? So ganz klar geworden ist mir das nicht. Vielen Dank!

09.04.2015 - 09:44

DROPS Design answered:

Sie häkeln die Doppelstäbchen zusammen, maschen also 4 D-Stb gemeinsam ab. Die 4. Rd haben Sie mit 1 Kett-M in die 4. Lm des Rd-Beginns beendet. Dann folgt direkt eine "Büschel-Masche", d.h. die 4 zusammengehäkelten D-Stb. In diese M können Sie nun die erste fM häkeln. Dann kommen 6 Lm, womit Sie den Abstand zur nächsten "Büschel-M" überbrücken.

11.04.2015 - 08:45

country flag Diana wrote:

Hallo, Ich habe das süsse Kleid fast fertig, verstehe aber bei der Anleitung für die Spitzenkante die letzte Reihe 5 nicht ganz. Wie ist es gemeint, eine feste Masche in die Gruppe der Doppelstäbchen zu häkeln? Macht man die fM so locker,dass sie über die ersten vier Doppelstäbchen geht oder häkelt man die Doppelstäbchen zusammen? So ganz klar geworden ist mir das nicht. Vielen Dank!

08.04.2015 - 22:13

DROPS Design answered:

Antwort siehe oben! :-)

11.04.2015 - 08:50

country flag Tanja wrote:

Bonjour, comment faites vous pour faire tenir le chapeau debout comme dans la photo? Le mien ne garde pas sa jolie forme de cloche et les rebords de "rebiquent" pas, tout est mou et flasque. Dois-je amidonner l'ouvrage et si oui, comment ?

06.04.2015 - 23:12

DROPS Design answered:

Bonjour Tanja, vérifiez bien votre tension - vous pouvez amidonner légèrement la bordure si vous souhaitez. Votre magasin DROPS pourra vous donner des conseils si nécessaire. Bon crochet!

07.04.2015 - 10:29

country flag Lena Brandt wrote:

Jag virkar klänningen i strl 1/33 mån och undrar hur man gör följande av minskning (växelvis varje och vartannat v) "Nu virkas det 1 st i varje st samtidigt som det avm 1 st i varje sida totalt 12 ggr - läs avm.tips-1: På stl 1/3 mån: växelvis varje och vartannat v"

30.03.2015 - 14:49

DROPS Design answered:

Hej Lena, när vi skriver "växelvis varje och vartannat v" menar vi minska på varv 1,2,4,5,7,8,10 osv. Lycka till!

15.05.2015 - 12:01

country flag Hélène wrote:

Rebonjour, Excusez- moi d'insister mais je ne comprends pas en quoi cette vidéo montre une bride différente de celle habituelle montrée dans la vidéo de base mise en lien dans les vidéos de ce projet tricot? Merci !

21.03.2015 - 16:02

DROPS Design answered:

Bonjour Hélène, c'est effectivement une bride tout ce qu'il y a de plus classique, la vidéo avait pour but de bien montrer comment crocheter dans la bride du rang précédent. Bon crochet!

23.03.2015 - 09:01

country flag Hélène wrote:

Bonjour, Dans l'info crochet, je ne comprends pas ce que veut dire "piquer dans la bride et non pas entre les deux". Merci !

20.03.2015 - 18:21

DROPS Design answered:

Bonjour Hélène, on pique le crochet sous les 2 brins de la bride du rang précédent, comme dans la vidéo ci-dessous. Bon crochet!

21.03.2015 - 10:13